Morgunblaðið - 19.01.1995, Blaðsíða 4
í
BADMINTON
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
■ LEICESTER fékk í gær skoska
landsliðsmanninn Mike Galloway
til liðs við frá Celtic. Hann er annar
leikmaðurinn sem kemur lið liðsins
Bæn um snjó í Sierra Nevada bar árangur
MIKLIR þurrkar hafa verið á
suðurhluta Spánar undanfarnar
vikur sem hafa leitt til vatns-
skömmtunar og snjóleysis í skíða-
brekkunum í Sierra Nevada. Par
á heimsmeistarakeppnin á skíð-
um að fara fram og byija eftir
hálfan mánuð en útlitið er ekki
bjart og hefur jafnvel komið dl
tals að fresta keppninni tíl næsta
árs. Til þess mega íbúar í ná-
grenninu ekki hugsa því þeir
gera ráð fyrir að þéna mikið í
tengslum við keppnina og treysta
á að hún verði. Til að leggja sitt
af mörkum gerðu þeir út sér-
stakan leiðangur í fyrradag tíl
að biðjast fyrir með þeirri ósk
að hann færi að snjóa og að íbú-
arnir fengju vatn. Bænin bar
árangur — nokkrum klukku-
stundum síðar byrjaði að snjóa
og var um 30 tíl 40 sentímetra
þykkt lag í fjallstoppum, „en
aðstæður hafa ekki mikið
breyst,“ sagði talsmaður móts-
haldara.
Keppnin á að hefjast 29. jan-
úar og hafa skipuleggjendur
sagt að batni aðstæður ekki
verði keppt á gervisnjó eða
keppninni frestað tíl næsta árs.
Aðstæður til skíðakeppni hafa
ekki verið verri í Sierra Nevada
í nær fjórðung aldar.
á tveimur dögum, þar sem Mark
Robins var keyptur frá Norwich á
eina millj. punda á sunnudaginn.
■ ÞRÍR af bestu knattspyrnu-
mönnum heims, Roberto Baggio,
Italíu, Romario, Brasilíu og Hristo
Stoichkov, Búlgaríu, eru efstir á
blaði á lista FIFA yfir knattspyrnu-
mann ársins 1994, en yfir 100
landsliðsþjálfarar um heim allan
hafa skilað inn atkvæðaseðlum sín-
um. Útnefningin fer fram í Lissabon
í Portúgal 30. janúar.
■ FIFA, alþjóða knattspymusam-
bandið, hefur þrisvar áður séð um
kjör leikmann ársins. Lothar Matt-
hfius, Þýskalandi, var útnefndur
leikmaður ársins 1991, Marco Van
Basten, Hollandi (1992) og Baggio
(1993).
■ JOE Royle, framkvæmdastjóri
Everton er tilbúinn að borga Aston
Villa 1,7 millj. pund fyrir varnar-
manninn Earl Barrett, fyrrum leik-
mann Tottenham og Oldham.
■ HIÐ kunnn félag Portsmouth
er til sölu.
■ JURGEN Klinsmann hefur verið
ráðinn aðstoðarmaður Gary Line-
ker, sem sér um knattspyrnuþátt í
BBC-sjónvarðpsstöðinni.
■ GARY Francis, framkvæmda-
stjóri Tottenham, var í gær út-
nefndur knattspyrnumaður mánað-
arins í London af blaðinu Evening
Standart. Tottenham hefur ekki
tapað ellefu leikjum í röð undir hans
stjórn.
■ GABRIELA Sabatini frá Arg-
entínu, sigraði á æfingamóti í tenn-
is í Argentínu á sunnudag og þar
með hefur hún orðið meistari á
tveimur mótum í röð. Hún vann
Lindsay Davenport frá Bandaríkj-
unum 6-3, 6-4 í úrslitum og sagði
þetta góðan undirbúning fyrir Opna
ástralska mótið sem hófst S gær.
■ GEORGIA Frontiere, eigandi
bandaríska fótboltaliðsins Los Ang-
eles Rams, hefur ákveðið að flytja
liðið til St. Louis.
■ LA RAMS hefur verið í Los
Angeles í 49 ár en Frontiere sagð-
ist ekki hafa um neitt að velja. St.
Louis hefði boðið nýjan völl og æf-
ingasvæði og tryggingu fyrir meira
en 20 millj. dollara hagnaði á ári
en tapið hjá Rams á síðasta ári var
á milli sex og sjö millj. dollarar.
Viðskiptahópurinn í St. Louis ætl-
ar einnig að borga Anaheim, þar
sem heimavöllur Rams er, 30 millj.
dollara og greiða tap síðasta árs, en
Morgunbiaöið/Einar Faiur hann kaupir 30% í félaginu.
Aðmirálilnn David Roblnsson hjá San Antonio Spurs er búinn að troða. __________________________________
Denver náði aðeins flór
um hraðaupphlaupum
Leikmenn Phoenix Suns skoruðu 15 þriggja stiga körfur þegar þeir lögðu Denver, 129:113
Leikmenn Orlando Magic virðast
kunna vel við sig í Orlando og
í fyrrinótt batt liðið endi á átta leikja
sigurgöngu Charlotte og vann sinn
18. heimaleik, 109:98, og hefur ekki
tapað heima það sem af er vetri.
Eins og svo oft áður fór Shaquille
O’Neal fyrir Orlando, gerði 35 stig
og þar af 16 í síðasta fjórðungi.
Anfernee Hardaway gerði 23 stig og
Nick Anderson 18 auk tíu frákasta
sem hann tók. Orlando hefur nú sigr-
að í 30 leikjum en tapað í sjö og er
það besti árangur sem lið hefur náð
í vetur. Alonzo Mourning gerði 33
stig fyrir Charlotte, tók 12 fráköst
og varði sex skot. Larry Johnson
gerði 21 stig.
Það eru fleiri lið sem gera það
gott á heimavelli eins og til dæmis
Seattle SuperSonics sem hefur aðeins
tapað einum leik heima í vetur. Nú
lagði liðið Cleveland 115:91 og gerði
Gary Payton 25 stig fyrir heimamenn
og Detlef Schrempf gerði 21. Terrell
Brandon gerði 20 stig fyrir Cleveland.
Charles Barkley og félagar sigurðu
Denver 129:113 í Phoenix og var
Dan Majerle með 32 stig, Barkley
26 og Danny Manning 24. Leikmenn
Suns skoruðu 15 þriggja stiga körfur
og er það met hjá liðinu, sem hefur
unnið 17 leiki á heimavelli og tapað
tveimur. Liðið setti einnig annað met
í leiknum, því mótherjamir komust
aðeins fjórum sinnum f hraðaupp-
hlaup. Portland á þó NBA metið því
1991 náðu leikmenn Phoenix aðeins
þremur hraðaupphlaupum í leik gegn
Portland.
San Antonio sigraði Boston á úti-
velli 101:92. Chuck Person gerði 24
stig fyrir Spurs og David Robinson
18 og Dennis Rodman tók 18 frá-
köst. Dino Radja gerði 22 stig fyrir
Celtics og tók 15 fráköst og Dee
Brown gerði 20 stig.
Sacramento skoraði 15:0 í fjórða
leikhluta gegn Portland og dugði það
til 95:88 sigurs. Mitch Richmond
gerð 29 stig og Brian Grant 26 stig
og tók 16 fráköst. Þetta var sjöundi
sigur Kings í tíu leikjum. Clifford
Robinson gerði 22 stig fyrir Portland
og Clyde Drexler 20.
SKIÐI
Óvænt
hjá TBR
Nokkuð óvænt úrslit urðu í einl-
iðaleik karla og kvenna á
meistaramóti Tennis- og badminton-
félag Reykjavíkur um helgina. Guð-
mundur Adolfsson sigraði í einliða-
leik karla og Vigdís Ásgeirsdóttir í
einliðaleik kvenna.
Vigdís byrjaði á því að leggja
Brynju Pétursdóttur úr ÍA, 11:4 og
11:8, vann síðan Bimu Petersen,
TBR, 11:8 og 11:5 þá Margréti Dan
Þórisdóttur, TBR, 11:0 og 11:2 og
mætti íslandsmeistaranum Elsu Ni-
elsen í úrslitum. Vigdís vann 11:2
og 11:6 í úrslitaleiknum.
Guðmundur vann Njörð Ludvigs-
son fyrst 15:3 og 15:5 og síðan
landsliðsþjálfarann Jónas Huang
10:15, 15:9 og 15:5 og var þar með
kominn í úrslit. Þar mætti hann
Áma Þór Hallgrímssyni, sem vann
Brodda Kristjánsson í undanúrslitum
15:7, 13:18, 15:9, og Árni átti ekki
möguleika í fyrri lotunni því Guð-
mundur vann 15:% en í þeirri síðari
var Árni Þór yfír lengst af en Guð-
mundur seig framúr undir lokin og
vann 17:15.
Tvíliðaleikur kvenna kom einnig
nokkuð á óvart. Þar léku Elsa Niels-
en og Vigdís Ásgeirsdóttir til úrslita
við Guðrúnu Júlíusdóttur og Bimu
Petersen. Guðrún og Birna unnu
fyrstu lotu 15:6 og vom yfir fram
í miðja næstu lotu go virtust hafa
leikinn í höndum sér. Elsa og Vig-
dís sáu að við svo mátti ekki standa,
sném vöm í'sókn og sigruðu 18:16
og í oddalotu 15:9.
Árni Þór og Broddi unnu Guð-
mund og Jónas í tvíliðaleik karla,
15:5, 12:15 og 15:4. Broddi og Elsa
unnu Árna Þór og Guðrúnu 15:1 og
15:7 í tvenndarleik.
GLIMA
Skarphéðinn
Orri sigraði
öðru sinni
SKARPHÉÐINN Orri Bjömsson úr
KR sigraði í bikarglímu Reykjavíkur
sem fram fór sl. helgi, lagði Ingi-
berg Sigurðsson úr Ármanni í úr-
slitaglímu. í þriðja sæti varð Jón
Birgir V alsson úr KR. Þetta er
fimmta sinn sem bikarglíma Reykja-
víkur er haldin og í annað sinn sem
Skarphéðinn Orri sigrar, en kepp-
endur vom tólf talsins að þessu sinni.
VIKINGALOTTO: 3 12 16 23 27 42 / 4 30 32
ENGINN VAR MEÐ SEX TOLUR RETTAR