Morgunblaðið - 13.10.1994, Side 4

Morgunblaðið - 13.10.1994, Side 4
4 B FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR/PRÓFKJÖR Opnum landið sem frísvæði Inngangur AÐ SKAPA nýja f%amtíð og koma nýj- um hugmyndum á framkvæmdastig er oft erfíðara en margur hyggur. Kemur þar margt til eins og hags- munaárekstrar við þá sem fyrir eru, áhuga- leysi eða afskiptaleysi stjómvalda. Við íslendingar höf- um um langt skeið reynt að fjölga eggj- unum í körfu atvinnul- ífsins svo lífsafkoma þjóðarinnar væri ekki öll undir ef ein atvinnugrein eins sjávarútvegur sem skapar vel- íerðina á íslandi gæti ekki staðið undir því hlutverki sínu lengur. Er skemmst að minnast tilrauna í stóriðju á Keilisnesi, fískeldi o.fl. Því miður hafa mjög fá ný egg komið í körfuna þó mikið hafí verið reynt og miklu til kostað. Við erum enn um of háð frum- framleiðslugreinunum en sjávarút- vegurinn skapar enn um 80% af útflutningstekjum okkar eins og kunnugt er, meðan sambærilegt hlutfall hjá iðnvæddum þjóðum er 15% og jafnvel neðar. Hvernig ætlum við að bregðast við síminnk- andi fískveiðikvótum? Ég get ekki séð hvemig þjóðin ætlar að bregð- ast við ef úthafsveiðin hættir en hún heldur velferðinni uppi í dag. Hvernig hafa aðrar eyþjóðir brugðist við? Til að skapa nýja framtíð og betri kjör þarf nýja hugsun, áræði og jafnvel mikl- ar breytingar. Ég var nýlega í kynnisferð í Shannonhéraði á ír- landi til að kynnast því hvernig þeir leystu vandamálin varðandi einhæft atvinnulíf í héraðinu, sem var staðnað bændasamfé- lag fyrir 35 árum með um 400 þús. íbúa. Aðferðin var bæði einföld og áhrifarík. Þeir settu upp áætlun til að laða til Shannon öflug iðnaðar- og framleiðslufyrirtæki hvaðanæva úr heiminum sem veittu íbúunum ný störf. Áætlunin byggist á því að lækka tekjuskatt á fyrirtækjum úr 53% niður í 10% (með afskrift- um niður í 0%) og að veita fyrir- tækjum styrki fyrir öll ný- störf sem þau sköpuðu og þjálfunar- styrki til að þjálfa upp starfsfólk. írska ríkið sá um framkvæmdina með sérstökum lögum. í dag, 35 árum síðar, starfa á frísvæðakjörum og í tengslum við það um 1.000 fyrirtæki og er velta þeirra um 70 milljarðar króna á ári. Þar starfa beint eða við þjón- ustu hjá frísvæðafyrirtækjunum Nauðsynlegt er að fjölga eggjunum í körfu atvinnulífsins, segir Krístján Pálsson, svo lífsafkoma þjóðarinnar byggist ekki alfarið á einni atvinnugrein. um 100 þúsund manns. Frísvæðafyrirtækin eru ekki lengur innan girðingar eins og áður heldur eru gerðir samningar við hvert fyrirtæki og eru í honum hörð viðurlög ef hann er brotinn. Fyrirtækin sem flest eru erlend hafa í samningnum heimildir til að selja hluta framleiðslu sinnar á innanlandsmarkað á Irlandi með fullum sköttum. Þannig er tryggt að ekki myndist ójafnvægi við írsk framleiðslufyrirtæki utan frí- svæðisins með samkeppnismis- munun. Engin dæmi voru til um að samningar þessir væru brotnir og sögðu flestir fyrirtækjaeigend- ur á frísvæðinu að þeirra markað- ur væri utan írlands og ekki mark- mið að framleiða á svo lítinn mark- að sem þann írska, þar sem ein- ungis byggju 3,5 millj. manna! Hjá þessum fyrirtækjum er mjög fjölbreytt framleiðsla eins og símhlutir, iðnaðardemantar, föt, listmunir, snyrtivönir o.m.fl. Kristján Pálsson Hátekju- skattur - von vinstri manna ÞAÐ VIRÐIST vera kappsmál vinstriflokk- anna að sem flest verði skattlagt. Fulltrúar þeirra heimta að fjár- magnsskattur verði lagður á og segja að hinn svokallaða há- tekjuskatt megi ekki taka af. Þegar skattur var lagður á þá sem höfðu yfir 200.000 krónur í /Ojánaðarlaun var því lofað að hann yrði að- eins til tveggja ára. Þetta var hluti af að- gerðum ríkisstjórnar- innar í því kreppu- ástandi sem reið hér yfír. Nú, þeg- 46,84% Guðmundur Kristinn Oddsson við í dag býður upp á að einstaklingamir greiði hærra hlutfall eftir því sem j>eir hafa hærri tekjur. I því sam- bandi ber að líta á töfl- una en þar kemur fram SJÁ TÖFLU Á hinn bóginn er hægt að bera saman tekjur einstaklings sem fer yfír hátekjuskatts- mörkin og annars sem er rétt undir þeim mörkum. Sá sem fer yfír 203.340 krónur á mánuði þarf að greiða í skatt. Sá sem er undir ar bjartara er framundan, er engin ástæða til þess að mismuna fólki á þennan hátt enda ætlar ríkis- stjórnin að standa við það loforð að þessi skattur verði aðeins til tveggja ára. Það er stórkostleg misbeiting á vajdi að taka einn hóp manna út og skattleggja hann sérstaklega. Einstaklingar eiga að njóta jafn- réttis gagnvart lögunum. En eftir því sem hver og einn hefur hærri laun, því meira getur hann lagt af mörkum til samfélagsins. Þetta er það sem vinstriflokkamir hafa haft til grundvallar þegar þeir krefjast skattlagningar á „háum“ tekjum. Én það skattkerfí sem við búum því greiðir 41,84%. Ráðstöfunartekjur einstaklings með 200 þúsund krónur í mánaðar- laun eru 130.264 krónur. Ráðstöf- unartekjur annars sem er með 205 þúsund krónur í mánaðarlaun eru 122.672 krónur. Það þýðir að sá sem er með fimm þúsund króna hærri tekjur hefur 7.592 krónum minna í buddunni þegar upp er staðið. Þetta er misrétti! Vinstrimönnum virðist vera sér- staklega í nöp við ungt fólk sem vinnur myrkranna á milli til þess að koma sér upp þaki yfír höfuðið. Einnig eru sjómenn þeirra blóra- bögglar, menn sem búa við lítið fjárhagslegt öryggi því þó þeir hafi góðar tekjur eitt árið geta þær Tekjur á mán.skattur í kr. skattur í prósentum 50.000 0 0,0% 100.000 17.896 17,9% 150.000 38.816 25,9% 200.000 59.736 29,9% 250.000 80.656 32,3% 1.000.000 394.465 39,4% orðið litlar sem engar það næsta. Það er staðreynd að stór hluti þeirra sem hafa þurft að greiða þennan hátekjuskatt er fólk sem berst við að halda sér og sínum á floti og hefur góðar tekjur aðeins tímabundið. Sumir vinna á mörg- um stöðum og strita nær allan sólarhringinn. Það er nú einu sinni svo að það er dýrt að lifa og ef litið er á allt það sem ungt fólk sem er að hefja búskap þarf að greiða þá sér hver maður að þó að tekjumar eigi að teljast háar þá duga þær vart fyrir útgjöldum. Enda sér flest ungt fólk ekki fram á að geta með góðu móti eignast Álagning sérstaks há- tekjuskatts er röng, segir Guðmundur Kristinn Oddsson, því skatthlutfallið fer í raun hækkandi með hærri tekjum. eigið húsnæði án þess að eiga yfir höfði sér gjaldþrot þegar fram í sækir. Hátekjuskatturinn var sem bet- ur fer stundarfyrirbrigði. Vonándi þurfum við aldrei að búa við slíkt aftur. Höfundur tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Rcykjnvík. Samfara þessari miklu grósku í atvinnulífínu í Shannonhéraði hefur þróast þar upp háskóli, Uni- versity of Limerick, sem sérhæfír sig í námsbrautum fyrir atvinnulíf- ið. Veitir skólinn nemendum sínum starfsþjálfun hjá framleiðslufyrir- tækjum víða um heim eins og í Þýskalandi og í Japan. Einnig hafa þeir byggt upp net söluskrifstofa um allan heim sem leita að fyrirtækjum til að fjár- festa á írlandi og eins selja þeir þekkingu sína og eru orðnir mjög eftirsóttir ráðgjafar við að stofn- setja frísvæði. I dag starfa 15% íbúanna í Shannonhéraði við landbúnað. Nýjar leiðir Ferðin til írlands virkaði á mig eins og við hér á Fróni værum 300 árum á eftir írum á sviði starfs- mannamenntunar og skapandi hugsunar til breyttra atvinnu- hátta. Við erum umgirt tolla- og skattamúrum sem þjóna engum hagsmunum fyrir þjóðina lengur og leiða einungis til þess að erlend- ir og jafnvel innlendir framleiðend- ur sjá hagsmunum sínum betur borgið annars staðar en á íslandi. Á meðan ráðamenn þjóðarinnar líta á frísvæði sem deyjandi fyrir- bæri þá líta aðrar þjóðir á það sem tæki til að bregðast við sívaxandi samkeppni frá Austurlöndum sem bjóða ódýra vöru í krafti ódýrs vinnuafls. Við verðum að tileinka okkur nýjar leiðir sem skapa nýja mögu- leika, við verðum að opna landið og laða hingað fyrirtæki. Það get- um við m.a. gert með stofnun frí- svæðis þar sem framleiðendum væri gefinn kostur á því að velja hvar þeir settu niður starfsemi sína. Áð mati þeirra í Shannon er stöðugleiki í stjórnarfari, góð sam- skiptakerfi, góðar flugsamgöngur, góð höfn og hæft vinnuafl ásamt von um betri arðsemi, t.d. með lágum sköttum, þjónustugjöldum og orkugjöfum, það sem þarf svo hugmyndin virki. Við höfum allt sem þarf til að skapa hér tæki- færi til nýrrar sóknar, það getum við þakkað lækkandi verðbólgu og stöðugleika í efnahagslífinu síð- ustu árin. Hér er fólk sem hefur allt til brunns að bera til að takast á við nýja tíma, það þarf aðeins að skapa þá umgjörð sem veitir nýj- um leiðum aðgang. Lokaorð Umræðan um inngöngu í Evr- ópusambandið hefur verið nokkuð áberandi undanfarið og virðast vera skiptar skoðanir í því máli. Þó hafa óháðar stofnanir eins og Háskóli íslands talið inngöngu í Evrópusambandið skila okkur meiri hag en minni. Þeir opinberu aðilar og fyrir- tækjaeigendur sem við ræddum við á írlandi voru á einu máli um ágæti þess fyrir írland að hafa gengið í Evrópusambandið á sín- um tíma. Þeir tóku svo djúpt í árinni sumir að telja þróunina eft- ir inngönguna álíka mikið stökk fyrir írland og þegar fólksflutning- ar þróuðust úr hestakerrunni og upp í Bens. Þeirra álit er að þrátt fyrir að í Bandaríkjunum séu taldir vera 43 millj. írsk ættaðir Bandaríkja- menn sem hafa haldið uppi mál- efnum íra af miklu harðfylgi, sé hag þeirra betur borgið í banda- lagi í Evrópu en í Ameríku. Að skoða þessa möguleika og kanna ítarlega stöðu okkar í samn- ingum við Evrópusambandið fínnst mér hljóti að vera nauðsyn- legt. Slík skref á þó að taka var- lega og ekki hætta neinu en þau verður þó að taka, því þrátt fyrir allt þá erum við Evrópuþjóð og án náinna samskipta við Év'rópu getur hagur okkar orðið tvísýnn og á það getum við ekki hætt. Höfundur er fyrrverandi bæjarstjóri. Einar Kristin í 1. sæti GÓÐIR Vestfírðing- ar. Laugardaginn 15. október nk. ganga sjálfstæðismenn (og stuðningsmenn D-list- ans) til prófkjörs vegna uppstillingar á lista Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum vegna al- þingiskosninganna, sem væntanlega fara fram í aprílmánuði á næsta ári. Þýðingarmikið er, að sem flestir taki þátt í prófkjörinu og hafí þannig áhrif á skipan listans. I mínum huga er auðvelt að velja í 1. sæti listans. Einar Kristinn Guðfinnsson, al- þingismaður, sem nú skipar 2. sæti, er verðugur arftaki Matthí- asar Bjarnasonar til að leiða lista sjálfstæðismanna á Vestfjörðum. Reynsla Einars, þekking hans á flóknu og vandrötuðu kerfi ráðu- neyta og stofnana ásamt góðri yfírsýn yfir stöðu byggðarlaga á Vestfjörðum er og verður honum gott fararnesti í forystu fyrir nýrri og öflugri sókn Vestfirðinga á öll- um sviðum, þar sem atvinnuör- yggi, betri búsetuskilyrði og fag- urt mannlíf verður í öndvegi haft. Einar Kristinn hefur sem þing- maður vaxið að virðingu. Hann hefur með hógværð, rökföstum og góðum málflutningi áunnið sér traust manna, jafnt andstæðinga sem samherja. Til hans hefur verið gott að leita við lausn erfíðra og flókinna mála. Einar hefur kosið það vinnulag að „blása ekki í herlúðra" við lausn hinna ýmsu mála, heldur vinna í kyrrþey og láta verkin tala. Ég hvet þátttakend- ur í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins á Vestfjörðum til að gera veg Einars Krist- ins Guðfinnssonar al- þingismanns sem veg- legastan. Felum þess- um unga og glæsilega frambjóð- anda forystu í málefnum okkar Ég hvet Vestfirðinga, segir Ólafur Kristjáns- son, til að gera veg Ein- ars Kristins Guðfinns- sonar sem veglegastan. Vestfírðinga á Alþingi. Með því að setja Einar Kristin Guðfínnsson í 1. sæti munum við eignast traustan og dugmikinn leiðtoga. Höfundur er bæjarstjóri í Bolungarvík. Ólafur Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.