Morgunblaðið - 26.02.1995, Page 1
LEÐURBOLSTRAÐUR VISION OG LITLIBROÐIR NEON - SMIÐIUNDIR-
BÚINÁIMPACTRAFBÍLNUM - VERKSMIÐJA FIATÍMELFIÞAR SEM
PUNTO ER SMÍÐAÐUM - TOYOTA SIGUR VEGARI í KÖNNUN TÚV
Toyota Corolla
1144.000
Corolla Hatchback, 3ja dyra.
Nú geturðu eignastToyota Corolla
á verði frá 1.144.000 kr.
® TOYOTA
Tákn um gæði
Jöf ur fyrstur
umboóa á Internet
JOFUR hf. hefur tekið upp þá ný-
breytni að kynna bíla umboðsins á
Internetinu. Sigurður Björnsson
markaðsstjóri segir að þegar hafí
tveir bílar verið seldir í gegnum net-
ið og fjölmargar fyrirspurnir komið.
Sigurður segir að þetta sé nýr upp-
lýsingamáti sem fyrirtæki séu farin
að nýta sér og því ekki að kynna
bíla á Intemetinu.
í Intemetinu birtast litmyndir af
bílunum, verð og búnaður. Annar
bíllinn sem seldist í gegnum netið fór
út á land en hinn hingað á höfuðborg-
arsvæðið. Pöntunin fer þannig fram
að kaupandinn sendir Jöfri tölvupóst
þar um í gegnum Intemetið. Jöfur
hefur fengið fyrirspurnir um bíla á
Internetinu og segir Sigurður að fyr-
irtækið hafi fundið þó nokkur við-
brögð þó notendur séu ekki margir
enn sem komið er.
Bílamir sem seldust vom Skoda
og Cherokee díselbíll með forþjöppu.
A bílasýningu Jöfurs um síðustu
helgi sýndu starfsmenn gestum
heimasíðu Chrysler í Bandaríkjunum
og þar gátu menn kynnt sér að vild
m.a. framleiðslu Chrysler sem ekki
kemur hingað til lands.
Heimilisfang Jöfurs á Intemetinu
er http://w.w.w.centrum.is/jofur. ■
Dverg-
urinn
LADA verksmiðjurnar í Rússlandi,
sem heita reyndar AvtoVAZ réttu
nafni, sýndu sérkennilegan hug-
myndabíl á bílasýningunni í Amst-
erdam í byijun mánaðarins.
Bíllinn kallast Gnome, sem á ís-
lensku þýðir Dvergur, og er fyrsti
og eini rússneski örbíllinn. Margir
bílaframleiðendur hafa nú um mund-
ir til skoðunar hugmyndir um fram-
leiðslu á slíkum bílum en AvtoVAZ
kveðst þegar hafa hannað nýja línu
örbílla.
Tekur fjóra í sæti
Kraftabíll
frá Lincoln
B ANDARÍ SKIR bílahönnuðir ger-
ast c^arfari með hveiju árinu.
Hönnuðir hjá Lincoln sköpuðu
þennan tveggja sæta sportbíl sem
var sýndur á bílasýningunni í
Detroit f byrjun árs. Undir vélar-
hlifinni er 3,4 iítra, 32 ventla V8
vél sem verður f Ford Taurus SHO
og Mercury Sable sem koma göt-
urnar 1996. Vélin skilar 250 hest- •
öflum en bíllinn er afturhjóladrif-
inn með fjögurra þrepa sjálfskipt-
ingu.
Bíllinn er aðeins 2,65 m á lengd,
1,44 m á breidd og 1,40 á hæð.
Afurðin var svo sýnd í Amsterdam
og var svo sem ekkert sérstakt
augnayndi en hann tekur fjóra í
sæti og farangursrýmið er 100 lítr-
ar. Hámarkshraði bílsins er 120 km
á klst og hann er sagður eyða 3,5
lítrum á hveija 100 km. Rúmtak
vélarinnar er 650 rúmsentimetrar.
Á sama tíma berast fregnir um
að Lada eigi í miklum ijárhagserf-
iðleikum. Búið er að einkavæða verk-
smiðjur í Togliatti sem framleiddi 535
þúsund bíla í fyrra. Mikil íjárfesting
hefur verið lögð í nýja framleiðslul-
ínu, þ.á.m. arftaka Samara, en fyrir-
tækið hefur ekki getað greitt laun
til starfsmanna sinna, í því er segir
í grein Berlinske Tidede.
Frumvarp um breytingar á vörugjaldi og olíugjald gætu breytt samsetningu á bilaflotq landsmanna
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur lagt fram á
Alþingi frumvarp um breytingar á vörugjaldi
af bifreiðum og í gær var áttiaðafgreiða frá
þingnefnd frumvarp um breytingu á olíu-
gjaldi. Verði frumvarp um breytingu á vöru-
gjaldi samþykkt lækkar vörugjald af bílum
í II. flokki, þ.e. bílar með vélarstærðina
1.400-2.000 rúmsentimetrar, úr 45% í 40%.
Sem dæmi um verðlækkun má nefna að sjálf-
skiptur Chrysler Neon með 2 lítra vél myndi
lækka úr 1.955.000 kr. í um 1.890.000 kr.
eða um nálægt 65 þúsund krónur.
Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir annarri
röðun dísilbíla í gjaldflokka. Lagt er til að
hærri viðmiðanir verði látnar gilda um
sprengirými véla í dísilbílum varðandi röðun
í gjaldflokka en gilda um önnur ökutæki.
Aflvélar dísilbfla þurfí að vera stærri en bens-
ínbíla til að framleiða sama hestaflafjölda.
Markmiðið er að stuðla að lægra verði dísil-
bíla og gera þá jafnsetta bensínbílum í inn-
kaupum. Júlíus Vífill Ingvarsson, forstjóri
Bílheima hf., segir að veruleg lækkun verði
á dísilbílum við breytinguna, eða allt að 300
þúsund kr. á fjögurra milljón kr. jeppa.
Samkvæmt frumvarpi um olíugjald verður
Verður sölukippur
í dísilbílum ?
^ Dæmí um rekstrarkostnað dráttarbíla
ÞUNGASKATTSKERFIÐ O L í U G J A L D
A B A B
Olíueyðsla, lítrar/100 km 20 25 20 25
Þungaskattur, kr./km 6,87 7,31 7,31
Ársakstur, km 25.000 25.000 25.000 25.000
Olíuverð, kr./lítra 22.90 22.90 70.83 70,83
Olíukostnaður m. vsk 114.500 143.125 354.150 442.688
Þungaskattur 171.750 182.750
Samtals 286.250 325.875
Endurgreiddur vsk 22.534 28.167 69.697 Mismunur 87.121 Mismunur
Til greiðslu: 263.716 297.708 284.453 +20.737 355.567 +57.859
þungaskattur af díselbílum innheimtur í olíur
verði frá söludælu. Olíugjald af hveijum lítra
verður samkvæmt frumvarpinu 38,50 kr. og
búast má við að lítrinn af dísilolíu til neyt-
enda kosti nálægt 71 kr., eða meira en lítr-
inn af 95 oktana bensini. Í nokkrum Evrópu-
löndum, þ.e. Austurríki, Belgiu, Danmörku,
Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi er díselolía frá
6% til 25% ódýrari en bensín. Að mati sam-
starfshóps fjármálaráðherra aukast tekjur
ríkissjóð um a.m.k. 200 milljónir kr. við kerf-
isbreytinguna.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda telur gjald-
ið alltof hátt og segir að það feli i sér skatta-
hækkun í samanburði við núverandi kerfí.
FÍB fagnar hins vegar kerfisbreytingunni úr
þungaskatti í olíugjald. Telja má að nýja
kerfið komi þeim dísilbílaeigendum til góða
sem aka minnst árlega, þ.e. 10-15 þúsund
km á ári, en verst þeim sem mest aka. Dísil-
bílum hefur stöðugt fjölgað í Evrópu síðustu
ár en ný dísilbifreið eyðir um 30% minna
eldsneyti en sambærileg bensínbifreið og
gefur að auki minna af mengandi lofttegund-
um frá sér en bensínbíll búinn hvarfakút.