Morgunblaðið - 18.02.1995, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
Kötturinn
fráOld
Trafford
1995
KNATTSPYRNA
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR
BLAD
ÞESSI glæsilega mynd var í gær útnefnd
íþróttamynd ársins 1994 og kemur það
engum á óvart, enda tekin á réttu augna-
bliki — þegar Kötturinn frá Old Traf-
ford, danski landsliðsmarkvörðurinn Pet-
er Schmeichel, stekkur eins og köttur
og nær að koma í veg fyrir að knötturinn
hafnaði i netinu hjá Manchester United.
Það var ljósmyndarinn David Spurden,
starfsmaður hjá Sundy Express, sem festi
þetta augnablik á filmu. Kötturinn verður
í sviðsljósinu á Old Trafford á morgun,
þegar Manchester United mætir Leeds í
5. umferð ensku bikarkeppninnar. Mikil
öryggisgæsla
verður á vellin-
um, þúsund lög-
regluþjónar
verða til staðar.
Ljósmynd/David Spurden
HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Haldið verður upp á 500.
HM-leikinn á Akureyri
STAFFAN Olsson, stórskytta Svía.
„VIÐ erum ákveðnir að
halda upp á fimmhundrað-
asta leikinn í heimsmeist-
arakeppninni á Akureyri —
haldið verður upp á þenn-
an tímamótaleik fyrir leik
Evrópumeistara Svía og
Hvít-Rússa,“ sagði Hákon
Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri HM’95-
nefndarinnar.
Svíþjóð og Hvít-Rússland
mætast í íþróttahöllinni á
Akureyri á öðrum degi HM,
8. maí. „Við erum sammála
að það sé við hæfi að Svíar
leiki þennan tímamótaleik, þar
sem þeir eru þeir einu sem
hafa tekið þátt í öllum þrettán
heimsmeistarakeppnunum
fram til þessa,“ sagði Hákon.
Þess má geta að Svíar léku
fyrsta heimsmeistaraleikinn
— í Deutschland-höllinni í
Berlín 5. febrúar 1938. Mót-
heijar þeirra voru Danir og
lögðu Svíar þá að velli 2:1 í
leik sem stóð yfir í 2x10 mín.
Heimsmeistarakeppnin á ís-
landi stendur yfir í fimmtán
daga — 24 þjóðir taka þátt í
keppninni og verða leiknir 88
leikir. Heimsmeistarakeppnin
1938 var leikinn um helgi, á
tveimur dögum — fjórar þjóð-
ir tóku þátt og voru leiknir
sex leikir.
MAGNUS Wlslander, fyrlrliðl Svía.
Hagi frá
í mánuð
RÚMENSKI knatt-
spyrnukappinn
Gheorghe Hagi,
sem leikur með
Barcelona — togn-
aði illa á vöðva á
vinstri fæti á æf-
ingu í gær — og
verður frá keppni i
mánuð. „Ég finn
mikið til,“ sagði
Hagi, þegar hann
var borinn útaf æf-
ingasvæði Barcel-
ona. Þetta er mikið
áfall fyrir Barcel-
ona, sem hafði láti
Brasilíumanninn
Romario fara og
verður Johan Cru-
yff, þjálfari liðsins,
nú að fara að leita
aðf nýjum leik-
mönnum. Hann
reyndi að fá Brian
Laudrup á dögun-
um, en Daninn af-
þakkaði boð hans.
Þá hafa hollenski
landsliðsmaðurinn
Dennis Bergkamp
þjá Inter Mílanó og
Brasilíumaðurinn
Marcio Santos verið
orðaðir við Barcel-
ona.
í gær voru tveir
aðrir leikmenn
komnir á óskalista
liðsins — franski
miðvallarspilarinn
Christian Ka-
rembeu, sem leikur
með Nantes og hinn
ungu sóknarleik-
maður IFK Gauta-
borgar, Jesper
Blomqvist.
Þess má geta að
Hollenski landsliðs-
maðurinn Ronald
Koeman, sem leikur
með Bracelona, á
við meiðsli að
stríða. Bracelona
leikur fyrri leik
sínn gegn París St.
Germain í 8-liða úr-
slitum meistara-
deildar Evrópu 1.
mars.
■ TOTTENHAM VILL FÁ10/4 MILU. KR. FYRIR GUÐNA BERGSSON / D4