Morgunblaðið - 27.09.1994, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Iðnaður
Islensk framleiðsla hélt
hlut sínum á síðasta ári
Dregur úr markaðshlutdeildinni á fyrsta ársfjórðungi 1994
ÍSLENSK framleiðsla hélt hlut sín-
um á árinu 1993 frá árinu á undan
skv. niðurstöðum könnunar Sam-
taka iðnaðarins og Hagstofu ís-
lands á markaðshlutdeild innlendrar
frámleiðslu í nokkrum greinum iðn-
aðarins.
Um er að ræða hreinlætisvöru-
framleiðslu, kaffibrennslu, máin-
ingarvöruframleiðslu, sælgætisgerð
og öl- og gosdrykkjaframleiðslu.
Tölur fyrir fyrsta ársfjórðung 1994
benda til þess að markaðshlutdeild
þessara iðngreina nema öl- og gos-
drykkjaframleiðslu geti minnkað
aftur.
í niðurstöðum könnunarinnar
sem birtar eru í íslenskum iðnaði,
fréttabréfi Samtaka iðnaðarins,
kemur fram að öl- og gosdrykkja-
framleiðsla hefur sótt í sig veðrið
og málningarvöruframleiðsia einn-
ig, en þar dróst markaðshlutdeild
verulega saman á árinu 1992 frá
árinu á undan eins og sést á með-
fylgjandi línuriti.
Innlent sælgæti á uppleið
Markaðshlutdeild kaffibrennslu
hefur dregist saman jafnt og þétt
sl. áratug og var á síðasta ári 36,7%
samanborið við 78,7% árið 1982.
Innlendir sælgætisframleiðendur
hafa sótt nokkuð í sig veðrið frá
árinu 1988, en á þeim tíma hefur
markaðshlutdeild þeirra aukist um
6% í 42,9% á síðasta ári. Markaðs-
hlutdeild innlendra sælgætisfram-
leiðenda náði mest tæpum 50% árið
1983. Þá hefur markaðshlutdeild
innlendra hreinlætisvöruframleið-
enda aukist frá 1988.
Miðað við tölur um markaðshlut-
deild innlendrar framleiðslu í fram-
angreindum iðngreinum, utan öl-
og gosdrykkjaframleiðslu, á fyrsta
ársfjórðungi 1994 eru líkur á að
bakslag geti komið í þróun undan-
farinna ára og hlutur innlendu
framleiðslunnar fari aftur minnk-
andi. í niðurstöðum könnunar Sam-
taka iðnaðarins segir þó að það
muni skýrast betur þegar tölur ber-
ist fyrir annan og þriðja ársfjórð-
ung.
Markaðshlutdeilú nokkurra innlendra
iðnaðarvara 1982-1994
% Kafíibrennsla
80
60
Öl- og gosdr.
20
'88 I '90 I '92 I
‘89 '91 '93
Hlutdeild á 1.
'89 I '91 I '93
'90 ‘92 '94
Fyrsti vikur-
farmurinn
fluttur út
Ólafsvík. Morgunblaðið.
VIKURIÐNAÐUR hf. í Ólafsvík hefur sent frá sér
fyrsta vikurfarminn, alls 3.000 rúmmetra. Alls
hafa farið þrjú ár í undirbúningsvinnu, Árni Þor-
móðsson, framkvæmdastjóri Vikuriðnaðar, segist
mjög bjartsýnn á framtíð fyrirtækisins. Hann segir
vikurnámurnar í Jökulhálsi endast í mörg ár.
Forráðamenn Vikuriðnaðar ætla að flytja út
40-50 þúsund tonn tii næstu áramóta. Fyriiiækið
er að kaupa vélbúnað frá Þýskalandi til hreinsunar
og flokkunar á vikri. Fyrsti farmurinn fer til Hol-
lands en þaðan verður honum dreift. Mest fer til
Þýskaland en þar í landi er mjög vaxandi eftir-
spurn eftir vikri. Þarlendar vikurnámur eru að
tæmast og er þörf fyrir vikur í hámarki vegna
uppbyggingar í austurhluta landsins.
Morgunblaðið/Alfons
ÁRNI Þormóðsson, framkvæmdastjóri Vik-
uriðnaðar hf., stendur við vikurhólinn.
Af þeim sökum eru forráðamenn Vikuriðnaðar
hf. í Ólafsvík bjartsýnir á að geta selt eins mikið
af vikri og þeir geta afgreitt. Umsvif Vikuriðnaðar
verða góð tekjulind fyrir Ólafsvíkurhöfn auk þess
sem fyrirtækið veitir heimamönnum atvinnu.
Sparnaður af
blönduðu bensíni
HÖRÐUR Helgason, aðstoðarframkvæmdastjóri Olís, fullyrðir að með
notkun á HreinnaSystem 3 bensíni geti bifreiðaeigendur sparað í bens-
ínkostnaði, útblástur verði hreinni og útfellingar í vélinni verði minni.
Bensínið er blandað með íblöndunarefni sem Texaco hefur þróað.
Texaco setti þetta nýja bensín á
markað fyrir tæpum tveimur árum.
Það hefur verið prófað í Bandaríkj-
unum og í Evrópu á síðustu árum,
m.a. hefur Norska Iðntæknistofn-
unin gert ítarlega rannsókn á því.
Megin niðurstaða stofnunarinnar
er að bensín með þessu nýja íblönd-
unarefni dragi úr útfellingum í vél-
inni, en útfellingarnar valda minni
krafti, auka bensíneyðslu og auka
hlutfall mengandi efna í útblæstri.
Iðntæknistofnunin norska telur að
efnið minnki útfellingar og dragi
úr líkum á að nýjar myndist, strax
frá bensíninnspýtingu og alla leið
inn í brunahólf.
Mælt með íblöndunarefnum
Hörður sagði að sumir bílafram-
leiðendur væru beinlínis farnir að
mæla með að ökumenn noti bensín
með íblöndunarefnum. Hann sagði
þó að blandað bensín gagnist öllum
bifreiðategundum.
Olís hóf að blanda íblöndunarefni
í bensínið um miðjan ágúst. Efninu
er blandað saman við bensínið um
leið og því er dælt á bílana. „Við
höfum fengið mjögjákvæð viðbrögð
við þessu. Þeir viðskiptavinir sem
(S)
■ ■■
SAMTÖK
IÐNAÐARINS
Framtíð iðnaðar ó Íslandi:
Starfsskilyrði og sambúð
við sjávarútveg
Ráðstefna á Hótel Sögu, Átthagasal,
þriðjudaginn 27.september kl. 14-17.
Dagskrá:
Sighvatur Björgvinsson,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra: Ávarp.
Starfsskilyrði iðnaðar á íslandi
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar og
formaður nefndar um starfsskilyrði iðnaðar:
Kynning á niðurstöðum skýrslu um starfsskilyrði iðnaðar.
Gunnar Svavarsson, forstjóri Hamplðjunnar hf. og
varaformaður Samtaka iðnaðarins:
Viðhorf til efnis skýrslunnar.
Atvinnuuppbygging - hagvöxtur:
Sambúð iðnaðar og sjávarútvegs.
Ólafur B. Olafsson, framkvæmdastjóri hf. Miðness.
Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri Islenska járnblendifélagsins hf.
[ lok ráðstefnunnar munu fyrirlesarar sitja fyrir svörum og skiptast
á skoðunum. Loks mun fundarstjóri draga saman helstu sjónamið
sem fram hafa komið.
Fundarstjóri: Haraldur Sumarliðason,
formaður Samtaka iðnaðarins.
Morgunverðarfundur
föstudaginn 30. september 1994
kl. 08.00 - 09.30, í Skúlanum, Hótel Sögu
ÍSLENSK UST Á
ALÞJÓDAMARKADI
Mat sérfræðings frá Sotheby's
Einn reyndastí framkvæmdastjóri Sotheby s í London
og víðkunnur fyrirlesari um listaverkasölu,
David Battie, skilgreinir alþjóðlega listaverkamarkaðinn
og spáir í stöðu íslenskrar listar á þeim vettvangi.
Fyrirlesarinn svarar spurningum þeirra
Jóns Ásbergssonar, framkv.stj. Útflutningsráðs,
Ingólfs Arnarsonar, m/ndlistarmanns,
Þórunnar Hafstein, deildarstj. í Menntamálaráðun.
og fyrirspurnum fundarmanna.
Fundurinn er opinn en tilkynna verður þátttöku fyrirfram
i síma 886666 (kl. 08 - 16).
Þátttökugjald (morgunverður innifalinn) kr. 1.200,-
VERSLUNARRAÐ ISLANDS
Iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytið
hafa haft samband við okkur hafa
lýst yfir mikilli ánægju með þetta
og segjast finna mun á bílunum,"
sagði Hörður.
K
Forysta í faxtækjum
FYRR EN SEINNA
VELUR ÞÚ
FAX FRÁ RICOH
QftfSk
SKIPHOLTI 17 ■ 105 REYKJAVlK ---„------->
slMÍ: 91-627333 - FAX: 91-628622 I—1>—»«—>