Morgunblaðið - 20.05.1994, Blaðsíða 1
HEIMIU
fHwétuiMnfetfe'
FOSTUDAGUR 20. MAI1994
BLAÐ
BYKO
Að þessu sinni fjailar Bjarni
Olafsson um BYKO í þætti
sínum, Smiðjan. Hann rekur
sögu fyrirtækisins, frá því að
það hóf starfsemi og rekur þær
breytingar og framfarir, sem
orðið hafa í timbursölu hér á
landi á undanförnum árum. —
Ég hef átt þess kost að heim-
sækja og skoða nokkrar sögun-
arverksmiðjur erlendis m. a. í
Þýzkalandi, segir Bjarni. —
Hvergi hef ég séð sjálfvirkni,
er jafnast á við sögunarverk-
smiðjuna hjá BYKO.
24
Endurnýj-
un húsa
Við endurnýjun gamalla húsa
er margs að gæta. Það
þarf að finna það út, hvað ber
að varðveita og hvað má víkja
og verðmæti eignarinnar eftir
endurnýjunina þarf að vera í
samræmi við þá fjármuni, sem
lagðir hafa verið í eignina
vegna endurnýjunarinnar.
Þetta kemur m. a. f ram í við-
tali við Björn H. Jóhannesson
arkitekt hér í blaðinu í dag.
Björn segir ennfremur, að
íslenzkir arkitektar standi að
mörgu leyti betur að vígi í störf-
um sínum en starfsbræður
þeirra eriendis. íslenzkir arki-
tektar eru menntaðir við beztu
menntastofnanir bæði í Evrópu
og Ameríku og í raun menntað-
ir til þess að takast á við miklu
viðameiri verkefni en þeirfást
hér viðdaglega.
Veróþróun
/
1
| yndin hér til hliðar sýnir
verðþróun í íbúðum í
fjölbýli í Reykjavík á síðasta
ársfjórðungi 1993 og þremur
fyrstu mánuðum þessa árs.
Miðað er við söluverð á fer-
metra (nafnverð). Ef verðið í
marz sl. er borið saman við
síðasta ársfjórðung ífyrra, sést
að verðið hefur ekki lækkað
heldur hækkað ef nokkuð er. í
marz sl. var fermetraverðið
sem hér segir, en til saman-
burðar er verð á síðasta árs-
fjórðungi 1993 innan sviga: Á
1- 2ja herb. íbúðum kr. 91.488
(kr. 85.483), á 3ja herb. íbúðum
kr. 85.373 (kr. 80.102), á 4ra
herb. íbúðum kr. 78.125 (kr.
75.285) og á stærri íbúðum kr.
64.314. (kr. 68.976)
Þetta eru athyglisverðartöl-
ur, þegar tekið er tillit til þess,
að sl. haust spáðu ýmsir lækk-
andi fasteignaverði. Benda má,
að tölurnar fyrir marz eru
byggðar á 75 kaupsamningum,
sem er svipaður fjöldi og að
meðaltali íhverjum mánuði á
síðasta ársfjórðungi ífyrra.
Þess ber þó að gæta, að með-
alstærð seldra íbúða í marz var
eitthvað minni, en fermetra-
verð er yfirleitt hlutfallslega
hærra í minni fbúðum.
(Heimild: Fasteignamat ríkis-
ins).
Fermetraverð i fjolbyli i Reykjavik (Nafnverð)
október - desember '93 og janúar, íebruar og mars '94
.l00, 1-2 herbergi
Þ^r ^ ____ 3 herbergi
4 herbergi
Fleiri en
4 herbergi
. tó -q4 'QA ’QÍ >qA 'Qi 'Qft '0|i 'QlV 'Qft 'QÍ '$ ’QA ’QlV