Morgunblaðið - 21.10.1994, Síða 1
KÖRFUKNATTLEIKUR: ÆVINTÝRALEG SIGURKARFA TEITS Á NESINU / D2
4 --------------------------------------------------------------
Blikasigur gegn KR
PENNY Peppas, bandaríska leikmanninum í kvennaliðf Brelðabliks, var vel gætt í leiknum gegn KR
í 1. delldinni í gærkvöldi en var engu að síður stlgahæst með 21 stig. Hér er hún með knöttinn en
til varnar eru Helga Þorvaidsdóttlr, t.v., og Elínborg Herbertsdóttir. Brelðablik sigraðl 55:50
Mjög ánægður / D2
Landsliðs-
æfingar í
Torquay
Um 70 mannsá
vegum KSÍ í Bret-
landi á sama tíma
Síðasti undirbúningur landsliðs-
hópsins fyrir Evrópuleikinn
gegn Sviss ytra verður í Torquay á
suðurströnd Englands. Fyrst var
fyrirhugað að fara til Arabaríkja,
en þegar sú ferð datt upp fyrir var
ákveðið að finna hentugt æfinga-
svæði á meginlandi Evrópu. Það
fékkst ekki á þeim tíma sem best
hentaði og þvi var haft samband
við Magnús Steinþórsson, sem á
hótelið Manor House í Torquay, og
gat hann komið til móts við óskir
KSÍ, en hentugt æfingasvæði er í
næsta nágrenni við hótelið.
Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari,
sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi
að hann væri ánægður með þessa
niðurstöðu. Mikilvægt væri að halda
hópnum við efnið fyrir leikinn gegn
Sviss og Torquay væri hentugur
staður.
Landsliðshópurinn fer til Eng-
lands laugardaginn 29. október og
kemur heim mánudaginn 7. nóvem-
ber, en landsleikurinn við Sviss
verður 16. nóvember. Kvenna-
landsliðið mætir landsliði Englands
í seinni leiknum í átta liða úrslitum
Evrópukeppninnar í Brighton
sunnudaginn 30. október og U-16
ára drengjalandsliðið mætir Skotum
í Evrópukeppninni í Glasgow mánu-
daginn 31. október! Því verða um
70 manns á vegum KSÍ' í Bretlandi
á sama tíma.
1994
FOSTUDAGUR 21. OKTÓBER
BLAÐ
KNATTSPYRNA
KSI hrindir af stað
hæfileikamótun
knattspyrnudómara
Stjórn Knattspyrnusambands íslands samþykkti
á fundi sinum í gær að hrinda af stað áætlun
um hæfileikamótun efnilegustu dómara landsins.
Þáttur i áætiuninni verður að mynda hóp 15 til
20 efnilegustu dómara landsins sem sérstaklega
verður fylgst með, en markmiðið er að úr þessum
hópi komi A dómarar framtíðarinnar. Skipuð verð-
ur nefnd sem skal í upphafí móta framkvæmd
verkefnisins og semja áætlun um hæfíleikamótun
dómara. Nefndin skal taka mið af hæfileikamótun
KSÍ með efnilegustu leikmennina og var samþykkt
að í nefndinni yrðu Jón Gunnlaugsson, formaður,
Gylfí Þór Orrason, Eysteinn Guðmundsson, Haf-
steinn Gunnarsson og Eyjólfur Ólafsson.
KNATTSPYRNA
KORFUKNATTLEIKUR
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Atli þjálfar lið ÍBV
JLtli Eðvaldsson var í gær ráðinn þjálfari
1. deildar liðs ÍBV í knattspyrnu og var
eins árs samningur undirritaður. Jóhannes
Ólafsson, formaður ÍBV, sagðist vera mjög
ánægður með að hafa fengið Atla. „Við teljum
að hann sé réttur maður fyrir iið okkar enda
með Eyjablóð í sér,“ sagði hann í gærkvöldi.
Atli á ættir að rekja til Eyja; móðir hans var
Undanfarin ár hefur stór hluti Eyjaliðsins
Atli
verið í Reykjavík yfir vetrar-
mánuðina vegna náms, en
Jóhannes sagði að aldrei
þessu vant væri allur hópur-
inn fyrir utan tvo menn úti
i Eyjum og það væri mikill
kostur. Hann sagði að Atli
yrði með liðið eins mikið og
ástæða þætti til í vetur, en
ráðinn yrði aðstoðarmaður
til að sjá um æfingarnar að öðru leyti „og svo
kemúr Atli alkominn út í Eyjar með hækk-
andi sól.“
Atli er einn leikreyndasti maður landsins í
knattspyrnu og á flesta landsleiki að baki. Sem
leikmaður var hann aðstoðarþjálfari Ivans
Sochors iijá KR og tók síðan við þjálfun liðs-
ins ásamt Janusi Guðlaugssyni, en gerðist svo
þjálfari HK og hélt liðinu I 2. deild á nýliðnu
tímabili.
4 milljarða
hagnaður
varð af HM
BANDARÍKJAMENN sönnuðu
enn einu sinni að þeir kunna
að halda íþróttamót. Mönnum
er ífersku minni heimsmeist-
arakeppninn í knattspyrnu sem
fram fór í sumar. í gær tilkynnti
framkvæmdanefnd keppninnar
að hagnaður af henni hefði ver-
ið 60 milljónir dala, eða um fjór-
ir milljarðar króna.
Formaður nefndarinnar, Alan
Rothenberg, hafði lýst því yfir
fyrir keppnina að stefnt væri að því
að hún skilaði 20
Gunnar milljón dala hagnaði
Valgeirsson en nú er hins vegar
skrifar frá komið í ljós að hagn-
Bandaríkjunum aðurinn verður 40
milljónum meiri.
Megin ástæða þessarar góðu útkomu
er að aðsókn var ívið meiri en Rot-
henberg hafði gert ráð fyrir og einn-
ig var kostnaður vegna öryggis-
gæslu mun minni en gert var ráð
fyrir.
Rothenberg fær ríkulleg laun fyr-
ir frábært starf því í gær var ákveð-
ið að hann fengi tæpar 200 milljón-
ir króna sem bónusgreiðslu. Peter
Ueberroth, sem var framkvæmda-
stjóri Ólympíuleikanna í Los Angeles
árið 1984 og starfaði sem ráðgjafi
HM nefndarinnar var ángæður í
gær. „Það er ótrúlegt að skila svona
miklum hagnaði og sýnir hversu
mikið afrek framkvæmdanefndin
hefur unnið,“ sagði Ueberroth.
Fyrir keppnina var ákveðið að
bandaríska knattspyrnusambandið
ætlaði að nota hagnaðinn sem það
fær, og var áætlaður 20 milljónir
dollara, yrði varið til unglingastarfs.
Knattspyrnusambandið hefur ekki
enn ákveðið hvað það gerir við hinar
kærkomnu auka 40 milljónir en víst
er að þetta ýtir undir knattspyrnuna
hér í Bandaríkjunum.
Helgi leikur
í Þýskalandi
Helgi Kolviðsson í HK er nú við
æfíngar hjá þýska áhuga-
mannaliðinu Pullendorf við Bod-
ensee, sem er í 2. deild áhuga-
manna. Hann verður hjá félaginu í
viku og kemur síðan heim, en ef
um semst fer hann aftur út og
gerir hugsanlega samning til eins
til tveggja ára.