Morgunblaðið - 26.10.1994, Qupperneq 2
2 D MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1994 D 3
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
HANDKNATTLEIKUR
KA-KR 28:23
KA-heimilið, íslandsmótið í handknattleik,
1. deild karla — 8. umferð — þriðjudaginn
25. október 1994.
Gangur leiksins: 1:0, 4:4, 9:4, 9:7, 11:8,
13:9, 15:10, 17:12, 18:16, 21:17, 23:19,
26:22, 28:23.
Mörk KA: Patrekur Jóhannesson 13/2,
Alfreð Gíslason 4, Valdimar Grímsson 3,
Valur Arnarson 3, Jóhann G. Jóhannsson
2, Atli Þór Samúelsson 2, Helgi Arason 1.
Varin skot: Björn Björnsson 15/1 (2 til
mótheija).
Utan vallar: 16 mín.
Mörk KR: Hilmar Þórlindsson 8, Sigurpáll
Árni Aðalsteinsson 4/2, Guðmundur Al-
bertsson 3, Páll Beck 2, Einar B. Árnason
2, Jóhann Kárason 2, Magnús Magnússon
1, Þorsteinn Guðjónsson 1.
Varin skot: Gísli Felix Bjarnason 7 (2 til
mótherja).
Utan vallar: 12 mín.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Hákori
Siguijónsson. Misstu leikinn úr höndum sér.
Áhorfendur: 620.
Valur-FH 23:19
Hlíðarenda:
Gangur leiksins: 1:0, 2:3, 7:6, 8:8, 11:8,
12:9, 12:12, 16:13, 19:15, 21:16, 21:18,
23:19.
Mörk Vals: Júlíus Gunnarsson 7/1, D&gur
Sigurðsson 6, Valgarð Thorodsen 4, Jón
Kristjánsson 2, Geir Sveinsson 2, Sigfús
Sigurðsson 1, Frosti Guðlaugsson 1.
Varin skost: Guðmundur Hrafnkelson 19/4
(11/1 til mótheija).
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk FH: Stefán Kristjánsson 6/2, Hans
Guðmundsson 4/1, Sigurður Sveinsson 3,
Gunnar Beinteinsson 2, Guðjón Árnason
2/1, Hálfdán Þórðarson 1, Knútur Sigurðs-
son 1.
Varin skot: Magnús Árnason 13/1 (3 til
mótheija).
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og Rögnvald
Erlingsson. Dæmdu mjög vel en rauða
spjaldið orkaði tvímælis.
Haukar-ÍH 29:25
Strandgötu:
Gangur leiksins:0:l, 1:1, 1:3, 5:3, 5:4, 8:4,
10:5, 12:7, 12:11, 14:11, 14:13, 15:13,
15:14, 16:15, 19:17, 20:19, 22:19, 23:21,
27:21, 29:23, 29:25.
Mörk Hauka: Petr Baumruk 8/1, Gústaf
Bjamason 5, Siguijón Sigurðsson 4/2, Jón
Freyr Egilsson 3, Páll Olafsson 3, Aron
Kristjánsson 2, Óskar Sigurðsson 2, Svein-
berg Gíslason 2.
Varin skot: Bjarni Frostason 13/1 (5 aftur
til mótheija).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk ÍH: Ólafur Magnússon 6, Sigurður
Örn Árnason 4, Bragi Larsen 4, Gunnlaug-
ur Grétarsson 3, Jóhann R. Ágústsson 2,
Ásgeir Ólafsson 2, Jón Berg Torfason 2,
Jón Þórðarson 2/2.
Varin skot:Alexander Revine 10 (þaraf 2
aftur til mótheija), Guðmundur A. Jónsson
2 (þaraf 1 aftur til mótheija).
Utan vallar: 8 mínútur. Jón Berg Torfason
fékk rautt spald eftir þijár brottvísanir.
Dómarar: Óli P. Ólsen og Gunnar Kjartans-
son virkuðu kærulausir.
Áhorfendur: Um 170 og voru stuðnings-
menn ÍH mun atkvæðameiri.
Stjarnan - UMFA 27:25
íþróttahúsið í Garðabæ, fslandsmótið í
handknattleik — 1. deild karla, þriðjudaginn
25. október 1994.
Gangur leiksins: 0:1, 1:3, 4:4, 5:5, 7:5,
9:9, 9:11, 12:11,13:13,15:15, 18:15, 18:18,
21:21, 23:22, 24:24, 26:24, 26:25, 27:25.
Mörk Stjörnunnar: Dimitri Filippov 7/5,
Magnús Sigurðsson 6, Sigurður Bjamason
5, Skúli Gunnsteinsson 4, Konráð Olavson
2, Hafsteinn Bragason 2, Einar Einarsson 1.
Varin skot: Gunnar Erlingsson 6 (þaraf 1
til mótheija). Ingvar Ragnarsson 5/1 (þaraf
.1 til mótheija).
Utan vallar: 2 mín.
Mörk Aftureldingar: Jason Ólafsson 5,
Jóhann Samúelsson 4, Alexej Trúfan 4/1,
Páll Þórólfsson 3, Þorkell Guðbrandsson 3,
Róbert Sighvatsson 3, Ingimundur Helga-
son 3/2.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 13
(þaraf 4 til mótheija).
Utan vallar: 4 min.
Dómarar: Sigurgeir Sveinsson og Gunnar
Viðarsson.
Áhorfendur: Um 500.
HK-Víkingur 23:24
íþróttahúsið Digranesi:
Gangur leiksins: 0:2, 2:5, 6:6, 7:10, 9:11,
9:13, 11:13, 13:16, 16:18, 18:18, 21:21,
23:22, 23:24.
Mörk HK: Már Þórarinsson 7, Jón B. Ell-
ingsen 3, Hjálmar Vilhjálmsson 3, Gunnleif-
ur Gunnleifsson 3/2, Óskar E. Óskarsson
2, Alexander Amarsson 2, Oliver Pálmason
2, Róbert Haraldsson 1.
Varin skot: Hlynur Jóhannesson 12/2 (þar
af 3 sem fóru aftur til mótheija).
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk Víkings: Birgir Sigurðsson 6, Sigurð-
ur V. Sveinsson 5/2, Bjarki Sigurðsson
4/1, Friðleifur Friðleifsson 3, Kristján Ág-
ústsson 2, Árni Friðleifsson 2/1, Rúnar Sig-
tryggsson 1, Þröstur Helgason 1/1.
Varin skot: Magnús I. Stefánsson 9 (þar
af 2, sem fóru aftur til mótheija), Reypir
Þ. Reynisson 8 (þar af 5 sem fóru aftur til
mótheija).
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Gísli Jóhannesson og Hafsteinn
Ingibergsson.
Áhorfendur: 280.
ÍR - Selfoss 23:22
Seljaskóli:
Gangur leiksins: 3:0, 6:3, 8:7, 10:8, 10:10,
12:12, 14:15, 17:17, 20:19, 21:22, 23:22.
Mörk ÍR: Jóhann Örn Ásgeirsson 10/6,
Guðfinnur Kristmannsson 5, Branislaw
Dimitrijevic 3, Njörður Árnason 3, Björgvin
Þór Þorgeirsson 1, Róbert Þór Rafnsson 1.
Varin skot: Magnús Sigmundsson 15 (þar-
af 5 til mótheija), Hrafn Margeirsson 1/1
(þaraf 1/1 til mótheija).
Utan vallar: 6 mínútur, þar af eitt rautt
spjald.
Mörk Selfoss: N. Radosavljevic 6, Einar
G. Sigurðsson 5, Siguijón Bjarnason 4, Sig-
urður Þórðarson 3, Einar Guðmundsson 2,
Grímur Hergeirss. 1/1, Sævar Gíslason 1.
Varin skot: Ólafur Einarsson 7 (þaraf 2
til mótheija), Hallgrímur Jónasson 6 (þaraf
3 til mótheija).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Egill Már Markússon og Örn
Markússon, voru þeir i hærri gæðaflokki
en leikmenn liðanna.
Áhorfendur: 250.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
VALUR 8 8 0 0 192: 157 16
VÍKINGUR 8 5 2 1 205: 187 12
STJARNAN 8 6 0 2 206: 190 12
AFTURELD. 8 5 0 3 206: 177 10
HAUKAR 8 5 0 3 219: 207 10
KA 8 3 2 3 203: 190 8
FH 8 4 0 4 197: 191 8
SELFOSS 8 3 2 3 176: 190 8
ÍR 8 3 0 5 186: 201 6
KR 8 2 0 6 176: 192 4
HK 8 1 0 7 178: 194 2
ÍH 8 0 0 8 148: 216 0
Körfuknattleikur
Keflavík - UIVIFN 116:51
íþróttahúsið í Keflavík, 1. deild kvenna í
körfuknattleik í gærkvöldi. Staðan í hálfleik
var 43:23.
• Stigahæst hjá Keflavík var Erla Reynis-
dóttir með 19 og þijár gerðu 16 stig, þær
Anna María Sigurðardóttir, Anna María
Sveinsdóttir og Björg Hafsteinsdóttir. Pál-
ína Gunnarsdóttir gerði 15 stig fyrir lið
Njarðvíkinga, Auður Jónsdóttir gerði 9 og
Harpa Magnúsdóttir 8.
• Sigur Keflavíkur var mjög auðveldur,
eins og tölurnar bera augljóslega með sér,
en þess ber að geta að fjóra leikmenn vant-
aði í hópinn hjá Njarðvíkingum vegna veik-
inda.
Keila
íslandsmótið 1. deild karla, 4. umferð:
KR B - Sveitin....................2:6
(583:684, 659:772, 707:685 - 1949:2141).
KRA-PLS...........................8:0
(799:633, 704:695, 735:633 - 2238:1971).
Lærlingarnar - Stormsveitin.......6:2
(688:757, 722:683, 820:771 - 2230:2211).
Keilulandsveitin - Keiluvinir.....8:0
(795:701, 695:673, 809:715 - 2299:2089).
Egilsliðið - Þröstur..............0:8
(662:762, 726:772, 657:678 - 2045:2212).
■Staða efstu liða: Lærlingarnir eru með
30 stig, Stormsveitin 24, Keilulandsveitin
23, Þröstur 22, KR A 21 og PLS 18.
Knattspyrna
England
Deildarbikarinn, 3. umferð:
Liverpool - Stoke.................2:1
■lan Rush gerði bæði mörk Liverpool og
var seinna markið 100. bikarmark hans.
Liverpool var þó í mesta basli með Þorvald
Örlygsson og félaga. Rush kom Liverpool
yfir í fyrri hálfleik en kanadíski leikmaður-
inn Paul Peschisolido jafnaði fyrir Stoke
fjórum mínútum fyrir hlé. Rush gerði síðan
sigurmarkið á 56. mínútu.
Mannsfield - Millwall.............0:2
■Mannsfield, sem sló Leeds út í 2. um-
ferð, átti aldrei möguleika gegn Millwall.
Q.P.R. - Man. City................3:4
■Mörk City gerðu Nicky Summerbee,
Keith Curle, Peter Beagrie og Steve Lomas.
Sheffield United - Bolton.........1:2
■Andy Scott gerði sjálfsmark í framleng-
ingu og það réð úrslitum.
Wimbledon - Crystal Palace........0:1
■Chris Armstrong gerði sigurmarkið fyrir
Palace á 72. mínútu. Þetta var fjórði tapleik-
ur Wimbledon í röð.
Þýskaland
Þýska bikarkeppnin, 3. umferð:
Gladbach - FSV Mainz 05............6:4
Saarbrúcken - St Pauli.............1:4
Köln - Dynamo Dresden..............2:1
í kvöld
Handknattleikur
1. deild kvenna
Austurberg: Fylkir - Haukar ,...kl. 20
Garðabær: Stjarnan - Fram.kl. 20
Kaplakriki: FH-Valur......kl. 20
Höllin: KR-Ánnann.........kl. 20
Vestm’eyjar: ÍBV - Víkingur....kl. 20
FELAGSLIF
Árshátíð Hauka
Árshátíð Hauka verður haldin laugardaginn
29. október í Hraunholti við Dalshraun
númer 15. Húsið opnar kl. 19 og miðar eru
seldir í Haukahúsinu og íþróttahúsinu við
Strandgötu.
Stígandi hjá
Stjömunni
GÓÐUR stígandi hefur verið í
leik Stjörnunnar að undanförnu
og í gærkvöldi sigraði liðið Aft-
ureldingu í æsispennandi leik
í Garðabæ, 27:25. Stjarnan er
þar með komin ítoppbaráttuna
með 12 stig en Afturelding
hefur 10 stig.
Leikurinn var nokkuð vel spilað-
ur og síðustu mínúturnar voru
æsispennandi. Þegar fjórar mínút-
ur voru til leiksloka var staðan
■■■■■■ jöfn 24:24.
Valur B. Philippov kom
Jónatansson Stjörnunni yfir
sknfar 25:24 úr vítakasti
sem Hafsteinn Bragson fiskaði.
Afturelding misnotaði næstu sókn
og Sigurður Bjarnason þakkaði
fyrir með því að gera 26. mark
Stjörnunnar þegar rúmlega tvær
minútur voru eftir. Jóhann Samú-
elsson minnkaði muninn í eitt
mark, 26:25, þegar ein mín. var
eftir. Einar Einarsson klúðraði
sendingu inná línuna til Skúla og
Afturelding fékk _ tækifæri á að
jafna, en Jason Olafsson kastaði
boltan beint útaf er 10 sekúndur
voru eftir. Hafsteinn gulltryggði
sigurinn með marki á síðustu sek-
úndunni.
Það er greinilegt að Viggó Sig-
urðsson er á góðri leið með Stjönu-
liðið. Hann hefur komið inn mikilli
baráttu hjá Garðbæingum, sem
hefur oft háð liðinu í gegnum tíð-
ina. Rússin Philippov var mjög góð-
ur í fyrri hálfleik, en var tekinn úr
umferð allan síðari hálfleik. Við það
riðlaðist sóknarleikurinn en hann
small saman þegar á leið. Sigurður
Bjarnason spilaði mjög vel fyrir lið-
ið, gerði 5 mörk, fiskaði tvö víti og
átti tvær línusendingar sem gáfu
mörk. Magnús og Skúli voru einnig
sprækir og Hafsteinn korast vel frá
sínum fyrsta leik í vetur.
Afturelding lék ágætlega og
baráttan er alltaf til staðar, en
herslumuninn vantaði í þessum leik
og eigin klaufaskapur í lokin kom
í veg fyrir að liðið næði öðru stig-
inu. Róbert var besti leikmaður
liðsins og Jason og átti ágæta
spretti.
„Þetta var erfið fæðing en hún
tókst. Afturelding er alltaf erfið
því það er mikii barátta í liðinu
og það gefst aldrei upp,“ sagði
Viggó Sigurðsson, þjálfari Stjöm-
unnar. „Eg er ánægður með strák-
ana og það er góður stígandi i lið-
inu. Sigurinn var verðskuldaður,“
sagði þjálfarinn.
Patrekur skaut
KR á bólakaf
Stórkostlegur leikur Patreks Jó-
hannessonar og góð mar-
kvarsla Björns Björnssonar tryggðu
KA-mönnum sigur í
Stefán Þór mikilvægum leik
Sæmundsson gegn KR. Staða lið-
skrifarfrá anna í deildinni var
Akureyri svipuð fyrir leikinn
en heimamenn voru talsvert betri
og aðeins Hilmar Þórlindsson sem
streittist verulega á móti. Lokatölur
urðu 28:23, KA í vil.
Leikurinn einkenndist af miklum
mistökum; hraðaupphlaup fóru út
um þúfur á báða bóga og oft komu
langir kaflar þar sem hreinlega
ekkert gekk upp. Jafnt var á fyrstu
tölum en síðan voru KA-menn með
2-5 marka forystu í fyrri hálfleik.
Staðan í leikhléinu var 13:9.
Í seinni hálfleik krydduðu dómar-
arnir farsann með skrautlegum til-
þrifum og sendu leikmenn óspart
út af. Munurinn á liðunum óx og
minnkaði á víxl eftir því hve marg-
ir voru inni á vellinum í hvoru liði.
Þannig breyttu KR-ingar stöðunni
úr 18:13 i 18:16 þegar þeir voru
tveimur fleiri en nær komust þeir
ekki og sigur KA var öruggur í
þessum fjöruga en fálmkennda leik.
Sem fyrr segir voru Patrekur
og Björn í aðalhlutverki hjá KA.
Patrekur skoraði 13 mörk úr jafn-
mörgum tilraunum og lét áverka á
augabrún ekkert á sig fá. Þá var
Alfreð mjög sterkur. Hilmar var
langbestur KR-inga og Guðmund-
ur þokkalegur. Annars er varla
hægt að dæma liðin af þessum
undarlega leik sem oft minnti á
fjölleikahús.
Víkingar voru slakir
Víkingar geta vart verið ánægðir
með eigin frammistöðu eftir leik
gegn HK í Digranesi í gærkvöldi.
^^^1 Samt sem áður sigr-
Stefán UðU, .þ6Ío f‘"U
Eiríksson marki, 23:24, en leku
skrifar ákaflega kæruleysis-
lega og virkuðu
áhugalausir. HK-menn náðu ekki að
nýta sér slakan leik Víkinga fyrr en
í síðari hálfleik, og áttu þá góða
möguleika á því að sigra, en reynslan
skilaði Víkingum sigri undir lokin.
Fyrri hálfleikur var ákaflega dapur
og illa leikinn. Sóknarnýting heima-
manna var afleit, níu sóknir af tíu
fyrstu fóru forgörðum, og gestirnir
voru litlu skárri — sigu þó fram úr
á ný og leiddu í hálfleik 9:13.
HK-menn mættu baráttuglaðir til
leiks í síðari hálfleik og léku af krafti
í vörninni sérstaklega. Þeir gáfu Vík-
ingum lítinn tíma til að byggja upp
spil, sem fór ótrúlega mikið í taugam-
ar á gestunum og misstu þeir knött-
inn hvað eftir annað. Það segir meira
en mörg orð að markahæsti maður
HK, Már Þórarinsson, gerði sex af
sjö mörkum sínum í leiknum í síðari
hálfleik, og öll úr hraðaupphlaupum.
Heimamenn náðu að jafna um miðjan
síðari hálfleik og komust yfir í fyrsta
skipti þegar tæpar fimm mínútur
voru eftir. Þeir höfðu hins vegar ekki
taugar til að halda það út og tvö síð-
ustu mörk leiksins voru Víkinga og
þar með sigurinn.
Lykilmenn Víkinga skiluðu hlut-
verki sínu illa, og þá sérstaklega
Bjarki Sigurðsson og Rúnar Sig-
tryggsson í sókninni. Þeir gerðu fjöl-
mörg mistök en samt sem áður sá
þjálfarinn ekki ástæðu til að gera
breytingar á liðinu. Hann keyrði
lengst af á sama mannskap í síðari
hálfleik, Kristján Ágústsson sýndi
ágæt tilþrif þegar hann fékk að
spreyta sig í fyrri hálfleik en kom
ekki við sögu í þeim síðari þrátt fyr-
ir að inn á ætti hann augljóst er-
indi. Áhuga- og kæruleysi flestra
leikmanna var áberandi, en mark-
verðirnir Magnús og Reynir stóðu
sig þó vel.
Vöm Valsmanna
er fímasterk
ísland féll niður
um átla sæti
Island er í 45. sæti á styrkleikalista Alþjóða knatt-
spyrnusambandsins, FIFA, sem var sendur út í
gær, var í 37. sæti í september. Lítil breyting varð
á meðal efstu liða frá því í september, en Sviss,
næsti mótherji Islands í Evrópukeppninni, færðist
upp um fjögur sæti eftir 4:2 sigurinn gegn Svíþjóð
fyrr í mánuðinum og er í 7. sæti. Tyrkland færðist
upp um fimm sæti og er í 34. sæti. Svíþjóð er áfram
í 3. sæti á eftir heimsmeisturum Brasilíu og Ítalíu í
2. sæti.
Þýskaland er í fjórða sæti sem fyrr og Holland
og Spánn koma næst á eftir eins og áður. Rússland
fór úr 17. í 14. sæti og Skotland úr 31. í 28. sæti.
Uzbekistan er nýtt innan FIFA og fer beint í 77. sæti
í kjölfar sjö leikja og sjö sigra, m.a. gegn HM liðum
Saudi Arabíu og Suður-Kóreu, en liðið sigraði á
Asíuleikunum. Saudi Arabía fer úr 29. í 27. sæti og
Suður-Kórea úr 38. í 35. sæti, en Kúveit, sem ísland
mætir á laugardag, fór úr 78. í 47. sæti.
FH-ingar léku ágæta vörn þó svo
Valsmenn ættu yfirleitt auðveldara
með að skora hjá þeim en þeir hjá
Val. Sóknarleikurinn er hins vegar
nokkuð einfaldur og á stundum-hálf
vandræðalegur, sérstaklega þegar
Guðjóns nýtur ekki við. Stefán átti
ágætan dag og Magnús varði vel í
marki liðsins, en þá er það líka upptal-
ið. Burðarásar liðsins, Hans, Gunnar
og Sigurður náðu sér ekki á strik.
„ÞAÐ eru alltaf erfiðir leikir gegn FH og þessi var engin undan-
tekning á því,“ sagði Þorbjörn Jensson þjálfari Vals eftir að lið
hans hafði sigrað Hafnfirðinga 23:19 að Hiíðarenda. Valurer
eina liðið sem ekki hefur tapað leik, en átta umferðum er nú lokið.
Valur sigraði að þessu sinni, eins
og svo oft áður, með góðum
varnarleik. „Þetta vannst fyrst og
fremst á vörninni.
SkúliUnnar ^yí færri mörk sem
Sveinsson Þu færð a Þ'g> ÞV1
skrífar færri mörk þarftu að
ger^ og því er auð-
veldara að vinna. Þetta er einföld
„lógíg“ en sönn,“ sagði Þorbjörn.
Jafnt var á öllum tölum upp í 8:8
og skömmu eftir að Valsmenn gera
níunda markið var Guðjóni Árnasyni
sýnt rauða spjaldið og við það riðlað-
ist sóknarleikur FH talsvert og Vals-
menn náðu þriggja marka forystu
fyrir hlé, 12:9.
FH-ingar komu tvíefldir til leiks á
nýjan leik eftir hlé og gerðu þijú
fyrstu mörkin en Valsmenn misnot-
uðu fyrstu fimm sóknir sínar. FH
breytti um vörn, tók Dag úr umferð
og við það kom dálítð hik á heima-
menn. „Það vill oft verða þegar einn
er tekinn úr umferð að hinir í liðinu
fara að flýta sér í stað það að vera
skynsamir. Það gerðist um tíma hjá
okkur en svo náðum við okkur aftur
á strik,“ sagði Þorbjörn þjálfari Vals.
FH reyndi síðan að taka Jón líka úr
umferð en það breytti ekki gangi
leiksins.
Dagur var bestur Valsmanna, Júl-
íus skoraði mikið og Valgarð var
sprækur í síðari hálfleik. Vörn Vals
er gríðarlega sterk og Guðmundur
stóð sig ágætlega og varði meðal
annars fjögur vítaköst.
Varþaðrautt?
Rögnvald Erlingsson annar
dómarinn á leik Vals og FH
í gærkvöldi rak Guðjón Ámason
fyrirliða FH-inga útaf þegar 5
mínútur og 19 sekúndur vour
eftir af fyrri hálfleik. FH-ingar
voru allt annað en ánægðir með
þann dóm en sem endranær tjáir
ekki að deila við dómarann. Máls-
atvik voru þau að Valur var í
sókn, tapaði boltanum og FH-
ingar ætluðu að bruna fram völl-
inn en Jón Kristjánsson náði að
„stela" knettinum á miðjum vall-
arhelmingi FH og hljóp að lín-
unni og stökk inn í teiginn. Þar
kom Guðjón og virtist sem liann
reyndi að ná til boltans en skot-
hendi Jóns lenti í hendi Guðjóns
og sá fyrrnefndi skall harkalega
í gólfíð.
Stefán dómari Amaldsson var
innri dómari þegar þetta gerði en
Rögnvald úti. Hann hafði hlaupið
af stað í átt að marki Vals þegar
FH-ingar ætluðu í hraðaupp-
hlaupið og var því langt úti á
velli þegar Jón stökk inn í vítateig-
inn hinum megin. Stefán setti
strax tvo fingur á loft og ætlaði
að reka Guðjón útaf í tvær mínút-
ur en Rögnvald kom hlaupandi frá
miðju með rauða spjaldið á lofti.
Mikið var rætt um dóm þennan
í leikhléi og eftir leik og sýndist
sitt hveijum. Einn benti þó á að
brotið hefði litið illa út þó svo það
hafi kanski ekki verið gróft og
þetta kenndi mönnum ef til vill
að láta menn í friði þegar þeir
væru komnir einir inn í vítateig
því það gæti verið hættulegt að
fara í menn þegar þeir em komn-
ir í loftið.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Valsmenn voru sterkari í uppgjörinu viö FH-inga að Hlíð-
arenda í gærkvöldi. Á stóru myndinni reyna FH-ingarnir,
Gunnar Beinteinsson og Hálfdán Þórðarson, að stöðva Jón
Kristjánsson. Guðjón Árnason fyrirliði FH-inga fékk að líta
rauða spjaldið þegar rúmlega 5 mínútur voru eftir af fyrri
hálfleik og mátti FH liðið illa við því. Sveinbjörn Sigurðs-
son, sjúkraþjálfari, reynir að róa Guðjón um leið og hann
fylgir honum af leikvelli.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Lang-
þreyttir
Haukar
Oðagot i sóknarleik eftir hlé, sem
lýsir reynsluleysi, gerði að engu
drauma ÍH-pilta um jafntefli og jafnvel
sigur á Haukum í gær-
kvöldi. Slakur 7 mín-
útna kafli seint í leikn-
um gerði útslagið og
langþreyttir Haukar,
sem hafa staðið í stöngu að undan-
fömu, unnu 29:25.
Öflugur vamarleikur ÍH sló Haukana
útaf laginu í byijun, sem síðan náðu
forystunni. Á 20. mínútu small lið nýlið-
anna saman þegar þeir gera 4 mörk i
röð og skildi þá að eitt mark en með
smá heppni og sanngjamari dómgæslu
hefði ÍH getað jafnað og komist yfir.
Eftir hlé vom Haukar alltaf yfir þó ÍH
fengi nokkur tækifæri til að ná forskot-
inu. Slæmur kafli þegar 12 mínútur
vom eftir og ÍH missti þijá menn útaf
og Haukar gera fjögur mörk í röð á
meðan ÍH klúðraði öllum sínum fæmm,
gerði síðan út um leikinn.
„Við þurftum að hafa fyrir þessu þó
sigur væri alltaf öraggur en þetta var
ekta vinnusigur. Þeir höfðu allt að vinna
og engu að tapa og ekki var verra að
spila við Hauka. Síðustu leikir hafa tek-
ið mikið á og hléið framundan er kær-
komið til að hvfla,“ sagði Jóhann Ingi
Gunnarsson, sem var á bekknum hjá
Haukum. Þreytan skein í gegnum allt
liðið.
IH-menn léku sinn besta leik í vetur.
Alexander Revine varði oft úr opnum
færam, Ásgeir Ólafsson byijaði frábær-
lega en hrapaði síðan niður og Bragi
Larsen ásamt Ólafi Magnússyni sýndi
skemmtilega takta.
Styrkleika-
listinn
175 þjóðir eru á styrkl-
keikalista FIFA og er röð
þeirra efstu eftirfarandi —
innan sviga í hvaða sætum
þjóðirnar voru í septem-
ber:
1. ( 1) Brasilía
2. ( 2) Ítalía
3. ( 3) Svíþjóð
4- ( 4) Þýskaland
5. ( 5) Holland
6. ( 6) Spánn
7. (11) Sviss
8. ( 7) Rúmenía
9. ( 9) Argentína
10. ( 8) Noregur
11- (12) Irland
12. (10) Nígería
13. (13) Danmörk
14- (17) Rússland
15. (15) Kólumbía
16. (14) Búlgaría
17. (18) England
18. (16) Mexíkó
19. (20) Frakkland
20. (21) Zambía
21- (19) Belgía
22. (23) Fílabeinsstr.
23. (22) Bandaríkin
24. (25) Egyptaland
25. (24) Portúgal
26. (26) Ghana
27. (29) Saudi Arabía
28. (31) Skotland
29. (28) Kamerún
30. (27) Túnis
31. (32) Grikkland
32. (35) Tékkland
33. (30) Morokkó
34. (39) Tyrkland
35. (38) Suður-Kórea
36. (33) Pólland
37. (41) Japan
38. (36) Uruguay
39. (45) Norður-frland
40. (34) Wales
41. (40) Austurríki
42. (42) Slóvakía
43. (62) Kína
44. (44) Bólivía
45. (37) ísland
46. (43) Chile
47. (78) Kuveit
48. (47) Finnland
49. (49) Malí
50. (52) Ástralía
Heilladísim-
armedÍR
Ivar
Benediktsson
skrifar
IR-ingar sigruðu í sínum þriðja leik
í röð í gærkvöldi þegar þeir mættu
Selfyssingum í Seljaskóla. Heilladís-
irnar vora þeim hlið-
hollar við að innbyrða
þennan sigur. Loka-
tölur, 23:22. Loka-
mínútan í leiknum í
gærkvöldi var æsispennandi. Selfyss-
ingar fengu vítakast þegar 40 sek-
úndur vora eftir, en Hrafn Margeirs-
son varði. Selfyssingar náðu frákast-
inu og hófu sókn en mislukkuð send-
ing Einars Guðmundssonar hafnaði í
fangi Njarðar Árnasonar sem róaði
leikinn niður. ÍR hófu sókn þegar 20
sekúndur lifðu af leiknum. Þeirri sókn
lauk með því að Hallgrímur varði frá
Róberti Rafnssyni í opnu færi þegar
átta sekúndur voru eftir. Sá tími var
of skammur fyrir Selfyssinga og ÍR-
ingar fögnuðu gríðarlega í leikslok.
Eins og hingað til stillti þjálfari
Selfoss ekki upp sterkasta liði sínu í
upphafí leiks. Það nýttu ÍR-ingar sér
og náðu forystu. Þeir leiddu, 6:3,
eftir fimmtán mínútur. Þá breytti
þjálfari Selfoss liði sínu og Einar
Gunnar, Einar Guðmundsson og Sig-
uijón Bjarnason inn á. Við þessar
skiptingar tókst Selfyssingum að
jafna og í leikhléi stóð leikar, 10:10.
Seinni hálfleikur var í járnum, liðin
skiptust á um að leiða.
Leikurinn var slakur og illa leikinn
af beggja hálfu. Mikið var um mistök
í vörn og sókn. Sóknarleikurinn var
þófkenndur og liðin geta leikið mun
betur.
Magnús Sigmundsson var bestur
ÍR-inga, sérstaklega í fyrri hálfleik.
Þá var Jóhann lipur í hornin, en
mætti gera meira af því að klippa
úr horninu inn á línuna. Þá var hann
öruggur í vítaköstunum.
Selfossliðið var jafnt í leiknum og
enginn skar sig sérstaklega út úr
hópnum.
Fram leika í Slóveníu
Haukar og FH hafa ekki náð samkomulagi um sína leiki
Framstúlkur leika báða leiki sína
í Evrópukeppni borgarliða gegn
Dusla Sala í Slóveníu 18. og 19. nóv-
ember. Karlalið FH og Hauka hafa
ekki náð samkomulagi við mótheija
sína frá Tékklandi og Slóveníu.
Haukar, sem leika gegn SKP Brat-
islava í Evrópukeppni félagsliða, voru
búnir að ná samkomulagi við forráða-
menn slóvenska liðsins, að liðið iéki
báða leiki sína í Hafnarfirði 19. og
20. nóvember. Haukar stöðvuðu
samningaviðræðurnar þegar Slóven-
arnir kröfðust alltaf meira og meira.
Haukar hafa gefið SKP Bratislava
ákveðið tilboð og bíða þeir eftir svari.
FH-ingar era ákveðnir að leika
heimaleik sinn í Hafnarfirði, en þeir
voru búnir að að bjóða mótheijum
sínum Novesta Zlín, sem hét áður
Gottwaldov — hefur tvisvar leikið hér
á landi, að leika báða leikina í Hafnar-
firði. FH-ingar buðust til að borga
ferðir liðsins til íslands frá Vín. Tékk-
arnir sýndu áhuga á því, en í gær
kom símbréf frá þeim og voru samn
ingaviðræðurnar komnar aftur á
byrjunarreit. FH-ingar svöruðu að
þeir myndu leika heimaleik sinn 13.
nóvember og fyrra boð þeirra um að
báðir leikirnir færu fram í Hafnar-
fírði stæði þeim enn til boða. Þeir
bíða eftir svari frá Tékklandi.
KNATTSPYRNA
&RÚHK
FOLK
■ SIGMAR Þröstur Óskarsson,
aðalmarkvörður KA, var meiddur á
móti KR í gær. Það kom ekki að
sök því Björn Björnsson hrökk í
gang og átti skínandi leik. Sérstaka
athygli vakti frammistaða hans á
móti hornamönnunum og fór hann
frekar illa með Sigurpál Árna Aðal-
steinsson.
■ HAFSTEINN Bragason lék í
fyrsta sinn með Stjörnunni á þessu
keppnistímabili gegn Aftureldingu
í gærkvöldi. Hann kom í fyrsta sinn
inná í síðari hálfleik og átti góðan
leik, gerði tvö mörk og fiskaði eitt
uítp l/-q qf
■ JÓHANN INGI Gunnarsson
fyrrum þjálfari Hauka stjórnaði lið-
inu af hliðarlínunni í fjarveru Gauta
Grétarssonar sem er erlendis á
námskeiði. Jóhann var einnig á lín-
unni í bikarleiknum um helgina en
segir að hann verði aðeins þessa tvo
leiki.
■ FRIÐRIK Oddsson, einn skel-
eggasti stuðningsmaður íþróttafé-
laganna í Hafnarfirði, hvatti sína
menn, sem að þessu sinni voru
hjá ÍH„ til dáða en hann lék í marki
b-liðs ÍH í bikarkeppninni um helg-
ina. Friðrik sagði að leikmenn IH
hefðu þurft nokkrar „markatöflur“
í síðari hálfleiknum gegn Haukum
til að vinna.
■ BJÖRGVIN Rúnarsson, Sel-
fyssingur, lék ekki með gegn IR í
gærkvöldi. Hann sleit vöðva í læri í
bikarleiknum um helgina og verður
frá í tvær til þijár vikur.
H EINAR Páll Tómasson, fyrrum
landsliðsmaður úr Val, hefur ákveð-
ið að ganga á ný til liðs við Vals-
menn eftir að hafa leikið eitt keppn-
istímabil með Breiðablik.
■ EINAR Páll kom til Breiða-
bliks frá Svíþjóð, þar sem hann lék
með Degerfors.
■ HÉÐINN Gilsson, landsliðs-
maður í handknattleik, kemur til
landsins á föstudaginn og verður
með landsliðshópnum, sem tekur
þátt í alþjóða Reykjavíkurmótinu,
sem hefst í næstu viku. Héðinn, sem
á við meiðsli að stríða í ökkla, leikur
ekki með, en notar tækifærið til að
fara í skoðun hjá læknum ladsliðsins.
■ LANDSLIÐSHÓPURINN
kemur saman í dag og hefst þá
undirbúningur fyrir Reykjavíkur-
mótið. Það eru liðnir nær níu mán-
uðir síðan landsliðið lék síðast Iands-
leik á Islandi — gegn Finnum í
janúar.
■ JÚLÍUS Jónasson, sem leikur
með Gummersbach, kemur til
landsins á mánudaginn — og fer
með landsliðshópnum til Hvera-
gerðis, þar sem það hefur samastað
á meðan mótið stendur yfir. Liðið
mun dveljast á Hótel Örk og æfa í
Þorlákshöfn.
■ GLASGOW Rangers keypti
skorska landsliðsmanninn Alan
McLaren frá Hearts á tvær millj.
punda í gærkvöldi.
■ RANGERS borgSLÖi Hearts 1,25
millj. punda í peningum og lét landsl-
iðsmanninn Davie McPherson í
skiptum.
■ SKOSKA meistaraliðið keypti
fyrir keppnistímabilið Frakkann
Basile Boli og danska landsliðs-
manninn Brian Laudrup, þannig
að félagið hefur keypt leikmenn fyr-
ir sjö millj. punda í vetur.
■ JEAN Tigana þjálfari franska
liðsins Lyon hefur sett markvörð
ljðsins, Pascal Olmeta út úr liðinu.
Ástæðan er að þjálfarinn hafði bann-
að leikmönnum að þiggja boð um
að fylgjast með úrslitaleiknum á
tennismóti á sunnudeginum, degi
eftir að liðið tapaði 4:0 fyrir Lens.
Olmeta fór samt og var settur í
bann í kjölfarið.
■ ÞETTA er alveg út í högg. Ég
bið ekki um leyfi til að fara út að
borða og ekki heldur hvenær ég
horfi á tennis, ekki fimm dögum
fyrir leik,“ sagði Olmeta og var hinn
reiðasti. „Ég er ekkert barn,“ sagði
hann.
»