Morgunblaðið - 18.11.1994, Qupperneq 18
18 B FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
r
6*
Aukínni samkeppni mætt
með nýi'ii. i'ullkom-
inni rannsóloiarstofu
Forráðamenn verkfræðiþjónustunnar Hönn-
unar reifa starfsemi fyrirtækisins í viðtali
við Magnús Sigurðsson, þar sem fram kem-
ur, að viðhald á húsum og mannvirkjum
skipa æ stærri sess í verkefnUm iyrirtækisins
ORÐIÐ hönnun hefur unnið sér
fastan sess í íslenzku máli.
Það á sér samt tiltölulega skamma
sögu. Höfundur þess var Alexander
Jóhannesson háskólarektor og lagði
hann til, að orðið yrði notað sem
þýðing á ensku sögninni “design".
Þetta gerðist í kringum 1960, en
þá var að hefjast sú mikla gróska,
sem einkennt hefur íslenzka bygg-
ingarstarfsemi og mannvirkjagerð
lengst af síðan. Nýjar verkfræði-
stofur voru þá að hefja starfsemi
sína, enda mikil verkefni framund-
an. Ein þeirra hlaut einmitt heitið
Hönnun hf. Hún var stofnuð 1963
og lét strax mikið að sér kveða.
Átti nafngift hennar verulegan þátt
í því að orðið hönnun festist jafnvel
í málinu og raun ber vitni.
EYJÓLFUR Árni Rafnsson, verkfræðingur og Sigurður Arnalds,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Mynd þessi er tekin í hinni nýju
rannsóknarstofu Hönnunar, sem Eyjólfur Árni veitir forstöðu.
FASTEIGNAMIÐLUN.
vr Síðumúla 33 - Símar 889490 - 889499
Ármann H. Benediktsson, sölustj., lögg. fasteigna- og skipasali.
Geir Sigurðsson, iögg. fasteigna- og skipasali.
Símatími laugardag kl. 11-13.
Eldri borgarar
Boðahlein. 8282. Vorum að fá í
sölu sórl. vel staðsett raðhús. Mikið út-
sýni yfir sjóinn. Þjón. frá Hrafnistu í Hafn-
arf. Verð 7,9 millj.
Einbýli
Kambsvegur. 8296. Ný-
komið I sðlu gott einbhús á tvelmur
haaðum samt. 24? fm. Áhv. ca 6,2
mill). (húsbr.). Verð 10,9 mlll).
Fannafold. 9294. Nýkomið I
sölu vandað 146 f m einbhúa á einni
haeð ásamt sérb. 35 fm bilsk. Áhv.
oa 3,6 mlllj. Verð 14,2 mlllj.
Kleifarsel. 9291. Nýkomið í sölu
fallegt 233 fm hús á tveimur hæðum m.
innb. bllsk. Góð staðsetn. v. skóla. Áhv.
hagst. 4,5 millj. Verð 14,9 millj.
Vesturás. 9248. Nýiegt og
vandaö 208 fm einb. á tveimur
hæðum ásamt 54 fm tvöf. bílskúr.
S svefnherb. Fréb. staðsetn. v. úti-
vistarsv. Elliðeárdals. Áhv. byggsj-
lán 3,5 mlllj. Verð 17,4 mlU).
Hæðarsel. 914. Vandað og fallegt
hús ca 260 fm með 30 fm bílsk. Á jarðh.
er sér 2ja-3ja herb. ib. Áhv. Byggsj. ca
4,2 millj. Verð 18,5 millj. Sérl, vel stað-
sett hús innst I götu við opiö svæði -
útsýni.
Bjartahlíð - Mos. 9185. í smís-
um vandaö ca 175 fm timburh. á einni
hæö m. innb. bílsk. Afh. frág. utan, fokh.
innun. Verð 8,5 millj. Ath. hægt aö fá
afhent tiib. tii innr.
Raðhús
Búland, 8280. Nýkomíð f$ölu
vandaö 187 fm raðhúe ósamt 26
fnn bílsk. Verð 13,8 miHj'.
Mosarimi. 8237. Erum meö í sölu
falleg 150 fm raðh. á einni hæð. Innb.
30 fm bílsk. Húsin afh. fokh. en fullfrág.
að utan. Sveigjanleg grkjör. Verð aðeins
7-7,3 millj.
Dalatangi. 9235. tíi söiu 86 fm 3ja
herb. raðhús á einni hæð.
Geftland. 9200. f söiu mjög
fallegt og mjög val byggt ce 180
fm raðhús ásamt btlsk. Verð 13,6
mlilj. Æsktl. skiptl é 4ra hart>, Ib. í
sama hverfi.
Barmahlíð. 7283. Nýkomin í sölu
114 fm efri hæð. Stórar stofur. Fallegur
garður. Áhv. hagst. lán ca 4,0 millj. Verð
8,3 millj.
Hrefnugata. 7222. Mjög rúmg. og
falleg 112 fm efri hæð. Áhv. byggsj. 3,4
millj. Verð 8,2 millj.
Vesturhús. 7229. Glæsil. hönnuð
118 fm efri sérhæð ásamt 45 fm bílsk.
Eignin er ekki fullb. Mikið útsýni yfir borg-
ina. Áhv. ca 7,0 millj. hagst. langtlán. Til-
boð óskast.
Borgarholtsbraut
Kóp. 7262. Mjög góð 105 fm
efri sérh. í tvíbýli ásamt 35 fm bllsk.
Áhv. hagst. lán ca 3,5 millj. Verð
8,5 míllj.
Hafnarfjörður. 755. Erum meö i
sölu v. Lindarhvamm fallega hæð ásamt
risi samt. 174 fm. 32 fm bílsk. Góð stað-
setn. Áhv. byggsj. ca 3,4 millj. Skipti
æskil. á eign í Reykjavík.
4ra-7 herb.
Dalsel. 4231. Ca 120 fm íb. á efstu
hæð ásamt stæði í bílskýli. Áhv. hagst.
lán ca. 3,3 millj. Verð 7,0 millj.
Kríuhólar. 5263. Ca 112 fm 5 herb.
íb. á 3. hæð í litlu fjölb. 3-4 svefnherb.
Hús nýviðg. að utan. Verð 6,9 millj.
Sogavegur. 444. Falleg og vönduð
íb. á 1. hæð ásamt stóru aukaherb. í kj.
Parket. Útsýni. Verð 8,3 millj.
Jörfabakki. 4248. Falleg fb.
á 1. hæð ásamt aukaherb. I kj. Gðö
staðsetning íyrírbörn. Áhv. Byggsj.
ca 3,4 mlllj. Verð 6,9 mlllj. Mögul.
06 taka bifreiö upp í kaupin sem
grelðslu.
Ástún - Kóp. 4251. Sérl. falleg
og vönduð íb. á 2. hæð. Góð sameign.
Hús nýviðgert og málað.
Hvassaleiti 4130. Falleg
100 fm Ib. á 3. hæð. Parket. Miklð
og glæsilegt útsýnl. Biiskúr. Áhv.
ca 5,1 mlllj. Verð 8,7 mtllj. Skiptl
mögul. á 3ja hsrb. (b.
Seljabraut. 4196. Erum með i
einkasölu sérl. góða 102 fm íb. á 3. hæð.
Þvherb. I ib. Innangengt í bílgeymslu.
Ath. húsið allt nýklætt að utan. Laus
strax.
Hraunbær. 4190. Erum með í sölu
sérl. góða ca 95 fm íb. á 2. hæð. Suö-
ursv. Útsýni. Áhv. ca 4 millj. hagst. Verð
aðeins 6,9 millj.
Irabakki. 4286. Falleg 4ra herb. íb.
á 2. hæð. Áhv. byggsj. hagst. 4,1 millj.
Verð 6,6 millj.
Laugavegur. 3247. Nýieg 82 fm íb.
á 2. hæð. Fallegur bakgarður. Áhv.
Byggsj. ca 5,3 millj. Verð 7,3 millj.
Hringbraut. 3221. tíi söiu nýi. 87
fm íb. m. sórinng. ásamt stæði í bílskýli.
Áhv. hagst. lán 2,3 millj. Verð 6,6 millj.
Jöklafoid. 341. En jm með f
sðlu víð Jöklafold 3ja h 3. hæð ásamt bílsk. Áhv byggsj. Verð 7,7 millj. Sk á 2ja horb. ib. erb. íb. é 3,5 millj. Iptl æskil.
Hraunteigur. 3188. Góð ib. í risi.
Nýl. eldhús. Verð 4,9 millj.
Laugarnesvegur. 3273.
73 fm fbhæð í þrlb. ásamt 32 fm
bílsk. Verð 5,8 mHlj.
Lindarsmári. 3296. Erum með í
sölu 3ja herb. íbúðir sem afh. tilb. u. tróv
og máln. m. fullfrág. sameign. Verð 7,3
millj.
2ja herb.
Leifsgata. 2274. Faiiag eo fm
íb. I kj. Áhv. hagst. lán 2,8 mHlj.
Verð 4,5 millj.
Hverfisgata. 2278. Góð 54 fm (b.
á 2. hæð. Parket. Verð aðeins 4,1 millj.
Kambasel. 2283. Nýkomin í
söíu sért. vöndu 6 2ja-3ja herb. 96
ur garður. Áhv. Varð 7,3 millj. hagst. 3,8 millj.
IMökkvavogur. 2271. Mjög stór
73 f m íb. í kj. Fallegt hús. Gróinn garður.
Hraunbær. 2255. Mjög falleg 2ja
herb. íb. á 2. hæð. Suðursvalir. Áhv. ca
2 millj. Verð 4,9 millj,
Kambsvegur. 215. Rúmg. I
60 fm íb. í kj. Áhv. Byggsj. 1,7
millj. Verð aðeins 4,4 millj. Góð
staðsetn.
Kríuhólar. 228.Mjög góð 2ja herb.
íb. á 4. hæð í lyftuh. Mjög hagst. lán
áhv. Verð 3,9 millj.
Atvinnuhúsnæði
Skrifstofuhæð. Vorum að fá í
8Ölu 130 fm hæð við Hamraborg, Kópa-
vogi. Eignin er sórlega vönduð í alla staði
og selst með öllum innróttingum og bún-
aöi. Hagstæð greiðslukjör. Verð 7,8 millj.
Hönnun hf. er verkfræði- og ráð-
gjafarfyrirtæki. Það hefur nú aðset-
ur að Síðumúla 1 og á 30 ára starfs-
ferli sinum hefur fyrirtækið einkum
látið til sín taka á byggingasviðinu
og langmestur hluti starfseminnar
oftast tengdur ýmiss konar nýfram-
kvæmdum um land allt. Þar má
nefna samgöngumannvirki, virkj-
anir, húsbyggingar og jarðganga-
gerð en einnig viðhaldsverkefni.
En verkefnin verða stöðugt fjöl-
breyttari. Kröfur um betra um-
hverfi fara vaxandi og því hefur
Hönnun hf. að undanfömu tekið
að sér þýðingarmikil verkefni á sviði
sorpurðunar, skolphreinsunar og
umhverfismats. Gerð kostnaðará-
ætlana og matsgerðir hafa jafnan
verið snar þáttur í starfsemi Hönn-
unar og hefur fýrirtækið í mörg ár
gefið út verðbanka, sem er mikið
notaður.
Starfsmenn Hönnunar eru nú um
30, en vom flestir 45, er Sigöldu-
virkjun var byggð, en Hönnun átti
þátt í hönnun þeirrar virkjunar.
Langt er síðan Hönnun stofnaði
útibú úti á landi. Það hefur aðsetur
á Reyðarfirði og voru fyrstu verk-
efni þess gatnagerð á Austurlandi.
Árið 1990 varð þetta útibú sjálf-
stætt fyrirtæki og nefndist Hönnun
og ráðgjöf hf. Það er í eigu tveggja
heimamanna auk Hönnunar hf. og
hefur aðsetur bæði á Reyðarfirði
og Egilsstöðum. Starfsmenn þar
eru nú 8. Þá hefur Hönnun hf. einn-
ig útibú á Hvolsvelli.
Fullkomin rannsóknarstofa
Á síðustu árum hefur dregið úr
nýbyggingum en viðhald húsa og
annarra mannvirkja stóraukizt í
staðinn og nú er viðhaldsráðgjöf
og hönnun vegna endurbygginga
orðin mikilvægur þáttur í starfsemi
Hönnunar. Ná þessi verkefni m. a.
til viðhalds og endurnýjunar á hús-
byggingum á höfuðborgarsvæðinu,
á byggingum varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli og á ýmsum sérhæfð-
um mannvirkjum.
Af einstökum stærri verkefnum
af þessu tagi á höfuðborgarsvæð-
inu, sem Hönnun hefur staðið að,
má nefna undirbúning og eftirlit
með ýmsum byggingum Landakots-
spítala, bæði utan húss og innan,
verkfræðiþjónustu vegna umfangs-
mikilla breytinga á verksmiðju
Lyfjaverzlunar ríkisins við Borga-
tún, úttekt á jarðskjálftaþoli ýmissa
stórbygginga og steypuviðgerðir og
utanhúsklæðningar á fjölmörgum
fjölbýlishúsum.
Vegna samdráttar í nýfram-
kvæmdum hefur þörfín fyrir verk-
fræðiþjónustu á því sviði minnkað.
Því var ákveðið að auka enn á
umfang þeirrar þjónustu, sem
Hönnun hf. veitir, með aukinni sér-
fræðiráðgjöf. Hjá fyrirtækinu hefur
nú verið sett á fót rannsóknarstofa
á sviði byggingarannsókna einkum
varðandi steinsteypu og jarðefni og
ráðnir þrír sérfræðingar á þessu
sviði.
Það eru verkfræðingamir dr.
Eyjólfur Ámi Rafnsson, Matthías
Loftsson og Sveinbjörn Svein-
bjömsson. Síðustu mánuði hefur
tækjakostur rannsóknarstofunnar
verið aukinn jafnt og þétt og er nú
hægt að gera þar allar helztu próf-
anir á þessum sviðum og er þessi
rannsóknarstofa nú sú stærsta
sinnar tegundar í landinu í eigu
einkaaðila.
— í þessari rannsóknarstofu
getum við m. a. gert svonefnd frost-
þíðupróf, sagði Eyjólfur Árni Rafns-
son verkfræðingur, en hann er for-
stöðumaður hinnar nýju rannsókn-
arstofu Hönnunar hf. — Þá em
sýni af gamalli eða nýrri steypu eða
jafnvel bergi sett inn í sérstakan
klefa, sem fer einn frostþíðuhring
á sólarhring. Það þýðir, að hitastig
í klefanum fer niður í allt að 20
stiga frost á Celsíus og síðan upp
í allt að 24 stiga hita, allt á einum
sólarhring. Þetta er staðalpróf að
sænskri fyrirmynd, sem stendur í
56 daga. Þarna er verið að fram-
kalla það, sem gerist undir bem
lofti hér á landi. Steypan er raka-
mettuð og síðan frýs hún og þiðnar
á víxl. Þá kemur fram molnun eða
flögnun í steypunni, sem síðan er
mæld og metin.
í öðru tæki má mæla brotþol
steypu en einnig svonefnt tog-
beygjuþol og kleifniþol hennar.
Þannig má mæla_ styrkleika steypu
á ýmsan hátt. Á rannsóknarstof-
unni má ennfremur gera ýmsar
fylliefnaprófanir fýrir steinsteypu
og jarðvegsfyllingar, prófa sig jarð-
vegslaga undir auknum þunga og
þéttleika jarðvegslaga, framkvæma
smásjárkoðun á jarðefnum og stein-
steypu og margt fleira.
— Þessi nýja rannsóknarstofa
gerir okkur m. a. kleift að sinna
enn betur en áður viðhaldsverkefn-
um í húsbyggingum, en slík verk-
efni fara_ nú ört vaxandi, sagði
Eyjólfur Árni ennfremur. — Þegar
endurnýja á hús eða önnur mann-
virki, sem eru komin til ára sinna,
er mikilvægt, að staðið sé vel að
verki,_ áður en framkvæmdir hefj-
ast. Á grundvelli ástandskönnunar
er lagt mat á viðgerðarþörfína og
síðan er gerð kostnaðaráætlun um
verkið. Að lokinni hönnun og gerð
verklýsingar er svo hægt að hefja
framkvæmdir.
Fjölbýlishúsið Ljósheimar 2-6 í
Reykjavík er dæmigert fyrir hús,
sem fer í gegnum allt þetta ferli,
en á þessu húsi höfðu komið fram
talsverðar steypuskemmdir. Fyrst
var húsið skoðað vandlega og tekin
sýni úr steypinni og á grundvelli
þessara rannsókna tekin ákvörðun
um, hvaða viðgerðaraðferð yrði tal-
in bezt. Niðurstaðan var sú, að
nauðsynlegt þótti að klæða húsið.
Síðan var viðgerðin hönnuð, útboðs-
gögn samin og verkið boðið út, en
arkitektarnir Ormar Þór Guð-
mundsson og Örnólfur Hall fengnir
til þess að útlitshanna klæðning-
una. Gerðar voru útlitsmyndir í
tölvu af húsinu, enda mjög til þæg-
inda fyrir íbúana að sjá, hvernig
húsið muni Iíta út að viðgerð lok-
inni. Viðgerðakostnaður við húsið
er áætlaður 50-60 millj. kr.
Vaxandi viðhaldsverkefni
— Öll mannvirki þurfa fyrr eða
síðar eitthvað viðhald. Mikill hluti
allra þeirra bygginga, sem til eru
hér á landi, hafur verið byggður á
töltölulega skömmum tíma og það
er ljóst, að viðhaldsþörf margra af
þessum húsum er mun meiri en
nokkurn gat órað fyrir, segir Sig-
urður Amalds, framkvæmdastjóri
Hönnunar, sem nú hefur orðið. —
Það er komið á daginn, að þau
byggingarefni og þær byggingarað-
ferðir, sem notaðar voru, hafa ekki
staðizt nægilega vel ízlenzkt veður-
far.
En hugsunarhátturinn er að
breytast. Við hjá Hönnun verðum
þess glöggt varir nú, að það er
miklu meira hugsað um að byggja
með tilliti til viðhalds og endingar
en áður var. Á því leikur heldur
ekki vafí, að steinsteypan hefur
1