Morgunblaðið - 04.02.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
4-
BADMINTON
SKAUTAR / EVROPUMEISTARAMOTIÐ I LISTHLAUPI
SKIÐI
1995
LAUGARDAGUR 4. FEBRUAR
BLAD
Fyrsti Evrópu-
titill Finna
í ísdansi
SKAUTAPARIÐ, Susanna
Rahkamo og Petri Kokko,
urðu í gær fyrstu Evrópu-
meistarar Finna í ísdansi.
„Þetta er lygilegt. Ef okkur
tekst að vinna heimsmeist-
aratitilinn I næsta mánuði
verður þetta fullkomið ár,“
sagði Kokko eftir sigurinn
í Dortmund í gær. Þau döns-
uðu fyrst rólega undir lagi
Bítlanna „Yesterday“ og
settu svo á fulla ferð við
lagið „A Hard Day’s Night“
og slógu í gegn.
Fyrr um daginn var fyrri
hlutinn í einstaklingskeppni
kvenna. Þar bar það helst
til tíðinda að franski Evr-
ópumeistarinn Surya Bona-
ly varð að sætta sig við ann-
að sætið á eftir Olgu
Markovu frá Rússlandi. En
Bonaly á enn eftir síðari
hluta keppninnar, frjálsu
æfingarnar í dag, svo ekki
er öll nótt úti enn. Markova,
sem er 21s árs og kemur frá
St Pétursborg sagði að æf-
ingarnar hafi heppnast full-
komlega og að henni liði
vel. En á hún von á því að
vinna gullverðlaunin? „Já,
kannski. Ég er í góðri æf-
ingu og hef ágætt forskot."
Markova best
RÚSSNESKA skautastúlkan
Olga Markova stal senunni fyrri
keppnisdaginn í listhlaupi
kvenna á Evrópumeistaramótinu
í Dortmund í gær. Úrslitin ráð-
ast eftir fijálsu æfingarnar í dag.
Morgunblaðið/Sverrir
Tryggvl Nielsen sýndl góða takta á mótlnu
í gœr og verður að teljast tll alls líklegur.
Brynja vann
Vigdísi óvænt
MEISTARAMÓT íslands í badminton hófst í
Laugardalshöll í gærkvöldi. Úrslitin voru nokkuð
eftir bókinni í fyrstu umferð í meistaraflokki.
Óvæntustu úrslitin voru þó í einliðaleik Vigdísar
Ásgeirsdóttur úr TBR og Brynju Pétursdóttur
úr IA, sem lauk með sigri Brynju 11-7 og 11-3.
Önnur úrslit í einliðaleik kvenna voru þau að
Elsa Nielsen, TBR, vann Birnu Guðbjartsdóttur,
ÍA, 11-0 og 11-0. Bima Petersen úr TBR vann
Drífu Harðardóttur úr ÍA, 11-4 og 11-7 og loks
vann Guðrún Júlíusdóttir, TBR, Margréti Dan
Þórisdóttur úr TBR, 11-4 og 11-0. Elsa og Birna
mætast í undanúrsljtum í dag og sömuleiðis
Guðrún og Brynja. í tvíliðaleik karla unnu ís-
landsmeistararnir Broddi Kristjánsson og Ámi
Þór Hallgrímsson þá Árman Þorvaldsson og Ást-
vald Heiðarsson 15-9, 15-2, í fyrstu umferð.
Tryggvi Nielsen og Njörður Ludvigsson unnu
Guðmund Adolfsson og Jónas Huang 15-2 og
15-7.
HANDKNATTLEIKUR
Ýmislegt farið
að gefa sig
RÓÐURINN gæti orðið Fram þungur í bikarúr-
slitaleiknum í kvennaflokki í dag þar sem ein
sterkasta stoð liðsins, Guðríður Guðjónsdóttir,
leikur ekki með. Hún slasaðist sem kunnugt er
á hægri hendi þegar liðband slitnaði í leik gegn
Stjörnunni fyrir skömmu og verður frá í að
minnsta kosti 7 vikur. Eftir uppskurð í á mánu-
daginn taka við 4 vikur í gifsi og síðan 2 vikur
í spelkum en þá á eftir að æfa upp hendina. Það
er því ljóst að Guðríður verður ekki meira með
Framliðinu í vetur en er hún að hætta? „Því get
ég ekki svarað því ég og Kolla [Kolbrún Jóhanns-
dóttir, markvörður] ætluðum að vera hættar fyr-
'ir löngu. Ég er búin að spila í 19 ár og það er
ýmislegt farið að gefa sig eftir 19 ár í boltan-
um,“ sagði Guðríður en á þessum tíma hefur hún
ekki misst af einum einasta leik vegna meiðsla
fyrr en nú. Hún tekur einungis þátt í leiknum í
dag sem þjálfari.
Kristinn keppir í Kóreu
ristinn Bjömsson, skíðamaður
frá Ólafsfirði, keppir á alþjóð-
legu stigamóti (FIS) í Kóreu um
miðjan mánuðinn. Skíðasambandi
íslands barst á dögunum boð frá
kórenska skíðasambandinu um að
senda keppanda og fararstjóra á
mótið í Kóreu Islendingum að kosn-
aðarlausu. Eina skilyrðið sem
Kóreumenn settu var að keppand-
inn yrði að vera innan við 200 á
heimslistanum í svigi karla og var
Krisinn sá eini sem uppfyllti það.
Skíðasambandið sendi skeyti til
Kóreu þar sem tilkynnt var að boð-
inu yrði tekið og Kristinn yrði full-
trúi íslands í keppninni. Með honum
fer Friðrik Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Skíðasambandsins.
Þeir halda til Kóreu 17. febrúar.
„Þetta er kostaboð og sjálfsagt
að þekkjast það. Kristinn er tilbúinn
að fara til Kóreu og segist vita um
sterka norska skíðamenn sem ætla
að mæta í mótið. Við fáum flugferð-
ir, gistingu og allt uppihald frítt,“
sagði Friðrik í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Kristinn er í Austurríki þar sem
hann hefur æft í vetur ásamt félög-
um sínum í íslenska landsliðinu.
Hann átti að keppa á heimsmeist-
aramótinu í Sierra Neada á Spáni,
en þar sem því hefur verið frestað
kemur þetta boð á besta tíma fyrir
hann.
Kristlnn Björnsson
HAIMDKIMATTLEIKUR: BIKARÚRSLIT / D3