Morgunblaðið - 04.01.1995, Page 4
4 D MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Pappírsmunstur
Núna er tækifærið til að búa
til skemmtilegar myndir eða
munstur úr pappír, þegar allur lit-
ríki jólapappírinn er kominn utan
af jólapökkunum.
ÞÚ ÞARFT: skæri og pappír
og góðan skammt af hugmynda-
flugi.
SVONA A AÐ GERA: ef þú
brýtur pappírsörk nokkrum sinn-
um saman - byijar að brjóta hom
í hom og síðan að bijóta aftur
og aftur til helminga - getur þú
klippt inn í brotin á ýmsa vegu
til að gera skemmtileg munstur.
ÚTKOMAN: það skemmtileg-
asta er að þú veist aldrei alveg,
hvemig munstrið kemur út fyrr
en þú sléttir úr pappírsörkinni.
Hvað
margar
kúlur?
ÆT
Iþríhyrndum kúlupíramída
eru 9 kúlur meðfram öllum
6 hliðum. Getur þú reiknað út
hve margar kúlur eru alls í
píramídanum?
(Lausn í næsta blaði.)
HL jÓto
j>£TTfJ
Gorkúlustelpan
Sannarlega skemmtileg mynd sem hún Helga Rebekka send-
ir af sjálfri sér í spéspegli. - Hafið þið gengið um speglasal
í Tívolí, krakkar, þar sem þið verðið annaðhvort ofsalega löng
og mjó eða ótrúlega stutt og feit? Það er svo gott og gaman
að geta hlegið að sjálfum sér!
Alsterkur inni
í skóginum
Alsterkur fór langt inn í
skóg að leita að drasli.
(Þið vitið, krakkar, að sumir
eru svo hræðilegir sóðar að
þeir henda bréfi utan af sæl-
gæti og litlum fernum undan
kókómjólk og ávaxtasafa.)
Aumingja Alsterkur fór
kannski fulllangt inn í skóg,
því að allt í einu fór hann að
heyra einkennileg hljóð og
varð hálfhræddur. - Getið þið
fundið út, hvaða dýr gefur
þessi hljóð frá sér? Stöfunum
í nafni dýrsins er ruglað sam-
an.
(Lausn í næsta blaði.)