Morgunblaðið - 04.02.1995, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1995 C 7
Beaiwás Sami Teahter
ERIC Ericson Hákan Hagegard Per Norgárd
Hallgrímsson, J. Sandström og
J. Sibelius. Stjórnandi er Tuomas
Ollila.
Kroumata og Manuela Wiesler
halda tónleika í íslensku óperunni
19. mars. Á efnisskránni verða
verð eftir J. Cage, S.D. Sands-
tröm, G. Katzer og R. Wallin.
Tónleikar Kroumata einkennast
af fágaðri tónlist og hafa þeir
fengið góðar móttökur á hljóm-
leikaferðalögum um Norðurlönd,
Evrópu, Bandaríkin og Japan,
Indlandi og Tæwan.
Ljóðatónleikar Hákans Hage-
gárd barítónsöngvara verða í Is-
lensku óperunni 19. mars og El-
isabeth Boström leikur á píanó.
Hákan er meðal þekktustu tón-
listarmanna Norðurlanda í dag
og hefur sungið víða um heim.
Elisabeth Boström píanóleikari
hlaut fyrstu verðlaun í Wilhelm
Freund-keppninni við Konung-
legu tónlistarakademíuna í Sví-
þjóð 1991.
Leikhús - Ópera - Dans
Leikhópurinn Café Kolbert
verður á Hótel Borg 11. febrúar
og í Þjóðleikhúskjallaranum 13.
febrúar. Leikhópurinn kemur
fram á kaffihúsum og muna
eflaust margir eftir þeim frá
Listahátíð á síðastliðnu sumri.
Leikhópurinn Ylioppilaseatteri
frá Finnlandi flytur leiksýninguna
Makhnovitshina í Leikhúsi frú
Emilíu 23. og 24. febrúar. Höf-
undur og leikstjóri er Esa Kirk-
kopelto. í sýningunni segir frá
andspyrnuhreyfingu bænda í
Úkraínu á árunum 1918-1921,
sem einmitt hefur fengið nafið
Makhnovitshina eftir leiðtoga
uppreisnarinnar, anarkistanum
Nestor Makhno.
Samíska leikhúsið Beaivvás
Sámi Teáhter kemur með
Skuggavald eftir Inger Margrethe
Olsen í leikstjórn Hauks J. Gunn-
arssonar í Þjóðleikhúsinu 26.
febrúar. Frá stofnun leikhússins
árið 1981 hefur Beaivvás Sámi
Teáhter breyst úr litum fijálsum
leikhópi með laustengdum með-
limum í að vera samískt þjóðleik-
hús og viðurkennt sem slíkt á
alþjóðavettvangi.
Sami leikhópur mun einnig
flytja sýninguna „Þótt hundrað
þursar“ hjá Leikfélagi Akureyrar,
íþróttaskemmunni á Akureyri, 4.
mars. Höfundur verksins er Knut
Walle - Beaiwás og leikstjóri er
Knut Walle.
í Listaklúbbi Þjóðleikhú-
skjallarans 27. febrúar ræðir
Haukur Gunnarsson um vinnu
sína með sömum í Noregi og sa-
mískir listamenn flytja atriði úr
„Þótt hundrað þursar“.
Borgarleikhúsið frumsýnir 4.
mars Dökku fiðrildin eftir Leenu
Lander. Leikstjóri er Eija-Elina
Bergholm. Saga Lander um
Dökku fiðrildin kom út fyrir þrem
árum og hlaut mikið hrós, hún
fjallar um Juhani Juhansson sem
á von á stöðuhækkun í fyrirtæk-
inu þar sem hann hefur lengi
unnið. Síðan er rifjuð upp bernska
Juhanis, tildrög þess að hann var
sendur á hæli, sterkar tilfinning-
ar, miskunnarleysi og hjálpar-
leysi.
Norska óperan frumsýnir síðan
„Sirkusinn guðdómlega" í
Borgarleikhúsinu 9. mars og önn-
ur sýning verður daginn eftir.
Höfundurinn er Per Norgárd,
leikstjóri Per Fosser og Tore
Dingstad stjórnar. Sirkusinn var
frumfluttur af jósku óperunni
1983, en þetta er ný uppfærsla.
Óperan er í tveim þáttum og lýs-
ir á óhefðbundinn hátt með gam-
ansemi og alvöru hið undarlega
SLAGVERKSHÓPURINN
Kroumata
og sorglega lífshlaup Adolfs
Wölfli (1864-1930). Eftir ömur-
lega barnæsku var hann lagður
inn á geðveikraspítala þar sem
hann geymdur til dauðadags 35
árum seinna. Á spítalanum teikn-
aði hann og samdi ljóð og tón-
verk, skapaði sér nýja persónu
og nýja æsku.
Danskur, íslenskur og sænskur
dans verður á fjölum Þjóðleik-
hússins 7. og 8. mars. Granhoj
Danseteater sýnir HHH og Sallin-
en sem eru hluti af stærra verki,
Bodyfluid, eftir Palle Granhoj,
HHH er erótísk dansmynd byggð
á ljóðaljóðum Salomons og Sallin-
en hreyfilistaverk fyrir fjóra
strengjaleikara og einn dansara.
íslenski dansflokkurinn sýnir síð-
an Evridís, nýjasta verk Nönnu
Ólafsdóttur við tónlist Þorkels
Sigurbjörnssonar. Til Láru heitir
lokaverkið eftir Per Jonsson, einn
framsæknasta og eftirsóttasta
danshöfund Svía af jngri kynslóð.
Verkið er samið fyrir Láru Stef-
ánsdóttur dansara.
Dansverk frá Finnlandi og Nor-
egi verða í Borgarleikhúsinu 21.
og 22. mars. Kenneth Kvarnström
frá Finnlandi er höfundur verk-
anna „...and the angels began to
scream..." og Carmen?! Hann
stofnaði eigin dansflokk í Stokk-
hólmi 1987 og er nú þekktur víða
um lönd. Ina Christel Johanness-
en frá Noregi teflir fram sínu
nýjasta verki, „Absence de fer“,
en heitið kemur úr skylminga-
máli og merkir það þegar and-
stæðingurinn er lokkaður til árás-
ar. Dansflokkur höfundarins,
Scirocco, frumflutti verkið í
Stokkhólmi í haust að lokinni
spunavinnu með Inu Christel tón-
skáldi og höfundum leikmyndar
og ljósa.
Leikritið Tangð í
Nemendaleikhúsinu
Alþjóðlega kvennalistasýningin
er sú fjórða í röð hópsýninga sem
settar hafa verið upp í sýningar-
sal Art Addiction. Á síðasta ári
voru auk hennar settar upp tvær
sýningar; alþjóðleg sýning á smá-
myndum (miniature), þar sem
þátttakendur voru hundrað og
fjörutíu frá þrjátíu löndum og al-
þjóðleg grafíklistasýning, með
hundrað þátttakendum frá tutt-
ugu og fimm löndum. Eigendur
gallerísins eru að vonum ánægðir
með árangurinn, þeim finnst vera
mikill og vaxandi áhugi á sam-
tímalist og telja að sá áhugi sé
ekki bara bundinn við listamenn-
ina sjálfa heldur sé hann að finna
hjá almenningi. Marta og Petru
eru full bjartsýni og segja það
endurspeglast í miklum fjölda
þátttakenda. Velgengni þeirra
hefur hvatt þau áfram til að
skipuleggja fleiri alþjóðlegar sýn-
ingar og ráðgera þau að halda
sýningu á smámyndum í október,
grafíklistasýningu í nóvember og
aðra kvennalistasýningu í desem-
ber og janúar á næsta ári.
Það eru alþjóðlegir straumar
sem leika um sýningarsal gallerís-
ins og starfsemi Art Addiction.
Aðspurð segjast Marta og Petru
Russu vera mjög ánægð með
heildarmynd sýningarinnar.
„Framlag hvers listamanns er
virðingarvert, því enginn hefur
reynt að nota þetta tilefni til að
lýsa mismun, þjóðlegum einkenn-
um eða ólíkum hugsunarhætti.
Þvert á móti hafa flestir gefið list-
inni þá sameiginlegu merkingu
sem hún hefur alltaf tjáð og tákn-
að: réttinn til frelsis, hugsunar
og vonar. Hinn ótrúlegasti fjöldi
hugmynda og litskrúðugur fjöl-
breytileiki þeirra hljóma saman á
táknrænan hátt á veggjum sýn-
ingarsalarins. Að þessu leyti hef-
ur ábyrgð og mikilvægi listrænna
samskipta aldrei verið eins aug-
ljóst og nú á tímum og vonandi
verður svo áfram um ókomna
framtíð,“ segja þau að lokum.
Sýningin The First Internati-
onal Biennial of Female Artists
Art stendur yfir frá 20. desember
til 10. febrúar og fyrir þá íslend-
inga sem eiga leið um Stokkhólm
er rétt að benda á staðsetningu
gallerísins, en hún er: Högbergs-
gatan 32, S-11620 Stockholm.
Jón Özur Snorrason
Höfundur vinnur við
blaðamennsku.
NEMEND ALEIKHÚ SIÐ hefur
frumsýnt leikritið Tangó eftir eitt
vinsælasta leikritaskáld Pólveija,
Slawomir Mrozek, í þýðingu Bríet-
ar Héðinsdóttur og Þrándar Thor-
oddsens.
I fréttatilkynningu segir að:
„Tangó sé vinsælasta nútímaleik-
rit sem hafi verið skrifað í Pól-
landi. Það var fært upp hjá Leikfé-
lagi Reykjavíkur fyrir 30 árum við
mikla aðsókn og er nú sýnt í styttri
útgáfu, ýmislegt tekið út sem átti
við tíðaranda þess tíma sem leik-
ritið er skrifað á, en ýmsu bætt
inn í, svo sem dansi og söngvum.
Nemendaleikhúsið hefur að
þessu sinni fengið til liðs við sig
tvo gestaleikara, þau Jórunni Sig-
urðardóttur og Pólveijann Jasek
Godek frá Borgarleikhúsinu í
Gdansk.
Leikstjórn verksins er í höndum
Kjartans Ragnarssonar en Hlín
Gunnarsdóttir sér um leikmynd
og búninga. Vegna eðlis Nem-
endaleikhússins er sýningafjöldi
takmarkaður og oftar en ekki hef-
ur verið uppselt á allar sýningar
leikhússins og hafa færri komist
að en vildu. Ber því að brýna fyr-
ir fólki að tryggja sér miða í tíma.
Tangó er annað verkefni vetrarins
hjá útskriftarhópi Leiklistarskóla
íslands, sýnt í Lindarbæ, Lindar-
götu 9, og hefjast sýningar kl. 20.
Önnur sýning á Tangó verður
á morgun, sunnudag 5. febrúar,
og síðan verður sýnt sem hér seg-
ir: Fimmtudaginn 9. febrúar, laug-
ardaginn 11. febrúar, sunnudag-
inn 12. febrúar, fimmtudaginn 16.
febrúar, laugardaginn 18. febrúar
og sunnudaginn 19. febrúar.
MEWNING/LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Listasafn Islands
Sýningin Stofngjöfin til 5. feb.
Kjarvalsstaðir
Yfiriitssýn. um ísl. leirl. í 65 ár. Myndir
Jóhannesar Kjarvals úr eigu safnsins.
Asmundarsafn
Samsýn. á verkum Ásmundar Sveinss.
og Jóhannesar S. Kjarval til 14. maí.
Norræna húsið
Sýn. 3x Nielsen, arkitektúr til 20.
febrúar og í anddyri, málverkasýn.
Sven Wiig Hansen til 5. mars.
Safn Ásgríms Jónssonar
Vatnslitam. Ásgríms til marsloka.
Gallerí Úmbra
Gestur Þoigrímss. sýnir höggmyndir og
ljóð tíl 22. feb.
Gallerí Sævars Karls
Erlingur P. Ingvarsson sýnir til 23. feb.
Hafnarhúsið
Kristján Jónsson sýnir til 12. feb.
Listasafn íslands
Sýningin Ný aðföng II til 19. mars.
Gallerí Greip
Julian Waters sýnir til 5. feb.
Gerðuberg
Hafdís Helgadóttir sýnir til 12. feb.
Café 17
Dósla sýnir til 14. feb.
Nýlistasafnið
Gretar Reyniss. sýnir til 12. feb. og
Ger C, Bout sýnir í setustofu til 12 feb.
Hafnarborg
Grafíkverk Gunnars Á. Hjaltasonar til
20. feb., einnig sýnir Auður Vésteins-
dóttir myndvefnað.
Listasafn ASÍ
Hallsteinn Sigurðss. myndhöggvari
sýnir jámmyndir til 19. feb.
Hafnarhúsið
Kristján Jónsson sýnir til 12. feb.
Gerðarsafn
Sýn. Málverk til 12. feb.
Gallcrí Stöðlakot
Hanna Gunnarsd. sýnir til 12. feb.
Gallcrí Sólon Islandus
Lísbet Sveinsdóttir sýnir til 20. feb.
II hæð, Laugavegi 37
Roger Aekling sýnir til febrúarioka.
TONLIST
Sunnudagur 5rifebrúar
Tónl. málmbl. og slagverksmanna Sin-
fóníuhlj. Ísl.í Langholtskirkju kl. 17.
Við slaghörpuna í Listasafni Kópavgos
- Gerðarsafni kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Taktu lagið, Lóa! sun. 5. feb., mið., fös.
Oleanna sun. 5. feb., fös.
Fávitinn sun. 5. feb., fös.
Snædrottningin sun. 5. feb., sun.
Gauragangur lau. 11. feb.
Gaukshreiðrið lau. 4. feb., fím.
Borgarleikhúsið
Söngleikurinn Kabarett lau. 4. feb.,
sun.m mið., fim., fös.
Leynimelur 13 lau. 11. feb.
Óskin (Galdra-Loftur) sun. 12. feb.
Ófælna stúlkan sun. 5. feb., fim.
Islenska óperan
La Traviata frums. fös. 10. feb.
Frú Emilía
Kirsubeijagarðurinn sun. 12. feb. kl.
15.
Kaffilcikhúsið
Alheimsferðir Erna 2. sýn. 11. feb.
Leggur og skel lau. 4. feb. kl. 15.
Skilaboð til Dimmu lau 4. feb. kl. 21.
Nemendaleikhúsið
Tangó, sun. 5. febr., fím., lau.
Leikfélag Akureyrar
Óvænt heimsókn lau. 4. feb., fös.
Á svörtum fjörðum mið. 8. feb., lau.
BarPar í Þorpinu þri. 7. feb., fim.
Leikfélags Mosfellssveitar
Mjallhvít og dvergarnir sjö í Bæjarleik-
húsinu lau. 4. feb., sun.
Ævintýrið um Reykjalund lau. 4. feb.,
sun., mið., lau.
Leikfélag Hafnarfjarðar
Leiðin til hásætis lau. 4. feb., fim.
LISTAKLÚBBUR
Leikhúskjallarinn
Ljóðleikhúsið kl. 20.30. Birgir Svan
Símonarson, Ásgeir Kristinn Lárusson,
Þórunn Bjömsdóttir og Þorsteinn frá
Hamri lesa úr verkum sínum. Baldur
Óskarsson flytur erindi um Ingimar
Erlend Sigurðsson og Ingimar Erlend-
ur les ljóð sín ásamt Karli Guðmunds-
syni leikara.
KVIKMYNDIR
Norræna húsið
Kvikmyndasýning fyrir böm kl. 14;
Fjórar teiknimyndir um Einar Áskel.
Sænskt tal.
MÍR
„26 dagar í lífi Dostojevskís" kl. 16.
Umsjónarmenn listastofnana og
sýningarsala!
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er eftir að birtar verði í þessum dálki
verða að hafa borist bréflega fyrir kl.
16. á miðvikudögum merktar: Morgun-
blaðið, menning/listir, Kringlunni 1,
103 Rvk. Myndsendir: 91-691181.