Morgunblaðið - 29.01.1995, Qupperneq 4
4 C SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
NEON er nokkuð sérstakur bíll í
útliti og litaval er Iíka nokkuð frábrugðið
því sem menn hafa átt að veiyast.
Nýjungagjarn og kraft-
mikill Neon frá Chrysler
AÐ innan er Neon ekki síður skemmtilegur,
ágætlega rúmgóður og mælaborðshillan er
breið og mikil enda langt fram í framrúðu.
FARANGURSRYMI er kannski fullþröngt
þegar margir ferðast í Neon.
VÉLIN er spræk og dugleg, tveggja lítra og 133 hestöfl.
NEON frá Chrysler er ein nýjungin
sem fram kom frá þessum banda-
ríska bílarisa á síðasta ári og nú
hefur honum skolað á land hérlend-
is hjá umboðinu, Jöfri í Kópavogi
en Evrópufrumsýning á Neon fór
fram á bílasýningunni í Genf fyrir
bráðum ári. Neon er áhugaverður
bíll, skemmtilegur í útliti og að
innan, hann er framdrifinn, fimm
manna, með tveggja lítra 133 hest-
afla vél, líknarbelgjum og ýmsum
góðum búnaði og kostar sjálfskipt-
ur 1.955 þúsund krónur. Neon virk-
ar þröngur að innan við fyrstu
kynni og er allur heldur seinn í við-
kynningu, ökumaður þarf dálítinn
tíma til að fínnast hann vera vel
heima í öllum hlutum en býður af
sér góðan þokka þegar þessi þrö-
skuldur hefur verið yfírstiginn. Allt
við hann er þó traustlegt og við
kynnum okkur þennan áhugaverða
bfl, Chrysler Neon, nánar hér á eftir.
Chrysler Neon er skemmtilega
hannaður bíll, allur lágur og breið-
leitur, mikill Halli á fram- og aftur-
rúðum og hvergi hvassar brúnir,
rennilegur og allt í ávölu og mjúku
línunni. Framendinn er lágur og
breiður og síðan er línan rísandi
aftur eftir bílnum og skottið stutt
og nokkuð hátt. Aðalluktir eru ögn
sporöskulagaðar og fremur litlar,
stuðari fínlegur og vatnskassahlíf
einnig - eiginlega bara mjó ræma
- og rúður stórar. Hjólin eru stað-
sett mjög framarlega og aftarlega
á bílnum en með þessu hafa hönn-
uðir reynt að ná sem stærstu far-
þegarými og verður þá farangurs-
rýmið heldur þrengra fyrir vikið.
AA skera sig úr
Við undirbúning á Neon fóru
forráðamenn Chrysler að ýmsu
leyti nýjar leiðir, réðu sérstakt lið
til verksins og létu því nokkuð
lausan tauminn og frömdu bæði
hefðbundnar og óhefðbundnar
markaðskannanir til að fá fram
viðhorf manna til minni bíla. Var
teyminu síðan falið að vinna undir
kjörorðunum: „að þora að vera
öðruvísi" eða að skera sig úr og
marka þannig nýja stefnu með
Neon, að framleiða bíl af minni
gerðinni, með góða aksturseigin-
leika, frumlegan í útliti, með góð-
um öryggisbúnaði og umhverfís-
vænan. Forráðamenn Chrysler
ákváðu að ráðast í verkið án sam-
starfs við erlenda aðila sem talið
var hálf dauðadæmt fyrirfram en
þykir nú hafa sannast að tókst vel
og var rétt ákvörðun. Undirbúning-
ur kostaði sem svarar um 70 millj-
örðum íslenskra króna.
Chrysler Neon er ekki síður
skemmtilegur að innan. Hann virk-
ar nokkuð þröngur til hliðanna og
fínnst ökumanni hann ekki hafa
alltof mikið olnbogarými. Veldur
því m.a. þykkt hurðar og má
ímynda sér að hurðaspjöldin hefðu
getað verið þynnri. Sætin eru
þokkaleg en veita þó alls ekki
nægilega góðan hliðarstuðning en
fóta- og höfuðrými er ágætt. Mæla-
borðshillan er fremur stór og nær
langt fram vegna mikils halla á
framrúðu. Uppröðun mæla er hefð-
bundin en ágætur svipur er á
mælaborðshillunni með ávölum og
bogadregnum línum. Útsýni er
ágætt úr bílnum og auðvelt að láta
fara vel um sig og hafa það gott
hvort sem maðurinn er farþegi eða
bílstjóri.
Gott vlðbragð
Vélin er tveggja lítra, fjögurra
strokka, 16 ventla og hún er 133
hestöfl með rafstýrðri fjölinnsp-
rautun og hún fer létt með að gefa
þessum 1.160 kg þunga bíl hörku-
viðbragð og góða vinnslu. Sjálf-
skiptingin lætur ekki sitt eftir
liggja og er fljót að skipta niður í
lægstu gíra þegar um er beðið og
þótt hún sé ekki búin fjölbreyttu
vali spyrnu- eða spamaðarstillinga
dugar hún alveg til að þjóna til-
gangi sínum.
Neon er ágætlega lipur og með-
færilegur á allan hátt. Eins og fyrr
segir þarf að taka nokkurn tíma til
að kynnast bílnum í upphafí en
þegar búið er að fara gegnum þann
kafla er hægt að taka hann í góða
sátt. Helst þarf þar að yfirvinna
þrengslatilfinningu sem gerir eink-
anlega vart við sig í framsætum en
einnig það að menn sitja nokkuð
lágt enda bíllinn ekki háreistur held-
ur miklu fremur með sportlegu út-
liti. Fóta- og höfuðrými er hins veg-
ar ágætt og gildir það bæði um
fram- og aftursætin.
í raun tókst ekki að reyna Neon
til hlítar á þjóðvegi en það litla sem
farið var út fyrir höfuðborgina gef-
ur til kynna að fjöðrun og rásfesta
séu í meira lagi góð og ljóst að
Neon býður eigendum sínum ágæta
eiginleika ferðabíls. Helsta hindmn
fyrir langferð í fullskipuðum bíl er
kannski farangursrýmið sem hægt
væri að hugsa sér stærra. Það má
þó drýgja með því að leggja niður
bak aftursætis séu farþegar með
færra móti. í þéttbýlinu er Neon
eins og fyrr segir ágætlega lipur
og auðveldur viðfangs í þrengslum
og bílastæðahúsum og ágætt að
umgangast hann að öllu leyti. Þá
er hann sérlega duglegur i snjónum
og þæfíngnum sem verið hefur á
höfuðborgarsvæðinu að undan-
fömu.
Vekur athygll
Verðið á Neon frá Chrysler er
kr. 1.955.000 með sjálfskiptingu
en 1.895.000 þúsund krónur ef
Viðbragð
Ríkulegur
öryggis-
búnaður
Útlit
Bakstuðn-
ingur
í framsætum
hann er tekinn með fimm gíra
handskiptingu. Þetta er nokkur
fjárfesting en hér er líka á ferðinni
bíll með ríkulegum staðalbúnaði,
þ. e. margháttuðum þægindum,
góðum öryggisbúnaði og sprækri
vél og ekki síst skemmtilegur í
útliti. Neon blandar sér í harða
samkeppni á nokkuð þröngum
markaði bíla hérlendis sem kosta
1.800 þúsund krónur og uppí um
tvær milljónir króna þannig að
hann verður ekki fjöldasölubíll.
Hugsanlegt er þó að lækka verðið
nokkuð með því að taka úr honum
hraðafestingu og önnur álíka þæg-
indi og jafnvel líknarbelgi en það
eru þó atriði sem menn gætu séð
illilega eftir ef aðstæður krefjast
þess að gripið sé til þeirra. En
hvort sem verðið á Neon breytist
eða ekki má fullyrða að hann býr
yfir skemmtilegum aksturseigin-
leikum og er nokkuð frábrugðinn
hefðbundinni línu í útliti og ekki
síður í litum og er því ekki síst
kjörinn fyrir þá sem kjósa að vekja
dálitla athygli. ■
Jóhannes Tómasson
Chrysler
IMeon í
hnotskurn
Vél: 2,0 lítrar, 4 strokkar,
16 ventlar, 133 hestöfl.
Framdrifinn - fimm
manna.
Vökvastýri - veltistýri.
Sjálfskipting.
Líknarbelgir fyrir
framsætin.
Hæðarstilling
öryggisbelta.
Hraðafesting.
Samlæsingar.
Rafstiilanlegir
hliðarspeglar.
Rafmagnsrúður.
Lengd: 4,36 m. Breidd:
1,72 m. Hæð: 1,39 m.
Hjólhaf: 2,64 m.
Þyngd: 1.160 kg.
Bensíntankur:
Farangursrými:
Staðgreiðsluverð kr.:
1.955.000.
Umboð: Jöfur hf.,
Kópavogi.