Morgunblaðið - 31.01.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995 B 3
Sindri
Bergmann
Eiösson
skrifar
menn voru fyrri til að hrista af sér
slenið og fór Sigurður Bjamason
fyrir sóknarleiknum. Þá varði Ing-
var Ragnarsson vel í markinu. Lítil
ógnum kom af vinstri væng Aftur-
eldingar, en Jason og Róbert héldu
heimamönnum inni í leiknum.
Baráttan var mikil í heimamönn-
um í síðari hálfleik einkum í vörn-
inni þar sem gekk betur að stöðva
Sigurð Bjarnason og Dimitri
Filippov. Ásmundur Einarsson varði
vel, sérstaklega á lokakaflanum og
reið það eflaust baggamuninn.
„Við slökuðum of mikið á í síð-
ari hálfleik og því fór sem fór. Einn-
ig er ég mjög óánægður með dóm-
gæsluna í leiknum," sagði Kristján
Halldórsson, aðstoðarþjálfari
Stjörnunnar að leikslokum.
Óvæntur sigur KR
KR sigraði KA í Laugardalshöll-
inni með einu marki 23:22,
eftir að KA-menn höfðu haft yfir-
höndina mest allan
leikinn. „Þetta var
langþráður sigur,“
sagði Gisli Felix
Bjarnason kátur að
leik loknum. „Við náðum að beija
okkur saman eftir 16 marka tap í
seinasta leik, og ég er mjög sáttur
við karakterinn í liðinu. Þeir [KA-
mennirnir] voru líka kannski þreytt-
ir og með hugann á bikarúrslita-
leiknum um næstu heigi. En þetta
var sanngjarn sigur.“
KR-ingar höfðu forystu framan
af en um miðjan fyrri hálfleik náðu
KA-menn að komast yfir og voru
tveimur mörkum yfir í leikhléi.
KR-ingar voru fljótir að vinna upp
það forskot og með mikilli baráttu
og sigurvilja náðu þeir að hrifsa
sigurinn af KA mönnum. Bestir
KR-inga voru Sigurpáll Árni Aðal-
steinsson og Páll Beck sem og Gísli
Felix. KA-menn voru ósannfærandi
og verða að gera mun betur um
næstu helgi ef þeir eiga að eiga
möguleika á bikamum.
, ÍR-ingar í stuðl
IR-ingar voru í stuði á Selfossi á
sunnudagskvöld, náðu' taki á
Selfyssingum i upphafi leiks og
tókst að halda þrátt
fyrir góðan sprett
heimamanna í síðari
hálfleik. ÍR vann
22:27. Branislav
Dimitrivic stjórnaði leik ÍR af hörku
og var besti maður liðsins. Selfyss-
ingar vom of hikandi i fyrri hálf-
leiknum og náðu ekki að ljúka sókn-
arlotum sínum með marki.
í byijun siðari hálfleiks komu
Selfyssingar andstæðingum sínum
á óvart og gerðu hvert markið á
fætur öðru og Hallgrímur, besti
maður Selfyssinga, varði vel. Sel-
foss minnkaði muninn í eitt mark
en ÍR-ingum tókst að veijast og
náðu yfirhöndinni smám saman upp
úr miðjum hálfleiknum. í lokin tóku
Selfyssingar áhættu og léku hratt
en tókst ekki að vinna upp þann
mun sem var orðinn.
Vonir HK úti
Vonir HK um að halda sæti sínu
í fyrstu deild urðu að engu á
sunnudaginn með 36:28 tapi gegn
Víkingum í Víkinni.
Víkingar skutust í
annað sætið með
sigrinum. Mikil læti
voru í fyrri hálfleik
þegar leikmenn sprettu úr spori
fram i sóknina og gerðu samtals
46 mörk. Kópavogsmenn áttu í fullu
tré við Víkinga fyrir hlé og sýndu
skemmtilega takta. í síðari hálfleik
náðu Víkingar hægt og sígandi ör-
uggri forystu en með góðri þriggja
marka syrpu þegar 5 mínútur voru
til leiksloka tókst gestunum að
minnka forskotið niður í tvö mörk.
BLAK
Stefán
Stefánsson
skrifar
Þá varð vendipunktur þegar HK
hafði boltann og í stað þess að skora
úr góðu færi og minnka forskotið
niður í eitt mark, náðu Víkingar
boltanum og brunuðu upp í hraða-
upphlaup. Þriggja marka munur dró
allan mátt úr gestunum og 2. deild
blasti við þeim.
Leikur markvarðanna
arkverðimir stálu senunni
þegar Hafnarfjarðarliðin ÍH
og Haukar mættust á sunnudags-
kvöldið. Haukar
unnu stórsigúr
17:32. Bjami
Frostason stóð í
Haukamarkinu all-
an tímann og varði vel eins og
markverðir ÍH, þeir Alexander Re-
vine, sem stóð í markinu í 40 mínút-
ur, og Guðmundur A. Jónsson sem
varði markið í 20 mínútur. Leiksins
verður ekki minnst fyrir góðan
handknattleik. ÍH, sem er fyrir
löngu fallið í aðra deild, náði að
halda í við Hauka fyrstu 20 mínút-
umar en í stöðunni 9:9 gerðu Hauk-
ar sex mörk í röð og geta ÍH-menn
sjálfum sér um kennt því á þessu
tímabili misstu þeir tvo menn útaf
fyrir klaufabrot. Eftir þetta var
aðeins spurning um hve stór sigur-
inn yrði.
Hörður
Magnússon
skrifar
Sigurður
Jónsson
skrifar
frá Selfossi
Annað tap Þróttar
Guðmundur H.
Þorsteinsson
skrifar
Stúdentar mættu Þrótti R. öðru
sinni í vikunni á laugardaginn
og höfðu sigur í fimm hrinu baráttu-
leik og var þetta
annað tap Þróttar í
1. deild karla.
Sveiflurnar vom
miklar og það var
ekki fyrr en í æsispennandi fjórðu
hrinu að Stúdentar gáfu tóninn að
framhaldinu. ÍS leiddi 13:9 og virt-
ist vera að klára hrinuna þegar leik-
menn Þróttar tóku hamskiptum og
komust yfir 14:13, en heilladísirnar
voru á bandi Stúdenta í lok hrinunn-
ar sem endaði 16:14. Leikmenn
Þróttar náðu sér ekki á strik í úr-
slitahrinunni.
Þróttarar frá Neskaupstað lögðu
lið Stjörnunnar öðru sinni í vetur
er liðin mættust fyrir austan, 3:1 í
105 mín. leik, sem einkenndist af
mikilli baráttu. Stjörnumenn virk-
uðu frekar ragir í sókninni á meðan
kantskellar Þróttara skelltu
grimmt.
HK hefur verið í miklu stuði
undanfarið og lagði KA á Akureyri
um helgina. Rússinn Alexander
Korneev lék með KA í fyrsta sinn
en setti ekki mark sitt á leikinn,
en KA náði þó að klípa eina hrinu
af meisturunum.
KA stúlkur komu grimmar til
leiks gegn HK á Akureyri og unnu
í fyrstu hrinu en náðu ekki að fylgja
eftir góðri byijun. Leikurinn var í
miklu jafnvægi en kantskellur HK
þær Elva Rut Helgadóttir og Ragn
hildur Einarsdóttir, áttu báðar góða
kvöldstund og skoruðu grimmt.
Særún Jóhannsdóttir þjálfari HK
kom inn á og lék með liðinu og
virkaði vel á meðspilarana.
Línur famar að skýrast
Valsmenn heppnir
að fá stig gegn FH
í Kaplakrika
LÍNURNAR í 1. deildinni í hand-
knattleik eru nú farnar að skýr-
ast enda aðeins þrjár umferðir
eftir auk tveggja frestaðra
leikja. Ljóst er að nýliðarnir í
deildinni, HK og ÍH, fara aftur
niður í aðra deild og nokkuð
er Ijóst hvaða lið komast í úr-
slitakeppnina þó svo Selfyss-
ingar eigi enn möguleika að
skjótast upp fyrir IR eða Hauka.
Valsmenn gátu hrósað happi yfír
að ná öðru stiginu úr viður-
eigninni við FH í Kaplakrika á
sunnudagskvöld.
FH-ingar voru með
Eðsson leikinn í hendi sér,
skrifar höfðu knöttinn og
þriggja marka for-
skot 19:16 þegar fimm mínútur
voru til loka leiks. Dagur Sigurðs-
son skoraði síðan þijú síðustu mörk-
in og tryggði þeim rauðklæddu
19:19 jafntefli. „Þetta var áttundi
leikurinn í röð án taps í deildinni
og það sýnir að við erum á réttri
leið. Mér fannst við eiga að fá víta-
köst í tvígang á lokamínútum sem
dómaramir horfðu framhjá," sagði
Guðmundur Karlsson þjálfari FH.
Líklega voru þó úrslitin meira und-
ir FH-ingum komin en dómurunum
en þeir gerðu sig seka um klaufaleg
mistök í lokin auk þess sem Guð-
mundur Hrafnkelsson varði víta-
kast í stöðunni 19:18.
Ekkert benti til annars en að
viðureign liðanna yrði markaleikur
en á fyrsta stundarfjórðungnum
voru skoruð fjórtán mörk eða nærri
því mark á mínútu. Mjög dró úr
markaskorun þegar leið á leikinn
og Valsmenn skoruðu til að mynda
aðeins fímm mörk á 26 mínútum í
síðari hálfleiknum.
Það er erfítt að taka einhvern
útúr Valsliðinu en frammistaða
Dags og Guðmundar í markinu veg-
ur þó þyngst. Nokkurt ráðleysi var
í sóknarleiknum í síðari hálfleiknum
og illa gekk að virkja þá Júlíus og
Valgarð á hægri vængnum.
Bræðumir Guðjón og Magnús
Árnasynir voru bestu leikmenn FH.
Guðjón, sem gerði m.a. 5 síðustu
mörk FH, virtist stundum sá eini
sem fann glufur á Valsvörninni.
Magnús varði vel, sérstaklega í fyrri
hálfleiknum. Vamarleikurinn var
góður í síðari hálfleiknum en í sókn-
inni fóru menn oft illa að ráði sínu
og engu líkara en að Guðmundur
markvörður vissi upp á hár hvert
mörg skotanna fæm.
„Eg er ekki sáttur við okkar leik,
sóknarleikurinn var slakur og þessi
leikur er ekki ósvipaður leiknum
gegn KA,“ sagði Dagur Sigurðsson.
„Það var lítið annað hægt að gera
en að taka „sjensa". það var svo
skammt eftir,“ sagði Dagur um
þátt sinn í lokin.
UMFA sklptl um gír í
síðari hálfleik
Ulitið var ekki bjart hjá Aftur-
eldingu í leikhléi gegn Stjörn-
unni. Þeir vom fjórum mörk-
um undir, 10:14 og Stjömumenn
virtust á beinu
brautinni. Mosfell-
ingar skiptu um gír
í síðari hálfleik.
Varnarleikurinn
batnaði og Stjömupiltar gáfu eftir.
Leikmenn Aftureldingar söxuðu
smátt og smátt á forskot gestanna
og síðustu tíu mínúturnar vom
æsispennandi, þar höfðu heima-
menn betur og þegar upp var stað-
ið skildu tvö mörk; Afturelding 25,
Stjaman 23.
Nokkur taugaveiklun virtist með-
al leikmanna í upphafi. Stjörnu-
tvar
Benediktsson
skrifar
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
GUÐJÓN Árnason tll vlnstrl var bestur Hafnfirðlnga og gerðl flmm síðustu mörk FH í lelknum.
Hlns vegar áttl Dagur Slgurðsson þrjú síðustu mörk lelksins og tryggðl Val Jafntefll.
HANDKNATTLEIKUR
KORFUBOLTI
NBA-deildin
Stockton
nálgast
metið
John Stockton var með 14 stoð-
sendingar þegar Utah Jazz
vann New Jersey Nets 111:94 í
NBA-deildinni um helgina. Hann
er þar með kominn með 9.897 stoð-
sendingar á ferlinum og þarf 24 til
viðbótar til að slá met Magic John-
sons. „Ég er ánægður með að þess-
um áfanga er náð og verð kátur
þegar næsta hindmn verður úr vegi
svo við getum haldið áfam að ein-
beita okkur að leikjunum," sagði
Stockton sem gerði 20 stig í leikn-
um. Þetta var 12. sigur Utah í röð
og hefur liðið sigrað í síðustu 15
útileikjum. LA Lakers á metið en
liðið sigraði í 16 útileikjum í röð
tímabilið 1971 til 1972.
Á sunnudaginn var stórleikur í
New York þegar Knicks tók á móti
Phoenix og vann 107:88. Patrick
Ewing gerði 35 stig fyrir heima-
menn og tók auk þess 15 fráköst
og John Starks gerði 22 stig en
Barkley var stigahæstur gestanna
með 20 stig. Leikmenn Phoenix
reyndu 39 sinnum að skora með
þriggja stiga skotum og er það
nýtt met í NBA deildinni. Þeir vom
hins vegar hálf kaldir og nýtingin
var ekki góð.
Los Angeles Lakers gerði góða
ferð til Seattle og vann 128:121
eftir framlengingu. Þegar tvær
mínútur vom eftir af venjulegum
leiktíma vom heimamenn með átta
stiga forystu, 111:103, en gestimir
gáfust ekki upp og Nick Van Exel
tryggði þeim framlengingu með því
að gera átta síðustu stigin. Hann
gerði alls 19 stig en Elden Camp-
bell var með 27 stig og varði auk
þess fímm skot. Detlef Schrempf
var með 26 stig og 10 fráköst fyrir
Seattle.
Byron Scott tók þriggja stiga
skot og hitti þegar 1/10 úr sekúndu
var eftir af framlengingu í leik Indi-
ana og Philadelphia. Indiana vann
106:103 en tæpara mátti það ekki
standa. „Við urðum að sigra,“ sagði
Scott, „og það var ánægjulegt að
eiga síðasta orðið.“
Shaquille O’Neal lék ekki með
Orlando vegna meiðsla en liðið hélt
áfram á sigurbraut heima og vann
Milwaukee 107:103, 21. heimasig-
urinn á tímabilinu. Dennis Scott
setti persónulegt met í vetur með
því að gera 27 stig, en Vin Baker
var með 27 stig fyrir Bucks.
Detroit vann Miami 89:85. Billy
Owens gerði 26 stig og tók 10 frá-
köst fyrir Detroit sem tryggði sigur-
inn á síðustu stundu.
Dallas tapaði sjöunda leiknum í
röð eftir að hafa náð 15 stiga for-
ystu í öðmm leikhluta gegn Sacra-
mento sem vann 87:84. Brian Grant
skoraði 23 stig fyrir gestina, Spud
Webb 15 og Walt Williams 13 stig,
en Jamal Mashbum gerði 21 stig
fyrir Dallas.
San Antonio átti ekki í erfiðleik-
um með Denver og vann 103:77.
Sean Elliott var stigahæstur með
31 stig en Robert Pack var fremst-
ur Denvermanna með 12 stig.
Hakeem Olajuwon gerði 25 stig
í 114:93 sigri Houston gegn Minne-
sota.
Scottie Pippen var settur í eins
leiks bann í síðustu viku fyrir að
sparka full hressilega í stól sem
varð á vegi hans. Um helgina sagði
Pippen að hann sæi mest eftir að
stóllinn skyldi ekki fara í Joe Craw-
ford dómara. Talið er að þessi um-
mæli geti haft í för með sér frek-
ara bann fyrir Pippen, en hann
hefur átt í erfiðleikum í vetur og
tvívegis verið rekinn af velli auk
þess sem hann hefur fengið 12
tæknivillur.