Morgunblaðið - 20.04.1994, Page 1
HEIMILI
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1994
BLAÐ
EsOs-
staóír
Uppbyggingin á Egilsstöðum
hefur verið hröð á undan-
förnum árum. Langmest hefur
verið byggt þar af einbýlishús-
um og raðhúsum en mun
minna af fjölbýlishúsum. Kem-
ur þetta fram í grein eftir Bene-
dikt Sigurðsson, fréttaritara
Morgunblaðsins á Egilsstöð-
um, hér í blaðinu í dag. Eftir-
spurn eftir lóðum þar er jöfn
og góð, enda er verðið á þeim
hagstætt. Allar lóðir inni í bæn-
um eru nú uppurnar, en verið
að skipuleggja svæði fyrir
áframhaldandi uppbyggingu.
Ólíkt sumum stöðum á landinu
er ekki offramboð á iðnaðar-
húsnæði á Egilsstöðum, en
mikill smáiðnaður þrífst þar.
11
Umsóknir um og samþykkt skuldabréfskipti
1993 til mars 1994 - notaðar íbúðir r
Innkomnar umsóknir
400
350
300
250
200
150
100
50
0
Húsbréfa-
lcerfíó
Mun meiri hreyfing hefur
verið á notuðum íbúðum
fyrstu þrjá mánuði þessa árs
en á sama tímabili í fyrra og
það er ekki að sjá, að hún fari
minnkandi. Samþykktum
skuldabréfaskiptum fhús-
bréfakerf inu fækkaði að vísu
aðeins í marzmánuði miðað við
febrúar sl. eða úr 328 í 315,
en á sama tíma fjölgaði inn-
komnum umsóknum um
skuldabréfaskipti vegna not-
aðra fbúða úr 340 í 360.
Raunverð á íbúðum í fjölbýli
í Reykjavík var mjög stöðugt f
fyrra en í heild fækkaði kaup-
samningum, sem bárust Fast-
eignamati ríkisins á síðasta ári
um 13% miðað við árið 1992.
Þetta sýnir verulegan sam-
drátt. Mikil umskipti urðu hins
vegar eftir vaxtalækkanirnar í
nóvember, en þá tók fasteigna-
markaðurinn mikinn kipp, enda
fjölgaði umsóknum um skulda-
bréfaskipti f húsbréfakerfinu
verulega f kjölfarið eins og
meðfylgjandi teikning ber með
sér. Síðan dró aftur úr þeim f
desember og janúar, en venju-
lega eru fasteignaviðskipti
með minnsta móti í skamm-
deginu.
Gíljahverfí
á Aliiiieyii
Akureyringum hefur sjaldan
verið boðið upp á jafn
góðar byggingarlóðir og þeim
bjóðast nú í Giljahverfi en deili-
skipulagi þess er nú lokið og
er verið að bjóða út lóðir f IV.
áfanga.j>ess. Kemur þetta fram
ígrein eftir Margréti Þóru
Þórsdóttur, fréttaritara Morg-
unsblaðsins á Akureyri. Gilja-
hverfi er lokaáfangi uppbygg-
ingar íbúðabyggðar í Glerár-
hverfi um sinn, en hverfið teng-
ir saman byggð sunnan og
norðan Glerár. Gert er ráð fyrir
byggingu allt að 770 íbúða f
hverfinu og að í þvífullbyggðu
búi um 2.000 manns. Meðtil-
komu nýrrar brúar yfir Glerá
við Sólborg verða samgöngur
við miðbæ greiðar.
10