Morgunblaðið - 15.01.1995, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1995 C 3
ALÞJÓÐLEG BÍLASÝNING í DETROIT
CHRYSLER
kynnti fimm
nýja
fjölnotabíla,
þ.á.m.
Chrysler
Town &
Country sem
sést á
myndinni
til hliðar.
FORD
Fusion
sportjeppi
i smábíla-
flokki var
framlag-
frá
hugmyda-
deild Ford.
Egill VÍI-
hjálmsson hf.
flytur inn
Cherokee og
Blazer
EGILL Vilhjálmsson hf. hefur hafið
sölu á nýjum og notuðum bílum í
stykkjavís, m.a. Grand Cherokee
Limited, Suzuki Sidekick, Chevrolet
Blazer Yokon og Ford Econoline.
Egill Vilhjálmsson var á árum
áður einn af stærstu bílainnflytjend-
um landsins og var m.a. með umboð
fyrir AMC, sem þá var eigið fyrir-
tæki, en 1989 kaupir Chrysler AMC-
fyrirtækið. Þá missti Egill Vilhjálms-
son umboðið yfir til til Jöfurs.
Sveinbjörn Tryggvason fram-
kvæmdastjóri Egils Vilhjálmssonar
hf. segir að hann geti boðið bílana
á betri verðum en algengt er þar sem
yfirbygging fyrirtækisins er í lág-
marki.
Egill Vilhjálmsson hf. hefur engin
umboð en bílar eru keyptir í Banda-
ríkjunum og fluttir inn til landsins.
Fyrirtækið býður Grand Jeep Che-
rokee Laredo á afar hagstæðu verði
sem og Suzuki Sidekick með íjögurra
strokka vélum.
Sveinbjörn sagði að fyrirtækið
byði kaupendum upp á Ián eins og
bílaumboðin og byðust uppítökubílai
á mjög hagstæðu verði væru þeii
teknir. Aðspurður um hvernig fyrir-
tækið gæti boðið bíla á mun betra
verði hérlendis en umboðin sagði
Sveinbjörn: „Við erum mjög duglegii
að prútta úti og fáum bílana þess
vegna á góðu verði. Umboðin verða
að hafa tiltekinn fjölda manns í vinnu
og ákveðna álagningu. Ég þarf ekki
mikia álagningu," sagði Sveinbjörn.
YANASE innflutnings- og dreif-
ingarkeðjan í Japan hefur sölu á
bílum GM á sinni hendi en árang-
urinn er rýr.
Chrysler stal
senunni
TILBOÐ
ÓSKAST
í Chevrolet Camaro RS, árgerð '92, Ford Econoline XL
Club Wagon 4x411 sæta rn/dieselvél, árgerð ’91 og aðr-
ar bifreiðar er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðjudaginn
17.janúar 1995 kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. •
SALA VARNARLIÐSEIGN A
CHRYSLER stal senunni á alþjóð-
legu bílasýningunni í Detroit. Aðal-
gripimir voru fimm nýir og stærri
fjölnotabílar. Bílarnir koma á
markað vestra í vor. Town & Coun-
try vakti mikla athygli og aðdáun
á sýningunni en hann er með renni-
hurð vinstra megin og stóra
gluggafleti ásamt sætum á sleðum.
BUlinn er með nýrri 2,4 lítra, 16
ventla vél með tveimur ofanáliggj-
síðasta ári mest seldi fólksbíllinn i
Bandaríkjunum. Ford fmmkynnti
lika nýstárlegan pallbíl, Triton sýn-
ingarbílinn, en endurhönnuð F-
pallbílalinan af 1996 árgerð mun
bera keim af honum. Ford seldi á
síðasta ári 646.039 pallbíla í F-lín-
unni. Annar hugmyndabíll Ford
var Fusion sporljeppi í smábíla-
flokki. Bílnum er beint að yngstu
kaupendum bíla sem fyrsti bíllinn.
Hægt er að fjarlægja afturglugga
bílsins og draga blæjuþak fram
þannig að bíllinn verður opinn að
að kynna tæknileg atriði
1996-árgerðarinnar af Taurus hef-
ur Ford fengið til liðs við sig vél-
mennið Sarcos en það notar svo-
kallaðan sýndarvemleika til að
leiða fólk í allan sannleikann um
ágæti bílsins. Tilgangurinn er að
fá fólk til að staldra við nægilega
lengi til að hlusta á söluáróðurinn.
Auglýsingar af þessu tagi em
dýrar, Sarcos kostaði hálfa milijón
dollara, og algengt er, að auglýs-
ingakostnaður á einni viku á sýn-
ingu eins og í Detroit hlaupi á
milljónum dollara. ■
andi knastásum, en hann er einnig
boðinn með 3,3 og 3,8 lítra vélum.
Þetta er í fyrsta sinn frá 1984 sem
fjölnotabílar Chrysler eru endur-
hannaðir algerlega upp á nýtt.
Chrysler stal líka senunni í hug-
myndabílaflokknum með vöðva-
stæltum sportbíl sem kallast Atl-
antic.
Ford ferskur
Ford kynnti nýjan Taurus og
Sable og Iuku margir lofsorði á
nýja hönnun á Taurus sem var á
Bílainnf lutningur til
Japans aldrei meiri
SALA á innfluttum bílum blómstrar
sem aldrei fyrr í Japan. Vegna hás
gengis á japanska jeninu hafa inn-
fluttir bílar verið mun hagkvæmari
í innkaupum fyrir japanskan al-
menning en bílar framleiddir heima
fyrir. Fyrstu 11 mánuði síðasta árs
jókst salan á innfiuttum bílum um
49%. Samtök japanskra bílainnflytj-
enda spá áframhaldandi vexti á
þessu ári upp á 15%.
Þó er misjafnt hvernig bandarísk-
um og evrópskum bílarisunum hefur
farnast á þessum nýstárlega mark-
aði. Honda framleidd í Bandaríkjun-
um hefur verið í forystu í sölu á
innfluttum bílum en söluaukningin
á þessu ári er 65%, 20,5% hjá Merce-
des, 44% hjá VW-Audi, 140% hjá
Ford en mesta söluaukningin varð
hjá Chrysler, 155%. Aðra sögu er
að segja af GM en þar var söluaukn-
ingin á bílum framleiddum í Banda-
ríkjunum aðeins um 3,1%. Salan á
Opel framleiddum í Evrópu, sem er
í eigu GM, jókst um 7,6%.
Slælegt gengi GM
Nefndar eru til sögunnar nokkrar
skýringar á slælegu gengi GM í Jap-
an, t.a.m. að í framleiðslulínu GM
eru ekki bílar með stýrinu hægra
megin og að GM hafi ekki upp á
spennandi valkosti að bjóðajapönsk-
um jeppamönnum. Einnig er talið
að stirð samskipti GM við innflutn-
ings- og dreifingarkeðjuna Yanase
& Co. standi í vegi fyrir góðum
árangri.
Yfirmenn GM í Japan telja mikil-
vægustu ástæðuna fyrir lélegri sölu
offramboð GM af vörumerkjum. GM
býður 22 undirgerðir frá fjórum
deildum fyrirtækisins, 6 gerðir af
Cadillac, fjórar af gerðir Buick, tvær
gerðir Pontiac, og tíu gerðir af Chev-
rolet.
Haruyoshi Fukuda, aðstoðarfor-
stjóri þeirrar deildar General Motors
í Japan sem ber ábyrgð á sölu á
bandarískum gerðum, segir í viðtali
við Automative News: „Við höfum
merki samsteypunnar, GM, en auk
þess Cadillac, Chevrolet, Pontiac, og
síðan Grand Am, Seville og svo
framvegis. Yanase er líka vöru-
merki. Þetta er einfaldlega of mik-
ið.“
Hann segir að Ford hafi sömu
ímynd hvarvetna í heiminum og líði
ekki fyrir bjöguð boðskipti út á
markaðinn líkt og GM. Bíll er Ford
hvort sem hann kemur frá Belgíu
eða Bandaríkjunum. ■