Morgunblaðið - 30.12.1994, Side 4
KORFUKNATTLEIKUR
Slagsmál og læti
Uppúr sauð í Hveragerði og Englendingar gengu af velli er 24 sekúndur voru eftir
SÍÐASTA „vináttuleik" íslend-
inga og Englendinga, í þriggja
landsleikja hrinu, lauk með
ósköpum í Hveragerði í gær-
kvöldi. Reyndar lauk leiknum
ekki með vanalegum hætti;
Englendingar gengu af velli er
24 sekúndur voru eftir og stað-
an 105:101 íslendingum ívil.
Formleg úrslit leiksins eru því
20:0, fyrir ísland.
Það var ógurlegur hiti í leik-
mönnum beggja liða frá byrj-
un, hvort svo sem það var nálægð
áramótanna eða
„ hverahitanum í
ISSor, Hveragerði að
skrifar kenna. Bæði lið léku
stífan varnarleik og
það voru ekki liðnar nema tíu mín-
útur er uppúr sauð. Guðmundur
Bragason sá þá hvar Neville Austin
lumbraði á Marel Guðlaugssyni,
rann blóðið til skyldunnar og rauk
í Englendinginn sem tók á móti og
veltust þeir um völlinn er dómaram-
ir urðu viðskipta þeirra varir. Leifur
Garðarsson dómari, sem enn var í
jólaskapi, tók þá ákvörðun að ræða
við þjálfara liðanna í stað þess að
reka leikmennina af velli og niður-
staðan varð sú að Guðmundur og
Austin vermdu bekkinn það sem
eftir lifði af fyrri hálfleik.
Þrátt fyrir þessa jólalegu ákvörð-
un dómaranna vom leikmennimir
áfram í stríðsskapi. Nokkmm sek-
úndum síðar lenti Nökkva Má og
Huggins saman án eftirmála, en
þegar Nökkvi tók sig til og launaði
Huggins lambið gráa nokkra síðar
lauk jólunum hjá dómuranum og
þeir sendu Nökkva í sturtu.
Vamarleikur Englendinganna
var miklu meira en grófur, og §ór-
ir af leikmönnum þeirra voru komn-
ir með ijórar villur í lok fyrri hálf-
leiks. Síðari hálfleikur var ekki al-
veg eins grófur og sá fyrri, og tíð-
indalítið af vígstöðvunum framanaf.
Leikurinn var hnífjafn þó fram-
kvæðið væri oftast íslendinga.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðmundur Bragason og félagar stóðu í ströngu gegn Englendlng-
um I gær. Hér ð Guðmundur í höggi vlð Spencer Dunkley.
Staðan var jöfn þegar ein og hálf
mínúta var eftir, íslendingar kom-
ust yfír og þegar 24 sekúndur vora
eftir var brotið á Herbert Amarsyni
og fékk hann tvö skot. Hann skor-
aði úr því fyrra en fékk ekki tæki-
færi til að spreyta sig á því síðara.
Aðstoðarmaður Lazlo Nemeth þjálf-
ara Englendinga var þá kominn
nánast undir körfuna og ítrekaði
kröfu þjálfarans um leikhlé, og fékk
fyrir vikið brottvísun. Nemeth brast
harkalega við þeirri ákvörðun,
sagðist hafa beðið um leikhlé áður
en Herbert tók vítið, en dómuranum
var nóg boðið og vísuðu Nemeth
einnig af léikvelli. Þetta var dropinn
sem fyllti mælinn og gekk enska
liðið á eftir þjálfara sínum til bún-
ingsherbergja, en það íslenska
fagnaði sigri.
Sjálfur lelkurinn
Um leikinn sjálfan er þetta að
segja: Hann var spennandi frá byrj-
un en slagsmálin og of hatrömm
barátta liðanna setti leiðinlegan svip
á leikinn. Englendingar höfðu undir-
tökin til að byija með í fyrri hálf-
leik, en góður kafli undir lok hans
skilaði Islendingum tveggja stiga
forskoti í leikhléi. Síðari hálfleikur
var betri en sá fyrri hjá íslenska lið-
inu, vörnin mun sterkari og vel stig-
ið út sem vantaði heldur í fyrri hálf-
leik. Guðmundur Bragason átti stór-
kostlegan leik í vörn og sókn, Her-
bert Amarson lék vel sem og Valur
Ingimundarson. Ungu piltamir Hin-
rik og Brynjar Karl voru óragir þeg-
ar þeir fengu að spreyta sig og
Magnús Matthíasson hélt liðinu á
floti á erfiðu tímabili í fyrri hálfleik.
Um enska liðið er fátt að segja, það
lék allt að því frantalegan körfu-
knattleik, sem á stundum minnti
helst á ruðning eða hnefaleika, er
verst lét. íslenska liðið féll því miður
stundum niður á plan þeirra ensku.
Kollega undirritaðs varð á orði er
leikurinn stóð sem hæst að punkt-
arnir sem hann tók minntu fremur
á lögregluskýrslu en umfjöllun um
vináttulandsleik.
Dapurt frá byrjun
-sagði Lazslo Nemeth sem boðaropinbera afsökun ef ísland kemst áfram í EM en England ekki
etta var dapurt frá byijun,“
sagði Lazslo Nemeth landsl-
iðsþjálfari Englendinga þegar
hann var inntur eftir hinum dapur-
legu endalokum leiksins. Um dóm-
gæsluna sagði hann: „Það segir
auðvitað mikið að fjórir af okkar
stóru mönnum voru komnir með
Qórar villur strax í fyrri hálfleik.
A þremur mikilvægum augnablik-
um undir lok leiksins dæmdu dóm-
aramir okkur í óhag.“
Nemeth var augljóslega ósáttur
við þessi endalok og vildi lítið tjá
sig, en sagði þó að lokum. „Við
skulum sjá hvemig þessum liðum
gengur í undankeppni Evrópu-
mótsins í vor. Ef íslendingar kom-
ast áfram en Englendingar ekki
skal ég biðjast opinberlega afsök-
unar á því sem hér gerðist. Ef þið
íslendingar komist ekki áfram, þá
verðið þið að taka afleiðingunum."
„Ég hef séð þjálfara hóta því að
ganga af velli en aldrei séð það ger-
ast fyrr,“ sagði Torfí Magnússon
þjálfari íslenska landsliðsins eftir
leikinn. „Ef dómaramir hefðu dæmt
samkvæmt venjulegum leikreglum
hefðu Englendingamir verið mun
færri undir lok leiksins en þeir þó
voru. Hann [Nemeth] getur því ekki
kvartað yfir dómgæslunni.“
Um leikinn sagði Torfi: „Ég er
mjög ánægður með sigurinn, við
spiluðum betur en í leiknum í gær
[í Kópavogi] í sókn og vöm. Mínir
menn voru duglegir í fráköstunum
og í sókninni gekk boltinn vel. Ég
er ánægður með útkomuna úr þess-
um leikjum. Við spiluðum á móti liði
sem er svipað að getu og við mætum
í undankeppni EM í vor, sem á eftir
að nýtast okkur vel. Ég skal þó fall-
ast á að það hefði verið skemmti-
legra að hafa minna af slagsmálum."
■ EKKI er ljóst hvort og þá hvaða
þýðingu framkoma Englendinga
mun hafa. Körfuknattleikssamband-
ið mun tilkynna um framkomu þeirra
til alþjóðasambandsins sem taka mun
ákvörðun um framhaldið. Samkvæmt
alþjóðlegum reglum era úrslit leiks-
ins 20:0 fyrir Island.
■ LEIKURINN var vináttuleikur
og því ekki ijóst hvort alþjóðasam-
bandið mun taka alvarlega á málinu.
Ef um alvöra leik hefði verið að
ræða hefði þessi uppákoma öragg-
lega orðið Englendingum dýrkeypt.
■ MAGNÚS Matthíasson lék
fyrsta landsleik sinn síðan sumarið
1993, og stóð sig vel á erfiðum kafla
í fyrri hálfleik. Hann er í námi í
Bandaríkjunum og er í jólafríi hér
heima. Hann leikur ekki körfuknatt-
leik úti og hefur því aðeins æft af
krafti nú í fríinu.
■ JÓN Kr. Gíslason lék ekki með .
landsliðinu í gær vegna veikinda í
fjölskyldunni. Magnús Matthíasson
kom inn í hópinn í hans stað. Teitur
Örlygsson er enn meiddur og var
því ekki með.
■ MAKEL Guðlaugsson og Ingvar
Ormarsson vora í hópnum í gær-
kvöldi í stað Pétur Ingvarssonar
og Sigfúsar Gizurarsonar. Marel
lék með stutta stund en Ingvar sat
á bekknum allan tímann.
■ GUÐJÓN Skúlason átti ekki
góðan dag í gærkvöldi, gerði að
minnsta kosti íjórar tilraunir til að
skjóta á körfuna fyrir utan þriggja
stiga línuna, en hitti aldrei.
■ HEIÐURSGESTUR körfuknatt-
leikssambandsins á leiknum var Ein-
ar Mathiesen bæjarstjóri í Hvera-
gerði, og heilsaði hann upp leikmenn
liðanna fyrir leikinn, ásamt eigin-
konu sinni og Kolbeini Pálssyni
formanni KKI.
■ GUÐMUNDUR Bragason var
öraggur í uppköstunum að vanda;
hirti knöttinn af risanum Ian White
í byijun fyrri hálfleiks, og tók tröllið
Roger Huggins í nefíð í þeim síðari.
ísland - England 105:101
íþróttahúsið Hveragerði, vináttulandsleikur
f körfuknattleik, fimmtudaginn 29. desem-
ber 1994.
Gangur ieiksins: 2:0, 8:12, 24:19, 24:27,
34:34, 41:44, 47:50, 55:53, 65:60, 80:77,
93:87,, 97:94, 99:99, 103:99, 105:101.
Stig íslands: Guðmundur Bragason 24,
Herbert Amarson 21, Valur Ingimundarson
15, Falur J. Harðarson 13, Magnús Matthf-
asson 11, Brynjar Karl Sigurðsson 6, Hin-
rik Gunnarsson 6, Jón Arnar Ingvarsson
5, Marel Guðlaugsson 2, Nökkvi Már Jóns-
son 2.
Fráköst: 13 f sókn - 18 í vöm
Stig Englands: Ronald Baker 21, Roger
Huggins 20, Neville Austin 11, Plouto Vor-
ulatis 8, Ian White 8, Peter Scantlebury
8, Karl Brown 8, Spencer Dunkley 5, Steve
Nelson 5, Tony Simms 4, Mark Harvay.2,
Michael Payne 1.
Fráköst: 15 í sókn - 26 í vörn.
Dómarar: Leifur Sigfinnur Garðarsson og
Einar Einarsson, fengu eitt erfiðasta verk-
efnið á ferlinum er líklega óhætt að full-
yrða, en stóðu sig alls ekki illa eins og álykta
mætti út frá framkomu ýmissa aðila.
Villur: ísland 30 - England 40
Áhorfendur: 3Ó0.
■Samkvæmt körfuknattleiksreglum lauk
leiknum 20:0 fyrir fsland þar sem Englend-
ingar gengu af leikvelli áður en leiktíminn
var runnin út.
Norðurlandamót pilta
ísland - Eistland ....71:85
■Stigahæstir urðu Páll Vilbergsson með 22 stig og Halldór Karlsson 11. íslan d- Svíþjóð 65:88 ■Páll gerði 28 stig og Pétur Már Sig- urðsson gerði 10 stig. NBA-deildin
Boston - Chicago Cleveland - Washington ....97:105 91:75
New York - Detroit ....101:93
....117:95
Seattle - Philadelphia ..121:102
Knattspyrna Æfingamót 16 ára liða f ísrael: ísland - Frakkland...., 0:2 2:0
Tyrkland - Malta Svíþjóð - Tyrkland 4:0 2:0
ísrael - Malta 1:0