Morgunblaðið - 21.10.1994, Side 3
2 D FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 D 3
ÚRSLIT
ÍSLAIMDSMÓTIÐ í KÖRFUKNATTLEIK
HANDKIMATTLEIKUR
KR-UMFN 88:91
Úi'valsdeildin í körfuknattleik, fimmtudag-
inn 20. október 1994.
Gangur leiksins: 0:2, 2:10, 13:20, 26:23,
28:37, 39:45, 49:49, 53:63, 56:69, 72:71,
81:76, 81:81, 81:87, 86:87, 86:88, 88:91
Stig KR: Falur Harðarson 20, Hermann
Hauksson 14, Donavan Casanave 14, Ingv-
ar Ormarsson 12, Ólafur Jón Ormsson 11,
Birgir Mikaelsson 10, Ósvaldur Knudsen
5, Brynjar Harðarson 2.
Fráköst: 10 í sókn, 17 í vörn.
Stig UMFN: Ronday Robinson 30, Teitur
Örlygsson 21, Valur Ingimundarson 13,
Jóhannes Kristbjörnsson 11, Friðrik Ragn-
arsson 10, Kristinn Einarsson 4, Ástþór
Ingason 2.
Fráköst: 14 í sókn, 24 í vörn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Einar Þór
Skarphéðinsson. Voru því rniður ekki í stuði.
yillur: KR 16 - Njarðvík 24.
Áhorfendur: Um 400.
UMFG-Þór 106:83
íþróttahúsið í Grindavík:
Gangur leiksins: 2:0, 15:5, 21:12, 25:25,
31:31, 36:31, 42:39, 56:41, 60:45, 75:49,
86:57, 92:70, 106:79, 106:83.
Stig UMFG: Marel Guðlaugsson 19, Helgi
Jónas Guðfinnsson 18, Pétur Guðmundsson
17, Guðjón Skúlason 12, Unndór Sigurðsson
ll,Guðmundur Bragason 10, Bergur Hin-
rikssonjlO, Steinþór Helgason 7, Ingi Karl
Ingólfston 2.
Fráköst: 13 í sókn, 30 í vörn.
Stig Þórs: Kristinn Friðriksson 24, Birgir
Örn Birgisson 11, Konráð Óskarsson 10,
Sandy Anderson 10, Einar Valbergsson 9,
Örvar Erlendsson 8, Bjöm Sveinsson 4,
Hafsteinn Lúðvíksson 4, Einar Hólm Dav-
íðsson 3.
Fráköst: 23 í sókn, 26 í vöm.
Dómarar: Helgi Bragason og Georg Þor-
steinsson. Samkvæmir sjálfum sér.
Villur: UMFG 17 - Þór 18.
Áhorfendur: Um 250.
Tindast. - Snæfell 101:62
Co t j/(rí *
Gangur leiksin: 6:6, 17:10, 23:20, 40:23,
42:30, 49:37, 51:44, 63:47, 78:52, 87:55,
96:61, 101:62.
Stig Tindastóls: John Torrey 22, Ómar
Sigmarsson 21, Hinrik Gunnarsson 19,
Amar Kárason 17, Sigurvin Pálsson 7, Óli
Bardal 6, Páll Kolbeinsson 4, Halldór Hall-
dórsson 3, Atli Þorbjömsson 2.
Stig Snæfells: Raymond Hilton 21, Hjör-
leifur Sigurþórsson 11, Atli Sigurþórsson
10, Þorkell Þorkelsson 8, Eysteinn Skarp-
héðinsson 7, Veigar Sveinsson 2, Karl Jóns-
son 2, Davíð Sigurþórsson 1.
Dómarar: Jón Bender og Bergur Stein-
grímsson.
Ahorfendur: Um 400.
Valur - Haukar 80:79
íþróttahúsið að Hlíðarenda.
Gangur Ieiksins:7:0, 15:10, 32:16, 37:30,
41:34, 43:40, 43:47, 48:55, 59:57, 64:61,
75:70, 75:77, 78:78, 80:78, 80:79.
Stig VaIs:Bragi Magnússon 33, Jonathan
Bow 21, Lárus D. Pálsson 12, Bárður Ey-
þórss. 9, Bergur Emilsson 3, ívar Webster 2.
Fráköst: 9 í sókn, 26 í vöm.
Stig Hauka:Sigfús Gizurarson 23, Jón A.
Ingvarsson 20, Pétur Ingvarsson 18, Bald-
vin Johnsen 8, Óskar Pétursson 8, Björgvin
Jónsson 2.
Fráköst: 19 í sókn, 27 í vörn.
Dómarar:Kristján Möller og Ámi Freyr
Sigurlaugsson.
yillur: Valur 20 - Haukar 17.
Áhorfendur: Um 210.
ÍR - Skallagrímur 78:73
íþróttahús Seljaskóla:
Gangur leiksins: 2:0, 8:15, 11:19, 14:25,
26:33, 33:37, 37:40, 40:45, 53:48, 60:54,
64:57, 72:66, 74:69, 76:71, 78:73.
Stig IR: Herbert Arnarson 19, John Rho-
des 16, Jón Öm Guðmundsson 12, Márus
Arnarson 10, Eiríkur Önundarson 9, Guðni
Einarsson 5, Halldór Kristmannsson 3,
Eggert Garðarson 2, Björn Steffensen 2.
Fráköst: 16 í sókn, 22 í vörn.
Stig Skallagríms: Henning Henningsson
17, Alexander Ermolínskíj 16, Tómas Hol-
ton 14, Sveinbjörn Sigurðsson 14, Gunnar
Þorsteinsson 5, Grétar Guðlaugsson 5, Ari
Gunnarsson 2.
Fráköst: 11 í sókn, 13 i vörn.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Aðal-
steinn Hjartarson. Dæmdu ágætlega.
Villur: IR 11 - Skallagrimur 18.
Áhorfendur: 130 greiddu aðgangseyri.
ÍBK-ÍA 112:89
íþróttahúsið i Keflavík.
Gangur leiksins: 2:0, 9:9, 14:15, 22:21,
40:31, 54:43, 61:47, 70:49, 91:62, 100:69,
105:80, 109:87, 112:89.
Stig ÍBK: Lenear Bums 25, Davið Grissom
20, Jón Kr. Gíslason 19, Sigurður Ingimund-
arson 10, Birgir Guðfinnsson 9, Sverrir Þór
Sverrisson 9, Einar Einarsson 6, Guðjón
Gylfason 6, BöðvarÞ. Kristjánsson 5, Gunn-
ar Einarsson 3.
Fráköst: 15 í sókn, 23 í vörn.
Stig ÍA: Anthony Sullen 26, Haraldur Leifs-
son 19, Brynjar Karl Sigurðsson 16, Dagur
Þórisson 12, Jón Þór Þórðarson 9, ívar As-
grimsson 4, Hörður Birgisson 2, Elvar Þó-
rólfsson 1.
Fráköst: 16 í sókn, 17 í vörn.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Björgvin
Rúnarsson sem dæmdu vel.
Villur: ÍBK 18 - ÍA 21.
Ahorfendur: Um 250.
1. deild kvenna:
Breiðablik - KR...................55:50
Digranesi:
Gangur leiksins: 1:0, 7:5, 18:13, 22:15,
31:24, 33:26, 39:39, 43:41, 48:48, 55:50.
Stig Breiðabliks: Penny Peppas 21, Erla
Hinriksd. 10, Elísa Vilbergsd. 9, Olga Fær-
seth 9, Hanna Kjartansd. 3, Unnur Henr-
ysd. 2, Svana Bjamard. 1.
Stig KR: Helga Þorvaldsd. 17, María Guð-
mundsd. 15, Guðbjörg Norljörð 10, Ásrún
Viðarsd. 6, Eh'nborg Herbertsd. 2.
Dómarar: Héðinn Gunnarsson og Eggert
Aðalsteinsson dæmdu ágætlega.
Áhorfendur: 10 greiddu aðgang en um 250
manns vom í húsinu.
A - RIÐILL
Fj. leikja u T Stig Stig
NJARÐVÍK 7 7 0 673: 517 14
ÞOR 7 3 4 595: 590 6
IA 7 3 4 602: 623 6
HAUKAR 7 3 4 528: 558 6
SKALLAGR. 7 2 5 507: .535 4
SNÆFELL 7 0 7 498: 726 0
B - RIÐILL
Fj. leikja U T Stig Stig
GRINDAV. 7 6 1 720: 624 12
KEFLAVÍK 7 5 2 731: 645 10
KR 7 4 3 578: 573 8
IR 7 4 3 571: 570 8
VALUR 7 3 4 587: 622 6
TINDASTOLL 7 2 5 578: 585 4
FH - Stjarnan 24:27
Kaplakriki
Gangur leiksins: 1:0, 1:4, 5:5, 9:7, 12:10,
15:11, 17:13, 19:17, 21:21, 21:24, 24:27.
Mörk FH: Hans Guðmundsson 7/2, Hálf-
dán Þórðarson 5, Guðjón Árnason 4, Gunn-
ar Beinteinsson 4, Sigurður Sveinsson 2,
Knútur Sigurðsson 1, Stefán Kristjánsson 1.
Varin skot: Magnús Árnason 15 (þaraf 6
til mótherja).
Utan vallar: 8 minútur.
Mörk Stjörnunnar: Dimitri Filippov 7/1,
Magnús Sigurðsson 5, Konráð Olavson 4,
Sigurður Bjamason 4, Skúli Gunnsteinsson
3, Einar Einarsson 2, Jón Þórðarson 2.
Varin skot: Gunnar Erlingsson 13 (þaraf
4 til mótheija), Ingvar Ragnarsson 6 (þaraf
3 til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Gísli Jóhannsson og Hafsteinn
Ingibergsson og réðu ekki við starfið.
Áhorfendur: I kringum 400.
Selfoss - KA 23:23
Selofssi:
Gangur leiksins: 2:0, 3:5, 6:6, 6:9, 8:10,
10:10, 14:14, 18:18, 21:19, 22:22, 23:23.
Mörk Selfoss: Einar Gunnar Sigurðsson
9/4, Siguijón Bjarnason 3, Björgvin Rún-
arsson 3, Einar Guðmundsson 2, Nenad
Radosavljevic 2, Sigurður Þórðarson 2,
Ámi Birgisson 1, Grimur Hergeirsson 1.
Varin skot: Hallgrímur Jónasson 13/3 (þar-
af 3 til mótheija).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk KA: Patrekur Jóhanness. 10/3, Valdi-
mar Grimss. 6/2, Valur Arnars. 3, Jóhann
G. Jóhannss. 2, Atli Þ. Samúelss. 2.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 9
(þaraf 3 til mótheija), Bjöm Bjömsson 2.
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Jóhann Felixson og Láms H.
Lámsson.
Áhorfendur: Um 300.
1. deild kvenna:
Víkingur- Fylkir Fram - ÍBV .32:18 .22:19
Fj. leikja u T Stig Stig
KEFLAVIK 3 3 0 229: 126 6
KR 4 3 1 261: 200 6
BREIÐABLIK 2 2 0 164: 89 4
GRINDAVIK 1 1 0 56: 50 2
TINDASTOLL 3 1 2 1Í8: 172 2
IS 2 1 1 92: 108 2
NJARÐVIK 4 1 3 213: 230 2
VALUR 1 0 1 53: 67 0
ÍR 4 0 4 141: 325 0
\ <■ HOTTA y w FIRMAKEPPNI GROTTU
Hin árlega firma- og félagakeppni Gróttu í innanhúss- knattspyrnu verður haldin helgina 29. og 30. október í nýja íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi.
Upplýsingar og skráning: Sigurbergur, sími 658589 Bernhard, sími 621936 Kjartan, símar 689590/611184, fax, 889201
Vissi um leið
að hann var í
- sagði Teitur Örlygsson sem tryggði Njarðvík sigur á síðustu
sekúndu framlengingar með glæsilegu skoti af löngu færi
„ÞETTA var skelfilega gaman
og sæt hefnd frá því við töpuð-
um hér ífyrra með svona körfu,“
sagði Teitur Örlygsson eftir að
hann tryggði Njarðvíkingum sig-
ur gegn KR á Seltjarnanesi f
gærkvöldi. Teitur skoraði með
þriggja stiga skoti á síðustu
sekúndu framlengingar og fagn-
aði 91:88 sigri með félögum sfn-
um sem hafa sigrað í öllum leikj-
um sfnum í deildinni það sem af
er.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Það var ekki mikill tími eftir til
að gera eitthvað. Ég fékk bolt-
ann, dripplaði dálítið og svo kom
Valur til mín og ég
hélt áfram að dripla
alveg niður við gólf
og var talsvert langt
úti á vellinum. Eg
leit á klukkuna og sá að það voru
bara 4 sekúndur eftir og þá kom
ekki til greina að gefa hann. Ég stökk
upp reyndi að sjá kðrfuna og skaut
og vissi um leið og ég sleppti boltan-
um að hann var í,“ sagði Teitur sem
fagnaði skemmtilega eftir körfuna,
hljóp með sigurtákni beint upp í bún-
ingsklefa. „Ég hef fengið svona tæki-
færi nokkrum sinnum áður en alltaf
klikkað þannig að þetta var ljúft.“
En var þetta meistaraheppni? „Nei,
það er ekkert til sem heitir meistara-
heppni,“ sagði Teitur.
KR-ingar geta nagað sig í handa-
bökin yfir að stöðva ekki sigurgöngu
Njarðvíkinga. Þeior voru með væn-
lega stöðu þegar rúm mínúta var
eftir af venjulegum leiktíma, 81:76,
en gerðu mörg klaufaleg mistök á
næstu sekúndum og það nýtti reynsl-
umikið lið Njarðvíkinga sér og jafn-
aði þannig að framlengja varð og
þar höfðu gestirnir betur framan af
en með baráttu tókst KR að jafna
en Teitur afgreiddi þetta síðan með
eftirminnilegum hætti.
Njarðvík náði 13 stiga forystu,
56:69, um miðjan síðari hálfieikinn
og þá töldu margir sigurinn tryggð-
an. Stuðningsmenn KR tóku þá við
sér og leikmenn í kjölfarið og þeir
nýttu sér fumbrugang Njarðvíkinga
í sókninni og komust yfir 72:71 og
svo 81:76, en tókst ekki að fylgja
því eftir. Njarðvíking'ar léku hálf-
gerða pressuvörn á þessum tíma,
örugglega óvart því skynsamlegast
hefði verið að leika svæðisvöm og
reyna að hægja á leiknum, en það
tókst ekki. „Við hættum að hitta úr
opnum færum og það var of mikill
asi og flýtir á okkur þannig að við
náðum ekki að hægja á leiknum,“
sagði Valur Ingimundarson þjálfari
og leikmaður Njarðvíkinga um þenn-
an slæma kafla liðsins.
Það sem gerði útslagið í þessum
leik var vamarleikurinn. Njarðvíking-
ar léku sterka vöm en það vantaði
eitthvað í vöm KR. Þó var hún sæmi-
leg á köflum þegar leikin var svæðis-
vörn. Sóknarleikurinn var hraður og
oft sáust skemmtilegir taktar hjá
mönnum. Hjá KR var Falur sterkur
en ætlaði sér um of á stundum. Her-
mann var traustur og þeir Ingvar og
Ólafur áttu góða spretti. Birgir var
einnig sprækur á lokakaflanum.
Donavan mætti reyna meira að skjóta
því hann gerir allt of mikið að því
að dútla sér með boltann undir körf-
unni þegar hann fær hann.
Hjá Njarðvík var. Rondey gríðar-
lega sterkur, tók heelling af fráköst-
um og skoraði mikið. Teitur og Val-
ur voru einnig sterkir og Jóhannes_
og Friðrik áttu báðir góða spretti.
Yfirburðir
Grindvíkinga
Leikur Grindvíkinga við Þór frá
Akureyri varð aldrei sú
skemmtun sem áhorfendur vonuðust
|til því yfirburðir
Frímann Grindvíkinga vom al-
Ólafsson gjörir. Leikurinn var
skrífarfrá jafn framan af og
Gríndavík leikmenn Þórs virtust
ætla að selja sig dýrt. Þeir náðu að
jafna 25:25 um miðjan hálfleikinn
en heimamenn svöruðu fyrir sig og
náðu forystunni á_ ný og höfðu góða
forystu í hálfleik. í seinni hálfleik var
aldrei spuming um hvoru megin sig-
urinn lenti og voru yfirburðir Grind-
víkinga miklir.
Góður leikur Helga Jónasar gladdi
áhorfendur í Grindavík en hann sýndi
og sannaði að hann er fullfær um
að stjórna leik liðsins. Hann spilaði
einnig vei í vörninni og var bakvörð-
ur Þórs erfiður. Grindvíkingar skil-
uðu allir sínu og spiluðu vel saman.
Guðmundur Bragason skoraði mikil-
vægar körfur í fyrri hálfleik og Pétur
Guðmundsson er leikmaður sem ekk-
ert lið .getur leyft að leika lausum
hala og Marel er stórhættuleg skytta
fyrir utan. Þá nýtti Bergur Hinriks-
son tækifæri sitt vel í leiknum og
barðist vel. Liðið lék án erlends leik-
manns, þar sem Gregory Bell hefur
verið látinn fara frá liðinu, en það
virtist ekki hafa áhrjf á leik þess.
Leikmenn Þórs mættu einfaldlega
ofjörlum sínum í þessum leik og þrátt
fyrir að hirða heil 23 sóknarfráköst
undir körfu Grindvíkinga gátu þeir
ekki nýtt sér það. Kristinn Friðriks-
son var drýgstur þeirra í sókninni
en Sandy Anderson stóð sig vel í
vörninni. Hann fékk hinsvegar úr
litlu að moða í sókninni og lék lítið
í seinni hálfleik.
Keflvík-
ingar góðir
Keflvíkingar áttu skínandi góðan
leik þegar þeir mættu Skaga-
mönnum í Keflavík og allt annar
bragur á liðinu mið-
að við fyrri leiki.
Leikar fóru svo að
heimamenn unnu
112:89. Ungu
mennirnir í liðið heimamanna fengu
flestir að vera með í baráttunni frá
upphafi og þeir voru svo sannarlega
traustsins verðir.
Það var aðeins á upphafsmínút-
unum sem Skagamenn stóðu í Kefl-
víkingum „Þetta er á réttri leið.
Ungu strákarnir eru að átta sig á
muninum að leika í úrvalsdeildinni
og í unglingaflokki," sagði Jón Kr.
Gíslason þjálfari og leikmaður ÍBK.
Allir í liði ÍBK léku vel, Lenear
Burns var þó áberandi bestur ásamt
Jóni Kr. Gíslasyni og Davíð Gris-
som. Hjá Skagamönnum voru þeir
Anthony Sullen, Haraldur Leifsson
og Brynjar Karl Sigurðsson bestir.
ÍR-ingar ósigraðir á heimavelli
Björn
Blöndal
skrifar frá
Keflavík
„Erfið fæðing"
Þetta var erfið fæðing á fyrsta með 4 viilur. Mikill darraðardans
heimasigri okkar. Við spiluðum hófst í lokin en Haukar nýttu illa
vel en köstuðum frá okkur foryst-
unni eftir góðar 15
Stefán mínútur og það borg-
Stefánsson ar siK að bera virð-
skrífar ingu fyrir Haukalið-
inu, sagði Ingvar
Jónsson þjálfari Vals eftir 80:79 sig-
ur á Haukum að Hlíðarenda í gær-
kvöldi.
Valsmenn byijuðu betur og náðu
mest 16 stiga forskoti, 28:12, um
miðjan fyrri hálfleik með meira en
helmingin úr 3ja stiga skotum. En
þá gerðust dómarar flautuglaðir sem
efidi Hauka er náðu með góðum
sprettum forskotinu niður í 3 stig.
Eftir hlé náðu Haukar strax for-
ystu og síðan skiptust liðin á að leiða
en þrír Hafnfírðingar voru komnir
vítaskotin og töpuðu.
Valsmenn börðust vel í gærkvöldi
en duttu illilega niður inná milli, töp-
uðu t.d. boltanum 15 sinnum. Bragi
Magnússon var drjúgur með frábæra
nýtingu, 15 af 20 skotum samtals,
en Lárus Dagur Pálsson ásamt Jon-
atan Bow gáfust aldrei upp fyrr en
í fulla hnefana.
Fimmmenningarnir hjá Haukum
sem spila nánast allan leikinn sjálfir,
tekst ótrúlega vel að halda uppi bar-
áttu og eru farnir að vinna eins og
vel smurð vel. Baldvin Johnsen og
Oskar F. Pétursson eru ekki bara
efnilegir, þeir eru góðir. Liðið var
mun sterkari í fráköstunum en skot-
nýting var afleit, 13 af 36 skotum
rötuðu í körfuna.
Þetta var lélegur leikur, en við
sýndum ákveðinn styrk með
því að sigra þrátt fyrir að leika
undir getu. Við náð-
Höröur um að sPila skyn‘
Magnússon samlega undir lokin
skrifar og það gerði útslag-
ið. Nú mega Þórsar-
ar fara að vara sig því við leikum
næst gegn þeim fyrir norðan og
ætlum okkur fyrsta útisigurinn,
sagði Jón Örn Guðmundsson, fyrir-
liði ÍR, eftir sigur á Skallagrími
78:73 í slökum leik.
Skallagrímsmenn höfðu undir-
tökin í fyrri hálfleik og léku þá
þokkalega en ÍR-ingar voru á hæl-
unum. Fljótlega í síðari hálfleik fóru
ÍR-ingar að ná tökum á sínum leik
en gestirnir hættu að hitta og glu-
truðu knettinum hvað eftir annað.
í raun var sigur ÍR-inga aldrei í
hættu eftir að þeir komust yfir, og
leikurinn náði því aldrei að verða
spennandi fyrir áhorfendur.
Morgunblaðið/Sverrir
Hvar er mannskapurinn?
JÓHANNES Kristbjörnsson úr Njarðvík leltar að samherja en KR-ingurinn Falur Harðarson hefur góðar
gætur á boltanum sem KR-ingar eiga greinilega. Njarðvík er eina liðlð sem ekki hefur tapað leik.
Öruggt hjá
Tindastóli
gegn Snæfelli
Tindastóll átti ekki í erfiðleikum með
Snæfell og vann 101:62 á Sauðárkróki
í gærkvöldi eftir að hafa verið 12 stig-
um yfír í hléi, 49:37, en mest munaði 17
stigum í fyrri hálfleik.
Gestirnir höfðu í fullu tré við heimamenn
fyrstu tvær til þijár mínúturnar en síðan
ekki söguna meir. Samt voru Tindastóls-
menn ekki sannfærandi í fyrri hálfleik, en
þeir tóku öll völd eftir hlé.
Leikurinn var ekki góður og kom á óvart
að áhugann virtist vanta hjá Snæfelli í þess-
um mikilvæga leik fyrir liðið.
John Torrey var atkvæðamikill hjá heima-
mönnum með 22 stig, Ómar Sigmarsson
gerði 21, Hinrik Gunnarsson 19 og Arnar
Kárason 17. Raymond Hilton var lang stiga-
hæstur í liði gestanna með 21 stig en Hjör-
leifur Sigurþórsson gerði 11.
„Mjög ánægður
með sigurinn"
Eg er mjög ánægður með sigur-
inn, og þetta var baráttu leik-
ur. Það sem háði okkur mest var
að Penny [Peppas]
Sindri var stífdekkuð allan
Bergmann leikinn og KR-stelp-
skrifar urnar spiluðu mjög
góða vörn, en stelp-
urnar geta spilað betur,“ sagði Sig-
urður Hjörleifsson þjálfari Breiða-
bliks eftir að stelpurnar hans höfðu
sigrað KR-inga 55-50 í 1. deild
kvenna í gærkvöldi.
Baráttan var í fyrirrúmi í fyrri
hálfleik, og kom það niður á gæðun-
um. Breiðablik spilaði þó betur og
virtust KR stelpurnar frekar utan
við sig. Og svo fór að Breiðablik
hafði 7 stiga forskot í leikhléi 31:24.
Breiðabliksstelpurnar byijuðu seinni
hálfleik einnig betur og virtist sem
þær ættu auðvelt með að eigna sé
bæði stigin. En um miðbik seinni
hálfleiks áttu KR-ingar góðan leikk-
afla, náðu að smella vörninni saman
og breyta stöðunni úr 37:26 í 39:39.
Leikurinn var eftir það mjög spenn-
andi og sýndu stelpurnar þeim 250
áhorfendum sem á pöllunum sátu
hvers þær eru megnugar.
Það fór svo að lokum að Breiða-
blik hafði sigur 55-50. Breiðabliks-
stúlkurnar sýndu það að þær geta
hæglega slegist í toppbaráttuni í
vetur. Penny Peppas, Bandaríkja-
maðurinn í liði Biikanna, var í farar-
broddi en einnig áttu Elísa Vilbergs-
dóttir og Olga Færseth, sem oft
hefur þó spilað betur, ágætisleik.
Hjá KR voru Helga Þorvaldsdóttir
og María Guðmundsdóttir atkvæða-
mestar.
Stjömusigur
í mjög kafla-
skiptum leik
HANN var kaflaskiptur leikur
FH og Stjörnunnar í Kaplakrik-
anum ígærkvöldi. FH-ingar
léku f rábæran sóknarleik í fyrri
hálfleik skoruðu 15 mörk og
voru með 68% sóknarnýtingu,
gegn 11 mörkum Stjörnu-
manna. En í síðari hálfleik var
annað upp á teningnum.
Stjörnumenn tóku Guðjón
Árnason úr umferð og við það
hrundi sóknarleikur FH-inga og
liðsmenn Stjörnunnartóku öll
völd á vellinum. Þeir jöfnuðu
leikinn og sigu svo smátt og
smátt framúr. Að leikslokum
stóðu leikar, 24:27, Garðbæ-
ingum í hag.
Eftir að hafa mistekist í tvígang
í dauðafæri náði Hálfdán Þórð-
arson loks að skora fyrsta mark
^I leiksins í þriðju til-
/vgr raun. Stjörnumenn
Benediktsson svöruðu með fjórum
skrifar mörkum í röð og
virtust ætla að taka
öll völd. FH-ingar voru á öðru máli
drifnir áfram af fyrirliða sínum,
Guðjóni Árnasyni í sókninni og
bróður hans Magnúsi í markinu
snéru þeir blaðinu við og jöfnuðu
leikinn, 5:5. Þeir létu ekki þar við
sitja og náðu forystu og juku hana
jafnt og þétt allt til leikhlés, en þá
stóðu leikar, 15:11.
í upphafi síðari hálfleiks_ tók
Skúli Gunnsteinsson, Guðjón Árna-
son úr umferð og við það kom los
á sóknarleik Hafnfirðinga.
Stjörnumenn jöfnuðu leikinn
þegar tíu mínútur voru eftir, 21:21,
og gáfu ekkert eftir og bættu við
þremur mörkum til viðbótar áður
en FH-ingum tókst að klóra í bakk-
ann, en þá var orðið um seinan,
munurinn orðinn of mikill og tímirtn
skammur. Einnig hjálpaði það ekki
upp á að Guðjóni og Sigurðuri var
vísað af leikvelli á sama tíma þegar
fimm mínútur voru eftir. Eftirleik-
urinn var því auðveldur fyrir
Garðbæinga sem komnir voru í
fluggírinn. Lokatölur, 24:27.
Gunnar Erlingsson fór á kostum
í marki Stjörnunnar í síðari hálfleik
og varði 13 skot og átti ekki lítinn
þátt í að skapa sigur Stjörnupilta.
Ásamt Gunnari í markinu, léku
Filippov og Sigurður Bjarnason vel
í síðari hálfleik. Skúli fór fyrir sín-
um hóp í vörn og sókn eins og fyrir-
liða sæmir.
FH-ingar meiga greinilega ekki
missa “leiðtoga" sinn úr leik, það
var greinilegt í gærkvöldi. Lítið kom
út úr hornamönnunum og Hálfdán
á línunni sem átti prýðisleik í fyrri
en sást varla í síðari.
Sanngjamt jafn-
tefli á Selfossi
SELFOSS og KA skildu jöfn í
spennandi leik, 23:23, er liðin
mættust á heimavelli Selfoss í
gær. Selfyssingar virðast hafa
endurheimt sjálfstraustið eftir
slmt gengi í síðustu tveimur
leikjum.
Óskar
Sigurösson
skrifar frá
Selfossi
Þetta var ágætur leikur og vel
spilaður af beggja hálfu. KA
er með gott lið og góða leikmenn
og var leikurinn því
erfiður. Við erum nú
búnir að endur-
heimta trúna á okk-
ur sjálfa," sagði
Jezdimir Stankovic þjálfari Selfyss-
inga eftir leikinn.
KA byrjaði betur og mætti Sel-
fyssingum með sterkri vörn og gríð-
arlegri baráttu. Patrekur Jóhannes-
son gaf KA-mönnum tóninn og
skoraði fyrstu fjögur mörkin. Um
miðbik hálfleiksins var Einar Gunn-
ar Sigurðsson settur inn á í lið
Selfoss og gerði hann strax tvö
mörk. KA hafði þó undirtökin og
leiddi8:10 í leikhléi.
■ Heimamenn byijuðu síðari hálf-
leikinn af miklum kraftir og náðu
að jafna strax í upphafi með hröðum
sóknum. Þegar um tíu mínútur voru
liðnar af síðari hálfleik náðu heima-
menn í fyrsta sinn forystu og eftir
það var jafnt á öllum tölum og varð
lokakaflinn æsispennandi.
Björgvin Rúnarsson kom heima-
mönnum í 23:22 þegar tæp mínúta
var eftir en Atli Þór Samúelsson
jafnaði fyrir KA. Selfyssingar fengu
tækifæri til að gera út um leikinn
en Sigmar Þröstur markvörður KA
varði vel skot frá Einari Gunari og
jafntefli var staðreynd.
„Þetta var baráttuleikur, eins og
reyndar allir leikir við Selfoss. Við
spiluðum vel í fyrri hálfleik en náð-
um ekki að fylgja eftir forskoti
okkar. Það má segja að þetta hafi
verið sanngjarnt en ég er þó aldrei
sáttur við að vinna ekki,“ sagði
Patrekur Jóhannesson, sem átti
stórleik og gerði 10 mörk. Valur
Arnarson átti einnig ágætan leik í
síaðri hálfleik og jafnframt var
Valdimar Grímsson dijúgur.
Allir leikmenn Selfoss spiluðu í
gær sem endarnær, en fyrirliðinn
Einar Gunnar Sigurðsson spilaði
manna best, bæði í vörn og sókn.
Sigurjón Bjarnason og Björgvin
Rúnarsson spiluðu ágætlega og
ennfremur átti Hallgrímur Jónas-
son góðan leik í markinu.
■ INGVAR Jónsson, þjálfari
Valsliðsins í körfuknattleik, átti
afmæli í gær og færðu fyrri læri-
sveinar hans í Haukum honum fal-
legan blómvönd. Ingvar mælti eftir
leikinn: „Betra að fá blóm frá
Haukum og sigur frá Val“.
■ JONATHAN Bow leikmaður
Vals skartaði stóru glóðarauga í
gærkvöldi, sem hann fékk í viður-
eigninni gegn Skagamönnum fyrir-
skömmu.
■ FJÓRIR leikmanna Vals léku
ekki með í gærkvöldi. Magnús
Guðfinnsson komst ekki vegna
vinnu en Guðni Hafsteinsson,
Ragnar Þór Jónsson og Gunnar
Örlygsson eru allir á sjúkraiista.
■ SIGURÐUR Bjarnnson lék lék
að nýju með Stjörnunni í gær-
kvöldi eftir að hafa verið í aga-
banni í síðasta leik. Það tók Sigurð
allan fyrri hálfleikinn að stilla skot-
in en í síðari hálfleik fór hann á
kosturn.