Morgunblaðið - 13.01.1995, Blaðsíða 2
2 C
FOSTUDAGUR 13. JANUAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1995 C 3
ÍÞRÓTTIR
IÞROTTIR
Rush
Guðmundur
Skrafað og
skeggrætt um
kaupin á Cole
MARGIR efast um að Alex Ferguson,
þjálfari enska knattspyrnuliðsins
Manchester United hafi gert rétt í því
að kaupa framherjann Andy Cole frá
Newcastle á 7 milljónir punda. Blaðið
Sun segir að Cole hafi mistekist hjá
þremur félögum og hljóti því að bregð-
ast því fjórða.
Alan Hansen, fyrrum leikmaður Liv-
erpool, sem nó starfar fyrir BBC sjón-
varpsstöðina og þykir einn besti sér-
fræðingur við knattspyrnulýsingar í
Englandi, segir í Today að Ferguson
hafi hugsanlega komið í veg fyrir að
United yrði meistari þriðja árið í röð.
Engu máli skipti hvað Cole væri góður
leikmaður því það tæki tima að aðlag-
ast á Old Trafford.
Ver Guðmundur
titilinn í Malmö?
LANDSLIÐ íslands í borðtennis keppir
á sterku alþjóðlegu móti, Kavlinge-
leikunum, í Malmö í Svíþjóð 16. til 23.
þessa mánaðar. Víkingurinn ungi, Guð-
mundur E. Stephensen — borðtennis-
maður ársins í fyrra og hitteðfyrra —
reynir þar að veija titla þá sem hann
vann í janúar í fyrra, en þá sigraði
hann í flokki pilta 11 ára og yngri, í
flokki drengja 14 ára og yngri og í
flokki drengja 15 ára og yngri. Lands-
liðið er skipað, auk Guðmundar, Birni
Jónssyni, Evu Jósteinsdóttur, Ingólfi
Ingólfssyni, Kristjáni Jónassyni, Jóni
Inga Árnasyni og Lilju Rós Jóhannes-
dóttur, sem öll eru ór Víkingi. Hópur-
inn ætlar að leika maraþonborðtennis
í TBR-hósinu, til að safna fé vegna
ferðarinnar, á á morgun, laugardag, í
TBR-hósinu og hefja leika kl. 15.
Liverpool dróst
gegn Palace
LIVERPOOL, sem þykir sigurstrang-
legast í ensku deildarbikarkeppninni í
knattspyrnu, dróst gegn öðru órvals-
deildarliði, Crystal Palace, í undanór-
slitum keppninnar. Dregið var í gær.
Leikið er heima og að heiman og verð-
ur fyrri leikurinn í Liverpool. Swindon
og Bolton, sem bæði leika í 1. deild,
mætast í hinni undanórslitaviðureign-
inni, fyrst á heimavelli Swindon. Liðin
mætast fyrst í þriðju viku febróar og
aftur viku síðar.
Liverpool komst síðast í órslit deild-
arbikarkeppninnar fyrir átta árum, en
er nó talið lang sigurstranglegast af
þeim liðum sem eftir eru. Líkurnar á
sigri Liverpool eru skráðar 4/7 hjá
veðmöngurum; leggi einhver sjö pund
undir að liðið sigri í keppninni fær sá
hinn sami aðeins fjögur pund til baka.
Líkurnar á sigri Palace eru 7/2, Bolton
11/2 og Swindon 9/1.
Styttist í marka-
metið hjá Rush
IAN Rush gerði sigurmark Liverpool
gegn Arsenal í deildarbikarkeppninni
í fyrrakvöld. Þetta var sjötta mark
hans í keppninni í vetur, og hefur kapp-
inn því alls gert 47 mörk í keppninni
síðan hann kom til Liverpool, og vant-
ar aðeins tvö í metið, sem Geoff Hurst,
fyrrum landsliðsmiðherji Englands á.
Hurst — sem skoraði þrívegis í órslita-
leik HM gegn Vestur Þjóðverjum á
Wembley 1966 — gerði 49 mörk á í
deildarbikarkeppninni á sínum tíma.
KORFUKNATTLEIKUR
Njarðvíkingar áfram samkvæmt tölfræðinni
AIK í jámum hjá
UMFG og Keflavík
Undanúrslitaleikir bikarkeppni
karla í körfuknattleik fara
fram á sunnudaginn og ef tölfræðin
ej; skoðuð er nokkuð ljóst að Njarð-
víkingar eiga að komast áfram, en
þeir mæta Haukum í Hafnarfírðin-
um kl. 16. Leikur dagsins er án efa
viðureign Grindvíkinga og bikar-
meistara Keflvíkinga og samkvæmt
tölfræðinni úr leikjum vetrarins er
ómögulegt að segja hvort liðið er
sigurstranglegra. Leikur liðanna
hefst í Grindavík kl. 20 en kl. 17.30
er annar stórleikur því þá leika
stúlkumar í Grindavík við KR í
undanúrslitum kvenna. Leikir lið-
anna hafa verið spennandi í vetur,
Grindvíkingar léku til úrslita í fyrra
og ætla sér örugglega aftur í Laug-
ardalshöllina.
Njarðvíkingar jafnari,
reyndari og með meiri breidd
Njarðvíkingar hafa leikið liða
best í vetur og eru raunar með ein-
stakan árangur. Liðið hefur aðeins
tapað einum leik í deildinni og hef-
ur sigrað í síðustu 13 leikjum, þar
af tveimur í bikarnum. Leikmenn
liðsins eru sjóaðir og vita um hvað
málið snýst þannig að það þarf trú-
lega eitthvað mikið að gerast við
Strandgötuna á sunnudaginn ætli
hið unga lið Hauka að slá þá út
úr keppninni.
Njarðvíkingar hafa notað 13 leik-
menn en Haukar 15, Haukar hafa
skorað 1.768 stig á móti 2.170 stig-
um UMFN. Mótheijar Hauka hafa
gert hjá þeim 1.887 stig en Njarð-
víkingar hafa fengið á sig 1.749
stig. Njarðvíkingar hafa að meðal-
tali unnið leiki sína með 19 stiga
mun, en Haukar tapað með sex.
Leikmenn Njarðvíkur em sterk-
ari á öllum sviðum. Sé til dæmis
tekin vítanýting þeirra leikmanna
sem tekið hafa talsvert af vítaskot-
um eru þrír Haukar með 63% nýt-
ingu eða meira en sjö Njarðvíking-
Guðjón
Skúlason
Jón Kr.
Gíslason
HANDKNATTLEIKUR
leiðin að HM-
gullinu í maí?
HVERJIR eru möguleikar íslend-
inga í heimsmeistarakeppninni í
handknattleik, sem hefst á íslandi
7. maí? Þessu hafa menn velt fyrir
sér, en það er ljóst að til að ná sem
lengt verður íslenska liðið helst að
hafna í fyrsta sæti í A-riðlinum,
þannig að það losni við að leika
gegn þremur sterkustu þjóðunum í
B-riðli, Rússlandi, Króatíu og Slóv-
eníu í 16-liða úrslitum.
Fjórar efstu þjóðirnar úr hveijum
riðli komast áfram í 16-liða úrslit
og ef íslenska liðið verður í efsta
sæti í A-riðli, mætir það að öllum
líkindum liði Tékklands í 16-liða
úrslitum. Hér á kortinu á síðunni,
til hægri, er spá um hvaða þjóðir
skipa fjögur efstu sætin í hveijum
riðli og hvaða lið mætast í 16-liða
úrslitum, ef sú spá gengur eftir.
Liðin geta hæglega skipt um sæti
í riðlakeppninni. Ef spáin gengur
eftir þá verður Tékkland mótherji
íslands og ef ísland legði Tékkland
að velli léki íslenska liðið gegn sig-
urvegaranum úr leik C2 og D3, liði
Danmerkur eða Hvíta-Rússlands,
skv. þessari spá, í 8-liða úrslitum
og sigurvegari í þeirri viðureign
myndi að öllum líkindum leika gegn
heimsmeisturum Rússa í undanúr-
slitum.
Það er endalaust hægt að velta
fyrir sér möguleikum, en á kortinu
er aðeins einn möguleiki, sem bygg-
ist á að liðin raði sér í þau sæti,
eins þau eru sett upp riðlakeppn-
inni. Lesendur Morgunblaðsins geta
skipað landsliðunum í önnur sæti í
riðlunum og fengið út aðra niður-
stöðu í útsláttarkeppninni. Kortið
er aðeins sett upp til þess að menn
geta áttað sig á hvemig leiðin að
gullinu liggur í HM-keppninni, sem
hefst eftir tæpa fjóra mánuði.
Valur Ingi-
mundarson
Jon Arnar
Ingvarsson
ar. Bestu nýtingu hefur Kristinn
Einarsson í Njarðvík, 40 skot og
34 niður eða 84%. Sigfús Gizurar-
son í Haukum er líka með athyglis-
verða nýtingu, 107 skot og 88 nið-
ur, eða 82% nýtingu.
Sömu sögu er að segja af þriggja
stiga nýtingu. Af þeim sem taka
svolítið af þannig skotum eru Njarð-
víkingar með fimm leikmenn sem
hafa 33% nýtingu eða meira en
Pétur Ingvarsson er einn með 33%
nýtingu hjá Haukum. Valur Ingi-
mundarson hefur skotið 72 sinnum
og hitt í 32 skotum og er með 44%
nýtingu.
Þannig mætti halda áfram og
telja skot innan teigs og utan, alls
staðar hafa Njarðvíkingar vinning-
inn og í heildarnýtingu eru þeir
einnig sterkari.
Grindavík og Keflavík virðast
vera með mjög áþekk lið
Lið Grindavíkur og Keflavíkur
eru mjög áþekk ef marka má tölu-
legar upplýsingar frá leikjum vetr-
arins. Bæði lið hafa notað 14 leik-
menn í vetur, Keflvíkingar hafa
skorað 2.151 stig en Grindvíkingar
2.171. 1.961 stig hefur verið gert
hjá Keflvíkingum en 1.801 hjá
Grindvíkingum þannig að þeir virð-
ast heldur hafa vinninginn í vörn-
inni. Keflvíkingar hafa gert 98 stig
að meðaltali í leik en Grindvíkingar
99 og fengið á sig 82 stig en Kefl-
víkingar 89.
Vítahittni liðanna er mjög svipuð
en af þeim leikmönnum sem tekið
hafa hvað flest vítin hafa'Grindvík-
ingar heldur vinninginn. Þeir eru
með 8 leikmenn sem hafa 73% nýt-
ingu eða betri en Keflvíkingar sjö.
Bergur Hinriksson úr Grindavík
hefur skorað úr 13 af 14 vítaksotum
sínum og er því með 93% nýtingu.
Nökkvi Már Jónsson hefur 34/28
og 82% nýtingu en Sverrir Þ. Sverr-
isson hefur bestu nýtingu Keflvík-
inga, 26/21 og 81%.
Keflvíkingar virðast hafa heldur
fleiri leikmenn sem hitta örlítið bet-
ur úr þriggja stiga skotum. Sex
hafa hitt úr 37% skota sinna eða
meira, en í Grindavíkurliðinu eru
það aðeins tveir en þrír koma rétt
á eftir. Guðjón Skúlason hefur skot-
ið 138 sinnum utan þriggja stiga
línu og hitt í 71 skoti, eða 51% og
hjá Kelfavík hefur Lenear Bums
hitt úr 13 af 19 skotum og er með
68% nýtingu.
Grindvíkingar hafa heldur vinn-
inginn í skotum innan teigs og sömu
sögu er að segja af skotum utan
teigs, en munurinn er svo sáralítill
að það tekur því varla að hafa orð
á honum. Hvað heildarnýtingu
snertir þá eru hún mjög áþekk.
Af framansögðu er ljóst að leikur
helgarinnar er leikur Grindvíkinga
og Keflvíkinga á sunnudgaskvöldið.
.
Flestir leikir í röð
AC Green, sem leikur nú með Phoenix, komst í fyrrinótt upp að hlið Harrys
Gallatin, yfir leikmenn sem hafa tekið þátt í flestum leikjum samfleytt í
NBA-deildinni. Hann hefur nú verið með í 682 án þess að missa úr leik.
Leikir Leikmaður
906 Randy Smith
844 JohnnyKerr
706 Dolph Schayes
685 Bill Laimbeer
682 A.C.GREEN
682 Harry Gallatin
609 JackTwyman
586 James Donaldsson
574 TerryTyler
542 OtisThorpe
Tímabil
18. feb. 1972
31. okt. 1954
17. feb. 1952
15. nóv. 1981
19. nóv. 1986
27. nóv. 1948
15. nóv. 1955
6.feb. 1981
18. okt.1978
4. jan. 1986
-13. mars 1983
-4. nóvember1965
- 26. desember1961
- 27. janúar 1989
þar til nú
-12. mars 1958
- 29. október 1963
- 8. apríl 1988
-14. apríl 1985
-19. apríl 1992
• AC Green gæti komist upp fyrir Bill Laimber í leiknum gegn Portland 19. jan.
og síðan upp fyrir Dolph Schayes 3. mars er Phoenix tekur á móti Seattle,
og þar með komst í þriðja sæti listans — ef hann sleppur við meiðsli.
• Ron Boone var með í 1.041 leik í röð í ABA og NBA-deildinni frá 1968 til
1981. Boone tók þátt í 662 leikjum í röð í ABA og síðan 379 í NBA. Artis
Gilmoer var svo með í 670 leikjum í röð í sömu deildum; fyrst 420 í ABA og
síðan 250 í röð í NBA, frá 1971 til 1979. u . ...
Heimild: NBA News
Tveir með
2.700 NBA leiki
TVEIR þjálfarar í NBA-deildinni
■ hafa fagnað þeim áfanga í
vetur að taka þátt í 2.700. leik sín-
um í NBA sem leikmenn og þjálfar-
ar, eru þá taldir leikir bæði í deild-
inni sjálfri og úrslitakeppninni.
Þetta eru þeir Don Nelson, þjálfari
Golden State og Lenny Wilkens,
þjálfari Atlanta, sem hefur einmitt
verið mikið í sviðsljósinu upp á síð-
kastið — en hann stýrði liði til sig-
urs í 939. skipti fyrir stuttu, og
bætti þar með met Reds Auerbach,
hins kunna þjálfara Boston Celtics
á árum áður.
Tvö þúsund og sjöhundruðasti
leikur Nelsons, sem á árum áður
lék lengst af með Boston Celtics,
var viðureign Golden State gegn
Charlotte 22. nóvember og Wilkens
náði þessum áfanga 30. desember
er Atlanta tapaði í Cleveland.
Wilkens átti þarna að baki 786
leiki í deildarkeppninni sem leik-
maður, 291 eftir að hann varð
bæði þjálfari og leikmaður, 1.438
sem þjálfari, 64 leiki í úrslitakeppni
sem leikmaður og 121 í úrslita-
keppni sem þjálfari. Wilkens lék
fyrst í NBA 22. október 1960 með
St. Louis Hawks gegn LA Lakers
og fyrsti leikur hans sem þjálfari
var 14. október 1969 með Seattle
gegn New York.
Reuter
ANFERIUEE Hardaway skorar fyrlr Orlando Magic gegn Detrolt án þess að Joe Dumars fði stöðvað
hann. Hardaway lék vel og gerði 20 stig. Orlando er með bestan árangur allra liða í deildlnni í vetur.
Riðlakeppni
7.-14. maí:
Fjórar efstu þjóðirnar i liverjum
riðli komast í 16-iiða úrslit.
Leiðin að verðlaunum á HM
A-riðill, í Reykjavík
1. ísland
2. Sviss
3. Ungverjaland
4. Suður Kórea
Túnis, Bandarikin
Sæti í
riðium:
16-liða úrslit
16. maí:
Spá til að sýna hvaða möguleikar
eru fyrir hendi, undirstrikuð
eru lið sem spáð er sigri
Reykjavik:
B-riðill, í Hafnarfirði
1. Rússland
2. Króatía
3. Slóvenía
4. Tékkland
Kúba, Marokkó
C-riðill, í Kópavogi
1. Frakkland
2. Danmörk
3. Þýskaland
4. Rúmenía
Alsír, japan'
(DA1-B4: Ísland-Tékkland
/C\ Reykjavik:
2 A2-B3: Sviss-Slóvenía
_ Kópavogur:
'S/B1-A4: Rússland-S-Kórea
f'X\ D0 A0 Reykjavík:
vi/ B2-A3: Króatía-Ungverjaland
8-liða úrslit
17. maí:
JAL Reykjavík:
[1T?6) Ísland-H-Rússland
“- (eða Danmörk)
— Reykjavik:
(3j-(8) Rússland-Spánn
Undanúrslit
Kópavogur:
•: Frakkland-Egyptaland
©C1-D4
/C\ Kópavogur:
xí/ C2-D3: Danmörk-H-Rússland
M
Kópavogur:
Króatía-Svíþjóð
19. maí:
S-® Reykjavik: Ísland-Rússland Úrslit 21. maí:
o
Reykjavik:
C - D Svíþjóð-Frakkland
D-riðill, á Akureyri
1. Svíþjóð
2. Spánn
3. Hvíta-Rússland
4. Egyptaland
Brasilía, Kúveit
®Akureyri:
D1-C4: Svíþjóð-Rúmenía
/r~\ Akureyri:
8) D2-C3: Spánn-Þýskaland
_i P L Hafnarfjörður:
(2Slóvenía-Frakkland
Sjö þjóðir tryggja sér farseðil á
Ólympíuleikana í Atlanta 1996,
allar átta ef ein af sjö elstu
verður Evrópumeistari 1996
Tapiiðin í undanúrslitum
leika um þriðja sætið
í Reykjavík 21. maí
%
Heimsmeistaramótið í
handknattleik
a íslandi 7.-21. maí 1995
Orlando Magic aftur komið á sigurbrautina
Shaq og félagar eru
einir taplausir heima
ORLANDO Magic hefur náð
bestum árangri allra liða í
NBA-deildinni í vetur; hefur sigrað
í 27 leikjum og töpin eru einungis
sjö. Liðið steinlá í Chicago á þriðju-
dag en var aftur komið á heimavöll-
inn í fyrrinótt. Leikmenn Orlando
hafa verið óviðráðanlegir á heima-
velli í vetur — hafa sigrað í öllum
16 leikjunum þar og getur ekkert
annað lið í deildinni státað af slíkum
árangri. í fyrrinótt sigruðu leik-
menn Orlando gestina frá Detroit
124:107 í leik þar sem Shaquille
O’Neal gerði 37 stig og Anfernee
Hardaway gerði 20. Orlando lék
geysilega vel, náði mest 22 stiga
forystu og hleypti gestunum aldrei
nær en tíu stigum.
„Það er gott að ná sér svona á
strik aftur, eftir að hafa leikið illa
í gærkvöldi," sagði Brian Hill yfír-
þjálfari Orlando. „Við lékum af
miklu meiri krafti og áhuga í kvöld.
Ég var mjög ánægður með frammi-
stöðuna."
Joe Dumars gerði 21 stig fyrir
Detroit og Eric Leckner gerði 16.
Liðið hefur tapað níu af síðustu 10
leikjum.
Hornacek „heitur“
Karl Malone gerði 22 stig fyrir
heimamenn í Utah og Jeff Hornac-
ek jafnaði deildarmetið í 3ja stiga
skotum, er Jazz burstaði Denver
Nuggets 114:88. Þetta var 12. sig-
ur Utah i 14 leikjum og náði liðið
mest 34 stiga forystu. Hornacek
gerði þriðju 3ja stiga körfu sína í
þriðja leikhluta, og hafði þá skorað
úr ellefu slíkum skotum í þremur
leikjum — jafnaði þar með met
Scott Wedmans, sem hann setti
FELAGSLIF
Stuðningsmenn
hita upp í Keflavík
Stuðningsmenn körfuknattleiksliðs
Keflavíkur koma saman í kvöld kl.
20.30 á Glóðinni í Keflavík til að
ræða málin og hita upp fyrir undan-
úrslitaleik Keflavíkur og Grindavík-
ur í bikarkeppni karla, sem fer fram
í Grindavík á sunnudagskvöldið kl.
20. Leikmenn Keflavíkurliðsins
ætla að mæta á staðinn í kvöld og
rabba við stuðningsmenn liðsins.
Keflvíkingar eru núverandi bikar-
meistarar og eiga því titil að verja.
veturinn 1984-85. Hornacek hitti
ekki úr næsta skoti, en í fjórða leik-
hluta bætti hann um betur og jafn-
aði þar með metið. Fyrr í vetur jafn-
aði Homacek annað NBA-met er
hann skoraði úr átta 3ja stig skotum
í röð í einum og sama leiknum.
Charles Barkley gerði 24 stig og
Danny Manning 20 fyrir Phoenix í
118:108 sigri gegn LA Lakers í Los
Angeles. Þetta var fimmti sigur
Úrslit í NBA
Leikir á miðvikudagskvöld:
Boston - Indiana ..100:97
Charlotte - Minnesota.... ..100:91
Orlando - Detroit 124:107
Philadelphia - Chicago.... ..77:115
Dallas - LA Clippers ....98:93
Houston- Miami ..108:97
Milwaukee - Sacramento ....97:88
Utah - Denver ..114:88
Portland - Golden State.. ..104:92
LA Lakers - Phoenix 108:118
Phoenix í röð og sá 15. í 17 leikj-
um; liðið náði þarna að hefna fyrir
tap gegn Lakers á heimavelli 30.
desember, en þá batt liðið frá
Englaborginni enda á 25 leikja sig-
urgöngu Phoenix á heimavelli.
Nick Van Exel jafnaði besta
árangur sinn með þvi að gera 35
stig fyrir Lakers í leiknum — hitti
m.a. úr sjö af ellefu 3ja stiga skot-
um.
þreföld tvenna
Larry Johnson náði þrefaldri
tvennu í fjórða sinn á ferlinum er
Charlotte Hornets sigraði Minne-
sota 100:91 — gerði 23 stig, tók
10 fráköst og átti 10 stoðsending-
ar. Þetta var sjöundi sigur Charl-
otte í röð, sem er lengsta sigur-
ganga í sögu félagsins. Þá var þetta
10. heimasigur liðsins í röð. Christ-
ian Laettner var atkvæðamestur
hjá Minnesota með 20 stig, en þetta
var sjöunda tap liðsins í röð.
Houston sigraði Miami í ellefta
skipti í jafn mörgum leikjum, nú
108:97 á heimavelli. Kenny Smith
gerði 25 stig fyrir meistarana,
Hakeem Olajuwon 24, Vernon
Maxwell 23 og Robert Horry 21.
Sigurinn hékk í raun á bláþræði,
eftir að Miami gerði 19 stig gegn 7
í fjórða leikhluta og minnkaði mun-
inn í 100:96 er 1,26 mín. var eftir.
Miami hefur tapað í fímm leikjum
af síðustu sex og átta í röð á úti-
velli, en gengi liðsins er verst allra
á útivelli í vetur; 2 sigrar og 15 töp.
Houston gerði átta 3ja stiga körf-
ur í fyrsta leikhluta (sem lauk
38:24) og jafnaði þar með NBA-
metið yfir 3ja stiga körfur í einum
leikhluta.
Dee Brown gerði 25 stig í Boston
er heimamenn sigruðu Indiana Pac-
ers 100:97. Dominique Wilkins
gerði 20 stig fyrir Boston, en
Reggie Miller gerði 23 stig fyrir
Indiana og Rik Smits 22.
Chicago sótti lið Philadelphiu
heim og sigraði stórt, 115:77. Lið
Philadelphiu gerði aðeins átta stig
í þriðja leikhluta, sem er metjöfnun
í NBA-deildinni. Scottie Pippen
gerði 21 stig fyrir Chicago og B.J.
Armstrong 15. Liðið virðist á mik-
illi siglingu þessa dagana, og hefur
sigrað í tveimur síðustu leikjum
með samanlagt 70 stiga mun, eftir
að hafa burstaði Orlando á þriðju-
dag.
MEIÐSLI
Kafla vantaði í frétt
um slysamóttöku
Kafli datt út úr frétt um sameigin-
lega slysamóttöku fyrir íþróttafólk
í gær. Hann átti að vera: ...móttak-
an verður opin alla virka daga frá
kl. 16 og verða þá eftirtaldir lækn-
ar með viðtalstíma: Stefán Carlsson
á mánudögum, Ágúst Kárason á
þriðjudögum, Siguijón Sigurðsson
á miðvikudögum, Brynjólfur Jóns-
son á fímmtudögum og Sigurður
Kristinsson á föstudögum. Tíma-
pantanir eru í síma 5689915.
íslandsmótið í blaki
ABM deild korio.
Föstud. 13. janúar.
KA-heimilið 19.30 KA-Þróttur R.
Neskaupstaður 21.30 Þróttur N.-HK
laugard. 14. janúar.
Asgarður 15.30 Stjarnan-ÍS
ABM deild kvennn:
Föstud. 13. janúar.
KA-heimilið 21.00 KA-Víkingur
Neskaupstaður 20.00 Þróttur N.-HK