Morgunblaðið - 26.10.1994, Blaðsíða 4
Hmr
GOLF
IMiðurbrotinn
- segir Úlfar Jónsson eftir að hann lék par þrjú holu á 11 höggum
„Þetta var alveg
ótrúlegt og hreint
óskiljanlegt að
maður skuli
bregðast svona
tæknilega," segir
Úlfar Jónsson.
ÚLFAR Jónsson komst ekki í
gegnum fyrsta stigið á úrtöku-
móti fyrir bandarísku mótaröð-
ina í golfi sem lauk fyrir helgi.
Úlfar setti vallarmet fyrsta dag-
inn og átti góða möguleika á
að komast áfram þar til á 12.
holu á fjórða og síðasta degi,
þar sló hann fjóra bolta í vatn-
ið og lék á 11 höggum og þar
með var draumurinn búinn.
Þetta var alveg ótrúlegt og
hreint óskiljanlegt að maður
skuli bregðast svona tæknilega. Eg
er búinn að vera það lengi í þessu
og hef verið nokkur stöðugur spil-
ari en það er greinilegt að maður
verður að æfa meira og spila betur
til að komast áfram. Það virðist sem
ég eigi nokkuð langt í land,“ sagði
Úlfar í samtali við Morgunblaðið.
Úlfar lék frábærlega fyrsta dag-
inn, kom inn á 65 höggum sem er
vallarmet á Horse Shoe Bay vellin-
um í Texas. Hann er 6.300 metra
langur, par 72 og með 74 í erfiðleik-
astuðul. „Þetta er hörkuvöllur þar
sem maður verður að slá beint til
að vera ekki í vandræðum. Fyrsti
hringurinn minn var sá besti sem
ég hef spilað sem atvinnumaður.
Annan daginn lék ég á 75, sló sæmi-
lega en það datt ekkert í púttunum.
Þriðja daginn fór allt að ganga á
afturfótunum, ég sló illa og þrípútt-
aði auk þess fjórum sinnum og kom
inn á 79 höggum.
Ég átti samt möguleika á að
komast áfram og eftir ellefu holur
síðasta daginn var ég einu undir
og alls tvö yfir pari. Þeir sem léku
á fjórum yfir komust áfram þannig
að ég átti góða möguleika, en þá
kom þessi blessaða tólfta hola.
Hún er par þrír, um 165 metra
löng og flötin er eyja úti í vatni,
ekkert pláss til að slá á nema á
þessa litlu flöt. Það var mótvindur
og því átti þetta að vera tiltölulega
auðvelt, en annað kom á daginn
hjá mér. Ég sló fjóra bolta í vatnið
og fékk ellefu á hana og eftir það
var þetta búið. Ég held ég hafi
ekki fengið ellefu á eina holu síðan
ég var að byija í golfi níu ára gam-
all,“ sagði Úlfar.
Mótið var eitt af níu úrtökumót-
um á fyrsta stigi fyrir bandarísku
mótaröðina. Þeir sem komust áfram
leika síðan á einum af fimm völlum
um aðra helgi og þeir sem komast
í gegnum þau mót komast á loka-
stigið sem leikið verður í Orlando
í byijun desember. En hvað tekur
nú við hjá Úlfari?
„Ætli það sé ekki bara sálfræð-
ingur,“ segir Úlfar og hlær. „Nei,
í alvöru talað þá ætla ég að taka
mér frí frá golfi í viku og reyna
að jafna mig. Ég er gjörsamlega
niðurbrotinn maður eftir þetta og
hálf útbrunninn. Þetta voru svo
gríðarleg vonbrigði þannig að
manni veitir ekki af að hreinsa
hugann af þessu áður en maður
byijar að æfa aftur fyrir mótaröðina
í Flórída en þangað ætlum við að
flytja um áramótin. Það er þægi-
legra og ódýrara fyrir okkur, en
ég ætla að reyna aftur að ári.“
Hefur þú einhveija til að styðja
ÍÞfémR
FOLK
■ BAYERN Munchen tókst ekki
að kaupa Dennis Bergkamp frá ít-
alska liðinu Inter Mílanó í gær. Fram
kom að Bayern hefði boðið sem sam-
svarar um 516 millj. kr., en Inter
vildi fá sem samsvarar um 800 millj.
kr. Liðið greiddi Ajax um milljarð
fyrir kappann fyrir tveimur árum.
■ TALSMAÐUR Inter sagði að
Bergkamp yrði áfram hjá félaginu,
„að minnsta kosti fyrst um sinn,“
eins og hann orðaði það.
■ PORTÚGALSKI landsliðsmið-
heijinn Jorge Cadete leikur með
Brescia á Italíu út keppnistímabilið.
Sporting leigði hann fyrir sem sam-
svarar um 6,6 millj. kr., en ítalska
félagið á forkaupsrétt á miðheijanum
og er kaupverðið tæplega 200 millj-
ónir.
■ JACK Charlton vísar á bug orð-
rómi þess efnis að hann sé að hætta
sem landsliðsþjálfari írlands vegna
ummæla sem eftir honum eru höfð
í nýrri bók um liðið sem hann byggði
upp.
■ BERTI Vogts, landsliðsþjálfari
Þýskalands, áréttaði fyrri ummæli
sín í gær þess efnis að Stefan
Effenberg ætti ekki afturkvæmt í
landsliðið. Effenberg var sendur
heim frá HM í Bandaríkjunum
vegna óprúðmannlegrar framkomu,
leikur nú með með Gladbach.
■ TONY Woodcock, fyrrum
landsliðsmaður Englands, er orðinn
valtur í sessi sem þjálfari þýska 2.
deildarliðsins VfB Leipzig. Ef liðið
tapar næsta deildarleik á sunnudag-
inn má búast við að hann verði rek-
inn. Leipzig hefur aðeins fengið
fimm stig úr tíu leikjunum.
■ ÍSHOKKÍMENN í NHL-deild-
inni bandarísku hafa nú verið í 26
daga verkfalli. Á mánudag var fund-
ur leikmanna með forráðamönnum
félaganna og bar þar mikið í milli.
Margir leikmenn úr NHL-deildinni
eru þegar farnir til Evrópu til að
leika þar.
við bakið á þér þennan tíma?
„Já, Coke, Austurbakki og Spari-
sjóður Hafnarfjarðar ætla að
styrkja mig fram á næsta haust
þannig að ég get einbeitt mér að
þessu fram að næsta úrtökumóti.
Maður verður bara að taka þessu
eins og hveiju öðru hundsbiti, en
ég er ekki enn búinn að átta mig
á hvað gerðist hjá mér. Þegar mað-
ur hefur verið svona lengi í þessu
á maður ekki að fara á taugum,
en ég held að það hafi gerst hjá
mér að þessu sinni," sagði Úlfar
og var greinilega allt annað en
ánægður með sjálfan sig.
Sigurjón í atvinnumennsku
Siguijón Arnarsson kylfingur úr
Golfklúbbi Reykjavíkur ætlar að
gerast atvinnumaður í golfi um næstu
áramót. „Ég ætla að fara til Portúgals
með sveit Golfklúbbs Reykjavíkur í nóv-
ember og síðan ætla ég að gerast at-
vinnumaður,“ sagði Siguijón i samtali
við Morgunblaðið. Hann er staddur í
Bandaríkjunum þar sem hann er að
ganga frá lausum endum sem þarf að
hnýta áður en menn gerast atvinnumenn
þar í landi.
Slgurjón Arnarsson.
„Þetta verður svipað og í fyixa hjá
mér. Ég ætla að búa hér í Orlando og
keppa á mótaröðunum hér. Ég held að
ég eigi að geta þetta og ætla alla vega
að reyna því maður hefur lagt svo mikið
í golfið á undanförnum árum að ég vil
láta reyna á hvort þetta gengur upp,“
sagði Siguijón en tók fram að það gengi
illa að fá fjárhagslegan stuðning heima.
„Ef þú veist um einhvern sem vantar
að losna við peninga þá er ég tilbúinn
að taka við slíku,“ sagði Siguijón.
Geysileg aukning íevrópsku mótaröðinni. Verðlaunin hafa margfaldast
Árið kostar spilarana 18 millj.
Það getur verið dýrt að vera
meðal þeirra bestu í golfinu.
Svíinn Joakim Haeggman, sem var
fyrstur Svía til að vera valinn í
Ryder Cup lið Evrópu, segir að til
að endar nái saman hjá sér verði
hann að finna sér inn 18 milljónir
króna. Það tekst honum á þessu
ári og gott betur en það eru ekki
allir jafn heppnir, eða góðir.
Markmið Haeggmans er einfalt;
spila golf meðal þeirra bestu í heim-
inum. Það er hins vegar mun erfið-
ara að ná þessu markmiði, og þegar
því er náð þá er ef til vill enn erfíð-
ara að halda sér í hópi þeirra bestu.
Menn geta verið góðir kylfíngar en
til að bera ekki fjárhagslegt tjón
af þátttöku í íþróttinni þurfa menn
að vinna til einhverra verðlauna.
Verðalaunafé í hinni evrópsku Volvo
mótaröð hefur margfaldast á síð-
ustu árum. Fyrir 23 árum var verð-
launafé aðeins tæpar 27 milljónir
króna en í ár er það einn milljarður
og 700 þúsund krónur. Á sama tíma
hefur keppendum fjölgað og má sem
dæmdi nefna að árið 1984 voru
fímm sænskir kylfmgar með í móta-
röðinni en í ár eru Svíamir 21 tals-
ins.
Helmfngurinn fer í kostnað
Um mitt sumar var Joakim Ha-
eggman tekjuhæstur Svía og hafði
fengið tæpar 18 milljónir í verð-
iaunafé og alls um 80 milljónir á
þeim árum sem hann efur verið að
keppa. Þegar sigurvegari móts tek-
ur við sórri ávísun frá mótshaldara
þá er ýmislegt sem gleymist. Ávis-
unin hljóðar upp á tíu milljónir en
af því fær sigurvegarinn aðeins
helming, eða fimm milljónir. Hitt
fer í alls konar kostnað.
„Venjuleg vika kostar mig tæpar
200 þúsund krónur og ég keppi
ekki allt árið þannig að ég þarf um
18 milljónir í vinnigsfé til að endar
nái saman. Þetta er nokkuð mikið
en til að vera meðal þeirra bestu
þarf að ferðast víða og leika á
mörgum völlum víðs vegar um
heiminn. Skattayfírvöld í því landi
þar sem keppnin er hveiju sinni fá
um 25-30% af verðlaunafénu, sam-
tökin okkar, PGA, tekur einnig
hluta, kylfusveinninn fær vei\julega
um 10% og síðan er það þjálfara-
kostnaður og ráðgjöf sem ýmisst
er ákveðin upphæð eða prósenta af
verðlaunafé. Þannig að maður fær
þetta ekki beint { vasann því svo
kemur ferðakostnaður og gisting
að auki og svo verður maður að
nærast eitthvað,“ segir Haeggman.
En það er fleira en að spila keppn-
isgolf og æfa sem menn í fremstu
röð verða að gera. Þeir eru vinsælir
í auglýsingar og einnig eru þeir
styrktir af fyrirtækjum og verða að
koma til móts við eigendur þeirra.
„Mér finnst gaman að starfa með
auglýsingafólki því þetta er al-
mennilegt fólk sem kann sitt fag
og ég kynnist nýjum fleti á mörgum
málim með því að vinna með því. Á
hveiju ári fer ég í golf með eigend-
um nokkurra fyrirtækja og það er
líka ágætt, en ég get ekki notaða
nema hálfan mánuð á ári í slíkt,"
segir Haeggman.
Hann þykir raunar alls ekki dýr
og fyrir að koma í pro-am mót, þar
sem hann leikur með einhveijum
áhugamanni tekur hann ekki nema
tæpa milljón á meðan Nick Faldo
tekur um 20 milljónir króan.