Morgunblaðið - 13.01.1995, Blaðsíða 1
mmm
|Hi>r$xinXtlðí>Íít)
c
1995
FOSTUDAGUR 13. JANÚAR
BLAÐ
KNATTSPYRNA
Kendall vonin
hjá IMotts County
HOWARD Kendall hefur verið ráðinn yfirþjálfari
enska félagsins Notts County í þeirri von að bjarga
liðinu frá falli í 2. deild. County mætir Manchester
City í aukaleik í 3. umferð bikarkeppninnar í næstu
viku en liðið er á botni 1. deildar og hefur aðeins
sigrað í fjórum af 25 leikjum tímabilsins.
Kendall, sem er 48 ára, er reyndur þjálfari eft-
ir að hafa verið við stjórnvölinn hjá Everton, Black-
burn Rovers, Manchester City, Athletic Bilbáo á
Spáni og Xanthi í Grikklandi. Hann var fyrst hjá
Everton 1981 til 1987 og þá varð liðið m.a. tvisv-
ar Englandsmeistari, bikarmeistari og Evrópu-
meistari bikarhafa. Hann tók aftur við liðinu 1990
og stjórnaði því þar til í desember 1993 en fór
skömmu síðar til Grikklands. Kendall er þriðji yfír-
þjálfari Notts County á tímabilinu og tekur við
af Russell Slade sem verður aðstoðarmaður hans.
Aourta
afturá
hlaupa-
brautina
Said Aouita frá Marokkó
tekur þátt í 3.000 metra
hlaupi á móti í Kanada í dag.
Aouita, sem er 35 ára, hefur
ekki tekið þátt í keppni í nær
þrjú ár, en sagði upp landsliðs-
þjálfarastöðu Marokkó fyrir
skömmu og vill láta að sér
kveða á hlaupabrautinni á ný.
„Ég elska frjálsar og sakna
keppninnar," sagði hann og
bætti við að fyrst Merlene
Ottey og Carl Lewis, sem
væru á svipuðum aldri, væru
með í baráttunni gæti hann
það líka. Hann sagðist hafa
hætt vegna þess að allt hefði
gengið upp, en á tímabili var
hann heimsmethafi í fimm
greinum — 1.500 metra
hlaupi, míluhlaupi, 2.000,
3.000 og 5.000 metra hlaupi.
Hann var ólympíumeistari í
5.000 m hlaupi 1984, tvisvar
heimsmeistari utanhúss og
einu sinni innanhúss en á fimm
ára tímabili sigraði hann i 44
hlaupum í röð.
Metið í 3.000 m hlaupi á
innanhússbrautinni í Hamil-
ton, þar sem hann keppir í
dag, er 8.02 mín. og vonast
hann til að hlaupa undir átta
mínútum. „Fyrsta markmiðið
er að vera heilbrigður og taka
æfingarnar alvarlega. Eg er
bjartsýnn og hef á tilfinning-
unni að ég geti náð góðum
tíma í 5.000 metra hlaupi, en
ég hef hug á að slá heimsmet-
ið utanhúss jafnvel í maí eða
júní.“
Sald Aouita
KNATTSPYRNA
Laudrup myndaður í Riyadh
EVRÓPUEISTARAR Dana mæta Suður ameríkumelsturunum frá Argentínu í dag í úrslitalelk heims-
álfukeppnlnnar í knattspyrnu, sem kennd er við Fahd konung Saudl Arabíu, en keppnln fer fram þar
í landi. Knattspyrna er vlnsæl íþrótf þar sem annars staðar, og beðlð er með spennlngl eftir úr-
slitaleiknum. Myndin var tekln á æfingu danska llðsins í gær; Michael Laudrup, hlnn bráðsnjalll
lelkmaður Real Madrid á Spánl, situr fyrir á mynd ásamt æstum knattspyrnuáhugamanni.
HANDBOLTI
Héðinnog
félagar dróg-
ustgegn
Fredenbeck
HÉÐINN Gilsson og félagar í Diiss-
eldorf voru heppnir er dregið var í
undanúrslitum þýsku bikarkeppn-
innar í handknattleik í gær. Dúss-
eldorf mætir Fredenbeck, sem er í
öðru sæti 2. deildar, en i hinum
undanúi'slitaleiknum eigast við tvö
af bestu liðum 1. deildarinnar, Kiel
og Lemgo.
„Þetta var það lang besta sem
gat gerst. Við eigum mjög góða
möguleika á að komast í úrslitaleik-
inn ef allir leikmenn liðsins verða
heilir. Við höfum reyndar verið
mjög óheppnir með meiðsli í vetur,“
sagði Héðinn við Morgunblaðið í
gær. Hann hefur einmitt verið lengi
meiddur, og sigurleikurinn gegn
Júlíusi Jónassyni og félögum í
Gummersbach, í bikarkeppninni í
fyrrakvöld, var fyrsti leikur Héðins
eftir meiðslin.
Bikarkeppninni lýkur þannig að
undanúrslitaleikirnir fara fram 1.
apríl og sigurliðin úr honum mæt-
ast í úrslitaleik strax daginn eftir.
Leikirnir fara allir fram í Hamborg.
Þetta fyrirkomulag var tekið upp í
fyrra, að sögn Héðins, þótti takast
mjög vel og verður sami háttur
hafður á í framtíðinni.
KNATTSPYRNA
Romario til Flamengo
Stuðningsmenn félagsins bíða
spenntir en áhangendur Vasco
líta á félagaskiptin sem svik
Brasilíski landsliðsmaðurinn
Romario, sem var kjörinn
besti leikmaður úrslitakeppni HM
í Bandaríkjunum, var í gær seldur
frá Barcelona til Flamengo í Rio
de Janeiro. Brasilíska félagið
greiddi spænska félaginu 4,5 millj-
ónir dollara (um 306 millj. kr.) og
gerði tveggja ára samning við
kappann sem færir honum þijár
milljónir dollara í laun — rúmar
200 milljónir króna — á samnings-
tímanum.
Branco og Dunga?
Að sögn stjórnarmanns Flamengos
vonast félagið til að fá tvo landsl-
iðsmenn til viðbótar, sem hafa sýnt
áhuga á að leika með liðinu,
varnarmanninn Branco frá Corint-
hians í Sao Paulo og miðjumanninn
Dunga frá Stuttgart í Þýskalandi,
fyrirliða heimsmeistara Brasilíu.
Knattspyrnulið í Ríó hafa að
undanfömu fallið í skugga liða frá
Sao Paulo en að sögn fyrrnefnds
stjórnarmanns hafa kaupin á Rom-
ario, sem er 29 ára miðheiji, góð
áhrif á öll lið í Ríó og koma til
með að efla þau til dáða. Flamengo
varð Brasilíumeistari 1992 en hef-
ur síðan selt bestu mennina og
ekki náð að fylla í skörðin. Á síð-
asta tímabili gekk liðinu ekki sér-
lega vel og undir lokin mættu ekki
nema um 3.000 áhorfendur á hei-
maleikina. í desember var nýr for-
seti kjörinn hjá félaginu og er
treyst á að hann komi liðinu á rétta
braut. Litið er á kaupin á Romario
sem fyrsta skrefið í þá átt, en
hann er væntanlegur til Ríó á
morgun og verður tekið á móti
honum eins og þjóðhöfðingja.
Stuðningsmenn Flamengo bíða
spenntir eftir goðinu en ekki eru
allir eins glaðir. Romario vakti
fyrst athygli sem leikmaður Vasco,
helsta mótheija Flamengo í Ríó,
og líta stuðningsmenn Vasco á
félagaskiptin sem svik.
ROMARIO ásamt Johan Cruyff,
þjálfara Barcelona, á síðustu
æfingu Brasllíumannsins hjá
spænska félaglnu í gær.
■HMjHBgjj
:
HAIMDKNATTLEIKUR: HVERNIG VERÐUR LEIÐIN AÐ GULLINU A HM? / C2