Morgunblaðið - 27.09.1994, Side 25

Morgunblaðið - 27.09.1994, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 25 Landspítalalóð, opnun Fæðingarheimilisins sem er innan seilingar, aukna þjónustu við aldraða, öryggisnet fyrir launalága, sem hafa mikinn kostnað af heilbrigðisþjón- ustunni og fleira. Og almennt að heilbrigðisþjónustan hafi gengið vel fram, án nýrra þjónustugjalda og teljandi og óeðlilegs útgjaldaauka, þá tólf mánuði sem ég gegndi störf- um heilbrigðisráðherra. Margt ofsagt í þessari greinargerð hef ég drepið á nokkur þau at- riði, sem oftast og helst eru nefnd til sögu, þegar gagnrýni á mín störf eru borin á borð. Ýmis önnur atriði hefur að sönnu borið á góma, en ef marka má spurningar frétta- manna hygg ég þau sem ég hef hér nefnt til sögu, vera þau sem helst hefur óskað frekari og nánari skýringa við. í hita umræðunnar hefur ýmislegt verið sagt. Margt af því ofsagt. Engin þau mál sem mér hafa verið borin á brýn eru þess eðlis að varði við lög. Enginn hefur haldið slíku fram. Enda ekki um slíkt að ræða. Einstaka maður hefur farið fram á afsögn mína takist mér ekki að gera nánari grein fyrir málstað mínum gagn- vart þeim ávirðingum sem á mig hafa verið bornar. Ég vænti þess að þessi ítarlega greinargerð taki af öll hugsan- leg tvímæli um raunveruleika mála. I öllum umræðum um mikilvæg mál er nauðsynlegt að missa aldrei sjónar af meginatriðum. Ég segi enn og aftur, að ég er ekki fullkom- inn, fremur en nokkur annar. í þessari greinargerð játa ég að ég hefði getað staðið betur að tilteknum málum; s.s. í málum tryggingayfirlæknis og hvað varðar upphæð greiðslu til upplýsingafulltrúa. Það viðurkénni ég. Um önnur kunna að vera skiptar skoðanir. Og enn önnur njóta almennrar viðurkenningar og stuðnings. Öll mannanna verk eru umdeilanleg. Líka þeirra sem opinberlega og í felum átelja mig og öll mín verk. Ég tel einnig nauðsynlegt að vekja sérstaka athygli á því, að í allri þessari orrahríð hef ég aldrei í svörum mín- um vikið einu orði að verklagi annarra stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka. Ekki kveðið upp dóma yfír öðrum eða bent á hliðstæður. Margir sem við mig hafa talað, hafa viljað tína til umdeildar ráðningar annarra flokka og stjórnmálamanna í gegnum tíðina til að undirstrika þetta óeðlilega einelti í minn garð, eins og margir viðmælendur mínir hafa orðað að. Við þeim áskorunum hef ég ekki orðið. Ég hef ekki viljað standa þannig að málum. Stjórnmálamenn eru og eiga að vera viðbúnir gagn- rýni. Þeir eru hins vegar mannlegir eins og aðrir, með sínar tilfinningar, hugsjónir og þrár. Þeir eru ekki úr marmara. Þeir eiga fjölskyldur sem eiga þess ekki kost að bera hönd fyrir höfuð sér. Það er eins með stjórnmála- menn og aðra einstaklinga, að með óvönduðum málflutn- ingi er unnt að grafa undan mannorði með skjótum hætti. Lengri tíma tekur að leiðrétta og lagfæra; byggja upp aftur. Sannleikurinn er líka sá, að oft verður hönd skamma stund höggi fegin. Ég vil þakka heilshugar þeim fjölmörgu sem hafa sýnt mér, konu minni og börnum velvild á erfiðum dögum mig og stutt við bak mitt í þessari erfiðu orrahríð síðustu daga og vikur. Sá stuðningur hefur birst í samtölum, bréfum, skeytum, símtölum og með ýmsum öðrum hætti, beint og óbeint. Þessi stuðningur hefur birst jöfnum höndum frá flokkssystkinum mínum sem og mörgum öðrum. Hann hefur verið ómetanlegur. Kjósendur hafa síðasta orðið Ég er reiðubúinn eins og allir stjórnmálamenn að lúta dómi kjósenda. í lýðræðislegu þjóðfélagi, í réttarríki, eru sækjendur ekki um leið dómarar. Fjölmiðlar hafa hlut- verki að gegna. Þeir sækja fram. Stundum með meira kappi en forsjá. En allt um það, þá er það ekki þeirra hlutverk að kveða upp úrskurði yfir stjórnmálamönnum. Það er hlutverk kjósenda. Það styttist í kosningar. Störf mín í fortíð, nútíð og framtíð verða þar vegin og metin. Ýmis verk mín hafa hlotið gagnrýni. Frekari skýringa hefur verið óskað. Ég vona að greinargerð mín hér svari þeim álitaefnum. Það mun ég gera áfram eftir því sem tilefni gefast á komandi kosningavetri, auk þess að gera grein fyrir öllum öðrum störfum mínum og sjónarmiðum fyrr og nú. Ég er baráttu- maður, en ég játa að fremur vil ég sjá framan í andstæð- inga mína, en hafa þá í felum, þegar ræða þarf mál, s.s. gagnrýni á mín störf. í mínu kjördæmi, Reykjaneskjördæmi, verður sennilega viðhaft prófkjör um röð efstu manna á lista Alþýðuflokks- ins vegna þingkosninganna sem fram fara eigi síðar en í apríl næstkomandi. Það mun fara fram á næstu vikum eða mánuðum. Þá gefst mínum flokkssystkinum og öllum stuðningsmönnum Alþýðuflokksins kostur á því að meta mín störf og kveða upp dóma. Það sama gildir um aðra félaga minna sem þar munu gefa kost á sér. í kosningun- um sem fram fara eigi síðan en í apríl er síðan stóri dóm- ur almennings kveðinn upp yfir stjórnmálamönnum og stjórnmálaflokkum. Þetta eru þeir dómar sem stjórnmálamenn eiga að hlíta. Það mun ég gera. Alþýðuflokkurinn hefur átt undir högg að sækja upp á síðkastið. Brotthvarf Jóhönnu Sigurðardóttur úr flokknum hefur sín áhrif. Hin neikvæða umræða um mig og mín mál hefur einnig áhrif. Ég vil hins vegar gera allt' sem í mínu valdi stendur til að þétta raðirnar og styrkja einhug okkar jafnaðarmanna. Með góðu starfi, málefnalegum og réttsýnum málflutningi er ég hins vegar þess fullviss að almenningur mun skilja hismið frá kjarnanum, greina aðal- atriði frá aukaatriðum og gera sér ljóst að verk Alþýðu- flokksins fyrr og síðar hafa orðið til þess að gera þjóðfé- lag okkar betra. Yfirlýsing Ég, Magnús Baldursson, skólafulltrúi í Hafnarfirði, vil að gefnu tilefni taka það fram að það eru rangar fullyrðingar að Guðmundur Árni Stefánsson fyrrum bæjarstjóri í Hafnarifrði hafi haft með að gera ráðningu í starf húsvarðar í Hva- ieyrarskóla. Það var mitt verk sem skólafulltrúa og síðar skólanefndar Hafnar- fjarðar. Hafnarfirði 22. september 1994, Magnús Baldursson. Félagsmálaráðherra, Hafnarfirði 17/9 ’94 Guðmundur Árni Stefánsson, Stekkjarhvammi 62, 220 Hafnarfirði. í tilefni af þeirri umfjöllun sem átt hefur sér stað að undanförnu um þig og þín embættisverk, vill stjórn Listahátíðar í Hafnarfirði taka fram eftirfarandi atriði: Allar ákvarðanir um einstök dagskráratriði Listahátíðar 1993 voru teknar af stjórn hátíðarinnar án þinna afskipta. Þegar stjórnin óskaði eftir þátttöku Finns Torfa Stefánssonar í LIH ’93, var sú ákvörðun eingöngu tekin á grundvelli list- fræðilegra forsenda sem hafði ekkert með þig þína persónu, pólitískar skoðanir eða fjölskyidutengsl að gera. Finnur Torfi er að okkar mati eitt af athyglisverð- ustu tónskáldum yngri kynslóðarinnar. Það hefur verið sú stefna sem stjórn LÍH hefur gefið sér við val listamanna, að gefa slíku fólki tækifæri til að sýna hvað í því býr. Hvað varðar gagnrýni okkar á störf fjármálastjóra LÍH ’93, þá teljum við að hvorki sé við þig, né aðra starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar að sakast. Hann verð- ur sjálfur að axla ábyrgð verka sinna. í bæjarstjórnarsamstarfi Alþýðuflokks og Alþýðubandalags í Hafnarfirði var undir þinni stjórn lagður grunnurinn að þeirri menningarmálastefnu sem hefur verið forsenda þeirrar miklu menningaruppbyggingar sem átt hefur sér stað í bæjarfélaginu. Þár er miðstýringu hafnað, en frumkvæði listamanna og listáhuga- manna virkjað til fullnustu í samstarfi við bæjarfélagið. Þetta viðhorf er einstætt í íslensku samfélagi. Við lýsum þeirri skoðun okkar að ef ekki hefði notið áhuga og velvildar þinnar í garð menningarinnar í Hafnarfirði, hefði sú vakning meðal hafnfirskra lista- manna sem átt hefur sér stað vart orðið að veruleika. Að síðustu viljum við vara ráðamenn og fjölmiðlafólk við hættunni á alvarlegu niðurbroti íslenskrar menningar í kjölfar óábyrgrar umfjöllunar af því tagi sem þjóðin hefur undanfarið orðið vitni að. Eftir stendur sú staðreynd að Hafnfirðing- ar hafa unnið þrekvirki í menningarmálum á aðeins örfáum árum. Menn skulu minnast þess að það er afar auðvelt að drepa nýgræðinginn og þá tapa allir, hvar í flokki sem þeir standa. Virðingarfyllst. Gunnar Gunnarsson Sverrir Ólafsson Örn Óskarsson. 22. júlí 1994 Yfirlýsing Vegna umfjöllunar vikublaðsins Pressunnar um viðskilnað fráfarandi heilbrigðis- ráðherra í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu vilja hlutaðeigandi aðilar upplýsa eftirfarandi: Ráðstöfunarfé ráðherra Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur heimild til að veita framlög og styrki af eftirfarandi fjárlagaliðum: 08-199 Ráðstöfunarfé ráðherra 08-399.1.90 Heilbrigðismál, ýmis framlög, þ.e.a.s. þeim hluta sem fjárlaga- nefnd Alþingis ráðstafar ekki. Heilbrigðisráðherra hefur á árinu 1994 eftirfarandi til ráðstöfunar: Fjárlagaliður 08-399-1.90 Ýmisframlög 1994 3.300 þús.kr. fluttur rekstrarafgangur frá 1993 11.131 þús.kr. Fjárlagaliður 08-199 Ráðstöfunarfé ráðherra 8.000 þús.kr. Samtals til ráðstöfunar 22.431 þús.kr. Eftirfarand: úthlutun hefur farið fram á árinu 1994: BundiðfévegnaBláalónsnefndarfrál993 2.588 þús.kr. Greiddir styrkir og framlög skv. bréfum undirr. af G.Á.S. 7.290 þús.kr. Ógreiddir styrkir og framiög skv. bréfum undirr. af G.Á.S. 3.950 þús.kr. Greiddönnurframlögogkostnaðurjan-júní’94 1.784 þús.kr. Til síðari ráðstöfunar heilbrigðisráðherra á árinu 1994 6.819 þús.kr. Rekstrarhagræðing í fjárlögum 1994 eru 58,6 m.kr. í rekstrarhagræðingarsjóðj heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis. Samkvæmt beiðni fjármálaráðuneytis var tillögum um úthlutun úr sjóðnum skilað í lok marsmánaðar. Áfengisvarnir og bindindismál Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra tók þá ákvörðun að úthluta úr áfengi- svarnasjóði í upphafi árs, en venja hefur verið að úthluta tvisvar á ári. Við úthlut- un úr áfengisvarnasjóði 1994 gerði ráðherra hlutaðeigandi aðilum grein fyrir að ekki yrði um frekari úthlutun að ræða á árinu. Verktakasamningur heilbrigðisráðherra við upplýsinga og kynningarfulltrúa Um greiðslu til upplýsinga- og kynningarfulltrúa segir svo í 3. gr. samningsins: „Greiðsla til verksala skal nema 225.440,- fyrir hvern unninn dagatalsmánuð, innifalin í þeim greiðslum eru launatengd gjöld. Þar að auki greiðist verksala orlof sem nemur uppsöfnuðum orlofsréttindum launþega og miðast við umsamd- ar greiðslur í samningi þessum. Yfn-vinna skal greiðast samkvæmt reikningi. Greiðslur skulu fyrirfram greiddar. Virðisaukaskattur er ekki innifalinn í ofan- greindri þóknun." Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hefur greitt sjö reikninga á árinu 1994, samtals að fjárhæð 3.127 þús. kr. Innifalið í þeim greiðslum er yfirvinna, 24,5% virðisaukaskattur, 6% lífeyrissjóðsframlag og 7% tryggingagjald. Ef frá er dreginn virðisaukaskattur og launatengd gjöld er launaþáttur þessara greiðslna samtals 2.222 þús. kr. eða að meðaltali 317 þús.kr. á mánuði. Enginn ágreiningur er milli fyrrverandi og núverandi heilbrigðisráðherra um fjármál heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og því allar fullyrðingar um að til standi skoðun eða rannsókn á fjárreiðum ráðuneytisins úr lausu lofti gi-ipn- ar. Umfjöllun Pressunnar með hliðsjón af ofangreindu er því ekki í samræmi við staðreyndir. Guðmundur Árni Stefánsson Sighvatur Björgvinsson (sign) (sign) Hvalfiarðargöngin Vali á verktaka frestað um 2-3 vikur HÓPUR sérfræðinga á vegum Spalar hf., sem hefur farið yfir tilboð þriggja hópa verktakafyrirtækja í gerð jarð- ganga undir Hvalfjörð á undanförn- um vikum, átti langan fund með fulltrúum verktakafyrirtækjanna sl. föstudag. Að sögn Guðlaugs Hjörleifssonar, verkefnisstjóra Spalar hf., vantar enn upplýsingar áður en hægt verður að taka ákvörðun um að ganga til samningaviðræðna við einn bjóðanda í verkið og var ákveðið að fresta því í tvær til þijár vikur til viðbótar á meðan verið er að afla þeirra. Þegar tilboð voru opnuð í gerð jarðganganna um seinustu mánaða- mót var gert ráð fyrir að niðurstaða um hvaða verktakahópur yrði fyrir valinu lægi fyrir upp úr miðjum sept- ember og að hægt yrði að hefja fram- kvæmdir fyrir árslok. Forráðamenn Spalar gera sér vonir um að þrátt fyrir þessa seinkun standist tímaá- ætlanir um framkvæmdirnar, skv. upplýsingum Guðlaugs. -----♦ ♦ ♦ Heimsmeistara- mótið í brids Fjögur pör á leið í undan- úrslitin FJÖGUR íslensk hridspör voru í gær á góðri leið með að tryggja sér sæti í undanúrslitum heimsmeistaramóts- ins í tvímenningi sem nú fer fram í Albuquerque í Nýju-Mexíkó. Jakob Kristinsson og Matthías_ ' Þorvaldsson voru í 2. sæti eftir tvær umferðir af þremur í undankeppni í opnum flokki. Björn Eysteinsson og Aðalsteinn Jörgensen voru í 48. sæti og Karl Sigurhjartarson og Þorlákur Jónsson voru í 115. sæti. Alis taka 396 pör þátt í mótinu og 180 pör komast áfram í undanúrslitin. í kvennaflokki voru Hjördís Ey- þórsdóttir og Ljósbrá Baldursdóttir í 10. sæti eftir tvær umferðir og Anna ívarsdóttir og Jacqui McGreal voru í 105. sæti. Þar taka 132 pör þátt og 90 komast áfram í undanúr- slitin. íslensku sveitirnar féllu báðar úr keppni í heimsmeistaramóti sveita. íslenska karlasveitin komst í 32 liða úrslit en var þar slegin út af sterkri bandarískri sveit. Kvennasveitin komst ekki áfram í 16 liða úrslit. Tilboð í smíði nýs varðskips LANDHELGISGÆSLAN hefur fengið tilboð í smíði nýs varðskips af samskonar gerð og danska varð- skipið Hvidbjornem Hafsteinn Haf- steinsson, forstjóri Landhelgisgæsl- unnar, vildi ekki tjá sig um tilboðið en staðfesti að það hefði borist. Nýbúið er að skipa nefnd sem er ætlað að gera heildarúttekt á núver- andi skiparekstri Landhelgisgæsl- unnar og þörf til næstu framtíðar með hliðsjón af verkefnum og gera tillögur um þá kosti sem koma til greina þegar ákvörðun verður tekin um skipakaup. „Nefndin þarf að vinna það verk sem henni er falið og fyrst að því loknu er hægt að tjá sig um hvaða kostir eru ákjósanlegastir. Það er alltof snemmt að segja til um það á þessu stigi málsins," sagði Hafsteinn. Hafsteinn staðfestir að tilboð hafi borist frá danskri skipasmíðastöð en segir að ekkerí mat verði á það lagt fyrr en nefndin hefur lokið störfum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.