Morgunblaðið - 06.08.1994, Síða 4
4 B LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Bugður, beyjur og krákustígar
mannslíkamans, eða mann-
sandans. Hið ósýnilega verð-
ur málmkennt, líkamnast, og leysist
upp í skugga. Hið sýnilega molnar,
efnið sáldrast niður, formið verður
gegnsætt og leysist upp í Ijós. Fígúr-
urnar togast á, sveigjast, léttast,
þyngjast og eru komnar óralangt frá
sinni upprunalegu mynd - skúlpt-
úrnum.
„Þær eiga sér uppruna í málm-
og glerskúlptúrum," segir listamað-
urinn, Rhony Alhalel, einn af
tengdasonum íslands, sem í dag
opnar sýningu í Galleríi Sólon ísland-
us. Rhony er frá Perú en hefur
ýmist búið þar, á íslandi eða í Japan
á síðastliðnum árum. Hann hefur
haldið einkasýningar víða um heim
en aðeins einu sinni áður á íslandi.
Það var í Galleríi Nýhöfn árið 1991.
„Ég hef áhuga á að skoða and-
stæð öfl,“ segir Rhony, „bera saman
gegnsæ öfl og skyggð öfl eins og
þau birtast mér. Öfl sem vekja með
okkur samkennd eða andúð á öðrum.
Það má kannski segja að afstaðan
sé eðlislæg - að ég sé að fjalla um
eðli og það feli í sér allar andstæð-
ur. Svo finnst mér gaman að skilja
hvaða öfl ég er að vinna með í sjálf-
um mér, þegar ég vinn að myndlist.
Þegar ég vann með málma, var ég
að treysta jarðsamband mitt. Þegar
ég vann með gler, var ég loftkennd-
ur, nánast eins og ég gæti flogið. Á
stundum finn ég hvorutveggja og
ég leita stöðugt í það ástand."
Það kemur vissulega fram í mynd-
um Rhonys því þær eru leikur ljóss
og skugga, anda og efnis, fígúru-
forma sem eru ekki neinn. Sjálfur
segist hann breytast mikið þegar
hann fer á milli landa. Og það er
glöggt á verkum hans. Það er eins
og þau séu eftir þrjá ólíka lista-
menn. Einn býr í Perú, þar sem
þungir jarðarlitir og jarðefni eru
notuð. Éinn býr og Japan, þar sem
myndsköpunin á sér rætur í ietur-
gerð Japana. Einn býr á íslandi, þar
sem tært loftið smýgur inn um allt
og út um allt - það sem var þétt,
áþreifanlegt og massívt hefur fengið
allt aðra merkingu.
„Dúalisminn - eða átök and-
stæðra afla - er mjög sterkur hér
á landi,“ segir Rhony. „Maður fínnur
það um leið og maður kemur hing-
að. Það hentar mér mjög vel, því
mér fínnst mest gaman að vinna
eftir viðbrögðum; sækja í þær tilfínn-
ingar sem vakna með mér. Það er
eins og að yrkja ljóð. Það mundi
ekki henta mér að skrifa skáldsögu,
sem ég tæki með mér á milli landa,
ef hún ætti að hafa trúverðuga fram-
vindu. Enda reyni ég aldrei að gera
mér einhveija fyrirfram hugmynd
um hvað ég ætla að skapa þegar
ég kem í nýtt land.“
Að þessum orðum slepptum sýnir
Rhony mér myndir sem hann teikn-
aði í flugvél á leiðinni frá New York.
Sterkasta aflið í þeim er innilokun.
Enn einn karakterinn kominn á
kreik.
„En ég er ekki bara að fjalla um
þau öfl sem eru innra með hveijum
manni, heldur að bregðast við þeim
öflum sem eru í heiminum; innri
öflum, ytri öflum, náttúruöflum -
og þá þeim sem felast í andstæðum,
eins og mosi/hraun, blautt/þurrt,
áferð steina á móti breytilegu skapi
himinsins.
Það sem er spennandi við íslenska
náttúru er að hún er nánast eins og
forsöguleg. Vilji mannsins hefur
ekki ennþá fengið að níðast á henni.
Landið leyfír manni að hreyfast með
sér; maður hrífst með og það gerist
hratt og oft, þar til maður verður
hluti af þessu afli.
Formið sem ég nota á rætur í
brúðuleikhúsi í Bali, þar sem allar
fígúrurnar hafa grímur. Þær geta
verið hver sem er. Fígúrur mínar
hafa engin andlit, engin svipbrigði
- þær geta verið hvaða maður sem
er. Við erum nefnilega alltaf að
fylgjast með svipbrigðum. í þeim
getum við lesið hvaða öfl hrærast
með þeim mönnum sem við hittum.
Ég hef meiri áhuga á öflunum, sem
leiða af sér svipbrigðin."
Þessar myndir eru mjög ólíkar
þeim verkum sem þú vinnur í Perú.
Hvemig land er Perú?
„Það má segja að Perú sé land
átaka - og þess vegna sé það mjög
spennandi land. Maður andar að sér
sögunni þar en hún er ekki alltaf
ánægjuleg. Þar hefur verið mikið
um styrjaldir. Mín skoðun er sú að
upphaflega hafi mongólskar þjóðir
sest þar að í fjöllunum. Síðan hafí
fólk frá Indónesíu og Asíu komið
yfir hafíð og sest þar að öðrum
BRASILÍSKAR
TQNSMÍÐAR í
NORR/ENA HÚSINU
Sigríður Hulda Geirlaugsdóttir
píanóleikari heldur tónleika
í Norræna húsinu á morgun
sunnudag. Tónleikarnir hefjast
klukkan 15. 00. og á efnisskrá
verða verk brasilískra tónskálda en
Sigríður Hulda hefur dvalið í Rio
de Janeiro í um það bil fimm ár.
Greinarhöfundur hitti Sigríði Huldu
að máli.
„Hvernig stóð á því að þú fórst
til Brasilíu?"
„Ég var við nám í Boston við
New England Conservatory of
Music og þar kynntist ég manninum
mínum, Paulo Weglinski en hann
er brasilískur popptónlistarmaður.
Við búum í Rio de Janeiro þar sem
ég er í meistaranámi við Tónlistar-
háskólann."
„Hvernig finnst þér að fást við
tónlist í þessu umhverfí?“
„Mér fínnst áhugavert að kynn-
ast brasiliskri tónlist því hún er
skemmtileg og auðug. Þó að tónlist-
in sé ríkur þáttur í mennigarlífi
þjóðarinnar þá viriðst ekki vera til
staðar nokkur metnaður ráða-
manna til að hlú að þeim verðmæt-
um og efla tónlistarlíf. Brasilíu-
menn eiga tónlistarmenn á alþjóð-
legan mælikvarða en fæstir þeirra
geta hugsað sér að búa við þau
kjör sem listafólki er boðið upp á í
heimalandinu og þar af leiðandi
nýtast þeirra kraftar ekki. Fyrir
bragðið er skólinn ekki eins áhuga-
verður og hann gæti verið."
„Tengist tónleikahaldið að ein-
hverju leyti námi þínu?“
„Já, í vetur valdi ég mér nám-
skeið í túlkun brasilískrar tónlistar
og vaknaði þá áhugi minn á að
kynna þá tónlist hér. Suður Amer-
ísk tónlist er að mínu viti lítið spil-
uð eða þekkt hérlendis og ástæðu
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
RHONY ALHALEL
SÝNIR f GALLERÍI
SÓLON ÍSLANDUS
megin. Að hinni ströndinni hafí Jap-
anir komið og búið við ströndina -
því þar hefur þróast mikill og merki-
legur vefnaður, sem er mjög áþekk-
ur japönskum vefnaði. Svo komu
Evrópubúamir, Spánveijar og sett-
ust að við ströndina. Þetta má ekki
bara sjá á tungumálinu, heldur er
hægt að sjá þennan uppmna í list-
sköpun; litum og formum.
Það er alltaf verið að leita að hin-
um hreinu perúsku einkennum og
finna út hvað er ekta perúveijii. En
það er algerlega vonlaus leit. Því
þær þjóðir, sem byggja landið em
svo ólíkar. Ein býr meðfram strönd-
inni, önnur uppi í fjöllum og sú þriðja
í frumskógunum."
Hvað með stjómarfar?
„Það verður að segjast eins og
er, að það er aftur að verða líft í
landinu. Það var mikil gæfa fyrir
okkur að fá Alberto Fujimori fyrir
forseta fyrir tveimur ámm eða svo.
Hann er einstakur maður. Það var
mikil andstaða gegn honum, þegar
hann bauð sig fram en hann hefur
fengið miklu áorkað.
Þegar hann bauð sig fram, leist
fólki ekki á blikuna. Hann er ekki
mikill ræðumaður og talaði ekki einu
sinni góða spænsku. Það var sagt
að hann væri fæddur í Japan en
hefði orðið sér úti um perúsk skil-
ríki. En eftir að þjóðin hafði lifað
við 12 ára hryðjuverkaástand, féll
allt í ljúfa Iöð. Maður getur núna
gengið um götur, án þess að hafa
áhyggjur af því að næsti bíll, sem
maður gengur framhjá, springi í loft
upp. Hann er framkvæmdamaður
og stendur við orð sín. Hann lofaði
í kosningabaráttunni að byggja einn
skóla í mánuði - og það gerir hann.
Hann trúir ekki á þá algengu aðferð
pólitíkusa að smeygja sér út úr hlut-
unum með orðum, sem mynda óskilj-
anlegar setningar - klisjur. Hann
byggir landið upp innan frá og það
er það sem við þurfum á að halda
núna. Hann er mikill framkvæmda-
maður. Síðar verður að koma í ljós
hvernig hann ætlar að manna þær
stofnanir, sem hann er að byggja,
hvort heldur það er í heilsugæslu
eða menntakerfi. Það getur verið að
til þess þurfí annar maður að koma
til. Hver veit.
Hins vegar hefur ástandið í land-
inu batnað svo mikið að núna, eftir
margra ára búsetu erlendis, treysti
ég mér til að flytja aftur heim og
búa þar.“
ssv
Morgunblaðið/Golli
SIGRÍÐUR Hulda Geirlaugsdóttir
þess tel ég vera þá hversu ólík
mennig stendur henni að baki. Al-
þýðutónlist Brasilíu er mjög rík og
það er athylisvert að þegar brasilíu-
menn tóku að semja sín eigin klass-
ísku verk þá voru þau mjög smituð
af alþýðutónlistinni. Á tónleikunum
mun ég halda erindi, kynna tón-
skáldin og jafnframt verk þeirra.
Ég mun flytja eitt verk eftir alþýð-
utónskáldið Emesto Nazareth einn-
ig mun ég flytja verk eftir nútímat-
ónskáldið J.G. Ripper en auk þess
Qögur verk eftir Heitor Villa - Lo-
bos en hann er það tónskáld þeirra
sem er þekktast utan heimalands-
ins.“
eög
MENNING/LISTIR
ÍNÆSTUVIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Sigurður Ámi Sigurðsson og
Kristinn G. Harðarson til 11.
september. Verk Jóhannesar
Kjarvals í Austursal
Listasafn íslands
Sumarsýning á myndum Ás-
gríms Jónssonar.
Gerðarsafn
Sýningin „Frá Kjarval til
Erró“ fram í miðjan ágúst.
Norræna húsið
Ragnheiður Jónsdóttir Ream
til 7. ágúst
úst.
Hafnarborg
Þorfinnur Sigurgeirsson til 7.
ágúst
Nýlistasafnið
Patricia Spoelder, Sander
Doerbecker og Marloes Hogg-
enstraaten til 7. ágúst.
Önnur hæð
Ilya Kabakov til 31. ágúst.
Gallerí Úmbra
Ritva Puotila til 24. ágúst.
Ásmundarsafn
Sasmsýning á verkum Ás-
mundar Sveinssonar og Krist-
ins E. Hrafnssonar til ára-
móta
Safn Ásgríms Jónssonar
Þingvallamyndir fram í nóv-
ember.
Listsalurinn Portið
Beatriz Ezban til 7. ágúst
Gallerí Sævars Karls
Kristinn G. Harðarson til 25.
ágúst
Listhús Laugardal
Daði Guðbjömsson sýnir út
ágúst.
Sólón íslandus
Rhony Alhalel sýnir.
Slunkaríki/ísafirði
Sara Ekström sýnir pappírs-
verk
Menningarstofnun Banda-
ríkjanna
Olivia Petrides sýnir til 25.
ágúst.
Listasafnið á Akureyri
Jón Laxdal sýnir collage verk.
Café Karólína, Akureyri
Hlynur Hallsson sýnir kaffi-
húsaverk.
Perlan
Heidi Kristiansen sýnir textíl-
myndir.
Stöðlakot
Hrefna Lámsdóttir sýnir til
21. ágúst.
TONLIST
Laugardagur 6. ágúst
Sönghópurinn Hljómeyki á
Skálholtstónleikum klukkan
15.00 og Guðrún Óskarsdóttir
klukkan 17.00.
Sunnudagur 7. ágúst.
Guðrún Óskarsdóttir, sembal-
leikari á Skálholtstónleikum
kl. 15.00.
Sönghópurinn „The Yale
Whiffenpoofs í Ráðhúsi
Reykjavíkur kl. 15. og á Hard
Rock Café kl. 18.45.
Sigríður Hulda Geirlaugsdótt-
ir píanóleikar, í Norræna hús-
inu, kl. 15.
Mánudagur 8. ágúst
The Yale Whiffenpoofs á Café
Sólon íslandus, kl. 21.
Þriðjudagur 9. ágúst
Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópr-
an og Páll Eyjólfsson, gítar-
leikari í Listasafni Sigurións,
kl. 20.30.
Kammerchor Winterthur í
Landakotskirkju kl. 20.30.
Umsjónarmenn lista-
stofnana og sýningarsala!
Upplýsingar um listviðburði
sem óskað er eftir að birta í
þessum dálki verða að hafa
borist bréflega fyrir kl. 16 á
miðvikudögum. Merkt: Morg-
unblaðið, menning/listir,
Kringlan 1, 103 Rvk. Mynds-
endir: 91-691222.