Morgunblaðið - 26.10.1994, Page 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA
1994
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER
BLAÐ
HANDKNATTLEIKUR
Patrekurfrábær:
Þrettán mörk
úr 13 skotum
Patrekur Jóhannesson átti óviðjafnanlega góðan
leik fyrir KA gegn KR í gærkvöldi. Hann skor-
aði 13 mörk úr 13 tilraunum. Að auki átti hann
einar fimm stoðsendingar og var eins og klettur í
vörninni. Hann skoraði 8 mörk með ijölbreyttum
langskotum, 2 með gegnumbroti, 2 af vítalínunni
og 1 úr hraðaupphlaupi.
Frammistaða Patreks er enn glæsilegri þegar
haft er í huga að hann fékk skurð á augabrún þeg-
ar 8.24 mín. voru eftir af fyrri hálfleik og kom ekki
aftur inn á fyrr en í byijun seinni háifleiks. I seinni
hálfleik var hann einu sinni rekinn út af og þurfti
tvisvar að fara af velli til að láta lagfæra umbúðirnar.
KNATTSPYRNA
KEILA
Einn nýliði
gegn Kúveit
Kristinn Hafliðason úr Fram er
nýliði í landsliðshópi Ásgeirs
Elíassonar, sem mætir Kúveit á
laugardaginn í A1 Ain í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum. Þrír
leikmenn eru í hópnum, sem hafa
leikið einn leik — Pétur Marteins-
son, Fram, Kristófer Sigurgeirs-
son, Breiðabliki og Guðmundur
Benediktsson, Þór, sem skoraði
sigurmark í leik gegn Sameinuðu
arabísku furstadæmunum á dög-
unum — eftir fyrirgjöf frá Kristó-
fer.
Guðni Bergsson, fyrirliði, leikur
sinn 58. landsleik. Aðrir í hópnum
eru Friðrik Friðriksson, ÍBV (24),
Kristján Finnbogason, KR (5),
Daði Dervic, KR (9), Rúnar Krist-
insson, KR (42), Sigursteinn Gísla-
son, ÍA (9), Ólafur Adolfsson, ÍA
(2), Haraldur Ingólfsson, ÍA (12),
Arnar Grétarsson, Breiðabliki (21),
Kristinn Hafliðason
Hlynur Stefánsson, Örebro (16),
Kristján Jónsson, Bodö/Glimt (34)
og Helgi Sigurðsson, Stuttgart (5).
Landsliðið hefur leikið átta
landsleiki á árinu og hefur Sigur-
steinn leikið þá alla.
Rúnar bíður eftir
svari frá Palace
Guðni hefur ekkert heyrt frá Palace
Morgunblaðið/Kristinn
Sigri fagnaö
LÆRLINGARNIR héldu sigurgöngu sinni áfram í gærkvöldi, fögnuðu sigri á Stormsveitinni í 1.
deildarkeppninni í keilu, 6:2. Hér á myndinni fagna þeir Freyr Bragason, Stefán Óskarsson og
Snæbjörn iörgensen. Úrslit D2
Þær leika í Brighton
Rúnar Kristinsson, lándsliðs-
maður úr KR, bíður eftir svari
frá Crystal Palace um það hvort
liðið ætli að bjóða honum samning
eða ekki. Alan Smith, fram-
kvæmdastjóri Palace, bað KR-inga
um vikufrest til að ákveða sig með
hugsanlegan samning við Rúnar.
Smith vildi ekki gefa Rúnar frá sér
að svo stöddu.
Sænska liðið Örgryte, sem hefur
sýnt Rúnari mikinn áhuga, bíður
eftir svari frá Rúnari um það hvort
hann ætli sér að leika með liðinu
á næstu leiktíð. Landsliðsmaðurinn
ætlar að bíða með að svara tilboði
sænska liðsins þar til Crystal
Palace hefur ákveðið sig hvort af
samningi verður eða ekki.
Guðni Bergsson, landsliðsfyrir-
liði úr Val, sagðist ekki hafa heyrt
neitt frá Crystal Palace. Hann sagði
að Palace þyrfti að ræða við Totten-
ham um hugsanlegan samning en
vissi ekki hvort það hafi verið gert.
„Ég hef áhuga á að leika erlendis
og þá helst í Englandi. Ég ætla
að ræða við þá hjá Palace á morg-
un [í dag],“ sagði Guðni.
Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari,
hefur valið íslenska kvenna-
landsliðið sem leikur seinni leik sinn
gegn Englandi í Brighton á sunnu-
daginn. Logi teflir fram sama leik-
mannahópnum og gegn Englending-
um á Laugardalsvellinum.
Landsliðið er þannig skipað: Sig-
ríður F. Pálsdóttir, Guðlaug Jóns-
dóttir, Ásthildur Helgadóttir og Guð-
rún J. Kristjánsdóttir, KR, Guðrún
Sæmundsdóttir og Kristín Arnþórs-
dóttir, Val, Auður Skúladóttir, Fort-
und Hjörring (Dannmörku), Ragna
Lóa Stefánsdóttir, Stjömunni, Sig-
fríður Sophusdóttir, Vanda Sigur-
geirsdóttir, Margrét R. Ólafsdóttir,
Ásta B. Gunnlaugsdóttir, Sigrún
Óttarsdóttir, Olga Færseth, Helga
Ósk Hannesdóttir og Katrín Jóns-
dóttir, Breiðabliki.
ISHOKKI
Bandarískt lið til íslands
Bandaríska íshokkíliðið Ice Pir-
ates er væntanlegt til ís-
lands í næsta mánuði og leikur
hér þijá sýningarleiki, einn i
Reykjavík og tvo á Akureyri.
Þetta er í fyrsta sinn sem erlent
íshokkílið leikur hér á landi. Ice
Pirates er sýningarlið sem er
skipað fyrrum leikmönnum úr
bandarísku atvinnumannadeild-
inni NHL og úr háskólaliðum og
var liðið stofnað árið 1987. Liðið
hefur ferðast um heiminn og leik-
ið sýningarleiki til að kynna
íþróttina. Þetta verður í sjötta
sinn sem liðið kemur til Evrópu.
Auk þess að heimsækja ísland
mun liðið einnig leika í Hollandi,
Belgíu, Þýskalandi, Lúxemborg
og Frakklandi að þessu sinni.
Liðið kemur til íslands í næstu
viku, nánar tiltekið 3. nóvember
og mun æfa á skautasvellinu i
laugardal þá um kvöldið. Á föstu-
daginn verður leikið við Reykja-
víkurúrvaldið í Laugardalnum og
hefst leikurinn kl. 20.00. Á laug-
ardaginn heldur liðið til Akur-
eyrar og leikur við Skautafélag
Akureyrar kl. 16. Á sunndaginn
verður þriðji leikurinn og þá verð-
ur leikið gegn Landsúrvalinu á
skautasvellinu á Akureyri kl.
16.00.
Fimm lið taka þátt í íslands-
mótinu í íshokki í vetur í stað
þriggja áður. Skautafélag Akur-
eyrar og Skautafélag Reykjavík-
ur senda tvö lið og síðan er Björn-
inn með eitt.
GOLF: ULFAR JÓNSSON LÉK PAR ÞRJÚ HOLU Á ELLEFU HÖGGUM / D4