Morgunblaðið - 03.02.1995, Blaðsíða 3
2 C FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLA.ÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1995 C 3 .
URSLIT
KORFUKNATTLEIKUR
HANDKNATTLEIKUR
Valur og KA mætast í bikarúrslitaleik á morgun
Sterkar vamir og
góð markvarsla
FOLX
NÚRNBERG tók þátt í þýska
innanhússmótinu i knattspyrnu á
dögunum og voru tvíburarnir Arn-
ar og Bjarki Gunnlaugssynir með
félaginu. Bjarki var í sjöunda sæti
yfir markahæstu menn með ellefu
mörk fyrir úrslitakeppni þýska
meistaramótsins, en þangað náði lið
hans ekki.
■ TVÍBURARNIR léku síðan æf-
ingaleik með liði sínu á laugardag-
inn, utanhúss gegn neðri deildarl-
iði, og lauk honum með jafntefii,
1:1. Arnar gerði mark Niirnberg.
■ FRÍÐA Rún Þórðardóttir
hlaupakona úr Ármanni varð í
)riðja sæti af 14 þátttakendum í
3.000 metra hlaupi innanhúss í
Johnson City í Tennessee um síð-
ustu helgi; hljóp á 9.57,1 mín.
Kvaðst hún hafa fundið sig nokkuð
vel í hlaupinu þrátt fyrir að vera
nokkuð frá sínu besta. Fríða Rún
er komin í meistaranám og getur
því ekki lengur keppt á háskólamót-
um, en fer á opin mót á eigin vegum.
■ THOMAS Strunz, þýski lands-
liðsmaðurinn hjá VfB Stuttgart,
fer á ný til Bayern Munchen fyrir
næsta keppnistímabil. Strunz, sem
er 26 ára og á að baki 59 lands-
leiki, lék með Bayem 1989-1992
og varð þýskur meistari 1990. Hann
fór síðan frá félaginu til VfB
Stuttgart vegna deilna við Erich
Ribbeck, fyrrum þjálfara Bayern.
■ BAYERN hefur einnig tryggt
sér austurríska landsliðsmanninn
Andreas Herzog frá Werder
Bremen fyrir næsta keppnistímabil.
■ TVEIR af ungu leikmönnunum
hjá Tottenham skrifuðu í gær und-
ir nýjan samning við Lundúnaliðið;
markvörðurinn Ian Walker til fjög-
urra ára og miðvallarleikmaðurinn
Nick Barmby til fimm ára.
■ AMY Van Dyken frá Banda-
ríkjunum setti í vikunni heimsmet
í 50 metra flugsundi í stuttri braut
(25 m laug) á heimsbikarmótinu í
Espoo í Finnlandi. Hún synti á
26,73 sek og bætti met sem Ang-
ela Kennedy frá Ástralíu setti í
júlí 1993 um 0,20 sekúndur.
■ ROBERTO Baggio, landsliðs-
maður Itala í knattspymu sem leik-
ur með Juventus, var í gær skorinn
upp vegna meiðsla í hné hnémeiðsl-
in hafa hijáð hann síðustu tvo
mánuði. Forráðamenn Juventus
gera sér vonir um að hann geti
bytjað að leika með félaginu í lok
mánaðarins.
■ LUIS Figo, landsliðsmaður
Portúgala, hefur gert þriggja ára
samning við ítalska liðið Parma.
Figo, sem er miðvallarleikmaður
hjá Sporting Lissabon, hafði áður
verið orðaður við Juventus.
Hvor fagnar á morgun?
ÞJÁLFARAR úrslitallðanna í karlaflokki; Þorbjörn Jensson, til vinstri, sem hefur stýrt Valsliðinu
með frábærum árangri síðustu ár, og Alfreð Gíslason hefur gert góða hlutl með lið KA-manna.
ValurB.
Jónatansson
skrifar
I li'slitaleikur Vals og KA í bikar-
keppni karla í Laugardalshöll
á morgun verður án efa harður
og spennandi. Liðin eru bæði þekkt
fyrir sterkar varnir
og góða mar-
kvörslu. Þetta verð-
ur því leikur hinna
sterku varna. KA-
menn eru í úrslitum annað árið í
röð og ætla sér bikarinn sem þeim
tókst ekki að handsama í úrslita-
leiknum í fyrra. Þá þyrstir í bikar-
inn og sagði Alfreð Gíslason, þjálf-
ari KA, að hann myndi vilja skipta
á þessum bikar og hinum þremur
sem hann vann með KR, Essen
og Bidasoa. Valsmenn verða að
teljast sigurstranglegri ef miðað
er við stöðu liðanna í deildinni.
Þeir voru síðast bikarmeistarar
fyrir tveimur árum og hafa unnið
bikarinn fjórum sinnum alls. Hefð-
in er því til staðar hjá Hlíðarenda-
strákunum, en það skal enginn
afskrifa KA-menn því þeir geta
bitið hressilega frá sér.
Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals,
sagði á blaðamannafundi í gær
að leikurinn yrði áreiðanlega mjög
spennandi. „Leikir liðanna í deild-
inni hafa verið æsispennandi fram
á síðustu mínútu og ég held að
þessi leikur verði engin undan-
tekning þar á. KA-liðið hefur ver-
ið að spila vel á móti sterkari liðun-
um í deildinni en aftur illa á móti
veikari liðunum. Við megum ekki
koma of sigurvissir til leiks því
hann verður erfiður og fast spilað-
ur,“ sagði Þorbjörn.
„Til þess að sigra KA verða
ákveðnir hlutir að ganga upp. Við
spiluðum mjög illa á móti 5-1-vöm
þeirra í deildarleiknum á dögunum
og við höfum verið að skoða leiðir
til að bæta úr því. Ég held að
þessi leikur komi til með að vinn-
ast á góðri vöm og hraðaupp-
hlaupum," sagði Þorbjörn.
Alfreð Gíslason, þjálfari KA,
sagði að leikurinn legðist vel í sig.
„Okkur er farið að sárlanga í bikar-
inn og vonandi að hungrið í titil
hjá okkur geri útslagið. Við emm
vel stemmdir og allir heilir og til-
búnir í slaginn. Ég á von á hörku-
leik. Það verður ekki mikið skorað
því liðin spila bæði góða vöm. Það
lið sem leikur skynsamar í sókninni
og fær ekki of mikið af hraðaupp-
hlaupum á sig fagnar sigri.
Valsmenn eru með mjög jafnt
og gott lið. Við þurfum fyrst og
fremst að reyna að stoppa úti-
spilarana hjá þeim og svo Geir á
línunni. Það eru ærin verkefni.
Við þurfum líka að finna eitthvað
ráð við þeirra vörn sem er gríðar-
lega sterk. Við verðum að eiga
toppleik til að vinna Val. Ég held
að þessi leikur klárist ekki fyrr
en alveg í lokin — spenna fram á
síðustu mínútu.“
KA-menn koma til Reykjavíkur
í dag og fara þaðan beint til Hvera-
gerðis þar sem þeir ætla að dvelja
á Hótel Örk fram að leik. „Við
komum alveg svartir í leikinn eftir
leirbaðið í Hveragerði,“ sagði Al-
freð.
KNATTSPYRNA
Rúnar gestur í
getraunaþætti TV2
GrétarÞór
Eyþórsson
skrífar frá
Sviþjóð
Rúnar Kristinsson, landsliðs-
maður í knattspymu, sem
nú leikur með Örgryte frá Gauta-
borg var sérstak-
ur gestur í get-
raunaþættinum
Tipp Extra í
sænska sjónvarp-
inu TV-2 sl. laug-
ardag. Hann horfði á beina át-
sendingu frá bikarieik Liveipool
og Bumley í sjónvarpssal. Að-
spurður sagðist hann vera mikill
aðdáandi Liverpool og sagði frá
veru sinni hjá félaginu. í leikhléi
var sérstök kynning á íslenskri
knattspymu og sýnt úr nokkrum
leikjum Skagamanna síðasta
sumar.
Rúnar komst vel frá þættinum
þó svo að hann hafi átt í erfiðleik-
um með að tjá sig á sænsku eft-
ir aðeins þriggja vikna veru í
Svíþjóð. Hann notaðist við gömlu
skóladönskuna og gat gert sig
ágætlega skiljaniegan. Hann
sagðist ánægður með venma hjá
Örgiyte og hlakkaði til sumars-
ins. Þeir Svíar sem undirritaður
talaði við og horfðu á þáttinn
sögðu að Rúnar hafi staðið sig
vel og hann hafi verið góð auglýs-
ing fyrir íslenska knattspymu-
menn.
Njarðvík aftur
á sigurbraut
NJARÐVÍKINGAR er komnir á
sigurbraut að nýju eftir slakan
bikarúrslitaleik um síðustu
helgi. í gærkvöldi mættu þeir
ÍR í „Ljónagryfjunni" í Njarðvík
og unnu bæði öruggan og
sannfærandi sigur 105:93 eftir
að hafa leitt leikinn frá upphafi.
Lið Njarðvíkinga var óþekkjanlegt
frá leiknum gegn Grindvíking-
um um síðustu helgi og í stuttu
■■■■■■ máli höfðu þeir leik-
Björn inn nánast í hendi
Blöndal sér allt frá upphafi
til enda. „Við bárum
' of mikla virðingu
fyrir þeim og misstum þá síðan of
langt frá okkur í upphafi. Það er
erfitt að vinna upp 10 til 15 stiga
mun gegn liði eins og Njarðvík en
þetta var samt of mikill munur,“
sagði Herbert Arnarson leikmaður
ÍR-inga, sem meiddist á öxl í síðari
hálfleik og varð að fara af leikvelli.
„Þetta var allt annað en gegn
Grindavík, það kom aldrei lægð í
leikinn hjá okur og ég get ekki ann-
að en verið ánægður með leik okkar
að þessu sinni,“ sagði Valur Ingi-
mundarson þjálfari og leikmaður
Njarðvíkinga.
Jóhannes Kristbjörnsson, Rondey
Robinson, Valur Ingimundarson og
Teitur Orlygsson voru bestu menn
Njarðvíkinga. Halldór Kristmanns-
son, Herbert Arnarson, Jón Örn
Guðmundsson og John Rhodes, sem
tók 26 fráköst, voru bestir í liði ÍR.
Skallagrímur sigraði ÍBK
Við komum samstilltir til þessa
leiks og það réð úrslitum, sagði
Tómas Holton, þjálfari og leikmaður
■■■■■ Skallagríms eftir að
Theodór lið hans hafði unnið
Þórðarson Keflvíkinga 77:69 í
skrifar Borgarnesi í gær-
kvöldi. „Við höfum verið að byija
illa í undanförnum leikjum en núna
small þetta saman strax í byijun og
síðan hjálpuðu áhorfendur okkur að
klára leikinn með frábærum stuðn-
ingi í restina. Ég vona að þeir fylli
húsið einnig á sunnudaginn er við
mætum Tindastól.“
„Það er alltaf sama sagan, við
eigum alltaf í erfiðleikum hérna, það
breytist ekkert,“ sagði Jón Kr. Gísla-
son, þjálfari Keflvíkinga. „Annars
var þetta mjög dapur sóknarleikur
hjá okkur, sérstaklega í fyrri hálf-
leik. Við erum hættir að trúa því
að við getum þetta.“
Borgnesingarnir byijuðu mun bet-
ur en gestirnir og höfðu undirtökin
nær allan leikinn. Vörnin í fyrri hálf-
Gunnlaugur
Jónsson
skrifar frá
Akranesi
leik var sérstaklega sterk sem sýnir
sig best í því að þegar 18 mínútur
voru liðnar af leiknum höfðu Keflvík-
ingar aðeins skorað 18 stig á móti
31 hjá heimamönnum. Keflvíkingar
tóku síðan góðan sprett fram að leik-
hléi og náðu að laga stöðuna í 33:27.
Liðsmenn Skallagríms komu
ákveðnir til leiks eftir hlé en með
mjög mikilli baráttu tókst liðsmönn-
um Keflvíkinga að jafna undir miðj-
. an síðari hluta. Síðan var jafnt á
flestum tölum þar til á síðustu mín-
útunni en þá sýndu Borgnesingarnir
meiri styrk, sérstaklega þeir Henn-
ing Henningsson og Tómas Holton
sem sýndu að þar fara menn með
mikla reynslu og stáltaugar.
ÍA-sigur eftir sjö tapleiki í röð
Skagamenn unnu langþráðan
sigur í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í gærkvöldi er þeir lögðu
KR-inga að velli,
99:90, eftir að KR
hafði yfir í hálfleik
48:53. Fyrir leikinn
höfðu heimamenn
ekki unnið sjö leiki í röð og því stig-
in tvö kærkomin.
Skagamenn byijuðu betur en
KR-ingar komust fljótt inn í leikinn
og náðu forystunni og héldu henni
fram að hlé. Elvar Þórólfsson, þjálf-
ari Skagamanna, hefur lesið vel yfir
sínum mönnum í hálfleik því það var
allt annað að sjá til liðsins í síðari
hálfleik bæði varnar- og sóknarlega.
Skagamenn gerðu fyrstu tíu stig
síðari hálfleiks en KR-ingar voru
ekki á því að gefa þetta frá sér og
höfðu yfirhöndina þar til sex mínút-
ur voru eftir. En Vesturbæingar réðu
ekki við góðan endasprett heima-
manna sem með ódrepandi sigurvilja
og mikilli baráttu sigu fram úr og
unnu verðskuldað með níu stiga
mun, 99:90.
B.J. Thompson lék frábærlega í
liði Skagamanna og var stigahæstur
allra. Haraldur Leifsson og Brynjar
K. Sigurðsson léku einnig vel. Þá
ber að hrósa liðsheild Skagamanna
fyrir góða baráttu, sérstaklega í
seinni hálfleik. í liði gestanna fór
Ólafur Ormsson fyrir sínum mönn-
um, gerði sex þriggja stiga körfur.
Birgir Mikaelsson átti einnig ágætan
leik. Athygli vakti að KR-ingar náðu
ekki að taka eitt einasta varnarf-
rákst í síðari hálfleik á meðan heima-
menn tóku 16.
Bandaríski Ieikmaðurinn, Mark
Hadden, sem KR-ingar hafa fengið
til liðs við sig var á meðal áhorfenda
í gær vegna þess að hann var ekki
orðinn löglegur með félaginu.
Morgunblaðið/Einar Falur
JOHN Stockton, tll vinstri, ásamt Karl Malone, félaga sinum hjá Utah
Jazz. Malone hefur skorað í ófá skiptin eftir sendingu Stocktpns;
meðal annars eftir metsendlnguna, og þóttl það vel við hæfl.
Stockton setti met
GEYSILEGUR fögnuður brauts út í Delta Centre í Salt Lake City þegar
John Stockton hjá Utah Jazz átti sína 9.922. stoðsendingu í NBA-leik —
sendi knöttinn til Karl Malone, sem skoraði. NBA-met Magic Johnson
(9.921) féll og gott betur, því að það féll í elleftu stoðsendingu Stockton
af sextán, þannig að nýja metið er nú 9.927 sendingar. Um leið og Mal-
one skoraði var leikur Utah gegn Denver stöðvaður í tvær mínútur á
meðan Stockton var fagnað og honum færður keppnisknötturinn að gjöf.
Stockton og Johnson léku saman í „Draumaliðinu“ á Ólympíuleikunum
í Barcelona 1992. Þess má geta að Stockton, sem er 33 ára, hefur átt
meira en 1.000 stoðsendingar á sex keppnistímabilum og keppnistímabil-
ið 1987-88 setti hann NBA-met í stoðsendingum á einu tímabili, 1.128
sendingar, og það met hefur hann slegið tvisvar síðan. Þá er hann í
öðru sæti á NBA-listanum yfir leikmenn, sem hafa fiskað knöttinn frá
andstæðingum, hefur gert það 2.122 sinnum.
Leikmenn Phoenix á
mjög gódri siglingu
Danny Manning gerði 30 stig
fyrir Phoenix Suns í 118:109
sigri gegn Los Angeles Lakers í
fyrrinótt. Þetta var níundi sigur
Suns í síðustu 10 leikjum. Charles
Barkley gerði 22 stig og tók 15
fráköst og Dan Majerle gerði 20
stig, tók níu fráköst og átti níu stoð-
sendingar. Eddie Jones skoraði 26
stig fyrir Lakers, Nick Van Exel
21 og átti 10 stoðsendingar og
Vlade Divac gerði 20 stig og tók
14 fráköst.
David Robinson gerði 34 stig,
þar á meðal mikilvæga þriggja stiga
körfu er 42 sekúndur voru eftir, er
San Antonio Spurs sigraði Portland
Trail Blazers á útivelli, 111:107.
Sean Elliott gerði 26 stig fyrir
Spurs. Rod Strickland gerði 24 stig
fyrir heimaliðið og Clifford Robin-
son 23. Portland hefur þar með
tapað sex af síðustu 10 leikjum.
Rik Smits gerði 19 stig, Byron
Scott 16 og Derrick McKey 15 er
Indiana Pacers sigraði Cleveland
Cavaliers 101:82 á heimavelli.
Lið Boston Celtics tapaði á
heimavelli, 93:100, gegn Charlotte
Hornets. Larry Johnson gerði 27
stig fyrir gestina og Alonzo Moum-
ing gerði 17. Dino Radja skoraði
25 stig fyrir Celtics og Eric Mont-
ross gerði 24. Boston tapaði þarna
sjöunda leiknum í röð.
Mookie Blaylock hitti úr sjö 3ja
stiga skotum af ellefu og gerði alls
32 stig — sem er það mesta sem
hann hefur gert í einum leik í NBA
— er Atlanta sigraði Golden State
á heimavelli, 111:99. Tim
Hardaway var stigahæstur hjá
Golden State, með 26, en meiðsli
hafa hijáð liðið mikið að undan-
fömu enda hefur því gengið illa;
hefur tapað 14 af síðustu 16 leikj-
um. í þessum leik vantaði Rony
Seikaly, Chris Mullin, Latrell
Sprewell og Tom Gugliotta.
Glen Rice gerði 19 stig og Billy
Owens 17 fyrir Miami Heat sem tók
á móti Detroit Pistons og sigraði
98:75. Detroit gerði aðeins 13 stig
í fyrsta leikhluta og 14 í þeim
fjórða, og stigin 75 eru þau fæstu
sem lið hefur skorað í deildinni í
vetur. Enda var vörn Miami góð,
en hittni leikmanna Detroit reyndar
afleit - 37,5%.
Stjömuleikurinn
beint á Stöð 2
Stjörnuleikruinn í NBA körfuboltanum
verður sýndur beint á Stöð 2 sunnudag-
inn 12. febrúar. Leikurinn fer fram í Phoenix
að þessu sinni og hefst kl. 16 að staðartíma,
sem pr kl. 23 að íslenskum tíma og hefst
útsending á Stöð 2 nokkru fyrr.
Þeir Valtýr Björn Valtýsson og Einar Bolla-
son ætla að skjótast til Phoenix vegna leiks-
ins og munu lýsa honum beint þaðan. „Þetta
er í fyrsta sinn sem Stjörnuleikur er sýndur
beint hér á landi og við erum mjög ánægðir
með það. Einnig markar þetta nokkur tíma-
mót í samningi okkar við NBA og ég held
að þetta séu gleðitíðindi fyrir alla áhugamenn
um körfuknattleiks,“ sagði Valtýr Björn.
FELAGSLIF
Ársþing íþrótta
fyrirallaímars
Landssamtökin íþróttir fyrir alla halda árs-
þing sitt fimmtudaginn 30. mars næstkom-
andi. Þingið fer fram í sal íþróttasambands
íslands í Laugardal og hefst kl. 16.
ÍA-KR 99:90
Akranes, íslandsmótið í körfuknattleik —
úrvalsdeild, fimmtud. 2. febrúar 1995.
Gangur leiksins: 5:8, 18:29, 31:35, 40:42,
48:53, 58:53, 74:78, 83:83, 91:86, 99:90.
Stig íA: B.J. Thompson 33, Haraldur Leifs-
son 22, Brynjar K. Sigurðsson 18, Dagur
Þórisson 16, Jón Þ. Þórðarson 8, Guðjón
Jónasson 2.
Fráköst: 11 í sókn og 24 í vöm.
Stig KR: Ólafur Jón Ormsson 24, Birgir
Mikaelsson 19, Ingvar Ormarsson 17, Falur
Harðarson 16, Brynjar Harðarson 8, Ós-
valdur Knutsen 4, Atli Einarsson 2.
Fráköst: 10 í sókn og 7 í vörn.
Villur: ÍA 15 - KR 20
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Einar
Skarphéðinsson og stóðu þeir sig vel.
Áhorfendur: 350.
UMFN-ÍR 105:93
íþróttahúsið í Njarðvík.
Gangur leiksins: 5:0, 5:3, 13:5, 25:15,
31:26, 45:37, 55:45, 69:58, 76:65, 87:73,
90:80, 101:88, 105:93.
Stig UMFN: Jóhannes Kristbjömsson 35,
Rondey Robinson 25, Teitur Örlygsson 17,
Valur Ingimundarson 13, Friðrik Ragnars-
son 7, Astþór Ingason 3, Páll Kristinsson
2, Kristinn Einarsson 2, Jón J. Amason 1.
Fráköst: í sókn 17 - 23 í vöm.
Stig ÍR: John Rhodes 24, Halldór Krist-
mannssoo ».20, Jón Öm Guðmundsson 21,
Herbert Arnarson 15, Eiríkur Önundarson
7, Eggert Garðarsson 4, Bjöm Steffensen 2.
Fráköst: í sókn 17 - 29 í vöm.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Einar
Einarsson. Komust ágætlega frá leiknum.
Villur: UMFN 8/10 - ÍR 9/13.
Ahorfendur: Um 300.
Skallagr. - Keflavík 77:69
íþróttahúsið í Borgamesi:
Gangur leiksins: 3:0, 8:4, 12:8, 25:13,
31:18, 31:24, 33:27 39:30, 45:36, 45:45,
47:47, 60:57, 64:66, 69:66 77:69.
Stig Skallagríms: Tómas Holton 15, Henn-
ing Henningsson 15, Grétar Guðlaugsson
13, Alexander Ermolinskij 12, Sveinbjöm
Sigurðsson 12, Gunnar Þorsteinsson 4, Sig-
mar Egilsson 3, Ari Gunnarsson 3.
Fráköst:32.
Stig Keflvíkinga: Lenear Bums 22, Davíð
Grissom 12, Jón Kr. Gíslason 11, Sigurður
Ingimundarson 10,Einar Einarsson 4, Al-
bert Oskarsson 3, Gunnar Einarsson 3,
Sverrir Þ Sverrisson 2.
Fráköst:29.
Villur:Skallagríur 22 - Keflavík 16.
Dómarar: Helgi Bragason og Leifur Garð-
arsson sem dæmdu báðir mjög vel.
Ahorfendur: 402, sem héldu uppi ótrúlegri
stemmingu allan leikinn.
1. deild karla
Leiknir vann Selfoss í 1. deildarkeppninni
og tryggði sér þar með rétt til að leika í
undanúrslitum — í keppni um úrvalsdeildar-
sæti. Þór Þorklákshöfn og Breiðablik eru
einnig komin í undanúrslit, en KFÍ og ÍS
beijast um ijórða sætið í keppninni.
NBA-deildin
Miami - Detroit................ 98: 75
New Jersey - Milwaukee......... 95: 77
Minnesota - Dallas............. 83:104
Atlanta - Golden State.........111: 99
Indiana - Cleveland............101: 82
Boston - Charlotte............. 93:100
Philadelphia - Washington...... 98: 89
Utah-Denver....................129: 88
Phoenix - LA Lakers............118:109
Portland - San Antonio.........107:111
Handknattleikur
1. deild kvenna:
KR - Haukar......................25:28
NM í keilu
Keiluhöllin í Öskjuhlíð, annar keppnisdagur:
Þrímenningur, karlaflokkur — úrslit:
1. Svíþjóð 1..................3.660
Patrik Johansson 1.267, Thomas Leanders-
son 1.219, Mats Karlsson 1.174,
.2 Finnland 2.................3.619
Jouni Helminen 1.213, Teemu Raatikainen
1.273, Kai Virtanen 1.133.
3. Svíþjóð 2.............. 3.596
Ulf Hámnás 1.277, Raymond Jansson
1.237, Stefan Falkháll 1.082.
4. Noregur 1..................3.552
Tore Nordermoen 1.217, Tore Torgersen
1.195, Per Kristian Eide 1.140.
5. Finniand 1..................3.538
Lasse Lintilá 1.198, Olli Hossi 1.183, Mika
Lahti 1.157.
6. Danmörk 1..................3.525
Bo Jarlström 1.176, Morten Christoffersen
1.166, Lars Nielsen 1.184.
7. Danmörk 2..................3.425
Anders N. Jensen 1.175, Carsten Overbeck
1.174, Martin Bogehave 1.076.
8. Noregnr2...................3.365
Sverre Lund 1.184, Glenn Hagmansen
1.181, Svein Morten Solberg 1.050.
9. ísland 1................. 3.354
Valgeir Guðbjartsson 1.159, Ásgeir Þór
Þórðarson 1.079, Halldór Ragnar Halldórs-
son 1.116.
10. fsland 2..................3.152
Ingi Geir Sveinsson 1.024, Jón Helgi Braga-
son 10.89, Björn Guðgeir Sigurðsson 1.059.
EINLIÐALEIKUR KARLA - staðan efstu
manna eftir tvo keppnisdaga:
Teemn Raatikainen, Finnlandi...2.668
Patrik Johansson, Svíþjóð.....2.563
Thomas Leandersson, Sviþjóð...2.513
Þrímenningur, kvennaflokkur — úrslit:
1. Noregur 1.......................
Ingunn 0ien 1.228, Tina Gudmundsen
1.075, Mette Hansen 1.093.
2. Finnland 1.................3.379
Pauliina Aalto 1.199, Anu Peltola 1.070,
Leena Pulliainen 1.110.
3. Svíþjóð 1..................3.305
Eva Nordström 1.115, Carina Eriksson
1.123, Christina Dahlgren 1.067.
4. Svíþjóð 2..................3.299
Jeanette Johansson 1.082, Jessica Olsson
1.090, Ása Larsson 1.127.
5. Noregur2................. 3.297
Irene Hansen 1.161, Britt Östlund 1.122,
Trund Arnesen 1.014.
6. Danmörk2...................3.286
Bettina Lund 1.043, Trine Simonsen 1.150,
Helle Jakobsen 1.093.
7. Finnland 2.................3.286
Jaana Puhakka 1.154, Reija Lundén 1.111,
Tuija Saari Hossi 1.021.
8. Danmörkl...................3.163
Jette Bergendorff 1.120, Iben Tchu 985,
Malene Möller Nielsen 1.058.
9. ísland 1...................3.123
Guðný Helga Hauksdóttir 1.024, Elín Ósk-
arsdóttir 1.145, Ágústa Þorsteinsdóttir 954.
10. fsland 2..................2.864
Sólveig Guðmundsdóttir 998, Heiðrún Bára
Þorbjörnsdóttir 950, Ragna Matthíasdóttir
916.
EINLIÐALEIKUR KVENNA - staða
efstu manna, eftir tvo keppnisdaga:
Pauliina Aalto, Finnandi......2.517
Trine Simonsen, Danmörku......2.459
Ingunn Oien, Noregi...........2.342
__
I dag
NM í keilu
Keppni í 5-manna liði. Fyrsta lota,
þrír leikir, karla og kvenna, kl. 9.30-
12.30. Önnur lota, þrír leikir, kl.
13.30 til 16.30. Úrslit þriggja efstu
sveitanna kl. 17 til 18.30. Verðlauna-
afhending kl. 18.45.
Badminton
Meistaramót íslands i badminton
hefst í Laugardalshöll í dag kl. 17.00
með keppni í meistaraflokki og A-
flokki. Mótinu verður síðan fram-
haldið á morgun, laugárdag frá kl.
09.00 til 12.00 og lýkur síðan með
úrslitaleikjum sem hefjast kl. 14.00
á sunnudag.
í kvöld
Körfuknattleikur
Úrvalsdeild:
Stykkish.: Snæfell - UMFG.kl. 20
Strandg: Haukar - Tindast.kl. 20
1. deild kvenna:
Kennaraskóli: ÍS-ÍR.....kl. 20
Handknattleikur
2. deild karla:
Framhús: Fram-ÍBV.......kl. 20
Bestu lið landsins
mætast í kvennaflokki
Ekkert verður gefið eftir í Laug-
ardalshöllinni á morgun þeg-
ar tvö sterkustu handknattleikslið
kvenna á íslandi leiða saman hesta
sína í úrslitaleik bikarkeppni HSÍ,
sem hefst klukkan 13.30. Það
verða lið Fram úr Safamýrinni og
Stjörnunnar úr Garðabæ. Liðin
hafa tvívegis mæst í 1. deildinni
í vetur og hafði Stjarnan betur í
bæði skiptin með 16:15 sigri.
Stjörnustúlkur hafa sjö sinnum
leikið til úrslita í bikarkeppni áður
en aðeins hampað bikamum einu
sinni, þegar liðið vann FH 1989.
Þær hafa tvisvar tapað gegn Val
og þrisvar hefur Fram borið af
þeim sigurorð. Fram aftur á móti
hefur tíu sinnum leikið til úrslita
og alltaf orðið hlutskarpari svo að
reynsla fyrir leik sem þennan ætti
að koma þeim til góða.
Fram teflir fram reynslumiklum
leikmönnum, til dæmis Kolbrúnu
Jóhannsdóttur markverði sem leik-
ið hefur yfir 570 leiki og þaraf 9
bikarúrslitaleiki og ætti það að
vega mikið í leik sem þessum.
Fimm leikmenn eru 30 ára og eldri
og af þeim hafa níu leikið í bikarúr-
slitum áður. Pjarvera Guðríðar
Guðjónsdóttur, sem leikur ekki
meira með liðinu í ár vegna
meiðsla, mun án efa hafa áhrif á
liðið en hún hefur leikið um 460
leiki í 1. deild og alla bikarúrslita-
leikina. Liðið er þó ekki á flæði-
skeri statt því aðrir leikmenn hafa
sýnt í vetur að þegar í harðbakk-
ann slær geta þeir látið til sín taka.
Fimm af leikmönnum Stjörn-
unnar voru með í bikarsigrinum
gegn FH 1989 og þar fer fremst
Guðný Gunnsteinsdóttir fyrirliði
sem leikið hefur alla 7 bikarúr-
slitaleikina og 323 leiki í 1. deild.
En leikreyndust í Stjörnuliðinu er
Margrét Theódórsdóttir með yfir
500 leiki. Sex leikmenn eru að
spreyta sig í fyrsta sinn en fjórir
leikmenn eru 30 ára og eldri. Hins
vegar hefur liðið marga leikmenn
til taks og þegar sígur á seinni
hlutann getur það skipt öllum
máli. Óvíst er um þátttöku tveggja
leikmanna, Laufeyju Sigvaldadótt-
ur og Erlu Rafnsdóttur en þær
hafa báðar átti við meiðsli að stríða
í vetur og segir Magnús Teitsson
þjálfari að ákvörðun um hvort þær
spili verði ekki tekin fyrr en á leik-
degi.
■ OLEG Salenko, Rússinn sem
varð frægur fyrir að gera fimm
mörk í einum leik á HM í Banda-
ríkjunum, hefur lýst yfir áhuga á
að leika í Japan. Salenko leikur
með Valencia á Spáni en liðinu
hefur gengið illa undir stjórn brasil-
íska þjálfarans Carlos Alberto
Parreira. Salenko gagnrýnir þjálf-
arann harðlega í blaðaviðtali á
Spáni í gær. „Þó að við höfum
ekki unnið leik síðan 29. október
hefur Parreria ekki hugsað um að
breyta leikskipulaginu. Markmiðið
er alltaf það sama — að halda knett-
inum og byggja upp frá vörninni.
Við erum oft en ekki með tíu leik-
menn á okkar eigin vallarhelmingi,“
segir Salenko.
■ MARK Hughes verður í herbúð-
um Manchester United út þetta
keppnistímabil, segir Alex Fergus-
son framkvæmdastjóri félagsins.
Vangaveltur hafa verið uppi um að
hann væri að förum frá félaginu.
„Það kemur ekki til greina að Mark
fari núna þegar Eric Cantona hef-
ur verið settur í leikbann. Við von-
umst einnig eftir að hann verði
áfram hjá félaginu næsta tímabil,“
sagði Ferguson.