Morgunblaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 4
IPROmR
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI BIKARHAFA
Eyjólfur og samhevjar
töpuðu stigi heima
EYJÓLFUR Sverrisson og sam-
herjar í Besiktas gerðu tvö
mörk á fjórum mínútum undir
lok fyrri hálfleiks og virtust á
góðri leið gegn Auxerre í Evr-
ópukeppni bikarhafa í gær-
kvöldi, en gestirnir frá Frakk-
landi komu tvíefldirtil leiks eft-
ir hlé og náðu að jafna gegn
tyrkneska liðinu áður en yfir
lauk.
Besiktas átti fyrri hálfleik, sótti
stíft og uppskar tvö mörk.
Auxerre ógnaði ekkert, en dæmið
snerist við í seinni hálfleik. Gestim-
ir sneru þá vörn í sókn og ekki leið
á löngu þar til staðan var jöfn.
Moussa Saib frá Alsír, sem gerði
fyrra mark Auxerre og lagði hitt
upp, fékk gullið færi til að bæta
þriðrja markinu við fimm mínútum
eftir að Eyjólfur fór af velli, en lét
fyrst veija frá sér og missti síðan
stjóm á boltanum.
Larsson hetja Feyenoord
Sænski landsliðsmaðurinn Hen-
rik Larsson tryggði Feyenoord 1:0
sigur gegn Werder Bremen. Heima-
menn sóttu stöðugt, en gestirnir
lögðu áherslu á sterkan vamarleik.
Eftir markið reyndi Bremen að
jafna og við það fékk Feyenoord
aukin færi til að bæta við, en mörk-
in urðu ekki fleiri.
Varnarmennirnir Ulrich
Borowka og Dietmar Beiersdorfer
léku ekki með Bremen vegna
. meiðsla, en Willem van Hanegem,
þjálfari Feyenoord, var ánægður
Reuler
Annad mark Besiktas
EYJÓLFUR Sverrisson og samherjar í Besiktas komust I 2:0 gegn
Auxerre fyrir hlé, en franska liðið jafnaði í seinni hálfleik. Ertugr-
ul Sagiam, miðherji Besiktas, gerir hér annað mark tyrkneska
liðsins, en Stephane Mahe er of seinn til varnar.
með úrslitin. „Við lékum vel. Það
er erfitt að leika gegn Werder, því
liðið tekur enga áhættu og menn
verða stöðugt að vera á varðbergi
gagnvart gagnsóknum þess,“ sagði
hann.
Meistararnir sigruðu
Evrópubikarmeistarar Arsenal
unnu Bröndby 2:1 í Kaupmanna-
höfn. Arsenal tók leikinn strax í
sínar hendur og staðan var vænleg
eftir að Ian Wright og Alan Smith
höfðu skorað á 17. og 19. mínútu.
Mark Strudal minnkaði muninn
snemma í seinni hálfleik, en þar við
sat og ef að líkum lætur verður
róður Bröndby erfiður í London.
Danirnir óttuðust mest Wright,
en hann skoraði og gerði 13. mark
sitt á tímabilinu með skalla. Hins
vegar nýtti Smith sér ónákvæma
sendingu Marcs Riepers ætlaða
markverðinum.
Heimamenn sóttu stíft eftir mark
Strudals og sluppu gestimir með
skrekkinn undir lokin. Nigel Wint-
erburn bjargaði á línu 13 mínútum
fyrir leikslok og leikmenn Arsenal
misstu tökin sem varð til þess að
Lee Dixon og Stefan Schwarz fengu
að sjá gula spjaldið. Þar með miss-
ir Schwarz af seinni leiknum, því
hann hafði fengið gult spjald fyrr
í keppninni. Jens Risager hjá
Bröndby fékk líka annað gula
spjaldið í keppninni og verður ekki
með á Highbury.
Ebbe Skovdahl, þjálfari Bröndby,
sagði að Arsenal hefði sýnt í fyrri
hálfleik hvers vegna liðið væri á
meðal þeirra bestu í Evrópu. „Það
var mikill munur á liðunum, meðal
annars vegna þess að við vorum
hræddir við mótherjana, en við sótt-
um í okkur veðrið eftir hlé og hefð-
um getað gert mun fleiri mörk.“
URSLIT
Evrópukeppni bikarhafa
2. umferð, fyrri leikir:
Oporto, Portúgal:
FC Porto - Ferencvaros (Ungv.)....6:0
Jorge Costa (17.), Rui Barros (19.), Ljub-
inko Drulovic 2 (40., 58.), Oliveira Domin-
gos (86.), Pires Alves Aloisio (87.) 35.000
Briigge, Belgíu:
FC Brflgge - Panathinaikos (Grikkl)....l:0
Lorenzo Staelens (4. vsp.) 18.000
Genúa, Ítalíu:
Sampdoria - Grasshopper (Sviss)...3:0
Alessandro Melli (45.), Sinisa Mihajlovic
(76.), Riccardo Maspero (83.) 25.000
Sampdoria: Walter Zenga, Moreno Mann-
ini (Fausto Salsano 60.), Riccardo Ferri
(Marco Rossi 85.), Michele Serena, Pietro
Vierchowod, Sinisa Mihajlovic, Attilio
Lombardo, Giovanni Invemizzi, Alessandro
Melli, Riccardo Maspero, Alberigo Evani.
Istanbul, Tyrklandi:
Besiktas - Auxerre (Frakkl.)......2:2
Mehmet Ozdilek (39.), Ertugrul Saglam
(43.) - Moussa Saib (53.), Corentin Martins
(58.) 20.900
• Eyjólfur Sverrisson var í byrjunarliðinu
hjá Besiktas en var skipt út af á 70. mfn.
Rotterdam, Hollandi:
Feyenoord - Werder Bremen.........1:0
Henrik Larsson (63.) 25.000
Werder: Oliver Reck, Thomas Wolter,
Andree Wiedener, Michael Schulz, Hany
Ramzy, Mario Basler, Dieter Eilts, Mirko
Votava, Mario Bode, Andreas Herzog
(Frank Neubarth 57.), Wynton Rufer.
London, Englandi:
Chelsea - Austria Vín.............0:0
22.560.
Kaupmannahöfn, Danmörku:
Bröndby - Arsenal (Engl.).........1:2
Mark Strudal (54.) - Ian Wright (17.), Alan
Smith (19.) 13.406
Bröndby: Mogens Krogh, Ole Bjur, Dan
Eggen, Soren Colding (Jes Hogh 74.), Jens
Risagar, Marc Rieper, Henrik Jensen (Je-
sper Kristensen 81.), Bo Hansen, Marc
Strudal, Thomas Thogersen, Kim Vilfort.
Arsenal: David Seaman, Lee Dixon, Nigel
Winterburn, Stefan Schwarz, Steve Bould,
Tony Adams, John Jensen, Ian Wright,
Alan Smith, Kevin Campbell, Ray Parlour.
Bratislava, Slóvakiu:
Tatran Presov - Zaragoza (Spáni)..0:4
Gustav Poyet (26.), Stanislav Varga (44.),
Juan Eduardo Esnaider 2 (49., 88.) 12.105
UEFA-keppnin
2. umferð, sfðari leikur:
Stokkhólmi, Svíþjóð: _
AIK Solna - Parma (Ítalíu)........0:1
- Massimo Crippa (72.) 18.146
í kvöld
Handknattleikur
1. deild kvenna
Valsh.: Valur- Stjaman 18.30
Bikarkeppni karla
Vestm.: IBV - Ármann 19
Vestm.: ÍBV b - Grótta 20.30
Húsav.: Völsungur - Breiðablik20.30
Ak.ureyri:.ÞÓE.-..Víkingur 20.30
Blak
Akureyri: KA - HK (ka.) 19.30
Akureyri: KA - KH (kv.) 21
Ásgarður: Stjaman - Þróttur N 20
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Nýliði villfá
6,7 milljarða
á níu árum
Gunnar
Valgeirsson
skrifarfrá
Bandaríkjunum
Glenn Robinson, einn af nýliðun-
um í NBA-deildinni, hefur
spennt'bogann hátt — hefur farið
fram á 6,7 milljarða
ísl. kr. fyrir að skrifa
undir níu ára samn-
ing við Milwaukee.
„Eg get alveg eins
gefið honum félagið," sagði Herb
Kohl, forseti Milwaukee, félagsins
sem er metið á 5,1 milljarð ísl. kr.
Launakröfur nýliða í NBA-deild-
inni eru orðnar það miklar, að eldri
leikmönnum er farið að blöskra.
Robinson voru boðnir 4,7 milljarðar
fyrir níu ára samning. Anfernee
Hardaway hjá Orlando, sem gengur
undir nafninu „Penny“ eða aurinn,
neitaði að skrifa undir nýjan samn-
ing við Orlando, nema að hann fengi
4,7 milljarða ísl. kr. fyrit* níu ára
samning, en honum voru boðnir 4,3
milljarðar kr.
Þrátt fyrir ágreining um laun er
ekki reiknað með að leikmenn fari
í verkfall, eða að bann verði sett á
þá. Lokaundirbúningur NBA-lið-
anna er hafinn og eru þau öll að
leika æfingaleiki á fullu. Keppnis-
tímabilið hefst föstudaginn 4. nóv-
ember og mæta meistarar Houston
þá New Jersey heima, Boston fær
New York í heimsókn, Chicago leik-
ur gegn Charlotte, Sacramento tek-
ur á móti Phoenix og þá má geta
þess að LA Clippers og Portland
leika tvo leiki í Japan.
GETRAUNIR - 42. LEIKVIKA
ENGLAND/SVÍÞJÓÐ Spá sænskra fjölmiðla Spá Morgunbl. ÍTALÍA Spá sænskra fjölmiðla Spá Morgunbl.
Nr. Leikur 1 X 2 1 X 2 Nr. Leiktir 1 X 2 1 X 2
1 AIK - Halmstad 7 1 2 1 1 Cremonese - Juventus 0 8 2 X 2
2 Degerfors - Helsingborg 9 1 0 1 2 Fiorentina - Padova 10 0 0 1
3 Landskrona - Örebro 0 1 9 2 3 Foggia - Inter 5 5 0 1 X 2
4 Malmö FF - IFK Gautaborg 2 3 5 1 X 2 4 Genúa - Lazio 1 5 4 X 2
5 Norrköping - Hácken 10 0 0 1 5 AC Milan - Sampdoria 9 1 0 1 X
6 Frölunda - Hammarby 8 2 0 1 6 Napolí - Bari 7 3 0 1 X 2
7 Öster - Trelleborg 10 0 0 1 7 Parma - Reggiana 10 0 0 1
8 Aston Villa - Nott. Forest 0 8 2 X 2 8 Tórinó - Brescia 10 0 0 1
9 Blackburn - Man. Utd. 9 1 0 1 X 2 9 Ascoli - Piacenza 0 9 1 X 2
10 Man. City - Tottenham 7 1 2 1 X 10 Como - Ancona 3 7 0 X
11 Newcastle - Sheff. Wedn. 10 0 0 1 X 11 Cosenza - Cesena 0 10 0 X
12 Norwich - QPR 10 0 0 1 12 Lecce - Palermo 6 4 0 X
13 West Ham - Southampton 2 7 1 X 2 13 Verona - Perugia 10 0 0 1
RUV; Man. City - Tottenham
SJÖ sænskir leikir eru á ensk/sænska seðlinum að
þessu sinni, en deilin í Svíþjóð klárast um helgina.
Spennan er í hámarki; Arnór Guðjohnsen, Hlynur Stef-
ánsson og samherjar þeirra í Örebro eiga möguleika
á meistaratitlinum ef þeir sigra Landskrona á útivelli
og IFK Gautaborg fær ekki stig í Malmö. Sænsku fjölm-
iðlarnir hallast frekar að sigri leikmanna IFK, sem þá
fögnuðu meistaratitlinum. Sjónvarpsleikurinn hjá RUV
á morgun er viðureign Manchester City og Tottenham
á Maine Road, en stórleikur helgarinnar, Blackbum -
Manchester United, er hins vegar sjónvarpsleikur Sky
stöðvarinnar á sunnudaginn.
Stöd 2: AC Milan - Sampdoría
MEISTARAR AC Milan hafa ekki náð sér á strik það
sem af er vetri, nokkrir leikmanna liðsins hafa átt við
meiðsli að stríða og ekki skánaði ástandið í fyrrakvöld
þegar varnarmaðurinn frábæri, Paolo Maldini, nef-
brotnaði í Evrópuleik í Aþenu. En liðið þykir þó vera
að koma til og fróðlegt verður að sjá Ruud Gullitt
gegn Sampdoria, sem hann lék með í fyrravetur.
Sænsku fjölmiðlamir virðast öruggir um heimasigur,
en Morgunblaðið hefur varann á; það er aldrei að vita
hvað gestimir gera. Topplið Parma á heimaleik gegn
Reggiana, sem ætti að vinnast auðveldlega, en Roma,
sem er í efsta sætinu ásamt Parma er ekki á seðlinum.
EUROTIPS-SEÐILL VIKUNNAR: 1 X X 211 X X 2 1X1 XI