Morgunblaðið - 27.09.1994, Page 32

Morgunblaðið - 27.09.1994, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMG t Faðir minri, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR GUÐMUIMDSSON, andaðist í Landspítalanum 26. september. Útför fer fram síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Ólöf Sigurðardóttir. t Fósturmóðir min, MARTA EYJÓLFSDÓTTIR, Hofteigi 22, Reykjavík, andaðist á Skjólvangi, Hafnarfirði, aðfaranótt 26. september. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Hilmar E. Guðjónsson. t Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, GUÐRÚN ELÍN ERLENDSDÓTTIR frá Mógilsá, Kópavogsbraut1A, Kópavogi, lést 24. september sl. Erlendur Lárusson, Áslaug Káradóttir, Pálmi Lárusson, Elsa G. Vilmundardóttir. t Faðir okkar, fóstri, afi og langafi, SIGTRYGGUR HALLGRÍMSSON, áður til heimilis að Nýjabæ, Seltjarnarnesi, lést aðfaranótt 24. september. Hallgrfmur Sigtryggsson, Kirsten Sigtryggsson, Kristín Sigtryggsdóttir, Sigurður E. Sigurðsson, Ragnhildur B. Sigtryggsdóttir, Kristján H. Gunnarsson, Vigdís Sigtryggsdóttir, Guðmundur Kr. Guðmundsson, Guðmundur Jón Helgason, Lilja Ægisdóttir, Ingólfur Árni Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir, fóst- urfaðir, tengdafaðir og afi, BENEDIKT BJÖRNSSON, Fellsmúla 22, Reykjavík, sem lést 23. september, verður jarð- sunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 29. september kl. 15.00. Kristín Magnúsdóttir, Björn S. Benediktsson, Margrét Finnbogadóttir, Haraldur Benediktsson, Brynja Halldórsdóttir, og barnabörn. t Ástkær móðir mfn, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MAGDALENA SIGURÞÓRSDÓTTIR, handavinnukennari, andaðist 25. september að Seljahlíð, Hjallaseli 55. Þórunn Sigurlásdóttir, Guðjóna Friðriksdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, systir, tengda- móðir og amma, VILBORG JÓNSDÓTTIR, Austurbrún 37A, andaðist í Landspítalanum 24. september. Jón Kristján Sigurðsson, Elísabet Árdís Sigurjónsdóttir, Sigurjón Sigurðsson, Magnea Björk Magnúsdóttir, Steinþóra Sigurðardóttir, Svanur Kristinsson, Högni Jónsson, Ragnhildur Jónsdóttir, Grímur Jónsson • og barnabörn. SÆMUNDUR BJARNASON + Sæmundur Bjarnason var fæddur 12. apríl 1912 í Þrándarkoti í Laxárdal í Dala- sýslu. Hann lést á Vífilsstaðaspítala 18. september síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Kristín Sæmundsdóttir, f. 16. september 1880, d. 1. júní 1968, og Bjarni Guðbrands- son, f. 9. febrúar 1879, d. 3. júní 1955. Bróðir Sæmundar er Þorsteinn Bjarnason, f. 21. júlí 1917, bú- settur í Borgarnesi. 22. júní 1940 giftist Sæmundur Ingi- björgu Arnórsdóttur, f. 17. júní 1902 í Tungu í Nauteyrarhreppi í Norður-ísafjarðarsýslu, d. 28. janúar 1988. Þau bjuggu á Fjós- um í Laxárdal í Dalasýslu frá MIG langar að minnast vinar míns, Sæmundar Bjamasonar, með nokkr- um orðum og þakka fyrir mig. Um þessar mndir eru tuttugu ár síðan ég kynntist honum, en það var þeg- ar ég fór að vinna undir hans stjórn hjá SS á 'Skólavörðustíg. Ég kom í viðtal skjálfandi á beinunum og var komin í vinnu sama dag. Ekkert hálfkák þar á bæ. Þessi ár sem ég vann hjá honum eru í endurminning- unni yndislegur tími. Þarna kynntist ég mörgu góðu fólki sem ég held sambandi við enn þann dag í dag. Mér finnst við alltaf hafa verið í góðu skapi og þar var oft slegið á létta strengi, þar var Sæmundur oft í fararbroddi. Hann kenndi mér rosa- lega margt á þessum tíma, t.d. að bera virðingu fyrir verðmætum, allt var nýtt sem frekast var kostur. Eftir að ég hætti í vinnu hjá hon- um hef ég haft samband við hann í gegnum tíðina og hugsa núna: Af hvetju ekki oftar? Það var alltaf gott að koma til hans á Freyjugöt- una í smáspjall og fann ég að hann hafði gaman að fylgjast með mér. Að ætla að lýsa Sæmundi í einni setningu er best gert með því að segja: Þar fór maður með hjartað á réttum stað. Hann átti við vanheilsu að stríða síðustu árin og síðast þegar ég hitti hann var hann orðinn veikur og þreyttur. Hann hefur nú fengið hvíldina en eftir sitja ættingjar og vinir og horfa á eftir mætum manni. Ég mun alltaf minnast Sæmundar vinar míns með virðingu og þakk- læti og sendi fjölskyldu hans sam- úðarkveðjur frá okkur stelpunum á Skólavörðustígnum. Hafðu þökk fyr- ir allt, kæri vinur. Guð geymi þig ávallt. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öllkvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. 1940 til 1950, en þá fluttust þau til Reykjavíkur. Börn þeirra eru tvíbur- arnir Auður og Þor- steinn, f. 7. október 1939. Stjúpsonur Sæmundar var Arn- ór V. Þorláksson, f. 18. desember 1927, d. 12. ágúst 1993. Barnabörn Sæ- mundar og Ingi- bjargar eru sex og barnabarnabörn til Við komuna Reykjavíkur vann Sæmundur fyrst við byggingar- vinnu en síðan fljótlega við verslunarstörf og lengst af sem verslunarsljóri Sláturfélags Suðurlands á Skólavörðustíg 22 þar til hann hætti vegna aldurs. Útför hans fer fram frá Hall- grímskirkju í dag. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Guðrún I. Bjarnadóttir. Mig Iangar að minnast Sæmundar Bjamasonar með örfáum orðum. Það eru yfir 40 ár liðin síðan ég hitti Sæmund fyrst vestur í Búðardal. Þar sem hann og eiginkona hans Ingi- björg Arnórsdóttir bjuggu ásamt tví- burabörnum sínum Auði og Þor- steini. Sæmundur var stjúpfaðir eig- inmanns míns Arnórs Þorlákssonar, sem nú er látinn. Sæmundur var ættaður frá Búð- ardal og bjuggu þau Ingibjörg þar til ársins 1950, er þau fluttu til Reykjavíkur. Þar vann Sæmundur í byggingavinnu og við verslunarstörf. Síðar verslunarstjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands. Hann var góður verk- maður og vann störf sín af mikilli vandvirkni og samviskusemi. Það var enginn svikinn sem hafði hann í vinnu. Sæmundur var börnum sínum og bamabörnum góður faðir og afi, þau minnast hans nú með þakklæti. Hin síðari ár dvöldu Ingibjörg og Sæmundur hjá Auði dóttur sinni og tengdasyni, Francisco, á Kanaríeyj- um um tíma á hveijum vetri, en Auður hefur búið og starfað sem fararstjóri á Kanaríeyjum sl. 17 ár. Þessara ferða nutu þau bæði full- komlega. Eftir að Ingibjörg lést árið 1988 varð Sæmundi erfiður tími. Hann hélt þó áfram að vera hjá Auði á veturna, en svo fór heilsan að gefa sig, þá dvaldi Sæmundur af og til á sjúkrahúsum, lengst af á Vífílsstöðum. Hann var þó hress á milli. Sæmundur átti einn bróður, Þor- stein, sem býr í Borgarnesi. Hjá Þorsteini og konu hans Sigríði Aðal- steinsdóttur átti Sæmundur alltaf athvarf. Hann var mikið hjá þeim. Reyndust þau, synir þeirra og þeirra fjölskyldur Sæmundi með afbrigðum vel, hlúðu að honum og gerðu honum lífið léttara. Eru þeim öllum færðar sérstakar þakkir fyrir þeirra framlag. Þar er hlutur Sigríðar stærstur. Auður mín og Þorsteinn, ég votta ykkur innilega samúð mína. Guð styrki ykkur. Ég þakka þér samfylgdina, Sæmi minn, og góða ferð. Asthildur Torfadóttir. EINAR PALSSON + Einar Pálsson fæddist á Lam- bastöðum í Miðnes- hreppi, Gullbringu- sýslu, 25. október 1920. Foreldrar hans voru Páll Ein- arsson sjómaður, ættaður frá Hólkoti í Miðnesi og Þóra Sigurðardóttir frá Vatnagörðum í Garði. Var Einar næstyngstur fjög- urra systkina. Hin eru í aldursröð: Páll Sigurður (Iátinn), Kristín (látin) og Yngvar Nikul- áb. Einar kvæntist ekki, en eignaðist tvö börn. Þau eru: Þórarinn, f. 20. júlí 1947, og Stefanía Björg, f. 19. október 1950. Útför Einars fer fram frá Dómkirkjunni í dag. LÍFIÐ er hverfult. Einn daginn er maður hrókur alls fagnaðar og síð- an gleymdur flestum. Okkur fannst lífshlaup Einars frænda hafa verið slíkt. Við börn bróður hans munum flest eftir Einari sem heilsuhraust- um manni, en vissum að sem ungur maður hafði hann verið frækinn íþróttamaður með Knattspyrnufé- laginu Víkingi og hrókur alls fagn- aðar í góðra vina hópi. En þrátt fyrir heilsu- leysi sitt bar hann aldrei erfiðleika sina á torg. Hann miklu frek- ar vitnaði í æsku sína hjá foreldrum sínum sem voru guðhrædd og elskuleg og gáfu börnum sínum það besta veganesti sem nokkurt barn gat fengið. Einar bjó alla tíð að þessu og var alltaf vilj- ugur til að bera þeirra boðskap til okkar frændsystkinanna. Nú er hann allur og við, sem oftar en ekki höfum horft til ann- arra gilda í lífinu, erum þakklát fyrir að hafa kynnst honum. Við kveðjum hann með söknuði og biðj- um góðan Guð að taka hann til dýrðar sinnar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Kristinn Páll, Elísabet, Þórir, Steinunn Björg. Minnismerki úr steini Steinn er kjörið efni í allskonar minnismerki. Veitum alla faglega ráðgjöf varðandi hverskonar minnismerki. Áralöng reynsla. BS. HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 91-76677

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.