Morgunblaðið - 31.01.1995, Side 1

Morgunblaðið - 31.01.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1995 ÞRIDJUDAGUR 31. JANÚAR BLAD B KORFUKNATTLEIKUR Tolfára bið áenda GUÐMUNDUR Bragason, fyrir- liði Grindvíkinga, hafði ríka ástæðu til að fagna ógurlega á laugardaginn, en þá leiddi hann lið sitt til sigurs í bikarkeppninni í körfuknattleik. Grindvíkingar lögðu Njarðvíkinga 105:93 í leik þar sem Grindvíkingar höfðu und- irtökin allan tímann. Þetta var fyrsti úrslitaleikur Grindvíkinga, en lið þeirra hefur verið í fremstu röð undanfarin ár, án þess að takast að krækja sér í titil. FRJALSAR Enneitt stórhlaup hjá Mörthu MARTHA Emstdóttir úr ÍR varð í sjötta sæti í alþjóðlegu víðavangs- hlaupi, sem fram fór í borginni San Sebastian á Spáni á sunnudag. Hlaupið var 5,6 kílómetra langt og liður í stigakeppni Alþjóðafijáls- íþróttasambandsins í víðavangs- hlaupum. Martha var mest alla leið- ina meðal fremstu og í baráttu um verðlaunasæti en tapaði tveimur til þremur stúlkum frá sér á síðustu metrunum. Góður árangur Mörthu á alþjóða- vettvangi er farinn að vekja at- j, hygli og var tekið við hana sjónvarð- y.sviðtal á Spáni eftir hlaupið. Þær sem komu fyrstar í mark, voru: 1. Elena Fidatov, Rúmenía.19.50 2. Zahara Ouaziz, Marokkó.20.00 3. Claudia Lokar, Þýskalandi.20.06 4. Conceicao Ferreira, Portúgal...20.08 5. Helen Kimaiyo, Kenýu..20.11 C6. Martha Emstdóttir, ÍR.20.12 • Martha hefur nú tekið þátt í að- |eins þremur af níu stigahlaupum í vetur en er samt í sjöunda sæti stigakeppninnar. Varð hún 5. í ' sterku hlaupi í Belfast í byijun jan- úar, í 8. sæti um fyrri helgi í Portúg- al og nú í sjötta. Efst að stigum er Rose Cheruiy- ot, Kenýu, með 97 stig, önnur Cat- herina McKieman, írlandi, með 88, í þriðja til fjórða sæti eru Fidatov og Catherine Kirui, Kenýu, með 58 og fimmta Kimaiyo með 50 stig. Martha hefur hlotið 45 stig. Stigakeppninni lýkur á heims- meistaramótinu í víðavangshlaup- um sem fram fer í Durham í Eng- Iandi í mars. Tólf stigahæstu stúlk- urnar hljóta peningaverðlaun. Morgunblaðið/Bjarni KNATTSPYRNA Hlynurtil Örebro HLYNUR Birgisson, varnarmaðurinn sterki úr Þór, er farinn til Svíþjóðar til að ræða við forráða- menn Örebro og æfa með liðinu í viku tima. „Það var haft samband við mig á laugardaginn og ég beðinn að koma út. Það kom mér á óvart, því að ég hafði lesið um það að Örebro hefði gert Guðna Bergssyni tilboð,“ sagði Hlynur, sem mun hitta fyrir tvo félaga sína í landsliðinu, þá Arnór Guðjo- hnsen og Hlyn Stefánsson, þegar hann byrjar að æfa með Örebro. „Ég er tilbúinn að taka tilboði frá Örebro, en ég geri mér grein fyrir því að Guðni er enn inni í myndinni hjá liðinu, en Totten- ham er þröskuldurinn fyrir þvi að Guðni hefur ekki getað samið við sænska liðið. Það má því segja að ég sé varamaður fyrir Guðna — og er tilbúinn í slaginn," sagði Hlynur Birgisson. Manchester United sigurstranglegast VEÐBANKAR i Englandi telja Manchester Un- ited sigurstranglegast i bikarkeppninni eftir 5:2 sigur liðsins gegn Wrexham í 4. umferð um helg- ina. Möguleikar United eru taldir vera 5-2, New- castle kemur næst (9-2), svo Liverpool (11-2), Tottenham (7-1), Leeds og QPR (12-1), Chelsea, Manchester City og Sheffield Wednesday (14-1) og Crystal Palace og Everton (16-1). Manchester United á heimaleik gegn Leeds i fimmtu umferð en þá mætast einnig Newcastle - Manchester City, Sheffield Wednesday/Wolves (0:0 i gærkvöldi) - Leicester, QPR - Millw- alI/Chelsea, Burnley/Liverpool - Wimbledon, Watford - Crystal Palace, Tottenham - Lu- ton/Southampton og Everton - Co- ventry/Norwich. Leikirnir eiga að fara fram 18. eða 19. febrúar. Stjörnumenn víxla blakliðum FORS V ARSMENN 1. deildarliðs Stjörnunnar í blaki karla sendu inn þátttökutilkynningar um tvö lið í bikarkeppni BLÍ, a og b-lið. í síðustu viku sendi félagið síðan inn nafnalista til móta- nefndar BLÍ þar sem segir hvort liðið sé a- og hvort b-lið en samkvæmt bikardrættinum á a-lið félagsins að mæta KA á Akureyri í kvöld 18-liða úrslitum. Forsvarsmenn félagsins vilja með nafnalistanum láta b-lið félagsins sem leikur í 2. deild mæta KA fyrir norðan en ekki 1. deild- arliðið sem samkvæmt skilningi og túlkun móta- nefndar á að leika fyrir norðan. í lögum um bikarkeppnina kveður ekkert á um skilgreiningu á a- og b-liðum en formaður mótanefndar BLÍ, Jón Arnason telur „engir fyrirvarar voru gerðir hjá Stjörnunni áður en dregið var og því er það túlkun mótanefndar að fyrstu deildarlið Stjörn- unnar, a-liðið hafi dregist á móti KA en ekki annarrar deildarliðið.“ Það kemur í ljós í kvöld hvort liðið mætir í leikinn fyrir norðan en öllum ætti að vera ljóst að hvorki Stjörnumenn né aðrir geta ekki valið sér andstæðingana eftir að bikardráttur hefur farið fram enda hefðu önnur félög væntanlega sent inn b-lið til þátt- töku ef það gilti. * Ahorfandi stunginn til bana við knattspyrnuvöll í Genúa Piltur handtekinn í Mflanó Búið að aflýsa öllum íþróttaviðburðum á Italíu á sunnudaginn kemur LÖGREGLAN í Genúa handtók mann í gær sem er grunaður um að hafa stungið 24 ára gamlan áhorfanda til bana fyrir utan leik- vang Genúa á sunnudag áður en leikur heimamanna og AC Milan í ítölsku deildinni hófst. Lögreglan sagði að myndir hefðu leitt til hand- töku mannsins, en hann var hand- tekinn fyrir utan heimili sitt í Mílanó og færður til Genúa. Það er nítján ára garðyrkjunemi. Sex til viðbótar voru í haldi vegna óláta sem brutust út þegar fyrir lá hvað gerst hafði en 27 áhorfendur og lögreglumenn meiddust. Illa gekk að tæma leik- vanginn eftir að leikurinn var flaut- aður af í hálfleik og var stuðnings- mönnum gestanna sagt að bíða. Atta tímum síðar var þeim komið í rútur og fóru þeir í lögreglufylgd til Mílanó. Markalaust var í hálfleik en ákveðið var að flauta leikinn af í virðingu við hinn látna stuðnings- mann Genúa. „Þetta getur ekki hald- ið svona áfram og það var ekki hægt að ljúka leiknum við þessar kringumstæður," sagði Maurizio Casasco, framkvæmdastjóri Genúa. „iþróttir eru eitt og ofbeldi annað,“ bætti hann við. Mikið hefur borið á ólátum í tengslum við ítölsku knattspyrnuna á tímabilinu og eru menn ekki _á eitt sáttir um hvað eigi að erera. í gær kom saman Ólympíunefnd Ítalíu og einnig forráðamenn knattspyrnu- sambands Ítalíu og deildarkeppninn- ar þar. í kjölfarið var ákveðið að enginn íþróttaviðburður fari fram á Ítalíu á sunnudaginn kemur. Lögreglan sendi frá sér yfirlýs- ingu þar sem þess var krafíst að hver sá sem tæki þátt í ólátum í tengslum við knattspyrnuleik yrði útilokaður frá knattspyrnuvöllum til lífstíðar. BANDARÍSKIFÓTBOLTINIM: STEVE YOUNG SETTIMET OG LOKS BESTUR / B4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.