Morgunblaðið - 15.07.1994, Blaðsíða 3
2 B FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
HM I KNATTSPYRNU
Einvígi
Brasilíumenn leika til úrslita gegn ítölum
Eitt mark gefur
ekki rétta mynd
af yf irburðunum
„VIÐ áttum 29 skot að marki og 1:0 gefur ekki sanngjarna mynd
af yfirburðum okkar,“ sagði Carlos Alberto Parreira þjálfari Bras-
ilfu eftirað Brasilíumenn sigruðu Svía í undanúrslitum HM með
einu marki gegn engu og tryggðu sér rétttil að leika til úrslita í
keppninni í fyrsta sinn í 24 ár. Þar mæta þeir ítölum, líkt og í úr-
slitaleiknum fyrir 24 árum, en þá sigruðu Brasilfumenn með fjórum
mörkum gegn einu. Markið skoraði Romario á 81. mínútu eftir nær
stanslausa sókn Brasilfumanna allan leikinn. Brasilíumenn fögnuðu
sigrinum grfðariega og var dansað á götum langt fram eftir nóttu
f Brasilfu.
Við áttum allan leikin, sköpuðum
öll tækifærin en eina vanda-
málið var að koma boltanum i net-
ið,“ sagði Parreira. Tommy Svensson
þjálfari Svía sagði að sínir menn
væru ekki búnir að jafna sig eftir
leikinn gegn Rúmenum í átta liða
úrslitum. „Það var of stutt á milli
leikjanna. Þetta var erfitt, við vorum
með tvo leikmenn sem ekki voru al-
veg í lagi og það þarf allt að vera
100 prósent í lagi þegar menn mæta
Brasilíu. Þeir fengu svo mörg mark-
tækifæri að markið hlaut að koma.
Ég var ekki hissa þegar það svo
gerðist," sagði Svensson.
Fyrirliða Svía, Jonasi Thern, var
vikið af leikvelli í síðari hálfleik, eft-
ir „besta Hollywood atriði síðari ára,“
eins og hann orðaði það sjálfur. Bras-
ilíumaðurinn Dunga sýndi leikræna
tilburði og náði að fiska Thern út
af, og gagnrýndi sá síðarnefndi dóm-
arann harðlega. „Hver veit hvað
hefði gert ef við hefðum leikið ellefu
allan tímann. Við hefðum alveg get-
að sigrað. Við lékum ekki vel í fyrri
hálfleik, en tíu mínútum áður en ég
var rekinn út af fannst mér sem
Brasilíumenn væru orðnir taugast-
rektir og þeir voru farnir að taka
meiri áhættu en þeir gerðu í fyrri
hálfleik," sagði Thern. Markvörður-
inn Ravelli tók undir gagnrýni
Thems og sagði að dómarinn hefði
ekki séð atvikið, aðeins þegar Dunga
flaug í loftinu. „Það voru mistök að
reka hann út af. Dómaramir í keppn-
inni hafa gert mikið af mistökum,"
sagði hann. Ravelli tók undir með
þjálfaranum og sagði að tveggja
daga hvíld milli leikja væri ekki
nægilega mikil. Fyrir síðasta leik
höfðum við viku hlé, en aðeins
tveggja daga hlé fyrir undanúrslita-
leikinn, þetta er heimsku'iegt skipu-
lag,“ sagði Ravelli.
Svensson sagðist vera óánægður
með tapið, en hann yrði að viður-
kenna að þeir hefðu tapað fyrir betra
liði. „Mótið hefur verið frábært og
þegar við lítum til baka verðum við
ánægðir með árangurinn."
Brasilía - Svíþjóð 1:0
Pasadena, 13. júlí.
Mark Brasilíu: Romario (80.)
Dómari: J.T.Cadena (Kól.)
Rautt spjald: Thern (63.)
Gult spjald: Zinho (4.) Roger
Ljung (29.), Brolin (86.)
Brasilía: Taffarel, Jorginho,
Aldair, Marcio Santos,
Branco, Dunga, Mauro Silva,
Mazinho (Rai 46.), Zinho,
Bebeto, Romario.
Svíþjóð: Thomas Ravelli, Ro-
land Nilsson, Patrik Anders-
son, Jonas Bjorklund, Roger
Ljung, Hakan Mild, Tomas
Brolin, Jonas Thern, Klas Ing-
esson, Martin Dahlin (Stefan
Rehn 68.), Kennet Andersson.
...............SVÍ - BRA
Mörk............ 0 - 1
Markskot....... 3-26
Brot............11 - 15
Hornspyrnu...... 0 - 4
Rangstaða....... 4 - 1
Sigurmarkið
Reutcr
Romario skoraði sigurmark Brasilíumanna á 81. mínútu með
skalla, boltinn skoppaði í jörðina og upp í þaknetið án þess að
Ravelli í markinu hefði neitt um það að segja, eins og sést á
myndinni að ofan. Romario var hylltur eftir leikinn og gekk um
völlinn fagnandi með brasilíska fánann eins og sést að ofan.
í augsýn
MJÓLKURBIKAR KSÍ
VALUR - FRAM
Ársmiðar,
heimaleikjakort og
boðsmiðar barna
gilda ekki
í kvöld kl. 20
AEG
mövc E/?GÓÐ
ÍSLENSKUR MJÓLKURIÐNAÐUR
Golf helgarinnar
Stigamót hjá GR
Opna Lacoste mótið verður hjá Golf-
klúbbi Reykjavíkur um helgina. 36 holur
með og án forgjafar. Gefur stig til landsliðs.
Golfklúbbur Sauðárkróks
Opna Flugleiðamótið verður um helgina
á Sauðárkórki. 36 holur með/án forgjafar.
Golfklúbbur Norðfjarðar
Sparisjóðsmótð verður haldið á Neskaup-
stað um helgina. 36 holur með/án forgjafar
Golfklúbbur Borgarness
Opna Gevalia verður haldið á laugardag-
inn. 18 holur með og án forgjafar.
Golfklúbbur Ness
Opna Eimskipsmótið verður á Nesvelli á
laugardag. 18 holur með og án forgjafar.
Kirkjubæjarklaustur
Eldmessumót Kirkjubæjarklausturs verð-
ur haldið á laugardag og verða leiknar 18
holur með og án forgjafar.
Golfklúbbur Suðurnesja
Opin hjóna- og parakeppni verður í Leir-
unni á laugardaginn og verða leiknar 18
holur með forgjöf.
Golfkiúbbur Sandgerðis
Opna Bláa lónsmótið verður hjá Golf-
klúbbi Sandgerðis á sunnudaginn. Leiknar
verða 18 holur með og án forgjafar.
Kjölur í Mosfellsbæ
Opna Kenzo kvennamótið verður haldið
laugardag. 18 holur með og án forgjafar.
Leynir á Akranesi
Opna Clarins kvennamótið verður haldið
á sunnudaginn. 18 holur.
ROMARIO, brasiliski soknarmaðurinn snjalli, var þegarfarinn
að hugsa um úrslitaleikinn gegn ítölum á sunnudaginn eftir leik-
inn gegn Svíþjóð og sagðist sjá hann fyrir sér meðal annars sem
einvígi milli hans og ítalans Robertos Baggio. í þeim leik yrði
útkljáð hver væri besti sóknarmaðurinn í keppninni. „Við höfum
báðir sýnt að við getum skorað mikilvæg mörk fyrir okkar lið.
Ég er viss um að það lið sem sigrar verður það lið sem hefur á
að skipa besta leikmanni keppninnar," sagði Romario.
Báðir hafa þeir skorað fimm
mörk í keppninni, einu færra
en Búlgarinn Hristo Stoichkov og
Igor Salenko frá Rússlandi.
Baggio gekk illa til að byrja
með, en reif sig upp og ítalska liðið
með þrátt fyrir að hafa átt við þrál-
át meiðsli í lærvöðva að stríða. Það
gæti hins vegar sett strik í reikning-
inn að meiðslin tóku sig upp í leikn-
um á móti Búlgörum í undanúrslit-
unum eftir að hann hafði skorað
tvö mörk. Haft var eftir lækni ít-
alska liðsins í gær að helmingslíkur
væru á því að Baggio myndi ná sér
fyrir úrslitaleikinn.
Velgengni Itala í útsláttarkeppn-
inni hefur að mestu verið eignuð
honum, hann skoraði jöfnunarmark
á móti Nígeríumönnum rétt fyrir lok
venjulegs leiktíma í sextán liða úr-
slitunum, og sigurmarkið síðan í
framlengingunni. A móti Spánveij-
um í átta liða úrslitum gerði hann
sigurmarkið skömmu fyrir Ieikslok,
og í undanúrslitaleiknum gegn
Búlgaríu gerði hann mörkin tvö seni
'skiluðu Italíu sigri og úrslitaleikn-
um.
Romario hefur líka verið iðinn
við kolann fyrir framan markið en
líka átt í erfiðleikum með að skora
eins og sást í leiknum gegn Svíum.
Hann fékk tvö gullin tækifæri til
að skora í fyrri hálfleik, og skoraði
síðan sigurmarkið í seinni hálfleik.
„Sóknarmenn eru þarna frammi til
þess að skora mörk, en líka til að
klúðra færum,“ sagði Romario.
MORGUNBLAÐIÐ
DÓMARAMÁL
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1994 B 3
Frammistaða knattspyrnudómara í brennidepli
Virkara eftiriits-
kerfi gæti fækkað
óánægjuröddum
GAGNRÝNI á dómara sem dæma f 1. deildinni f knattspyrnu hefur
verið nokkuð áberandi upp á síðkastið. Hefur hún einkum komið
frá þjálfurum og leikmönnum liða, og beinst að mörgum þáttum
í dómgæslunni, eins og því að ósamræmi sé mikið f dómgæslu,
hagnaðarreglunni sé lítið beitt og margir dómarar virðist ekki hafa
úthald f heilan leik. Einnig virðist vera ósamræmi milli dómara í
þeim skýrslum sem lagðar eru fyrir aganefnd vegna umdeildra
atvika. Það er mat forystumanna f KSI að dómaramálin séu al-
mennt ekki í slæmu máli, en virkara eftirlitskerfi sé þó til bóta og
gæti fækkað óánægjuröddum. Eggert Steingrímsson formaður
aganefndar og stjórnarmaður í KSI segir að dómarar hafi staðið
sig almennt vel í sumar, en auðvitað geri þeir mistök. Eggert seg-
ir að fram hafi komið innan KSÍ hvort dómaranefndin, sem hafi
agavald yfir dómurum, eigi ekki að grfpa til aðgerða fyrr vegna
dómara sem ekki standa sig, en ekki bfða til haustsins eins og nú
sé gert.
Sigurður Lárusson þjálfari 1.
deildar liðs Þórs sagði í Morg-
unblaðinu í vikunni að augljóst ós-
amræmi væri í skýrsl-
um sem dómarar skil-
uðu inn til aganefndar
vegna umdeildra at-
vika, sem gerði það
að verkum að ósam-
ræmi í úrskurðum
nefndarinnar væri
sláandi. Eggert Stein-
grímsson formaður
aganefndar og stjórn-
armaður í KSÍ sagði að þeir hjá aga-
nefndinni gætu ekki farið eftir öðrum
gögnum en skýrslum dómara og eftir-
litsmanna, og ef ekkert kæmi fram í
þeirra skýrslum um atvik gætu þeir
lítið gert. „Ef dómarar og eftirlits-
menn skýra ekki frá
því sem gerist getur
skapast ósam-
ræmi,“ sagði Bgg-
ert. Aðspurður
sagði hann að aðil-
um væri heimilt að
flytja mál sín fyrir
nefndinni og leggja
gögn fyrir í alvar-
legri máium, þar á
meðal sjónvarps-
upptökur.
Er ekki athugun-
arefni ef misræmi
er í skýrslum dóm-
ara til aganefndar?
„Ég er sammála
því, en hins vegar
breytum við ekki
þeim dómi sem fell-
ur á vellinum. Ðóm-
arar gera mistök í
þessu eins og öðru.
Við sjáum mörk
skoruð sem öllum
finnst rangstöðu-
mörk, og við sjáum
leikmenn í HM-keppninni sem eru
reknir af velli fyrir litlar eða engar
sakir. Aganefnd breytir ekki þeim
dómi. Að þessu leytinu til snýr málið
ekki að aganefnd, heldur þarf að
huga að því hvernig dómara- og hæfn-
isnefndin á að taka á því þegar dóm-
urum verða á mistök. Hér heima eru
dómarar metnir af hæfnisnefnd og
listinn yfir A-dómara í fyrra hefur
breyst. Spumingin er hins vegar sú
hvort að menn eigi að þurfa að bíða
til haustsins rneð þetta mat. Mér sýn-
ist menn vera sendir heim í HM-
keppninni þegar þeir gera mistök. Ef
dómari verður uppvís að einhvetjum
mistökum hér, af hveiju eigum við
að bíða eftir haustinu?“
Sýnist þér vera tilefni til þess núna
að gera eitthvað róttækt í þessum
málum?
„Það hefur kannski verið tilefni til
þess lengi. Reglurnar hafa verið hert-
ar að undanförnu og það kemur til
álita að hæfnisnefndin og eftirlits-
kerfi dómaranefndarinnar eigi að vera
virkari og taka fýrr á málum, og
ekki bíða haustsins og næsta keppnis-
tlmabils. Hins vegar sýnist mér að
dómarar og línuverðir eigi fáa stuðn-
ingsmenn. Áhorfendur eru hrópandi
sem og forráðamenn félaga, og íþrótt-
afréttaritarar vanda þeim stundum
ekki kveðjurnar. Menn blása stundum
mikið þegar málið snýr að þeirra fé-
lögum eða félögum ákveðinna íþrótt-
afréttaritara, en þegja þunnu hljóði
þegar eitthvað gerist hjá öðrum. Menn
eru því að gera úlfalda úr mýflugu
að nokkru ieyti eina ferðina enn. Eg
held að dómaramálin séu í betra horfi
nú en oftast áður. íslenskir dómarar
hafa fengið fleiri verkefni erlendis nú
en áður með góðum vitnisburði. Það
er verið að efla eftirlitskerfið, sem
ekki er gamalt, og ég held að við
getum verið þökkalega sáttir við stöð-
una I dag,“ sagði Eggert.
Fyrirmælin eru skýr
Það er ekki aðeins ósamræmi í
skýrslugerð sem hefur farið í taugarn-
ar á mönnum heldur líka ósamræmi
í dómgæslu milli dómara, en helst þó
þegar dómarar eru ósamkvæmir sjálf-
um sér. Sigurður Lárusson nefnir
dæmi í Morgunblaðinu í vikunni um
að dómarar séu ragir við að sýna
spjöld, t.d. þegar menn sparka bolta
í burtu eftir að búið er að dæma, ef
þeir hafa gefið viðkomandi leikmanni
gult spjald áður í leiknum. Hins vegar
hiki þeir ekki við, I sama leik, að lyfta
gula spjaldinu þegar á I hlut leikmað-
ur sem ekki hefur fengið spjald áður
í leiknum, þó svo að um sama brot
sé að ræða og ekki var gefin áminn-
ing fyrir skömmu áður.
Páll Bragason formaður dómara-
nefndar KSI sagði að fyrirmæli sem
dómarar fái frá dómaranefnd væru
skýr. „Ég get eðlilega ekki talað um
einstök atvik, en ef menn eru að
ganga á svig við þau fyrirmæli og
þær regiur sem þeir hafa, og hlífa
mönnum vegna þess að þeir eru bún-
ir að fá áminningu áður, þá er það
mjög slæmt og rangt. En mér finnst
það rangur siður sem sumir þjálfarar
hafa tekið upp, að í hvert sinn sem
lið þeirra tapar leik eða næstum þvl,
þá er þyrlað upp einhveiju moldviðri
um það að dómaranum hafi orðið á
mistök.
Aðspurður um frammistöðu dóm-
ara í sumar sagðist Páll ekki hafa
orðið var við að hún væri almennt
slæm. „Ég hef nú ekki séð nema örlít-
ið brot af þeim leikjum sem fram
hafa farið I sumar eins og gefur að
skilja, en ég hef ekki orðið var við
það sjálfur og við höfum ekki séð það
á skýrslum eftirlitsmanna að þetta
sé neitt verra I sumar en áður. Ég
verð að setja mig upp á móti þeirri
skoðun að þessum málum sé að fara
aftur, ég held að þeim sé að fara fram.
Enda væri það skelfilegt ef svo væri
ekki, því markmið okkar er alltaf að
gera betur en í fýrra,“ sagði Páll.
Dómarar eru þolprófaðir á vorin
er eitthvað íylgst með dómurunum
yfír sumarið?
„Það eru eftirlits-
menn á yfirgnæf-
andi meirihluta
leikjanna I fyrstu,
annarri og þriðju
deild karla og fyrstu
deiid kvenna. Þeir
gefa álit sitt á
frammistöðu dóm-
ara og iínuvarða og
fjalla þar meðal
annars um líkam-
legt ástand. Ef að
mönnum þykir eitt-
hvað á bjáta og að
manni hafi hrakað
mikið frá því að
hann tók þolprófið,
þá er hugsaniegt að
við getum prófað
hann aftur. En því
hefur nú ekki verið
beitt að undan-
fömu,“ sagði Páll.
Dómaramálin í
ágætu horfi
Eysteinn Guð-
mundsson á sæti I dómaranefndinni
og er I forsvari fyrir hæfnisnefnd
hennar. Hann sagði að dómaramálin
væru I ágætu horfi I sumar miðað
við fyrrasumar. „Skýrslur eftirlits-
manna sína að flest allir dómararnir
hafa staðið sig vel og fengið góðar
einkunnir. Auðvitað koma upp mál
eins og Sigurður [Lárusson] var að
ræða um þar sem kenna má dómaran-
um um,“ sagði Eysteinn.
Kemur til greina að dónmranefndin
útiioki dómara sem ekki standa sig
frá frekari dómgæslu í einhvern tíma,
eða færi menn niður um fíokk?
„Það þarf að vera ansi alvarlegt
ef útiloka á menn, en við getum fært
menn á milli flokka strax um sumar-
ið, en þá þurfa menn að standa sig
illa. En einkunnir gefa til kynna að
þeir hafa staðið sig betur nú en í
fyrra, og því er ekkert tilefni til slíkra
aðgerða,“ sagði Eysteinn.
AF
INNLENDUM
VETTVANGI
Eftir
Stefán
Eiríksson
OPNA BLÁALÖNSMÓT
GOLFKLÚBBS SANBGERBIS
verður haldið á Vallarhúsvelli sunnudaginn
17. júlí. í boði eru glæsilegir ferðavinningar
til útlanda með Flugleiðum.
1. verðlaun: Ameríkuferð
2. verðlaun: Evrópuferð
3. verðlaun: Innanlandsferð
Ferðirnar eru algerlega að frjálsu vali á
áfangastaði Flugleiða.
Gildistími er 1 ár.
Úrvals litaprentari frá Flewlett-Packard
fyrir þá, sem fara holu í höggi á 15. braut.
Sömu verðlaun með og án forgjafar.
Þrenn holuverðlaun.
Skráning í síma 92-37802 frá kl. 17-22
föstudag og 15-22 laugardag.
Kylfingar athugið!
Þetta er annað mótið af þremur í Bláalóns-
mótsröð golfklúbbanna á Suðurnesjum.
Veitt verða stig fyrir 20 efstu sætin með
og án forgjafar. Titillinn Bláalónsmeistari
1994 hlýtur sá, sem fær flest stig saman-
lagt úr öllum þremur mótunum.
Útivistarparadís fjölskyldunnar
Opið alla daga frá kl. 10-22.
Sími 92-68526.
+