Morgunblaðið - 24.11.1994, Síða 3
2 D FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
Stjarnan - Valur 23:22
Ásgarði, Islandsmótið í handknattleik, 1.
deild, 11. umferð, miðvikudaginn 23. nóv-
ember 1994.
Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 5:5, 5:7, 7:7,
11:11, 15:15, 17:15, 21:18, 22:20, 23:20,
23:22.
Mörk Stjörnunnar: Dmitri Filippov 7/1,
Sigurður Bjamason 6/1, Magnús Sigurðs-
'son 5, Konráð Olavson 3, Skúli Gunnsteins-
son 1, Hafsteinn Bragason 1.
Varin skot: Ingvar Ragnarsson 8/1 (þaraf
2 til mótheija), Gunnar Erlingsson 4 (þaraf
3 til mótheija).
Utan valiar: 8 mínútur.
Mörk Vals: Júlíus Gunnarsson 8, Valgarð
Thorodsen 5, Geir Sveinsson 3, Ingi Rafn
Jónsson 3, Erlingur Kristjánsson 3/2.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 5
(þaraf 2 til mótheija), Axel Stefánsson 4
(eitt til mótheija).
Utan vallar: 4 minútur.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Sigurgeir
Sveinsson. Dæmdu vel.
Áhorfendur: Fékkst ekki uppgefið en hafa
trúlega verið um 600.
ÍH-Selfoss 17:21
íþróttahúsið Strandgötu:
Gangur leiksins: 1:0, 2:3, 6:4, 7:9, 8:9,
8:10, 8:12, 13:14, 14:20, 15:21, 17:21.
Mörk ÍH: Jón Þórðarson 5, Ólafur Magnús-
son 3, Jóhann R. Ágústsson 3, Sigurður
Ö. Árnason 2, Guðjón Steingrímsson 2,
Ásgeir Ólafsson 1, Gunnlaugur Grétarsson
1.
Varin skot: Ásgeir Einarsson 4 (þaraf 1
aftur til mótheija), Alexander Revine 4,
Guðmundur A. Jónsson 1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Selfoss: Hjörtur Pétursson 5, Björg-
vin Rúnarsson 4, Einar Guðmundsson 3,
Nenad Radosavljevic 2, Sigurður Þórðarson
2, Grímur Hergeirsson 2/1, Erling Klemens-
son 1, Sturla Egilsson 1, Sverrir Einarsson
!• . v-
Varin skot: Hállgrímur Jónasson 14/1 (þar-
af 1 aftur til mótheija).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Jóhannes Felixsson og Lárus
H. Lárusson voru jafn slakir og leikmenn.
Áhorfendur: Um 40 í upphafi en tíndust
uppí 80.
FH-ÍR 23:21
Kaplakríki:
Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 4:4, 6:6, 8:8,
11:8, 12:11, 12:16, 14:19, 18:20, 23:20,
23:21. s
Mörk FH: Hans Guðmundsson 5, Guð-
mundur Petersen 4/4, Stefán Kristjánsson
3, Gunnar Beinteinsson 3, Sigurður Sveins-
son 3, Halfdán Þórðarson 3, Guðjón Áma-
son 2.
Varin skot: Rósmundur Magnússon 6 (þar
af 1 til mótheija). Jónas Stefánsson 7 (þar-
af 2 til mótheija).
Utan vallar: 2 mín.
Mörk |R: Magnús Már Þórðarson 5, Daði
Hafþórsson 5, Jóhann Ásgeirsson 3, Njörð-
ur Árnason 3, Branislav Dimitrivich 3, Rób-
ert Þór Rafnsson 1, Guðfinnur Kristmanns-
son 1.
Varin skot: Magnús Sigmundsson 13/1.
Sævar Ríkharðsson 1/1.
Utan vallar: 2 mín.
Áhorfendur 250.
Dómarar: Bræðurnir Egill Már og Örn
Markússynir.
KR-HK 22:21
Laugardalshöll:
Gangur ieiksins: 1:3, 3:3, 5:5, 9:9, 10:11,
10:13, 12:16, 15:17, 19:19, 21:20, 21:21,
22:21.
Mörk KR: Sigurpáll Aðalsteinsson 7/2,
Páll Beck 5/3, Magnús Magnússon 3, Einar
B. Ámason 2, Guðmundur Albertsson 2,
Hilmar Þórlindsson 2, Björgvin Barðdal 1.
Varin skot: Gisli Felix Bjarnason 7/1, (þar-
af 1 til mótheija). Siguijón Þráinsson 2.
Utan vallar: 6 mínútur, þar af fékk
Björgvin Barðdai útilokun fyrir gróft
brot.
Mörk HK: Róbert Haraldsson 7, Jón Ell-
ingsen 4, Hjálmar Vilhjálmsson 3, Óskar
Elvar Óskarsson 3, Gunnleifur Gunnlaugs-
son 2/1, Bjöm Hólmþórsson 1, Óliver
Páimason 1.
Varin skot: Hlynur Jóhannsson 16, (þaraf
5 til mótheija).
Utan vallar: 14 mínútur. Óliver Pálmason
var þrívegis vikið af velli og fékk því rautt
spjald.
Dómarar: Einar Sveinsson og Kristján
Sveinsson. Gerðu mistök eins og leikmenn
liðanna.
Áhorfendur: Um 200.
Víkfngur - Haukar 25:28
Víkin:
Gangur leiksins: 0:3, 1:3, 1:6, 4:8, 4:11,
7:11, 10:15, 11:15, 14:19, 16:19, 16:20,
19:20, 20:21, 21:22, 21:24, 22:24, 24:26,
25:28.
Mörk Víkings: Sigurður Sveinsson 8/1,
Birgir Sigurðsson 6, Bjarki Sigurðsson 4,
Rúnar Sigtryggsson 4, Gunnar Gunnarsson
2, Hjörtur Örn Arnarson 1.
Varin skot: Reynir Þór Reynisson 8 (þar
af 4 til mótheija), Magnús Ingi Stefánsson
3.
Utan vailar: 8 mlnútur.
Mörk Hauka: Páll Ólafsson 7, Gústaf
Bjarnason 7, Siguijón Sigurðsson 5/2, Ósk-
ar Sigurðsson 3, Aron Kristjánsson 2, Svein-
berg Gíslason 2, Petr Baumruk 2.
Varin skot: Bjarni Frostason 14/1 (þar af
4 til mótheija),Þorlákur Kjartansson 3 (þar
af eitt til mótheija).
Utan vallar: 14 mínútur.
Dómarar: Gunnar Kjartansson og Óli P.
Ólsen.
Áhorfendur: Um 400.
Afturelding - KA 18:21
íþróttahúsið að Varmá
Gangur leiksins: 0:1, 1:3, 3:10, 7:11, 7:13,
9:15, 12:15, 12:18, 13:20, 18:21.
Mörk Aftureldingar: Róbert Sighvatsson
6, Ingimundur Helgason 5/4, Jason K.
Ólafsson 3, Gunnar Andrésson 2, Alexei
Trúfan 1, Þorkell Guðbrandsson 1.
Varin skot: Bersveinn Bergsveinsson 23/1,
(þaraf 12/1 til mótheija).
Utan vaiiar: 4 mi'nútur.
Mörk KA: Patrekur Jóhannesson 10/4,
Alfreð Gíslason 4, Jóhann G. Jóhannsson
3, Erlingur Kristjánsson 2, Einvarður Jó-
hannsson 1, Leó Örn Þorleifsson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 21
(þar af 8 til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Hákon
Siguijónsson, vom mistækir.
Áhorfendur: 450.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
VALUR 11 8 1 2 262: 230 17
STJARNAN 11 8 0 3 276: 255 16
VÍKINGUR 11 6 3 2 279: 263 15
AFTURELD. 11 7 0 4 276: 242 14
KA 11 6 2 3 280: 254 14
FH 11 6 0 5 278: 264 12
HAUKAR 11 6 0 5 294: 294 12
SELFOSS 11 5 2 4 240: 257 12
ÍR 11 5 0 6 255: 264 10
KR 11 4 0 7 239: 249 8
HK 11 1 0 10 243: 268 2
ÍH 11 0 0 11 212: 294 0
2. DEILD KARLA
BREIÐABL. - FRAM ... 25: 30
Fj. leikja u J T Mörk Stig
FRAM 6 4 2 0 155: 130 10
BREIÐABLIK 8 5 0 3 220: 197 10
FYLKIR 7 4 0 3 167: 155 8
ÞÓR 5 3 1 1 125: 106 7
ÍBV 7 3 1 3 177: 177 7
GRÓTTA 6 3 0 3 147: 140 6
FJÖLNIR 5 2 0 3 102: 112 4
KEFLAVÍK 6 1 0 5 136: 161 2
BÍ 6 1 0 5 130: 181 2
Knattspyrna
Meistarakeppni Evrópu
A-RIÐILL
Gautaborg:
IFK Gautaborg - Man. United.......3:1
Jesper Blomqvist (10.), Magnus Erlingmark
(65.), Pontus Kamark (71. - vsp) - Mark
Hughes (64.). 36.350.
Istanbul, Tyrklandi:
Galatasaray - Barcelona..i........2:1
Hakan Sukur (72. - vsp), Arif Erdem (88.)
- Romario (15.). 30.000.
B-RIÐILL
Miinchen, Þýskalandi:
Bayern Miinchen - P.S.G...........0:1
- George Weah (81.). 35.000.
Moskva, Rússlandi:
Spartak Moskva - Dynamo Kiev......1:0
Muksim Mukhamadiyev (52.). 40.000.
C-RIÐILL
Búdapest, Rúmeníu:
Steaua Búkarest - Anderlecht......1:1
Anton Dobos (52.) - Johnny Bosman (43.).
12.000.
Líssabon, Portúgal:
Benfica - Hajduk Split............2:1
Isaias Soares (33.), Joao Pinto (76.) - Stjep-
an Andrijasevic (72.). 45.000.
D-RIÐILL
Tríeste, Ítalíu:
AC Milan - Ajax...................0:2
- Jari Litmanen (2.), Franco Baresi (65. -
sjálfsm.).
30.000.
Aþena, Gríkklandi:
AEK Aþenu - Austria Salzburg......1:3
Michalis Vlachos (29.) - Heimo Pfeifenber-
ger (6. og 8.), Ralph Hasenhuttl (76.).
20.000.
Staðan
A-RIÐILL
IFK Gautaborg.........5 4 0 1 9:6 8
Barcelona.............5 2 12 10:7 5
Man. United..........5 1 2 2 7:11 4
Galatasaray...........5 113 3:5 3
■Leikirnir sem eftir eru:7. des. - Manchest-
er United - Galatasary, Barcelona - IFK
Gautaborg.
B-RIÐILL
P.S.G.................5 5 0 0 8:2 10
Spartak Moskva........5 1 2 2 7:8 4
Bayern Munchen........5 1 2 2 4:6 4
DynamoKiev............5 1 0 4 4:7 2
■Leikirnir sem eftir eru:7. des. - Dynamo
Kiev - Bayem Múnchen, Paris St Germain
- Spartak Moskva.
C-RIÐILL
Benfica.................ö 3 2 0 8:4 8
Hajduk Split............5 2 2 1 4:3 6
Steaua Búkarest.........5 0 3 2 3:5 3
Anderlecht..............5 0 3 2 3:6 3
■Leikirnir sem eftir eru:7. des. - Hajduk
Split - Steaua Búkarest, Anderlecht -
Benfica.
D-RIÐILL
Ajax....................5 3 2 0 7:2 8
Austria Salzburg........5 1 3 1 4:5 5
ACMilan.................5 2 1 2 5:5 3
AEKAþenu................5 0 2 3 3:7 2
■Leikirnir sem eftir eru:7. des. - Remaining
matches:Dec 7 - Austria Salzburg - AC
Milan, Ajax - AEK Aþena.
■Tvö stig voru dregin af AC Milan eftir
3:0 sigurinn á Austria Salzburg.
■Tvö efstu liðin í hveijum riðli komast
áfram í 8-liða úrslit og verður leikið heima
og heiman 1. og 15. mars á næsta ári.
Undanúrslitaleikirnir fara fram 5. og 19.
aprfl og síðan verður úrslitaleikurinn 24.
maí.
England
Úrvalsdeild:
Leicester - Arsenal.................2:1
(Ormondroyd 16., Lowe 28.) - (Wright 19.
- vsp). 20.774.
Tottenham - Chelsea.................0:0
27.037.
1. deild:
Swindon — Bumley 1:1
Wolves — Bolton 3:1
Akstursíþróttir
Breska Konunglega rallið
Mótið var það síðasta í röðinni sem gefur
stig til heimsmeistaratitils.
Úrslit klst.
1. Colin McRae (Bretl.) Subam Impreza
5:17.25
2. Juha Kankkunen (Finnl.) Toyota Celica
...............................5:20:58
3. Bruno Thiry (Belgíu) Ford Escort
5:27:37
4. Stig Blomqvist (Svíþjóð) Ford Escort
5:30:13
5. Ari Vatanen (Finnl.) Ford Escort
........................,.....5:34:25
6. Didier Auriol (Frakkl.) Toyota Celica
5:47:57
Lokastaðan í heimsmeistarakeppni rall-
ökumanna: Stig .116
2. Carlos Sainz Subaru Impreza ...99
...93
...49
...44
6. Miki Biasion (Ítalíu) Ford Escort... ...42
7. A. Schwarz (Þýskal.) Lancer 31
8. F. Delecour (Frakkl.) Ford Escort 3
9. Vatanen ...28
Lokastaðan í keppni bílaframleiðenda:
1. Toyota.........................151
2. Subaru..........................140
3. Ford............................116
NBA-deildin
Atlanta - Philadelphia..........102:99
•Stacey Augmon gerði 23 stig fyrir Atl-
anta, þar af síðustu körfuna er 10 sek.
vom eftir. Steve Smith skoraði úr tveimur
vítum er 45 sek. voru eftir og staðan jöfn,
98:98 og gerði alls 15 stig, en sex Atlanta
leikmenn náðu tveggja stafa tölu í stigum.
Boston - Milwaukee..............94:116
•Vin Baker gerði 20 stig fyrir Milwaukee,
þar af átta í þriðja leikfjórðungi, þar sem
segja má að úrslitin hafi ráðist. Todd Day
gerði 23 stig fyrir liðið. ■
Cleveland - Minnesota...........112:79
•Mark Price gerði sjö af fyrstu níu stigum
Cleveland, sem komst i 9:0, og gerði 17
alls. Tony Campbell gerði 16 stig og þeir
Bobby Phills og Chris Mills 15 hvor. Sjö
leikmenn liðsins náðu tveggja stafa tölu í
stigaskori.
Charlotte - Golden State........102:98
•Hersey Hawkins gerði 18 stig fyrir Charl-
otte, þar af tvö úr vítum, sem gulltryggðu
sigurinn er 20,4 sekúndur vom eftir. Al-
onzo Mourning gerði 21 stig og hitti t.d.
úr öllum niu vítaskotum sínum í leiknum.
Hjá Golden State var Latrell Sprewell stiga-
hæstur, sjötta leikinn í röð. Gerði 30 stig
að þessu sinni.
Houston - Portland..............94:102
•Þetta var fyrsta tap meistara Houston
Rockets i vetur eftir að liðið sigraði í fyrstu
niu leikjunum. Hakeem Olajuwon gerði 27
stig fyrir meistarana og Vernon Maxwell
20. Clyde Drexler, Clifford Robinson og
Tracy Murray léku allir sérlega vel fyrir
gestina og gerðu í sameiningu 21 af 30
stigum Portland í fjórða leikhluta.
Seattle - New Jersey............104:97
•Gary Payton var stigahæstur hjá heimal-
iðinu með 26 stig. New Jersey, sem hefur
ekki sigrað í Seattle síðan 1989, hefur nú
tapað sex fyrstu útileikjum sínum í vetur.
Derrick Coleman var atkvæðamestur af
leikmönnum Nets með 19 stig, en hitti þó
aðeins úr fimm skotum af 19 utan af velli.
LA Clippers - Chicago...........93:105
•Chicago tryggði sér sigur í síðasta leik-
hluta með því að gera 18 stig í röð. Ron
Harper og B.J. Armstronggerðu báðir fimm
stig á þeim leikkafla. Leikmenn Clippers
hafa byijað afar illa í vetur; hafa tapað
öllum tíu leikjunum.
Ikvöld
Körf uknattleikur
Bikarkeppni karla, 16-liða úrslit:
Akranes: IA-ÍR.............kl. 20
Stykkish.: Snæfell - Keflavík....kl. 20
Akureyri: Þór-KR...........kl. 20
Strandgata: Haukar - Reynir ...kl. 20
Sauðárkrókur: Tindastóll - KFÍkl. 20
1.. .deild. kvenna:........
Smári: Breiðab. - Grindav....kl. 19.30
Handknattleikur
2. deild karla:
Fjölnishús: Fjölnir-Grótta..kl. 20.30
FELAGSLIF
Víkingur
Framhaldsaðalfundur knattspymudeildar
Víkings fyrir árið 1992 og aðalfundur fyrir
árið 1993 verða haldnir í kvöld, fimmtudags-
kvöld, í Víkinni. Venjuleg aðalfundastörf.
Sigmar og vöm
KA voru frábær
„ÞETTA var frábær sigur. Við
komum ákveðnir til leiks og
keyrðum yfir þá í byrjun með
sterkri vörn og mjög góðri
markvörslu," sagði Patrekur
Jóhannesson, besti maður KA,
að loknum sigurleik gegn Aft-
ureldingu að Varmá í gær-
kvöldi. Lokatölur urðu 18:21,
eftir að norðanmenri höfðu leitt
íleikhléi, 7:13.
Ivar
Benediktsson
skrifar
Eins og Patrekur sagði þá komu
leikmenn KA grimmir til leiks
og óhætt er að segja að þeir gerðu
__________út um leikinn á
fyrstu fimmtán
mínútunum, en þá
skoruðu þeir tíu
mörk gegn þremur
mörkum heimamanna. Fjölmennt
stuðningslið Aftureldingar, jafnt
sem leikmenn sjálfir, vissi vart
hvaðan á það stóð veðrið. Sóknar-
leikur Aftureldingar var ráðleysis-
legur gegn hinum hávöxnu og
sterku varnarmönnum KA. Þau
skot sem rötuðu framhjá vörninni
varði Sigmar Þröstur í marki KA.
í sóknarleik KA blómstraði Patrek-
ur á upphafsmínútunum og skoraði
sjö fyrstu mörk gestanna án veru-
legrar mótspyrnu frá varnarmönn-
um Aftureldingar. Mosfellingar
geta þakkað markverði sínum,
Bergsveini Bergsveinssyni, að hafa
ekki verið „nema“ sex mörkum
undir þegar gengið var til leikhlés.
Hann varði fjórtán skot í fyrri
hálfleik.
Leikur heimamanna var mun
skárri í síðari hálfleik og tókst
þeim að minnka forskot KA niður
í 12:15, þegar liðnar voru þrettán
mínútur. En nær komust þeir ekki.
Þá kom sama ráðleysið í sóknar-
leikinn og í fyrri hálfleik. Sigmar
Þröstur fór á kostum í marki KA
og svo virtist sem leikmenn Aftur-
eldingar væru orðnir hræddir við
að skjóta á markið. KA menn juku
forskot sitt að nýju og náðu mest
sjö marka forskoti, 13:20. Þeir
siökuðu verulega á klónni undir
lokin og heimamönnum tókst að
klóra í bakkann, en of seint.
„Sóknarleikur okkar var langt
frá því að vera eins og ég var
búinn að leggja upp með, og þvi
fór sem fór,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson, þjálfari Aftureld-
ingar vonsvikinn að leiksiokum.
Bergsveinn Bergsveinsson var
bestur í liði Aftureldingar ásamt
Róbert Sighvatssyni, sem gafst
aldrei upp. Þá lék Trúfan vel í
vörn; Sóknin var mestan part leiks-
ins úti á þekju og mun slakari en
oftast nær.
KA vörnin með Alfreð, Erling
og Patrek í broddi fylkingar ásamt
frábærri markvörslu Sigmars
Þrastar skópu þennan áttunda sig-
ur KA í röð. Allt liðið kom með
réttu hugarfari til leiks og uppskar
að launum verskuldaðan sigur.
Myrkrið slökkti
á Víkingum
Þegar Víkingar hlupi inná völlinn
var slökkt á ljósunum í Vík-
inni og þulur kynnti leikmenn með
tilþrifum eins og um
Steinþór úrslitaleik væri að
Guóbjartsson ræða, þó fjöldi
skrifar áhorfenda gæfi það
ekki til kynna. Síðan
var kveikt, en svo var sem heima-
menn áttuðu sig ekki á því fyrr en
fimm mörkum undir í háifieik,
15:10. Þeir mættu tvíefldir til seinni
hálfleiks og náðu að minnka mun-
inn í eitt mark um miðjan hálfleik-
inn en nær Haukum komust þeir
ekki. Hafnfirðingamir fylgdu sigr-
unum í Evrópukeppninni um helg-
ina eftir og unnu 28:25 eftir að
hafa náð mest sjö marka forskoti
í fyrri hálfleik.
Haukar með Pál Ólafsson í
fararbroddi komu mjög ákveðnir
til leiks og eftir aðeins rúmlega
átta mínútna leik voru þeir komnir
með mjög væna stöðu, 6:1. Víking-
ar vissu ekki hvaðan á þá stóð
veðrið, en náðu að klóra aðeins í
bakkann áður en flautað var til
hlés. Hins vegar var allt annað að
sjá til þeirra í seinni hálfleik, en
það var of seint, því Haukar
slepptu ekki takinu, þó litlu mun-
aði um tíma.
Víkingar náðu sér ekki á strik
að þessu sinni. Sóknarleikurinn
gekk illa gegn sterkri vörn Hauka
og segja aeins tvö mörk fyrir utan
sína sögu en auk þess gerðu leik-
mennirnir allt of mörg mistök. En
sumt gerðu þeir líka vel og sérstak-
lega var glæsilegt þegar Bjarki
Sigurðsson sveif inn í teiginn rétt
áður en Sigurður Sveinsson sendi
á hann og minnkaði muninn í 20:19
— sannkallað sirkusmark. Eins
átti Reynir Þór Reynisson góðan
kafla í markinu í seinni hálfleik,
Birgir Sigurðsson barðist vel og
var öruggur á línunni og Rúnar
Sigtryggsson gaf ekkert eftir. Þá
var Sigurður Sveinsson nokkuð
öruggur í vítaskotunum en átti
erfiðara um vik með langskotin.
Vörn Hauka var mjög sterk, en
Bjarni Frostason í markinu sá um
skotin sem komust framhjá. Dóm-
aramir sendu hann á bekkinn þeg-
ar tæplega 10 mínútur voru til
leiksloka og staðan 24:22, en Þor-
lákur Kjartansson var öryggið upp-
málað og stóð sig vel i markinu það
sem eftir var. Sóknarleikurinn var
fjölbreyttur og ógnandi og léku
Páll Ólafsson, Gústaf Bjarnason og
Siguijón Sigurðsson við hvem sinn
fíngur, en annars stóðu allir sig vel.
Veittust að dómaranum
Teir leikmenn HK veittust að Einari Sveinssyni dómara eftir leik
KR og HK í 1. deildinni í handknattleik. Leikurinn hafði mikla
þýðingu fyrir bæði lið í botnbaráttunni og taugar leikmanna spennt-
ar. Alexander Arnarson taldi sig eiga óuppgerðar sakir við dómarann.
Hann gerði sig reyndar líklegan til að þakka Einari fyrir dómgæsluna
í leiksiok, en að sögn Einars tók hann í hönd hans, kreisti og reyndi
síðan að ryðja honum um koll með brjóstkassanum. Annar leikmanna
HK, Hjálmar Vilhjálmsson gerði síðan tilraun til að rífa af honum
gulu og rauðu spjöldin.
Kristján Sveinsson dæmdi leikinn með Einari og hugðust þeir skrifa
greinargerð til aganefndar vegna þessara atvika. Þá fékk Björgvin
Barðdal, leikmaður KR rauða spjaldið fyrir að fleygja sér á einn leik-
manna HK á lokamínútu, leiksins.
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1994 D 3
1. DEILDIN í HANDKNATTLEIK
Morgunblaðið/RAX
VARNARMÚR KA var leikmönnum Aftureldingar erfiður í gærkvöldi. Hér reynir Gunnar Andrésson að hoppa upp fyrir vörn KA, en Alfreð er
til varnar og línumennirnir Jason Ólafsson og Róbert Sighvatsson eru í strangri gæslu Erlings Kristjánssonar og Patreks Jóhannessonar.
Fyrirlidinn óhress
GEIR Sveinsson kallar á annan dómarann og Kristinn Ijósmyndari festi það
örugglega á filmu en myndin er tekin í gegnum klofið á dómaranum.
KR-sigur í miklum
baráttuleik
Einar B. Árnason gerði sigurmark KR
Einar B. Árnason, leikstjórnandi KR
tryggði liði sínu sigur 22:21 á HK í
æsispennandi leik. Einar skoraði sigur-
markið þegar fimmtán
sekúndur voru til leiksloka
og Reykjavíkurliðið styrkti
stöðu sína til muna í botn-
baráttu deildarinnar.
Gífurleg barátta var hjá leikmönnum
beggja liða og var hún oft á kostnað hand-
boltans. í fyrri hálfleiknum var jafnt á
nær öllum tölum en í þeim síðari náði
HK undirtökunum og virtist líklegt til að
ná í sinn annan sigur á íslandsmótinu.
Liðið náði mest fjögurra marka forskoti
12:16, en KR náði að jafna 20:20 þegar
þtjár mínútur voru til leiksloka og komast
yfír 21:20 þégar ein og liálf mínúta var
eftir. Róbert Haraldsson sem átti mjög
góðan leik í vinstra hominu jafnaði síðan
21:21 en Einar átti síðasta orðið.
„Við áttum góðan leik á Selfossi og
ætluðum að fylgja því eftir. Það tókst
ekki. HK-liðið kom virkilega ákveðið til
leiks, við gáfum of mikið eftir en náðum
upp baráttunni í síðari hálfeiknum,“ sagði
Einar B. Árnason fyrirliði KR eftir leik-
inn. Sigurpáll Aðalsteinsson var besti
leikmaður KR. Það bar oft ekki mikið á
honum en hann nýtti færi sín í horninu
einstaklega vel og hélt liði sínu inni í
leiknum.
HK-ingar hafa öruggléga í hugum
margra áhorfenda verið betur að sigri
komið heldur en KR. Kópavogsliðið barð-
ist vel allan leikinn en úrræðalaus sókn-
arleikur í lokin varð þeim að falli. Hlynur
Jóhannsson varði mjög vel í markinu og
Róbert Haraldsson lék vel í horninu. Að
öðru leyti var liðið jafnt.
Frosti
Eiðsson
skrifar
Grídarlega
mikilvægt
- sagði Viggó Sigurðsson þjálfari
Stjömunnar eftir sigurinn gegn Val
STJARNAN skaust íannað
sæti 1. deildar karla íhand-
knattleik í gærkvöldi er liðið
sigraði Val 23:22 í Ásgarði.
Garðbæingar eru aðeins einu
stigi á eftir Val sem er sem
fyrr í fyrsta sæti.
etta voru gríðarlega mikilvæg
stig og nú erum við komnir í
toppbaráttuna. Ég segi að þetta lið
getur orðið íslands-
meistari. Við sýnd-
Skuli Unnar . ., J
Sveinsson um að vlð erum 1
skrifar mjög góðri æfingu,“
sagði Viggó Sig-
urðsson þjálfari Stjörnunnar eftir
leikinn. „Eg er aldrei ánægður með
að tapa og við lékum ekki vel í
kvöld. Það minnkar auðvitað
breiddina að hafa Dag ekki en Ingi
Rafn stóð sig ágætlega,“ sagði
Þorbjörn Jensson þjálfari Vals eftir
leikinn.
Valsmenn hafa aðeins fengið eitt
stig úr síðustu þremur leikjum, er
það eitthvað til að hafa áhyggjur
yfir? „Nei, nei, ég hef ekki áhyggj-
ur af því. Við vissum að þetta yrðu
erfiðir leikir og það var fínt að
hafa góða forystu áður en við fórum
í þá. Þrátt fyrir að hafa aðeins feng-
ið eitt stig úr þessum erfiðu leikjum
erum við enn á toppnum,“ sagði
Þorbjörn.
Leikurinn var spennandi, eins og
leikir toppliðanna eiga að vera.
Varnirnar voru sterkar og sóknar-
leikurinn oftast varfærnislegur
þannig að sóknirnar urðu langar,
en samt ekki leiðinlegar. Vaismenn
byijuðu betur og gerðu fyrstu tvö
mörkin. Heimamenn jöfnuðu og síð-
an var jafnt á svo til öllum tölum
allt þar til staðan var 15:15 um
miðjan síðari liálfleik. Þá gerði
Stjarnan tvö mörk í röð og hélt
þeim mun þar til undir lokin að
Valsmenn gerðu tvö síðustu mörkin.
Stjörnumenn léku lengstum með
einn fyrir framan í vörninni og
gætti sá Jóns Kristjánssonar sér-
staklega og klipptu Garðbæingar
þannig oft ágætlega á spil Vals-
mannna. Einar Einarsson lék gríð-
arlega vel í gær. Hann var eins og
klettur í vörninni og gætti Geirs
Sveinssonar mjög vel. Einar var
tvívegis rekinn af leikvelli áður en
20 mínútur voru liðnar af leiknum.
Hann hélt samt áfram en fékk
þriðju brottvísun þegar rúmar tvær
mín. voru eftir af leiknum. „Þetta
er bara póker. Ég vildi ekki breyta
vorninni og lét hann því halda
áfram,“ sagði Viggó.
Annars léku Stjörnustrákarnir
allir vel í gær. Filippov var sterkur,
sérstaklega á lokakaflanum og
sömu sögu er að segja um Sigurð
Bjarnason. Magnús var með 100%
nýtingu en mætti að ósekju gera
meira af því að ógna og skjóta.
Konráð var góður og Hafsteinn
ógnandi eftir að hann kom inná í
hægra hornið.
Hjá Val var Júlíus atkvæðamest-
ur í sókninni, skoraði átta mörk en
var stundum full bráður enda skaut
hann 18 sinnum að marki. Valgarð
var sprækur í horninu og vörnin
var ágæt.
Alvörumönnum fatast flugið
Stuðningsmannaklúbbur Vals,
Alvörumenn, studdu vel við bakið
á sínum mönnum í gær en fataðist
flugið einu sinni. Einar Einarsson
Stjörnumaður skall þá harkalega í
gólfinu og virtist hafa meitt sig
alvarlega en Alvörumenn töldu nið-
ur frá 10 og niður í einn og öskruðu
svo: ÚTAF! Þetta er alls ekki viðeig-
andi þó svo um mótheija sé að ræða.
Enda-
sleppt
hjálR
ÍR-INGAR voru miklir klaufar
og geta nagað sig í handarbök-
in að hafa glatað niður unnum
leik gegn FH í Kaplakrika. FH
sigraði 23:21 eftir að ÍR hafði
verið með tveggja marka for-
skot er aðeins fimm mínútur
voru til leiksloka.
Leikurinn var mjög jafn í fyrri
hálfleik og var jafnt á öllum
tölum upp í 8:8. Þá skoraði FH þijú
mörk í röð, en IR
Qmar náði að minnka mun-
Jóhannsson inu niður ' eitt mark
skrifar fyrir leikhlé, 12:11.
ÍR-ingar komu
ákveðnir til síðari hálfleiks og skor-
uðu fimm fyrstu mörkin og staðan
orðin 12:16 og allt stefndi í öruggan
sigur þeirra. Hvorki gekk né rak hjá
FH-ingum á þessum tíma og sakn-
aði liðið Guðjóns Árnasonar, leik- *
stjórnanda, illilega en hann þurfti
að yfirgefa leikvöllinn eftir aðeins
fimm mínútna leik vegna meiðsla.
Þegar staðan var 14:18 ÍR í vil og
10 mín. eftir kom Guðjón aftur inná
og í markið kom Jónas Stefánsson,
ungur og efnilegur markvörður, sem
af öðrum FH-ingum ólöstuðum lagði
grunninn að sigri FH með góðri
markvörslu. FH-ingar hrukku í gang
á meðan IR-ingar klúðruðu hverri
sókninni á fætur annarri og þegar
fimm mínútur voru til leiksloka var _
staðan 18:20 Breiðhyltingum í vil,
en heimamenn gerðu fimm mörk í
röð og breyttu stöðunni í 23:20 og
sigurinn í höfn.
„Þetta var virkilega gaman. Ég
fann mig mjög vel og við náðum að
rífa okkur upp í lokin. Það var ekki
nógu góð stemmning í þessu hjá
okkur til að byija með en þetta lag-
aðist í lokin og sigurinn er fyrir öllu,“
sagði Jónas Stefánsson hetja FH-
'inga í þessum leik. Meðalmennskan
var allsráðandi hjá FH og liðið getur
illa án Guðjóns Árnasonar verið.
ÍR-ingar gleyma áreiðanlega seint
síðustu mínútum leiksins og spyrja
sig sennilega enn hvernig þetta
megi vera. Þeir léku ágætlega í 55
mínútur en þá fór allt í baklás og
leikur sem átti að gefa tvö stig gaf
ekkerfy Magnús Sigmundsson var
bestur ÍR-inga og Magnús Már stóð
sig vel á línunni. Gamla kempan
Guðmundur Þórðarson stjórnaði
vörninni eins og herforingi.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Afar slakt
Varla hefur farið fram slakari
leikur í 1. deild karla en leikur
ÍH og Selfoss í gærkvöldi. Selfyss-
ingar unnu sér inn
mikilvæg stig með
17:21 sigri.
Þótt vörn gest-
anna tæki harkalega
á sóknarmönnum Hafnfirðinga, var
hún lek og ef ekki hefði verið fyrir
góða markvörslu Hallgríms Jónas-
sonar hefðu úrsiit auðveldlega getað
fafið á annan veg. Það var ekki fyrr
en Einar Guðmundsson og Björgvin
Rúnarsson komu inná að eitthvað
gerðist í sóknarieiknum.
Nýliðar ÍH hafa verið að sækja í
sig veðrið síðustu leiki en náðu þeir
sér ekki á strik nú. „Þar fór gullið
tækifæri til að ná í stig, gegn væng-
brotnu liði Selfoss," sagði Elías Jón-
asson þjálfari eftir leikinn. Jón Þórð-
arson var bestur hjá IH.
„Þetta voru dýrmæt stig enda
kominn tími til að vinna en við áttum
í basli í sókninni. Svona leikur dugar
á móti liði eins og ÍH en ekki gegn
öðrum liðum,“ sagði Hallgrímur
markvörður, sem var eini leikmaður-
inn sem hélt haus allan leikinn.
Hjörtur Pétursson og Rúnar voru
þokkalegir.