Morgunblaðið - 27.09.1994, Side 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
fTTT?--y___r1
HÁSKOLABÍÓ
SÍMI 22140
Háskólabíó
STÆRSTA BIOIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
KUREKAR I NEW YORK
i : ■■m
'r ‘iiplf
^ ^ f '
IIP i
THE
W’J' '^ ■■■ ■ ■.'■■■
Frábær grín spennumynd meö Woody Harrelson og Kiefer Sutherland
um kúreka sem lenda í drep hallærislegum og meinfyndnum vand-
ræðum í stóra eplinu New York. Upp með hendur og skjóttu!
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
BLAÐIÐ
Sjáðu Sannar lygar í DTS Digital
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
FJÖGUR BRÚÐKAUP OG
JARÐARFÖR
Sfiour Weddings
and a Funeral ^
Á MORGUN KEMUR
JÓI TANNSTÖNGULL
Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05
og 11.15
------------------------------------------\
A Lestu
KEWAgA- ■ -
œ betur
er námskeið fyrir fullorðna sem vilja bæta sig f lestri og stafsetningu.
Námskeiðið er á vegum Lestrarmiðstöðvar Kennaraháskóla íslands
og Félagsmálaskóla alþýðu.
Það hefst 12. október og lýkur 9. nóvember.
Kennsla fer fram í Lestrarmiðstöð mánudaga og miðvikudaga
frá kl. 20 til 22. Kennari er Guðni Kolbeinsson.
Skráning og nánari upplýsingar eru veittar í Lestrarmiðstöð
í síma 633868 og Félagsmálaskóla alþýðu í síma 814233.
VASKHUGI
Forrit fyrir fyrirtaeki og
einstaklinga með rekstur
% Sölureikningar, gíróseölar, póstkröfur,
víxlaútreikningur.
Bókhaldið er fært um leið og reikningar eru skrifaðir. Virðisaukaskatturinn er
færður jafnóðum, staða viðskiptavina, staða birgða o.s.frv. uppfærist sjálfvirkt.
0 Gjöld, innskattur, skuldir
Um leið og gjöld eru færð inn flokkast þau eftir eðli, innskattur reiknast af þeim
og Vaskhugi heldur utan um það sem er greitt og ógreitt. Þannig er staða vsk.
alltaf á hreinu, útgjöldin þekkt og skuldir lika.
§ Skýrslugerö fyrir rekstur og skattayfirvöld
Prenta má pg skoða ótal skýrslur fyrir reksturinn og skattinn: gjöld, tekjur,
útistandandi kröfur, skuldir, hver keypti hvað og hvenær, verðmæti birgða,
pantanir o.fl.
0 Fjárhagsbókhald (sjálfvirkt)
Einn aðalkostur Vaskhuga er að debet og kredit færist sjálfkrafa og ekki eru
gerðar kröfur um mikla bókhaldsþekkingu af notanda. Úr fjárhagsbókhaldi má
prenta út dagbók, hreyfingalista, stöðulista, efnahags- og rekstrarreikning fyrir
hvaða tímabil sem er. (árslok má afhenda endurskoðanda diskling með öllum
gögnum til að hann geti gengið frá fymingarskýrslu og öðrum skýrslum til
skattyfirvalda.
0 Verkefnabókhald
Verkefnabókhald Vaskhuga er afar vinsælt því hér má færa inn hin ýmsu verk og
skrifa sölureikninga og skýrslur um verkið eða hluta þess hvenær sem er. Bera
má saman verð verksins við kostnaðarverð eða heildsöluverð i birgðum og fá
þannig á einfaldan hátt framlegð verksins á blað.
% Launabókhald
Launabókhaldið skrifar út launaseðla og heldur utan um launþegana,
lífeyrissjóði, staðgreiðslu, félagsgjöld, orlof, tryggingagjald o.s.frv. Hvenær sem
er má færa skýrslur um greiðslur til þessara aðila yfir hvaða timabil sem er.
Allar skríffinnskuþarfir venjulegs reksturs i einu einföldu forríti.
Prófaðu Vaskhuga án skuldbindinga eða fáðu nánari upplýsingar.
lHfvásklmgi hf. 682 680
Björgvin Halldórsson fagnar 25 ára hljómplötuafmæli
*
Stórsýning á Hótel Islandi
og 40 laga úrval
BJÖRGVIN Halldórsson fagnar nú
þeim tímamótum að aldarfjórðung-
ur er liðinn síðan hann söng fyrst
inn á hljómplötu, en árið 1969 var
honum boðinn plötusamningur eftir
að hafa verið kosinn poppstjarna
ársins og söng m.a. „Þó líði ár og
öld“ inn á hljómplötu. Björgvin
héfur síðan sungið tæplega 400 lög
inn á hljóm- og geislaplötur og
koma 40 þeirra út á tveimur geisla-
plötum í næsta mánuði með sextán
síðna yfirlitsbók, auk þess sem sett
verður upp stórsýningin „Þó líði
ár og öld - Björgvin Halldórsson
25 ár á hljómplötum" á Hótel Is-
landi þar sem Björgvin syngur
mörg helstu lög sín ásamt Sigríði
Beinteinsdóttur og átta manna
hljómsveit. Verður fjöldi sýninga
takmarkaður við átta sýningar, en
frumsýning er 8. október nk.
25 ár liðið hratt
Á geislaplötunum verða mörg
af þekktustu og vinsælustu lögum
Björgvin í gegnum tíðina og aðeins
eitt „nýtt“ lag, Ég las það í Samú-
el, sem Björgvin syngur ásamt
Stefáni Hilmarssyni en hljómsveitin
Brimkló hljóðritaði upprunalega
lagið á sínum tíma. Björgvin sagði
í samtali við Morgunblaðið að á
þeim 25 árum sem Iiðin eru síðan
hann söng inn á fyrstu hljómplötu
GÓÐVINIRNIR Kristján Jó-
hannsson og Björgvin Hall-
dórsson við upptökur á geisla-
plötu þess fyrrnefnda, Af lífi
og sál, í Angels studios í Lond-
on á seinasta ári, en þeir
hyggjast taka lagið saman 8.
okt. nk. á Hótel íslandi.
sína við undirleik breskra tónlist-
armanna, hafi hann tekið þátt í
gerð um 150 hljómplatna sem hann
viti um, en ýmsar aðrar, svo sem
hljóðritanir erlendis væru ekki tald-
ar með. Hann segir erfitt að gera
sér í hugarlund að 25 ár séu liðin
síðan hann þreytti frumraun sína
í hljóðveri.
„Það er skrýtið að hugsa til þess
að hafa verið í aldarfjórðung að
syngja, mér finnst örstutt síðan að
allt saman hófst. Keyrslan hefur
verið mikil þrátt fyrir nokkur góð
hlé, því ég hef gætt mín á því að
ofbjóða ekki markaðinum og snúið
mér að öðrum verkefnum á meðan,
þar á meðal upptökustjórn," segir
Björgvin en hann lauk nýlega við
að framleiða og taka upp einsöngs-
plötu Sigrúnar Hjálmtýsdóttur
ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands,
og skammt er liðið hann stýrði í
þriðja sinn upptökum á hljómplötu
með Kristjáni Jóhannssyni, sem
náði metsölu í fyrra.
Björgvin segir að tónlistin verði
í aðalhlutverki á sýningunni á Hót-
el íslandi. Á dansleiknum eftir sýn-
ingar, kemur hann síðan fram og
hugsanlega Sigga Beinteins líka,
með hljómsveitunum Hljómum og
Ðe Lónlí Blú Bojs sem leika fyrir
dansi. „Á sýningunni mun fólk
heyra glefsur úr sjötíu lögum og
sum heil, en við förum þó aldrei
svo hratt yfir sögu að fólk geti
ekki notið laganna til fulls," segir
Björgvin.
Syngur með Kristjáni
„Það er mikill metnaður á bak
við útgáfuna og sýninguna, maður
framkvæmir annað eins fyrirtæki
aðeins einu sinni og reynir að leggja
ýmislegt á sig til að gera hvort
tveggja sem best úr garði. Lögin
eru orðin mörg ög eiginlega var
varla hægt að velja lög frá ferlinum
á diskana, þau voru svo mörg og
höfðu flest eitthvað sér til ágætis.
Við vorum búnir að grisja niður í
sjötíu þekkt lög en urðum að fækka
þeim um þrjátíu í viðbót fyrir útgáf-
una sem var enginn barnaleikur,“
segir Björgvin. Góðvinur hans,
Kristján Jóhánnsson, mun koma á
opnunarsýninguna á Hótel íslandi
og segist Björgvin búast fastlega
við að þeir félagar muni taka lagið
saman.
Hljómsveit Björgvins á sýning-
um er skipuð Gunnari Þórðarsyni,
sem annast hljómsveitarstjórn og
útsetningar, en Jon Kjell og Þórir
Baldursson leika á hljómborð, Vil-
hjálmur Guðjónsson leikur á gítar
og saxófón, Halldór Guðmundsson
leikur á trommur, Þórður Guð-
mundsson leikur á bassa, Veigar
Margeirsson leikur á trompet og
Kristinn Svavarsson leikur á saxó-
fón. Danshöfundur á sýningunni
er Helena Jónsdóttir, handrit, leik-
stjórn og leikmynd er í höndum
Björns G. Björnssonar en Jón Axel
Olafsson kynnir.