Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 B 3 KNATTSPYRNA ■ ROY Aitken byijaði vel sem yfir- þjálfari Aberdeen og fagnaði 2:0 sigri gegn meisturum Rangers. Billy Dodds og Duncan Shearer gerðu mörkin, en þetta var fyrsta tap Rangers í síðustu 16 leikjum. ■ RONALDO frá Brasilíu átti stórleik þegar PSV vann Vitesse 3:2 í hollensku deildinni um helg- ina. Táningurinn gerði eitt mark og er markahæstur með 15 mörk eins og Patrick Kluivert hjá Ajax auk þess sem hann lagði upp þriðja markið. ■ BART Latuheru lék fyrsta leik sinn með Vitesse og kom liði sínu á bragðið. Hann tók stöðu Glens Helders, sem á í viðræðum við Ars- enal um hugsanleg félagaskipti. ■ FLORLAN Maurice gerði öll mörk Lyon í 3:1 sigri gegn Lille í frönsku deildinni. ■ SPORTING tapaði 1:0 heima gegn Estrela da Amadora og var þetta fyrsta tap liðsins í portúgölsku deildinni á tímabilinu. ■ ROMARIO lék fyrsta deildarleik sinn með Flamengo í Brasilíu og stóð ekki undir væntingum en liðið gerði markalaust jafntefli við Flum- inense um helgina. ■ ROMARIO var í stöðugri gæslu allan tímann og átti aðeins eitt skot að marki en 99.000 áhorfendur komu til að sjá kappann. Reuter ÞÝSKI landsllðsmaðurinn Jiirgen Kllnsman hjá Tottenham hefur betur gegn Scott Minto og Frank Sinclalr hjá Chelsea. Eric Cantona réðst á fréttamann sjónvarps Breskur sjónvarpsfréttamaður greindi frá því um helgina að Eric Cantona hefði ráðist á sig á baðstcönd í Karíbahafinu á l’aug- ardag. Fréttamaðurinn sagði að Cantona hefði ráðist á sig þegar hann spurði knattspymumanninn um lögreglurannsóknina í Englandi vegna árásar Cantona á áhorfanda fyrir skömmu. „Hann kom að mér, tók um hálsinn á mér og reyndi að draga mig í burtu. „Komdu með mér, ég vil tala við þig,“ sagði hann að Cantona hefði sagt. Hann sagði að þegar Cantona hefði gert sér grein fyrir að tökumaður væri að mynda þá hefði hann sleppt sér og tekið utan um axlimar á töku- manninum. „Allt í einu hjjóp hann að mér, stökk upp í loft og sparkaði í bijöstkassann á mér. Ég datt, hann benti á mig og sagði: „Ég ætla að drepa þig.““ Fréttamaðurinn sagðist hafa kall- að á lögreglu og látið hana fá spól- una en vitni hefðu verið til staðar. Cantona er með fjölskyldu sinni í frii og lét ekki sjá sig þegar hann átti að mæta þjá lögreglunni í Englandi s.l. miðvikudag vegna fyrrnefnds máls á knattspymuvell- inum. Gordon Taylor, formaður ensku leikmannasamtakanna, sagði' að árásin á fréttamanninn bætti ekki stöðu Cantonas en hann á að mæta hjá aganefnd knatt- spymusambandsins 24. febrúar. Manchester United setti Frakk- ann í bann út tímabilið og sektaði hann um 20.000 pund en Frakkar tóku fyrirliðastöðuna af honum í landsliðinu og ætla ekki að láta hann spila meira á þessu tfmabili. Blackbum á fleyglierð Manchester United hafði gott af afslöppun á Spáni fyrir nágrannaslaginn við Manchester City í ensku deildinni á laugardag og vann 3:0 en meistaramir hafa aðeins tapað einum leik af síðustu 19 í deildinni. Paul Ince, Andrei Kanchelskis og Andy Cole skoruðu í seinni hálfleik. City hefur ekki sigrað United í deildinni í sex ár en liðið mátti sætta sig við 5:0 tap á Old Traf- ford í nóvember sem leið. Alex Ferguson, yfirþjálfari United, sagði að Brian Horton vildi láta lið sitt spila vel en það hefði ekki uppskorið eins og til hefði verið sáð. „Ég gerði nokkrar breytingar í seinni hálfleik og við áttum skilið að fá öll stigin," sagði hann og hældi Cole sérstaklega. „Staðsetn- ingar hans voru frábærar, hann var alltaf á ferðinni og stöðugt skapandi, lagði upp markið fyrir Ince og gerði eitt sjálfur." Blackbum lét framgöngu United ekki slá sig út af laginu og vann Sheffield Wednesday 3:1. Kevin Pressman, markvörður Sheffield handlék boltann utan vítateigs á 44. mínútu og var vikið af velli. Fyrirliðinn Tim Sherwood kom liði sínu á bragðið með marki af 30 metra færi um miðjan fyrri hálfleik. Chris Waddle jafnaði skömmu síðar en en Mark Atkins kom Blackbum aftur yfír eftir sendingu frá Alan Shearer. Shear- er innsiglaði síðan sigurinn um miðjan seinni hálfleik með 28. marki sínu á tímabilinu, skallaði í netið eftir sendingu frá Norðmann- inum Henning Berg. Þetta var fyrsta tap Wednesday í 12 síðustu leikjum. Newcastle lék vel og vann Nott- ingham Forest 2:1. Liverpool átti í erfiðleikum með QPR og varð að sætta sig við 1:1 jafntefli á heimavelli. Wimbledon komst yfír gegn Aston Villa en síðan fóru leikmenn Villa í gang og unnu 7:1. Tom Johnson, sem Villa keypti frá Derby fyrir fímm vikum, opnaði markareikning sinn hjá félaginu og gerði þijú mörk á 16 mínútum í fyrri hálfleik. Arsenal hefur ekki sigrað á Highbury síðan 23. október en að þessu sinni gerði liðið 1:1 jafntefli við botnlið Leicester. Paul Merson skoraði fyrir heimamenn en Mark Draper jafnaði úr fyrstu sókn gest- anna 12 mínútum fyrir leikslok. Ian Selley, miðjumaður Arsenal, lenti í samstuði við Draper í byijun leiks og fótbrotnaði. Tottenham var á góðu róli eftir að Teddy Sheringham hafði skorað eftir átta mínútna leik gegn Chelsea en Dennis Wise jafnaði fyrir heimamenn undir lokin. Chelsea hefur ekki tapað gegn Spurs í fímm ár. Coventry færðist úr fallsæti við 2:0 sigur gegn Crystal Palace en þetta var fyrsti sigur liðsins í síð- ustu 11 leikjum. Bandaríkjamaður- inn Cobi Jones og Dion Dublin skoruðu á síðustu 15 mínútunum. Southampton komst í 2:0 gegn Norwich en rétt eftir að Jim Magil- ton hafði gert annað mark gest- anna minnkaði Jon Newsome mun- inn og Ashley Ward jafnaði á síð- ustu sekúndunum. Richard Hall kom Southampton á bragðið, en Alan Ball, yfírþjálfari Southamp- ton, sagði að Le Tissier ætti sök á því að stig töpuðust. „Matt olli mér vonbrigðum. Þegar enskur landsliðsmaður fær boltann í djúp- inu á eigin vallarhelmingi gerir maður ráð fyrir að hann geri réttu hlutina. Hann var mjög kærulaus og fyrra mark þeirra kom í kjölfar- ið. Mörk breyta leikjum. Mark hegðaði sér óatvinnumannslega og hann fékk að heyra það frá mér í hléinu. Hann átti það skilið. Það átti að koma boltanum í burtu af hættusvæðinu en herra Le Tissier var að leika sér í horninu." Norwich fékk homspymu og markið kom upp úr henni. Le Tissier hefíir verið með flensu og honum var skipt út af 14 mínút- um fyrir leikslok. „Hahn er ekki búinn að ná sér,“ sagði Ball. „Hann var ekki fullfrískur en ég ákvað að láta hann spila því hann er sá besti.“ Knattspyman á að sam- eina okkur en ekki sundra Enn stór skellur hjá Barcelona SAMHUGUR ríkti á meðal leikmanna ítölsku deildarinnar og fyr- ir leiki helgarinnar lásu fyrirliðarnir upp yfirlýsingu þar sem áhorf- endur voru beðnir um að sameinast gegn ofbeldi á knattspyrnu- völlum. „Knattspyrnan á að sameina okkur en ekki sundra,“ sagði Roberto Mancini, fyrirliði Sampdoria, á vellinum í Genúa þar sem áhorfandi var stunginn til bana 29. janúar. Juventus hélt þriggja stiga for- ystu í deildinni með 2:0 sigri í Bari. Alessandro Del Piero skoraði úr vítaspymu á 40. mínútu og Ciro Ferrara innsiglaði sigurinn á 89. mfnútu. Robert Jarni hjá Juve og Amedeo Mangone hjá Bari fengu að sjá rauða spjaldið. Parma vann Padova 1:0 og er i öðm sæti. Gianfranco Zola tryggði sigurinn með marki á 71. mínútu. Roma vann Inter 3:1 og færðist í þriðja sætið. Abel Balbo frá Arg- entínu gerði öll mörk Roma. Landi hans, Gabriel Batistuta, gerði tvö mörk í 3:1 sigri Fiorent- ina gegn Genúa og er kominn með 17 mörk. AC Milan náði aðeins jafntefli á heimavelli gegn Cagliari. Rang- stöðugildra heimamanna gekk ekki upp á 13. mínútu og Roberto Muzzi skoraði framhjá Sebastiano Rossi í markinu. Valerio Fiore stóð sig vel í marki gestanna og Marco Simone skuat tvisvar í rammann áður en varnarmaðurinn Christian Panucci jafnaði með skalla á 52. mínútu. Argentínumaðurinn Jose Cha- mot hjá Lazio fékk að sjá rauða spjaldið al9. mínútu gegn Tórínó og er þetta í annað sinn á tímabil- inu sem honum er vikið af velli. Tórínó vann 2:0 og fór Lazio niður í fimmta sætið. Sampdoria skaust í fjórða sætið eftir 2:1 sigur gegn Reggiana og hefur ekki verið svo ofarlega í töfl- unni fyrr í vetur. Reuter HOLLENDINGURINN í llðl Lazio, Aron Vlnter, til vinstri reynir að ná boltanum af Frakkanum Abedy Ayew hjá Tórínó.Ayew gerðl fyrra markið í 2:0 sigri. Barcelona mátti sætta sig við 5:0 tap gegn Racing Santander í spænsku deildinni um helgina. Ron- ald Koeman og Miguel Nadal léku ekki með meisturunum vegna meiðsla en liðið hafði undirtökin lengst af í fyrri hálfleik. Á síðustu mínútu hálfleiksins gerði Ferrer mistök sem kostuðu mark og liðið missti móðinn við það. Ferrer og markvörðurinn Carlos Busquets fengu að sjá rauða spjaldið, Ferrer í stöðunni 2:0 og markvörðurinn áður en Racing gerði fímmta mark- ið úr vítaspymu sem dæmd var á hann „Það er kominn tími til að taka erfíðar ákvarðanir," sagði þjálfarinn Johan Cruyff og átti við mannabreytingar. Real Madrid vann Logrones 4:1 og er með fimm stiga forystu í deild- inni en botnlið Logrones hefur ekki sigrað á heimavelli atímabilinu. Daninn Michael Laudrup gerði tvö mörk en Ivan Zamorano frá Chile braut ísinn og er markahæstur með 18 mörk. Deportivo tapaði 3:1 fynr Sporting Gijon, sem hafði tapað 13 leikjum í röð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.