Morgunblaðið - 06.01.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
Jltttirjputlilafrifr
D
1995
FOSTUDAGUR 6. JANUAR
BLAD
KNATTSPYRNA
Kulda-
bolif
París
KNATTSPYRNUGOÐIÐ Diego
Maradona var heiðrað sérstak-
lega af knattspyrnublaðinu
France FootbaU í vikunni, blaðið
rakti glæsilega sögu kappans í
máli og myndum í fyrsta tölu-
blaði ársins, sem var tileinkað
honum — 30 síður af 48. Þó að
kalt hafi verið í veðri brá Mara-
dona (myndir) sér á völlinn, til
að sjá París St. Germain leika
gegn bikarmeisturum Auxerre.
Parísarliðið fagnaði sigri, 1:0,
og er komið í 16-liða úrslit bikar-
keppninnar.
Bow og Franc Boo-
ker í leikbann?
ILEIK Vals og Grindavíkur í gærkvöldi lenti
Grindvikingurinn Franc Booker og Valsmaðurinn
Jonathan Bow í stimpingum þegar sex mín. voru
til leiksloka og fengu báðir brottrekstrarvillu —
urðu að yfirgefa völlinn og eiga yfir höfði sér
leikbann. Bannið kæmi sér illa fyrir bæði lið þar
sem Bow er lykilmaður hjá Valsmönnum sem
eiga í baráttu í neðri hluta deildarinnar og
Booker á fyrir höndum undanúrslita leik í bikar-
keppninni sunnudaginn 15. janúar. Aganefndin
kemur saman á þriðjudaginn kemur.
Valsstrákar fermast
í Friðrikskapellu
TÓLF strákar úr 5. flokki Vals í handknattleik
verða fermdir i Friðrikskapellu að Hlíðarenda,
félagssvæði Valsmanna í Reykjavík. Það verður
séra Vigfús Þór Árnason sem fermir strákana,
sem ganga þó til prests í sóknum sínum, þó svo
að þeir fermast að Hlíðarenda.
Danir ekki með
sína bestu menn í
Saudi Arabíu
DANSKA landsliðið i knattspyrnu tekur þátt i
sex þjóða keppni í Saudi Arabíu, sem hefst um
helgina — leikur í riðli með Saudi Arabíu og
Mexíkó, en í hinum riðlinum leika landslið Arg-
entínu, Japans og Nígeríu. Brian Laudrup kom
til liðs við liðið í gær og leikur með gegn Saudi
Arabiu opnunarleikinn á sunnudag. Bróðir hans
Michael getur ekki leikið þann leik, þar sem
hann er að leika með Real Madrid gegn Barcel-
ona á laugardaginn, en hann fer eftir helgina
til móts við danska liðið. John Jensen hjá Ars-
enal, Ronnie Ekelund hjá Southampton, Jakob
Kjeldberg hjá Chelsea og Peter Schmeichel,
Manchester United, sem er meiddur, leika ekki
með Dönum i mótinu.
Marlow hefur alltaf
verið með
ENSKA undandeildarliðið Marlow er eina liðið
í Englandi sem hefur alltaf verið með í ensku
bikarkeppninni frá upphafi, eða frá 1871. Það
hefur þó aldrei komist í 3. umferð fyrr en nú
og aldrei náð að leggja deildarlið að velli fyrr
en Oxford i vetur. Þess má geta að það munaði
ekki miklu 1882 að liðið léki til úrslita um bikar-
inn, tapaði þá í undanúrslitum. Marlow leikur
gegn Swindon á laugardaginn og eru möguleik-
ar liðsins ekki taldir miklir.
AIKhefuráhugaá
Guðmundi Ben.
SÆNSKA félagið AIK frá Stokkhólmi hefur sýnt
mikinn áhuga á að fá Guðmund Benediktsson,
leikmann 21 árs landsliðsins úr Þór, til liðs við
sig. Þeir hafa boðið honum að koma til Stokk-
hólms og kanna aðstæður.
Stoichkov vill
fara til halíu
Hristi Stoichkov, landsliðsmiðhetji Búlgaríu, sem var útnefndur knatt-
spyrnumaður ársins 1994 í Evrópu á dögunum, segir að það sé
hans æðsti draumur að leika á Ítalíu þegar samningur hans við Barcei-
ona rennur út í sumar. Þó það sé draumur hans, er ekki víst að Johan
Cruyff, þjálfari Barcelona, vilji sleppa kappanum.
Stoichkov og félagar verða heldur betur í sviðsljósinu á Spáni á morg-
un, en þá ieika þeir gegn Real Madrid í Bernabau-leikvellinum í Madrid.
Þá mæta þeir Michael Laudrup í fyrsta sinn, eftir að hann fór frá Barc-
elona, þar sem hann lék í fimm ár. Jordi, sonur Cruyff, mun að öllum
líkindum vera í byijunarliði Barcelona gegn Real Madrid, eins og faðir
hans var fyrir 20 árum.
„Við þurfum á sigri að halda, til að Reai Madrid nái ekki fimm stiga
forskoti á okkur," sagði miðvallarspilarinn Amor, sem skoraði sigur-
mark Barceiona, 0:1, í Madrid á sl. keppnistímabili.
HANDKNATTLEIKUR
Japanir til Islands
- tryggðu sérsíðasta HM-farseðilinn í Frakklandi
JAPANIR tryggðu sér síðasta farseðilinn á heimsmeistarakeppni
í handknattleik, sem fer fram hér á landi 7.-21. maí. Þeir lögðu
Saudi Arabíu að velli, 31:19, á hlutlausum velli — í Thiais í Frakk-
landi um sl. helgi.
Japanir leika í C-riðli, sem fer
fram í Smáranum í Kópavogi,
ásamt Frökkum, Þjóðverjum, Dön-
um, Rúmenum og Alsírsmönnum.
Aðrir riðlar í HM eru þannig
skipaðir:
A-RIÐILL: Sviss, ísland, Ung-
veijaland, Túnis, Suður-Kórea og
Bandaríkin. Leikið er í Laugardals-
höll.
B-RIÐILL: Rússland, Tékkland,
Króatía, Kúba, Slóvenía og Ma-
rokkó. Iæikið er í Kaplakrika í
Hafnarfirði.
D-RIÐILL: Svíþjóð, Spánn,
Egyptaland, IIvíta-Rússland,
Brasilía og Kuwait. Leikið er í
íþróttahöllinni á Akureyri.
Fyrsti leikur HM verður leikur
Sviss og Túnis í Laugardalshöllinni
kl. 15. sunnudaginn 7. maí. Úr-
slitaleikurinn verður leikinn á sama
stað sunnudaginn 21. maí kl. 15.
IHEIMSOKN HJA BJARNA GUÐMUNDSSYNIIÞYSKALANDI / D2