Morgunblaðið - 20.05.1994, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1994
DJIO
24 C
62 55 30
SÍMATÍMI LAUGARD.
FRÁ KL. 10-13
Einbýlishús
BERGHOLT - MOS.
Mjög.falleg einbýlishús, 180 fm m.
samb. bílskúr 32 fm. 4 svefnherb.
Parket. Arínn. Hitalögn í stéttum.
Skipti möguleg.
SÓLBRAUT - SELTJN.
Stórgl. og vandað eínbhús 229 fm
m. tvöf. bílsk. Húsbóndaherb., 3
svefnherb., stofa, boróstofa. Parket,
flfsar. FrSb. staðsetn. v. sjávarslð-
una. Hagstætt verð.
HJARÐALAND - MOS.
Nýl. timburh. 160 fm ásamt 40 fm
bflsk. Stofa, 4 svefnherb. Áhv. 2,3
millj. Verð 11,9 mlllj.
GILJASEL - TVÆR IB.
Vorum að fá í einkasölu parhús á 2
hæðum, 230 fm ásamt 30 fm bílsk.
m. rúmg. 2ja herb. íb. á 1. hæð.
Eignin er f mjög góðu ástandi.
OKKUR VANTAR EIGNIR A SKRA
GÓÐ HREYFING í SÖLU.
Láttu skrá eignina hjá okkur.
Skoðunargjald er innifalið í söluþóknun.
HRAUNTUNGA - KÓP.
Stórglæsil. einb. á hornlóö, 230 fm
m. 32 fm bílskúr. Elgn f toppstandl.
Nýjar innr. Parket og fifsar. Suður-
garður. Hiti I plani. Mögul. á 2ja-3ja
herb. fb. á jarðh.Frábær elgn.
HJALLALAND - RAÐH.
Rúmg. 2ja hæða endaraðh. 198 fm
ásamt 21 fm bílsk. Fallegur suður-
garður. Mögul. á 2ja herb. fb. á
neðri hæð. Verð 14,3 millj.
BÚAGRUND - KJAL.
Nýbyggt tímbur einbh. 193 fm með
46 fm bílsk. Ekki fullb. Áhv. 6,3
mitlj. Verð 8,9 millj.
BJARTAHLÍÐ - MOS.
Nýtt endaraöh. 133 fm m. 26 fm
bflsk. 3 svefnherb. Sér garður. Áhv.
6,0 mlllj. Verð 9,7 mlllj.
B Ll KASTÍGUR- ÁLFT.
Nýtt fokh. timbur einbh. 187 fm með
bllskplötu 48 fm. Hagstætt verð 7,2
mlllj. Áhv. 6 mlllj.
VIÐITEIGUR - MOS.
Nýl. raðh. 94 fm, stofa, 2 svefnherb.
Sólstofa. Parket. Fllsar. Sérinng. og
garður. Áhv. veðd. 2,3 millj. Verð
8,7 millj.
KALDASEL - TVÆR
ÍBÚÐIR
Stór einbýlishús, 200 fm, 4 svefn-
herb. parket. 2ja herb. ibúð 63 fm
á 1. hæð og 36 fm bflskúr. Skipti
möguleg. Verð 16,5 mlllj.
ÁSLAND - MOS.
Nýl. parh. 134 fm m. 28 fm bílsk.
Sóistofa, 3 svefnherb. Parket. Sér
suðurgarður. Góð staðsetn. Áhv. 7
millj. Verð 11,5 millj.
Sérhæðir
Raðhús
BUGÐUTANGI - MOS.
Fallegt endaraðh. 65 fm Nýjar Innr.
Sérlnng. og garður. Áhv. 4,3 millj.
Verð 6,2 millj.
BORGARTANGI - MOS.
Rúmg. sérh. 164 fm með 36 fm
bílsk. 4 svefnherb. Eignin er boðin
á sérstöku verði. Á að seljast fljótt.
Áhv. 6,1 millj. Verð 9,5 millj.
AKURGERÐI - FLÚÐUM Til sölu nýbyggt glæsil. einb. 135 fm ésamt steyptri bilskplötu. Eignin er öll hin vandaöasta. Fallegar Innr. Parket og marmari. PRESTBAKKI - RAÐH. Fallegt raöh. 211 fm á 2 hæöum m. 28 fm bilskúr. Stórar suðursv. og garður. Hhi I stéttum. Laust strax.
GRUNDARTANGI - MOS.
Nýl. endaraöh. 62 fm með sérinng.
og garöi. Verönd. Áhv. 1,4 millj.
Verð 5,8 millj.
LEIRUTANGI - MOS.
Góð efri sérh. 103 fm m. herb. í risí.
Parket. Sérínng. og garöur. Áhv. 6,6
minj. Verð 8,9 millj.
2ja herb. íbúðir
ASPARFELL - 2JA
Nýstands. 2ja herb. fb. i lyftuh. á
4. hæð. Góö eign. Verð 4,2 milij.
UGLUHÓLAR - 2JA
Falleg rúmg. 2ja herb. ib., 65 fm á
1. hæð i litlu fjölbhusl. Parket. Sér-
verönd. Verö 5,3 millj. Laus strax.
HÁALEITISBRAUT - 2JA
Vorum að fá I sölu 2ja herb. íb, 57
fm á 4. hæð. Svalir. Mlkið útsýni.
Verð 4,8 mlllj.
3ja-5 herb.
STÓRAGERÐI M/BÍLSK.
Höfum til sölu rúmg. 4ra herb. íb. á
1. hæð, 102 fm m. 22 fm bílskúr.
Ib. er f góðu standi og laus strax.
Hagstætt verð.
KLEPPSVEGUR - 4RA
Rúmg. 4ra herb. íb. á jarðh. 3 svefn-
herb. Stór stofa. Áhv. 4,2 millj.
Verð 6,5 mlllj.
FÁLKAGATA - 4RA
Rúmg. 4ra herb. ib. 95 fm á 1.
hæð. 3 svefnherb. Parket. Suður-
svalir. Áhv. 3 mlllj. Verð 7,6 millj.
EFSTIHJALLI - 4RA
Falleg 4ra herb. íb. 90 fm á 2. hæð.
3 svefnherb. Parket. Suðursv. Skipti
mögul. Verð 7,6 mlllj.
JÖRFABAKKI - 5 HERB.
Rúmg. 5 herb. fb, 110 fm á 1. hæð.
Tvennar svalír. 3 svefnherb. 12 fm
herb. á jarðh. Mögul. á húsbr. 5,1
millj. Laus strax. Verð 7,9 miltj.
HRAUNBÆR - 4RA
Falleg og björt 4ra herb. ib. 100 fm
á 2. hæö. 3 svefnherb. Vestursvalir.
Laus strax. Verð 7,4 millj.
MAVAHLIÐ - 3JA
Vorum að fá í einkasölu rúmg. 3ja
herb. fb. 80 fm á jarðh. Sér inng.
Áhv. 3 millj. veðd. 4,9% vextir.
Verð 6,3 millj.
HAHOLT - HF.
Ný rúmg. 4ra herb. íb. 125 fm á 3.
hæð, 3 svefnherb. Áhv. 6,5 millj.
Verð 8,9 millj.
ÁSBRAUT - KÓP.
Góð 3ja herb, ib. 90 fm á 3. hæö.
Sérinng. Parket. Suðursv. Áhv. 4,3
mlllj. Verð 6,6 miltj.
KLE PPSVEGUR
LYFTUH.
Falleg og björt 4ra herb. ib. 90 fm
í nýstands. lyftuh. m. suðursv. Mikið
útsýni. Lau$ strax. Verð 6,7 mlllj.
SÚLUHÓLAR - 3JA
Rúmg. falleg 3ja herb. ib. 90 fm á
1. hæð, 2 svefnherb. Parket. Verð
7,2 mlllj.
Ymislegt
BJARTAHLÍÐ - MOS.
Eitt hús eftir af þessum vínsælu.
nýbyggðu raðhúsum 120 fm með
24 fm bilskúr. Afh. fullfrág. að utan,
fokh. að innan. Verð 6,7 mlllj.
VERSLHÚSN. - MOS.
Til sölu nýbyggt verslhús 128 fm á
1. hæð í miðbæ Mos. Mögul. að
skipta í tvær eln. Tll afh. strax.
HLÍÐARÁS - MOS.
Höfum til sölu eignarlóð, 1500 fm
f. parhús. Verð 1,2 millj.
j Sæberg Þórðarson,
löggiltur fasteigna- og skipasali,
Skúlatúni 6, s. 625530.
Smiðjan
Saga BYKO
ÉG SKRIFAÐI um Húsasmiðj-
una fyrir skömmu og held nú
áfram á sömu braut og skrifa
um Byko. Þessi tvö fyrirtæki
eru nú stærstu timburvöru- og
byggingarefnafyrirtæki á suð-
vesturhorni landsins. Húsa-
smiðjan í Reykjavík og Byko í
Kópavogi.
Margir muna ennþá Byko
verslunina við Nýbýlaveg.
Þar var oft þröng á þingi og síð-
degis á föstudögum og fyrir há-
degi á laugardögum var oft hið
mesta vandamál að finna bílnum
stað á meðan
verslað var.
Ýmsir muna
einnig eftir timb-
ursölunni niður
við botn Fossvogs
rétt hjá þar sem
eftir Bjarno Ólofsson "mnur
ut í sjoinn. Stund-
um var illfært að komast þangað
á bíl sökum þess hve miklar vilpur
mynduðust í veginn, þegar frost
var að fara úr jörðu og þegar
'vætutíð var. Nú hefur fyrirtækið
flutt starfsemi sína ofar á ásana.
Þar valda slæmar götur ekki leng-
ur vegatálma. Aðstaðan er öll önn-
ur því að byggð hafa verið ný
hús, hönnuð fyrir starfsemina sem
fyrirtækið rekur nú.
Stutt söguágrip
Ég leyfi mér að vitna í örstutt
yfirlit úr handbók Byko um timb-
ur, þar segir: „Árið 1962 opnuðu
Guðmundur H. Jónsson og Hjalti
heitinn Bjamason 135 fermetra
byggingarvöruverslun við Kárs-
nesbraut í Kópavogi. Fyrsta árið
var eingöngu verslað með grófa
vöru en innan árs var opnuð smá-
söluverslun á sama stað.
Tíu árum síðar, eða árið 1972
var verslunin flutt að Nýbýlavegi
í stærra og hentugra húsnæði.
Það var svo árið 1980 að stórt
athafnasvæði fyrir timbursöluna
var tekið í notkun við Skemmu-
veg, þar sem nú kallast Breidd.
Byko í Hafnarfirði var opnað
1984, Byggt og búið í Kringlunni
1987.
Árið 1988 flutti Byko verslunin
af Nýbýlaveginum í nýtt og rúm-
gott verslunarhúsnæði við
Skemmuveg, inn í Breiddina.
Nýjasta verslun Byko opnaði
1991 við Hringbraut.“ Tilvitnun
líkur.
Timbur
Allmikil breyting hefur orðið í
sambandi við timbursölu. Timbrið
er nú fáanlegt alheflað, eins og
það er kallað. Þá eru allar fjórar
hliðar borðanna heflaðar og auk
þess eru brúnirnar rúnnaðar. Það
eru ekki liðin mörg ár frá því að
viðurinn fékkst helst óheflaður.
Þá voru tijástofnarnir aðeins sag-
aðir niður í mismunandi þykktir,
breiddir og lengdir. Það hefur tið-
kast að mæla allt timbur með
tommu og feta máli. Sú mæliein-
ing heldur í raun og veru velli
ennþá enda þótt talað sé um
metramál. Ég tek sem dæmi: 10’
af l“x 6“ merkir 10 fet af 1 tommu
þykku borði sem er 6 tommu
breitt. Þetta er nú mælt í metra-
máli en sömu stærðir haldast. 10
fet eru 3 m og 1 tomma x 6 tomm-
ur verða í millímetrum 25x150
mm. Þegar svona borð hefur verið
heflað rýrnar það við heflunina
og mælist 21x145 mm.
Önnur mikilvæg breyting hefur
orið í sambandi við timbursölu.
Hún felst í því að hægt er að kaupa
hvort sem maður vill heldur fúa-
varið timbur eða ófúavarið. Þ.e.
timbur sem fúavarnarefni hefur
verið þrýst inn í viðinn með sér-
stökum háþrýstibúnaði. Það er oft
nefnt gegnvarið, vegna þess að
Framhlið smávöruverslunar.
fúavarnarefnið þrýstist í flestum
tilvikum alveg inn í miðju viðarins.
Þróun
Eins og ég gat um í smiðju-
grein í síðastliðinni viku ríktu hér
verslunarhöft eftir heimsstyijöld-
ina og alveg fram undir 1960.
Þessi tvö byggingavörufyrir-
tæki verða þá til. Það er skemmti-
legt að lesa um þróunina sem lýst
er hjá Byko hér á undan. Því mið-
ur átti ég þess ekki kost að birta
mynd af húsnæði fyrirtækisins frá
fyrstu árum þess. Hér birtast
myndir af tveimur húsum Byko. Á
mynd nr. 1 er framhlið timbur og
plötuafgreiðslu, sem er á neðri
hæð þessa húss, á efri hæðinni eru
skrifstofur og teiknistofur. Á
mynd nr. 2 sést framhlið smávöru-
verslunarinnar. Þetta hús stendur
í töluverðum halla og er verslunar-
hæð undir þessari verslun. Þar er
gengið inn af götu neðanvert við
húsið og eru þar seldar þiljur,
gólfefni, skápar og hreinlætistæki,
röraefni o.fl.
Verslunin hefur þróast svo að
húsin eru betri en upphaflega. Á
athafnasvæði timbursölunnar eru
fjölmörg skýli og skemmur þar
sem innitimbur og þurrkað timbur
er geymt og afgreitt.
Vélar
Til framþróunar má telja vélar
sem notaðar eru við vinnslu á
timbrinu. Þarna inni í stóru húsi
eru afar stórar vélar sem notaðar
eru til þess að saga niður og vinna
timbur af ýmsum gerðum.
Ég hefi átt þess kost að heim-
sækja og skoða nokkrar sögunar-
verksmiðjur erlendis, m.a. í Þýska-
landi. Hvergi hefi ég séð sjálf-
virkni í slíkum búnaði er jafnast
á við sögunarverksmiðjuna í Byko.
Þarna er hægt að saga niður í
borðvið heila tijástofna.
Auk þess er timbrið unnið meira
en áður var gert hérlendis. Ég gat
um það hér að framan að nú get-
um við keypt timbur heflað á alla
vegu. Það er tii mikilla þæginda.
Einnig er gott að við heflunina eru
hornin rúnnuð svolítið á viðnum.
Það er til bóta og er miklu þægi-
legra að handleika timbrið ef brún-
irnar eru rúnnaðar.
Ég verð að skjóta hér inn að
fyrr á árum var stundum hægt
að kaupa við sem var heflaður
öðru megin en tæpast alheflaðan,
nema ef um var að ræða gólfborð
eða panil.
Nú eru til stórvirkar vélar til
vinnslu á ýmiss konar staurum,
borðum og listum.
Þurrkun timburs
Það telst ekki til nýrrar þróunar
að hægt sé að þurrka timbur hér-
lendis. Timburverslanir hafa um
langan aldur haft þurrkofna og
getað þurrkað timbur eftir þörfum.
Það er einkum nauðsynlegt að
þurrka vel allan við sem nota skal
inni. Þetta á einnig við um harð-
við, sem notaður er í vandaðar
smíðar.
Gagnvarið
Þegar talað er um gagnvarið
timbur er átt við að fúaveijandi
efnum hefur verið þrýst inn í við-
inn, þ.e. sölt og olíur. Velja má
þrennskonar mishaldgóða vörn:
A,-B, - og M.