Morgunblaðið - 28.07.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1994 C 5
LAUGARDAGUR 30/7
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Árni Johnsen færir Halldóri Sveinssyni, formanni Álseyjar-
félagsins, hraðsuðupott frá Bjarnareyingum í tilefni dags-
ins, til að auðvelda þeim eldamennskuna.
Nýtt veiðihús í Álsey
MYINIDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
í ÓNÁÐ HJÁ
STÓRA BRÓÐIR
SPENNUMYND
Eignarnámsheimild (Eminent
Domain) -k'kVi
Leikstjóri John Irvin. Handrit
Andrezej Krakowski og Ric-
hard Gregson. Aðalleikendur
Donald Sutherland, Anne Arc-
lier, Jodhi May, Paul Freeman,
Anthony Bate, Bernard Hepton.
Bandarísk. Epic Prod. 1992.
Myndform 1994. 95 mín. Ald-
urstakmark 16 ára.
Jozef Burski (Donald Suther-
land) hefur hreiðrað ágætlega um
sig í valdakerfi
Póllands á árun-
um fyrir Sam-
stöðu. Er hátt-
settur innan ör-
yggislögregl-
unnar og nýtur
þeirra forrétt-
inda sem staðan
býður honum
uppá. Einka-
dóttirin er í skóla í Sviss, hann
og kona hans (Ann Archer) lifa í
vellystingum. En einsog hendi sé
veifað er allt af honum tekið.
Einkabílstjórinn mætir ekki
einn morguninn og síðan rekur
hver hremmingin aðra. Símanum
er lokað, sömuleiðis skrifstofu
hans og lögreglan fylgist grannt
með honum. Jozef reynir að kom-
ast að ástæðunum fyrir hinum
breyttu högum sínum, sú leit verð-
ur lífshættuleg.
Að mörgu leyti vel gerð mynd
og dregur upp skemmtilega
drungalega og sennilega mynd af
ástandinu austan Járntjaldsins
áður en það fór að gliðna. Fram-
setningin og framvindan er samt
sem áður nokkuð ruglingsleg á
köflum, en slíkt er ekki ný bóla í
myndum af þessu sauðahúsi.
Irvin er liðtækur leikstjóri sem
gert hefur þokkalegar bíómyndir
í gegnum árin (Dogs of War,
Tuitle Diary, Next of Kirí), og
Eignarnámsheimild, sem sýnd var
í kvikmyndahúsum víða erlendis,
er í góðu meðallagi. Sutherland
traustur og trúverðugur sem ráð-
villtur embættismaður í rotnandi
þjóðfélagi.
EINN KOMST
UNDAN
SPENNUMYND
Saklaus og vopnaður (Armed &
Innocent) k
Leikstjóri Jack Bender. Hand-
rit Danielle Hill. Aðalleikendur
Gerald McRaney, Kate Jackson.
Bandarísk kapalmynd. Fram-
leiðsluár 1994. Háskólabíó
1944. 95 mín. Aldurstakmark
16 ára.
Söguhetja þessarar sannsögu-
legu myndar er
aðeins 11 ára
drengur sem
lenti í þeirri
ömurlegu lífs-
reynsiu að verða
tveggja manna
bani. Hann var
einn heima er
þrír þjófar brut-
ust inn og skaut
tvo þeirra til
bana í sjálfsvörn, en sá þriðji
komst undan. Drengurinn varð
fjölmiðlahetja og komst í sviðsljós-
ið er það kom í ljós að þeir sem
hann drap voru illræmdir glæpa-
menn. En glataði sakleysinu og
óttaðist hefnd þess sem slapp á
braut. Skipti um húsnæði ásamt
foreldrum sínum en allt kom fyrir
ekki, hefndin lá í loftinu.
Einstaklega óaðlaðandi mynd í
alla staði. Efnið vekur óhug og
ekki er efnismeðferðin til að bæta
úr skák. Höfundar og leikstjóri
hafa velt upp ofbeldishliðinni, hér
er kominn Death Wish unglings-
ins. Myndin er dapurlega leikin
af lítt kunnum mannskap, nema
ef vera kynni að einhver myndi
eftir Kate Jackson úr þáttunum
vinsælu Englar Charlies.
KNAPIÁ
NAUTSBAKI
DRAMA
8 sekúndur (8 Seconds) kkVi
Leikstjóri John G. Avildsen.
Handrit Monte Merrick. Aðal-
leikendur Luke Perry, Cynthia
Geary, Stephen Baldwin, James
Rebhorn, Carrie Snodgress.
Bandarísk. New Line Cinema
1994. Myndform 1994. 90 mín.
Aldurstakmark 12 ára.
Þessj piýðis vel gerða og leikna
mynd hlaut litla náð fyrir augum
kvikmyndahús-
gesta í vor, nú
er ráð að taka
hana á leigu.
Söguhetjan er
Lane Frost
(Luke Perry),
ein kunnasta
ródeókempa
Bandaríkjanna,
fyrr og síðar, en
sú íþrótt. felst í því að sitja sem
lengst óárennileg holdanaut.
Hann náði á toppinn á meðan
einkalíf hans hrundi til grunna.
Vel gerð lýsing á tilstandinu í
kringum og hættum þessarar
. íþróttar meðfram því sem myndin
sýnir að annað er gæfa en gjörvi-
leiki, árangur í íþróttum og ham-
ingja í einkalífinu. Þá afsannar
myndin þá víðtæku kenningu að
Luke Perry geti ekki leikið. Þvert
á móti er hann hjarta myndarinn-
ar, gefur henni lit og karkter.
BÍÓMYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
Tombstone kkk
Ábúðamikill alvöruvestri,
þ.e., hann minnir á þá gömlu
og góðu bæði að innihaldi og
útliti. Hér koma við sögu
nokkur kunnustu nöfn Villta
vestursins þar sem myndin
gerist (einsog nafnið bendir
til) í Tombstone, Arizona á
öndverðri síðustu öld. Þegar
þar réð ríkjum Wyatt Earp
(Kurt Russell), hinn nafntog-
aði laganna vörður, og hinn
þjóðsagnakenndi, berklaveiki
læknir, Doc Holliday (Val Kil-
mer), stytti sér stundir yfir
spilum, konum og víni á
knæpum bæjarins.
Hér laust þeim saman,
genginu hans Earps og Clam-
ton bræðrunum illræmdu og
lokaátökin skráð á blöð sög-
unnar, jafnan kennd við rétt-
ina O.K. George Pan Cosmat-
os leikstýrir af miklum krafti,
einkum eru átakaatriðin vel
útfærð og vel vaiinn og eftir-
minnilegur leikhópurinn
stendur fyrir sínu.
Þar ber þá félaga, Kilmer
og Russell hæðst en það er
valinn maður í hverju rúmi,
karlar einsog Sam Elliott, Bill
Paxton, Power Boothe, meira
að segja Charlton gamli Hes-
ton, koma við sögu. Ómiss-
andi öllum sönnum og gamal-
reyndum vestraunnendum
ÁLSEYINGAR vígðu nýtt veiðihús
sitt síðasta laugardag að viðstödd-
um fjölda gesta sem boðið hafði
verið til vígslunnar. Gamla veiði-
húsið í Álsey eyðilagðist er aur-
skriða féll á það fyrir rúmum þrem-
ur árum og var þá hafist handa
við byggingu nýs húss sem nú er
lokið
Bygging húss í úteyjum Vest-
mannaeyja er mikið verk því flytja
þarf allt efni til byggarinnar sjó-
leiðina út og hífa síðan upp á bjarg-
brún. Það liggja því mörg handtök
á bak við bygginguna enda voru
Álseyingar kátir þegar þeir fögn-
uðu áfanganum, nýju húsi um 70
fermetra að gólffleti ásamt sauna-
baðstofu í sér húsi.
Til veislunnar á laugardag var
boðið fjölda gesta. Öllum þeim sem
aðstoðuðu við byggingu hússins
ásamt félögum úr öðrum úteyjum
og veiðifélögum í Eyjum. Um 120
gestir heimsóttu Álseyinga og
fögnuðu með þeim og færðu full-
trúar annarra veiðifélaga þeim
margar góðar gjafír. Halldór
Sveinsson, formaður Álseyjarfé-
lagsins, bauð gesti velkomna til
veislunnar en síðan flutti Ágúst
Halldórsson bæn og las upp ritn-
ingarorð. Fulltrúar annarra veiði-
félaga í Eyjum fluttu síðan kveðjur
og færðu margvíslegar gjafir.
Gestum var boðið upp á kaffi
og meðlæti af hlaðborði sem Álsey-
ingar og eiginkonur þeirra sáu um.
Það var skemmtileg stemmning í
Álsey enda lék veðrið við fólk.
Stafalogn og sólskin allan daginn
og sjór var svo dauður að varla
örlaði við flárnar þar sem bátar
lágu á bóli. Auðvitað var lagið tek-
ið en Árni Johnsen hafði sett sam-
an sérstakan Álseyjarbrag í tilefni
dagsins sem frumfluttur var í veisl-
unni.
Flestir gestanna héldu heim
síðla dags en Álseyingar og fjöl-
skyldur þeirra dvöldu um nóttina
í nýja veiðihúsinu og auðvitað var
veislunni haldið áfram langt fram-
eftir með söng og dansi við undir-
leik Árna Johnsen.
Veislugestir láta fara vel um sig á veröndinni.
UTVARP
RÁS I
FM 92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir
6.50 Bæn Snemma á laugardags-
morgni. Þulur velur og kynnir
tónlist.
7.30 Veðurfregnir Snemma á
laugardagsmorgni. heldur
áfram.
8.07 Snemma á laugardags-
morgni. heldur áfram.
8.55 Fréttir á ensku
9.03 Lönd og leiðir Þáttur um
ferðalög og áfangastaði. Um-
sjón: Bjarni Sigtryggsson.
10.03 Bil beggja Tónlistarþáttur.
10.45 Veðurfregnir ■ •
11.00 I vikulokin Umsjón: Páll
Heiðar Jónsson.
12.00 Útvarpsdagbókin og dag-
skrá laugardagsins
12.45 Veðurfregnir og auglýsing-
ar
13.00 Fréttaauki á laugardegi
14.00 Lífið er ungs manns gaman.
Umsjón: Anna María Þórisdóttir.
15.00 Tónvakinn 1994 Tónlistar-
keppni Ríkisútvarpsins. Loka-
áfangi Fyrsti keppandi af sjö:
Sif Túlinlus fiðluleikari. Stein-
unn Birna Ragnarsdóttir leikur
með á píanó. Umsjón: Bergljót
Haraldsdóttir.
16.05 Tónleikar
16.30 Veðurfregnir
16.35 Hádegisleikrit liðinnar viku:
Mánudagur til ma>ðu eftir A.
N. Ostrovskíj. Þýðing: Bjarni
Benediktsson. Leikstjóri: Bald-
vin Halldórsson. Leikendur:
Rós 1. fréttir ó ensku kl. 8.55.
Oliver Kentish.
Guðbjörg Þorbjarnardóttir,
Steindór Hjörleifsson, Valur
Gíslason, Þorsteinn Ö. Stephen-
sen, Brynjólfur Jóhannesson,
Árni Tryggvason, Borgar Garð-
arsson, Kristín Anna Þórarins-
dóttir, Anna Guðmundsdóttir og
Haraldur Björnsson. (Áður út-
varpað árið 1963.)
18.00 Djassþáttur Umsjón: Jón
Múli Arnason. (Einnig útvarpað
á þriðjudagskvöld kl. 23.15.)
Rós 1. Óperuspjoll kl. 19.35.
Rætt um óperunu Turundot eftir
Puuini.
18.48 Dánarfregnir og auglýsing-
ar
19.30 Auglýsingar og veðurfregn-
ir
19.35 Óperuspjall Rætt við Svein
Einarsson, leikstjóra, um óper-
una Turandot eftir Puceini.
Umsjón: Ingveldur G. Ólafsdótt-
ir.
21.15 Laufskálinn (Endurfluttur
þáttur frá sl. vikuj
22.27 Orð kvöldsins
Rós I. lönd og leiiir kl. 9.03 Þútt-
ur um feróalög og ófangustaói.
Umsjón: Bjnrni Sigtryggsson.
22.30 Veðurfréttir
22.35 Náttgalabær Spennusaga
eftir Agötu Christie. Guðnumd-
ur Magnússon les þýðingu
Magnúsar Rafnssonar.
23.10 Tónlist
0.10 Þjóðhátiðarsveifla létt lög í
dagskrárlok
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns
Fréttir ó RÁS 1 og RÁS 2 kl. 7, 8,
9, 10, 12.20, 16, 19, 22 og 24.
RÁS 2
FM 90,1/99,9
8.05 Vinsældalisti götunnar. Ólaf-
ur Páll Gunnarsson. 8.30 Endur-
tekið: Dótaskúffan frá mánudegi
og Ef væri ég söngvari frá miðviku-
degi. 9.03 íslandsflug Rásar 2.
Dagskrárgerðarmenn á ferð og
flugi.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.30 íslandsflug Rásar 2. 2.00-
Fréttir. 2.05 íslandsflug Rásar 2.
5.00 Fréttir. 5.05 Stund með 6.00
Fréttir, veður færð og flugsam-
göngur. 6.03 Ég man þá tíð. Her-
mann Ragnav Stefánsson. (Veður-
fregnir ki. 6.45 og 7.30). Morgun-
tónar.
ADALSTÖDIN
90,9 / 103,2
9.00 Albert Ágústsson. 13.00 Sig-
mar Guðmundsson. 15.00 Björn
Markús. 19.00 Tónlistardeildin.
21.00 Nætui'vaktin. Óskalög og
kveðjur. Umsjón: Jóhannes Ágúst.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Morguntónar. 9.00 Morgunút-
varp með Eiriki Jónssyni. 12.10
Ljómandi laugardagur. Pálmi Guð-
mundsson og Sigurður Hlöðvers-
son. 16.00 Isienski listinn. Jón
Axel Ólafsson. 19.00 Gullmolar.
20.00 Halldór Backman. 23.00
Hafþór Freyr Sigmundsson. 3.00
Nætui’vaktin.
Fréttir ó heilo timnnum kl. 10-17
og kl. 19.30.
BYLGJAN, ÍSAFIRDI
FM 97,9
9.00 Samtengt Bylgjunni FM 98,9.
20.00 Tveir tæpir. Víðir Arnarson
og Rúnar Rafnsson. 23.00 Gunnar
Atli með næturvakt. Síminn í hijóð-
stofu 93-5211. 2.00 Samtengt
Bylgjunni FM 98.9.
BROSID
FM 96,7
9.00 Jón Gröndal. 13.00 Böðvar
Jónsson. 1 Ó.OOKvikmyndir. 18.00-
Sigurþór Þórarinsson. 20.00 Ágúst
Magnússon. 24.00 Naúui'vaktin.
4.00 Næturtónlist.
FNI 957
FM 95,7
9.00 Haraldur Gislason. 11.00
Sportpakkinn. Valgeir Vilhjálms-
son. 13.00 Agnar Örn, Ragnar Már
og Björn Þór. 17.00 American top
40, Shadow Steevens. 21.00 Ás-
geir Kolbeinsson. 23.00 Ragnar
Páll Ölafsson. 3.00 Nætun’aktin.
T0P-BYLGJAN
FM 100,9
7.00 Sjá dagskrá Bylgjunnar FM
98,9. 10.00 Svæðisútvarp TOP-
Bvlgjan. 11.00 Samtengt Bvlgj-
uttni FM 98,9.
X-IÐ
FM 97,7
3.00 Nostaglia. 5.00 Simmi. 8.00
Þossi. 10.00 Baldur Bragason.
14.00 Árni Þöi'. 17.00 Pétnr Sturla.
19.00 Kristján og Helgi Már 23.00
Henný Árnadóttii'. 3.00 Þossi.