Morgunblaðið - 19.01.1995, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
fHio rgmilribifeHk
1995 ■ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR
BLAD
Petur raðinn
til Víkings
PÉTUR Pétursson, fyrr-
um landsliðsmaður í
knattspymu, var ráðinn
þjálfari 2. deildarliðs Vík-
ings í gærkvöldi. Pétur
þjáifaði Kefiavíkurb'ðið
með góðum árangri sl.
keppnistímabil, eftir að
hann tók við af lan Ross.
Jóhann Albert Sævarsson,
formaður Knattspynm-
deildar Víkings, segir að
Vtkingai- bindi miklar von-
ir við að Pétur geti náð
þvi markmiði að tryggja
Víkingum sæti í 1. deilda
á ný.
GOLF
Góður árangur
hjá Margeiri
MARGEIR Vilhjálmsson, 22 ára Suðurnesja-
maður, lauk í nóvember námi i golfvallarum-
hirðu frá Elmwood College í Skotlandi, virt-
asta skóla Bretlandseyja í þessu fagi og stóð
sig mjög vel. Hann var útnefndur fulltrúi
skólans í keppni bestu nýliðanna í umhirðu
golfvalla og hafnaði í öðru sæti í þeirri
keppni. Viðurkenningin fyrir þann árangur
er meðal annars að fara á ráðstefnu um
mótaröð atvinnukylfinga í Evrópu, vinna í
eitt á á Gleneagles völlunum í Skotlandi og
að vinna við framkvæmd tveggja móta í PGA
mótaröðinni í sumar. Margeir vinnur nú á
Gleneagles völlum í Skotlandi og hefur
áhuga á að fara í frekara nám eða jafnvel
að taka að sér umsjón einhvers vallar í
Bretlandi en hann hefur fengið mörgtilboð
um slíkt. Einnig kemur til greina hjá honum
að koma heim, bjóðist honum starf hér.
Margelr Vllhjálmsson á mlllf Skotanna
Tom Bain til vinstri og prófessors Don-
ald Mackay til hœgri.
TENNIS
Fyrsta áfall
Hingis
HIN barnunga og upprennandi tennisstjarna
frá Sviss, Martina Hingis sem er aðeins 14
ára gömul, varð í gær fyrir fyrsta áfalli
sínu á nýbýijuðum ferli meðal þeirra bestu.
Hingis tapaði þá fyrir Kyoko Nagatsuku frá
Japan í annari umferð Opna ástralska tenn-
ismótinu. Dally Randriantefy, 17 ára stúlka
frá Madagaskar, komast hins vegar áfram,
en hún er fyrsta stúllkan frá Madagaskar
sem kemst þetta langt í tennis. Hingis sagði
að ef til vill ætlaðist fólk tilof mikils af sér
svona í upphafi ferilsins. „Ég geri mér ekki
vonir um að vinna eins mikið núna þegar
ég er bara 14 ára og ég ætla að gera þegar
ég verð aðeins eldri,“ sagði hún.
Naoko Sawamatsu frá Japan ætlar að
halda áfram keppni þrátt fyrir að jarð-
skjálftinn í Japan hafi eyðilagt heimili henn-
ar og hugsanlega hafi einhveijir vinir henn-
ar farist. „Ég talaði við frænku mína í Tókió
og hún sagði mér að halda áfram að keppa,
og vinna, því það væru bestu fréttir sem
fjölskylda mín gætu fengið, og ég ætla að
halda áfram,“ sagði hún.
SKIÐI
ÁSTA Halldórsdóttlr er komin á fulla ferft og hefur bætt slg mjög í svigl í vetur og
vlrðist einnlg vera í góðrl æfingu í stórsvlgi.
Ásta bætir sig í
stórsvigi í Duved
ÁSTA S. Halldórsdóttir, skíðakona frá
ísafirði, keppti í tveimur alþjóðlegum
stórsvigsmótum í Duved í Svíþjóð í gær
og á þriðjudag ásamt systrunum frá Akur-
eyri, Hildi og Brynju Þorsteinsdætrum.
Ásta varð í sjöunda sæti á þriðjudag og
í sjötta sæti í gær og bætti punktastöðu
sína í stórsvigi all verulega eins og þær
gerðu reyndar allar.
Sigurvegari í stórsviginu á þriðjudag var
Ingrid Helander frá Svíþjóð og hlaut hún
15,66 alþjóðleg styrkstig (FIS stigj fyrir árang-
ur sinn. Asta varð í sjöunda sæti og hlaut 32,33
stig, sem er besti árangur hennar í stórsvigi
hingað til, en hún hefur náð mun betri árangri
í svigi, sem hefur verið hennar sérgrein. Brynja
varð í 32. sæti með 58,30 stig og Hildur í 35.
sæti með 59,05 stig og er það besti árangur
systranna til þessa.
í mótinu í gær sigraði Kristina Anderson frá
Svíþjóð, sem hefur náð góðum árangri í heims-
bikarnum í vetur, komist m.a. tvívegis á verð-
launapall þar._ Anderson hlaut 17,37 stig fyrir
fyrsta sætið. Ásta varð í sjötta sæti með 33,82
stig. Brynja hafnaði f 23. sæti með 64,41 stig
og Hildur í 35. sæti með 85,59 stig.
Ásta var með 41,56 stig í stórsvigi fyrir
mótið og lækkar sig því all verulega og er styrk-
stig hennar í stórsvigi nú 33,07 stig. Hildur var
með 121,48 stig fyrir tímabilið en með þessum
árangri er hún nú með 72,32 stig. Brynja bætti
sig heldur meira því hún var með 149,31 stig
fyrir tímabilið en er nú með 61,35 stig í stórsvigi.
Allt að koma
hjá mér
DANÍEL Jakobsson keppti í
tveimur skíðagöngum á héraðs-
móti í Sveg í Svíþjóð um síðustu
helgi. Hann hafnaði í sjötta
sæti í 10 km göngu með ftjálsri
aðferð á laugardaginn og í 8.
sæti á sunnudaginn, en þá var
keppt í 2 x 7,5 km göngu með
svokölluðu veiðistarti. Fyrri 7,5
km náði hann 11. besta tíman-
um. í síðari sprettinum er ræst
út eftir tímum úr fyrri
göngunni. Hann vann sig upp
um þrjú sæti í síðari göngunni
og náði þá þriðja besta tímanum
á sprettinum og hafnaði í 8.
sæti samanlagt. Daníel sagði
að B-landslið Svía hafi verið
með í mótunum um helgina.
Hann sagðist ánægður með ár-
angurinn. „Þetta er vonandi allt
að koma hjá mér. Ég var óhepp-
inn að veikjast þegar ég kom
út til Svíþjóðar eftir jólin og er
rétt að ná mér aftur núna,“
sagði Daniel.
LÉTT HJÁ VALSMÖNIMUM OG FRAMSTÚLKUM í BIKARNUM / C3