Morgunblaðið - 27.09.1994, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEFfEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
S VALB ARÐADEILAIM
BJÖRGÚLFUR EA, skuttogari Útgerðarfélags Dalvíkinga.
TOGARINN Óttar Birting, sem skráður er í Panama, en er í eigu Skriðjökuls á Höfn.
Tvö skip í eigu íslendinga færð til hafnar vegna meintra ólöglegra veiða við Svalbarða
Fóru imi á svæðið
ánsamráðs
við útgerðimar
Togararnir Björgúlfur EA og Óttar Birting voru
á laugardag teknir fyrir meintar ólöglegar veiðar
við Svalbarða og færðir til hafnar í Noregi í fylgd
strandgæzluskips. Þetta var ekki að undirlagi út-
gerðarmanna, en samtök þeirra fara fram á stuðn-
ing stjómvalda í málinu.
TVÖ skip í eigu íslenskra út-
gerðarfyrirtækja voru tekin
að meintum ólöglegum
veiðum á fískvemdarsvæði Norð-
manna við Svalbarða um klukkan
tíu á laugardagsmorgun, þau Óttar
Birting sem er í eigu Skriðjökuls á
Höfn í Hornafirði og siglir undir
hentifána Panama og Björgúlfur
EA sem er í eigu Útgerðarfélags
Dalvíkinga. Varðliðar frá norska
strandgæsluskipinu Senja, sem
reyndi að stöðva veiðar ísienskra
skipa í júní sl. með því að sigla á
milli þeirra, sigu um borð í skipin
úr þyrlu og sneru þeim til hafnar
í Tromsö í Noregi. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Landhelgisgæslunni
fullyrða Norðmenn að skipin, sem
voru nyrst á Svalbarðasvæðinu,
vestan við Smuguna, hafí verið að
veiðum 10-13 mílur innan marka
vemdarsvæðisins.
Ósáttur við að skipin sneru frá
Fjöldi annarra skipa, íslenskra
og færeyskra, var að veiðum á þess-
um slóðum. Fylgdu þau skipunum
tveimur eftir í einar fimm stundir
en sneru síðan til baka, flest að til-
hlutan útgerða þeirra samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Sigurð-
ur Haraldsson, skipstjóri á Björg-
úlfi EA, kvaðst í samtali við Morg-
unblaðið mjög ósáttur við að ís-
lensku fylgdarskipunum hefði verið
snúið við, sterkur leikur hefði verið
að sigla í þeim fylkingu eins og
stefndi í upphaflega. Einhverjir út-
gerðarmenn hefðu þó greinilega
verið á öðru máli. Skipin voru í fjar-
skiptasambandi eftir tökuna og seg-
ir Sigurður að Guðmundur Kr. Guð-
mundsson, skipstjóri Óttars Birt-
ings hafí verið „skiljaniega jafnó-
sáttur við gang mála“.
Aðspurður um ástæður þess að
skipin fóru inn á verndarsvæðið
þrátt fyrir vitnesku um að Norð-
menn hertu reglur um svæðið í
ágúst sl., og hvort skipin hefðu
farið að eigin fmmkvæði eða sam-
kvæmt tilmælum útgerðar, sagði
Sigurður: „Ég get ekki svarað því.
Veistu ekki að íslendingar viður-
kenna ekki rétt Norðmanna yfír
svæðinu? Við emm auk þess að
ræða þetta á öldum ljósvakans og
því miður get ég ekki rætt þetta
við þig hérna, allir Norðmenn em
kannski að hlusta. Þetta hlýtur að
koma í ljós fyrr eða síðar.“
Alltof mikið í húfi
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins kom fram á fundi út-
vegsmanna með ráðherrum í gær
að togararnir hefðu ekki haft sam-
ráð við útgerðir sínar er þeir fóm
inn á Svalbarðasvæðið.
Jónas Haraldsson, lögfræðingur
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, segir aðJpað standi enn, sem
forystumenn LIÚ sögðu eftir að
Hágangur II var færður til hafnar
í Noregi í ágúst og nýjar reglur um
töku skipa á Svalbarðasvæðinu vom
settar, að útgerðarmönnum væri
ekki ráðlagt að halda skipum sínum
til veiða á svæðinu. „Þetta er ekki
vísvitandi ákvörðun eða samantekin
ráð útgerðarmanna," sagði Jónas í
samtali við Morgunblapið. „Enginn
útgerðarmaður eða LÍÚ getur verið
að ýta undir menn að gera þessa
hluti. Það er alltof mikið í húfi og
réttaróvissan of mikil. Það hangir
yfir mönnum að skipin verði gerð
upptæk. Skipstjórarnir ráða fyrst
og fremst ferðinni, hvort sem það
er í samráði eða með óbeinni vitund
útgerðarmanna þeirra eða ekki. Það
er smitandi þegar einn fer fáeinar
mílur inn fyrir línuna, þá fer annar
að prófa það, næsti fer aðeins
lengra og þannig þróast þetta. Fisk-
urinn teymir menn innfyrir."
Tekinn í tog
Skipin voru nýkomin á veiðar
þegar þyrla Senju kom á vettvang,
og var Björgúlfur í miðjum klíðum
við að hífa trollið í annað sinn. Var
nánast enginn afli í skipinu að sögn
Valdimars Bragasonar, fram-
kvæmdastjóra Útgerðarfélags Dal-
víkinga sem gerir Björgúlf EA út.
Norskir strandgæsluliðar heimtuðu
að sjá skjöl skipsins og dagbók
ásamt staðarákvörðun sem var sú
sama og Norðmenn telja rétta, að
sögn Sigurðar Haraldssonar.
Tveimur tímum eftir að varðliðamir
komu um borð tilkynntu þeir skip-
stjóra að áhöfnin væri handtekin
og skipunum yrði snúið til Noregs,
sem varð um þremur tímur síðar.
Senja tók skipið í tog í byrjun þar
sem Sigurður neitaði að sigla sjálf-
ur án skipsskjala, en eftir samráð
við útgerð skipsins tók hann við
stjórnvelinum. Sigldu varðliðar með
skipunum, en 41 skipveiji er á þeim,
17 á Björgúlfi og 24 á Óttari Birt-
ingi. Valdimar segir ómögulegt að
sjá fyrir á þessari stundu hvert fjár-
hagslegt tjón útgerðarinnar verður,
ekki séu fordæmi fyrir aðgerðum
af þessum toga og óljóst hvernig
Norðmenn fylgi málinu eftir.
Davíð Oddsson forsætisráðherra,
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra og Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra funduðu á sunnu-
dag um töku togaranna tveggja,
ásamt embættismönnum. Farið var
yfir atburði laugardagsins og ýmis
lagaleg atriði varðandi Svalbarða-
svæðið.
Bíða á með veiðar
Ráðherrarnir þrír áttu síðan í
gærmorgun fund með úthafsveiði-
nefnd Landssambands íslenskra
útgerðarmanna, lögfræðingi LIÚ ,
útgerðarmanni Björgúlfs og lög-
manni útgerðanna sem reka mun
málið í Norgegi. Nefndinni voru
kynnt drög að mótmælum ríkis-
stjórnarinnar sem Eiður Guðnason,
FULLTRÚAR útvegsmanna bera saman bækur sínar fyrir fund
með ráðherrum í stjórnarráðinu í gær. Frá vinstri: Jóhann A.
Jónsson, Jón Þór Gunnarsson, Sigurbjörn Svavarsson og Frið-
rik Arngrímsson.
Morgunblaðið/Sverrir
FUNDUR ráðherra með ráðgjöfum á laugardag. Frá vinstri:
Gunnar G. Schram, Iagaprófessor, Róbert Trausti Árnason,
ráðuneytissljóra utanríkisráðuneytisins, Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra, Davíð Odsson forsætisráðherra, Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra og Albert Jónsson, deildar-
stjóri í forsætisráðuneytinu.
sendiherra íslands í Osló, afhenti
norskum stjórnvöldum síðdegis í
gær. Jóhann A. Jónsson, formað-
ur úthafsveiðinefndar LÍÚ, segir
að nefndin hafi lagt áherslu á að
yfirgangi Norðmanna yrði harðlega
mótmælt og þeirri aðgerð að taka
íslensk skip á svæðinu. „Við teljum
að Norðmenn hafi ekki neina heim-
ild til aðgerðanna, þar sem þeir
byggja þær ekki á þjóðarétti heldur
einungis á norskum lögum og reglu-
gerðum sem þeir hafa sett og eigin
málatilbúnaði öðrum. Reglugerðin
sem Norðmenn settu í ágúst um
ákæru fyrir ólöglegar veiðar að við-
lagðri sekt eða upptöku afla og
veiðifæra er væntanlega grundvöll-
ur aðgerðanna, og þótt í henni sé
einnig ákvæði um að gera megi
skip upptæk, hef ég ekki trú á að
svo fari,“ segir Jóhann. Hann segir
nefndina í megindráttum sammála
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og
telji áðurgreind sjónarmið koma þar
skýrt fram. „Ráðherrarnir kynntu
okkur einnig ýmsa fleti málsins sem
þeir hafa verið að kynna sér síðan
skipin voru tekin, og ég er fullviss
um að sú vinna haldi áfram af
krafti," segir Jóhann. Hann kveðst
telja eðlilegt að bíða frekari við-
bragða Norðmanna og hætta veið-
um á Svalbarðasvæðinu þangað til
að þau liggi fyrir.
Einkamál útgerða
„Við virðum þátt ríkisstjórnar-
innar í þessu máli og eigum von á
liðsinni hennar eins og hún hefur
aðstöðu til, en það er þó ljóst að
um einkamál er að ræða,“ segir
Valdimar Bragason.
Friðrik Jón Arngrímsson, lög-
fræðingur útgerðanna tveggja,
flaug til Noregs í gær til að annast
málarekstur þar í landi, en gert er
ráð fyrir að yfirheyrslur hjá lög-
reglu fari fram í Tromsö í dag.
Samningaviðræður íslendinga og
Norðmanna um úthafsveiðar ís-
lendinga á verndarsvæðinu við
Svalbarða og í Smugunni eiga að
heijast í næstu viku.
i
\
I