Morgunblaðið - 14.03.1995, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR14. MARZ 1995 C 3
HANDBOLTI
82 STIG 96
14/29 Vfti 13/16
3/20 3ja stiga 10/29
43 Frákðst 37
26 (vamar) 27
17 (sóknar) 10
13 Bolta náð 16
17 Boltatapað 23
8 Stoðsendingar 23
13 Villur 18
87 STIG 72
14/24 Vlti 2/6
10/23 3ja stiga 8/29
32 Frákðst 31
23 (vamar) 20
9 (sóknar) 11
13 Bolta náð 12
17 Bolta tapað 16
19 Stoðsendingar 20
16 Villur 18
ÍÞRÓTTIR
Þriðji leikur liðanna i 8 liða úrslitum
leikinn í Njarðvik 13.mars 1995
Sigfús Gunnar
Guómundsson
skrifar
frá Eyjum
Stjarnan
í úrslit
Deildarmeistarar Stjörnunnar
komust í úrslit 1. deildar
kvenna í gærkvöldi með öruggum
sigri, 21:16, gegn
Vestmannaeyjing-
um á útivelli og
mæta annað hvort
Víkingi eða Fram,
sem þurfa að mætast þriðja sinni.
„Eyjaliðið er mikið baráttulið,
það er erfitt að koma hingað og
spila, mikið af áhorfendum sem
hvetja vel og og hér töpuðum við
eina stiginu sem við töpuðum í
deildinni í vetur. Þetta var því sæt-
ur sigur,“ sagði Magnús Teitsson,
þjálfari Stjörnunnar, eftir leikinn.
Það var ansi mikið fát á liðunum
byrjun og bæði virtust hátt
stemmd. Bæði gerðu mörg klaufa-
leg mistök. Hnífjafnt var á öllum
tölum fyrstu 20 mínúturnar en góð-
ur leikkafli Stjörnustúlkna undir lok
fyrri hálfleiks lagði grunninn að
sigri þeirra. Stjarnan hafði þijú
mörk yfir í leikhléi og bætti heldur
um betur þegar hún gerði þijú
fyrstu mörk síðari hálfleiks og kom-
ust í 13:7. Þá rönkuðu Eyjastúlkur
við sér en aldrei þó það vel að þær
næðu að ógna lði Stjömunnar, sem
var einfaldlega of sterkt að þessu
sinni fyrir lið ÍBV. Sóknarleikur
Eyjastúlkna komast aldrei í gang í
leiknum og Sóley Halldórsdóttir
markvörður Stjörnunnar varði jafnt
slök sem góð skot frá liði ÍBV og
gerði markvarsla hennar, og sterk
vörn Stjörnunnar, líklega gæfu-
muninn.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Fram og Víkingur mætast
þriðja sinni
Víkingsstúlkur tryggðu sér odda-
leik um sæti í úrslitum í úrslita-
keppni 1. deildar kvenna með 21:17
sigri á Fram í gær-
kvöldi. Fyrri leikur
liðanna var í Fram-
húsinu á laugardag-
inn og þar hafði
Fram betur, 22:20.
Fram hafði undirtökin á laugar-
daginn þó að markatalan bæri það
ekki með sér því jafnt var í leihléi,
10:10. Fram náði fjögurra marka
forskoti eftir hlé en Víkingum tókst
að jafna 20:20 rétt fyrir leikslok. Þá
gripu Framstúlkur til leikreynslunn-
ar og tryggðu sér sigur, 22:20.
í Víkinni í gærkvöldi voru það
Víkingsstúlkur sem höfðu undirtökin
og komu bersýnilega mjög vel undir-
búnar til leiks. Hjördís varði vel frá
upphafi og liðið var snöggt í hrað-
aupphlaup, sem gáfu þijú mörk en
tvö fóru forgörðum.
Ekki minnkaði kappið eftir hlé,
sérstaklega ekki þegar Hjördís hafði
varið tvö vítaköst og um miðjan hálf-
leik var staðan 15:9 og sigur Víkinga
í sjónmáli. Þá fékk Víkingurinn Halla
María Helgadóttir að líta rauða
spjaldið fyrir brot á Ömu Steinsen í
hraðaupphlaupi og Fram minnkaði
muninn í eitt mark, 16:15, á nokkrum
mínútum. En Víkingsstúlkur tóku til
sinna ráða, staðráðnar að missa ekki
sigurinn frá sér og með mikilli bar-
áttu tókst þeim að halda fengnum
hlut.
Víkingar unnu fyrir oddaleiknum
og liðið sýndi hvers það er megnugt
þegar á reynir en talsvert hefur skort
upp á það i vetur. Hjördís átti frábær-
an leik og Halla María var góð. Svava
Sigurðardóttir gerði góða hluti í
horninu þegar færi gafst og Svava
Ýr Baldvinsdóttir hélt baráttu í lið-
inu. Halla María var góð en þarf að
skapa sér færi.
Framstúlkur áttu ekkert svar við
ákveðnum Víkingsstúlkum í gær-
kvöldi en sýna örugglega betri hliðar
í oddaleiknum á morgun. Liðið náði
sér aldrei á strik og þegar Kolbrún
Jóhannsdóttir ver minna en tug skota
er ekki von á góðu. „Ég segi bara
pass, betra liðið vann,“ var það eina
sem Guðríður Guðjónsdóttir vildi
segja um leikinn.
Úrslitakeppnin
í körfuknattleik 1995
Njarðvíkingarog Keflvíkingarífjögurra iiða úrslit Islandsmótsins
Morgunblaðið/Sverrir
VALUR Inglmundarson, fyrir mlðju, og lærlsveinar hans í
NJarðvík fagna sigrl í gærkvöldi. A myndlnni tll hliðar skorar
Rondey Robinson án þess að Mllton fál stöðvað hann.
Vöm Njarðvík-
inga of sterk
NJARÐVIKINGAR tryggðu sér
réttinn til að leika í 4-liða úrslit-
um úrslitakeppninnar í körfu-
knattleik þegar þeir sigruðu
KR-inga 89:72 í oddaleik í „Ljó-
nagryfjunni" í Njarðvík í gær-
kvöldi og leika gegn Skaila-
grfmi frá Borgarnesi í undanúr-
slitum. Njarðvíkingar mættu
mjög ákveðnir til leiks og eftir
5 mínútna leik höfðu þeir náð
10 stiga forystu. í hálfleik var
staðan 43:33 og góður leikkafli
Njarðvíkinga fyrstu 10 mínút-
urnar í síðari hálfleik þegar
þeir náðu 24 stiga forystu,
71:47 gerði endanlega út um
allar vonir Vesturbæjarliðsins.
Stuðningsmenn liðanna fjöl-
menntu og óhætt er að segja
að mikil stemmning hafi verið í
■■■■■■ upphafi jafnt innan
Björn vallar sem utan. En
Blöndal Njarðvíkingar
reyndust mun sterk-
ari að þessu sinni
og greinilegt að KR-ingar söknuðu
Fals Harðarson og Brynjars Harð-
skrifar frá
Njarðvík
arsonar sem báðir voru meiddir.
Ekki bætti það úr að Bandaríkja-
maðurinn Milton Bell virtist eiga
erfitt uppdráttar hann setti sitt
fyrsta stig úr víti á 9. mínútu og í
síðari hálfleik á 11. mínútu. „Það
er ekki mikið sem ég get sagt, ann-
að en að betra liðið sigraði," sagði
Axel Nikulásson þjálfari KR-inga
eftir leikinn.
„Varnarleikurinn var góður hjá
okkur og það var hann sem setti
KR-inga út af laginu. Við ákváðum
að taka Bell framar en í síðasta
leik þegar hann fékk of fijálsar
hendur, og það tókst,“ sagði Valur
Ingimundarson þjálfari og leikmað-
ur Njarðvíkinga. Bestu menn í liði
UMFN voru Rondey Robinson sem
lék sérlega vel og hann innsiglaði
sigur sinna manna með 3ja stiga
körfu; nokkuð sem hann hefur ekki
verið þekktur fyrir. ísak Tómasson
lék einnig vel bæði í sókn og vörn
og eins þeir Valur Ingimundarson,
Teitur Örlygsson og Friðrik Ragn-
arsson. Hjá KR-ingum var Her-
mann Hauksson bestur ásamt þeim
Ólafi Jóni Ormssyni, Ósvaldi
Knudsen og Milton Bell.
Sigurður Ingimundarson fyrirliði Keflvíkinga
„Einfaldlega betri“
KEFLVÍKINGAR unnu góðan
sigur á Þór á Akureyri, 96:82,
í gærkvöldi og tryggðu sér
sæti í undanúrslitum íslands-
mótsins í körfuknattleik. „Ég
er mjög ánægður með sigurinn
og að við erum komnir áfram,
við vorum einfaldiega betri og
verðskulduðum sigur,“ sagði
Sigurður Ingimundarson fyrir-
liði ÍBK eftir leikinn. „Við mæt-
um Grindavík í næstu leikjum
og þar verður örugglega hart
barist og ekkert gefið eftir.“
Keflvíkingar komu ákveðnir til
leiks og eftir sjö mínútna leik
höfðu þeir náð 10 stiga forystu,
22:12. Þá kom kafli
þar semekkert gekk
upp hjá IBK en aftur
á'móti gekk Þórsur-
um vel og gerðu
þeir næstu 12 stig og breyttu stöð-
unni í 24:22. Keflvíkingar vöknuðu
þá til lífsins, komust yfir og leiddu
ReynirB.
Eiríksson
skrifar frá
Akureyri
svo leikinn fram að hálfleik, þegar
staðan var 41:47.
Þórsarar mættu ákveðnir til
seinni hálfleiks, minnugir þess að
ekkert þýddi nema sigur fyrir þá.
Um miðjan hálfleikinn náðu Þórsar-
ar að jafna 53:53 og allt virtist
stefna í hörku leik. En þá hrökk
Jón Kr. Gíslason í gang og gerði
út um Ieikinn með þremur þriggja
stiga körfum í röð og gaf sínum
mönnum tóninn fyrir síðustu mínút-
urnar. Þórsarar náðu aldrei að ógna
Keflvíkingum sem juku forskot sitt
jafnt og þétt og þegar lokaflautið
gall var staðan 96:82 gestunum í
hag og sætur sigur þeirra stað-
reynd.
Leikurinn var ekki vel leikinn og
mikið um mistök af hálfu beggja
iiða og virtust leikmenn vera
spenntir og taugaóstyrkir mestan
hluta leiksins. Keflvíkingar verð-
skulduðu sigurinn sem hefði geta
orðið mun stærri. Bestur hjá Kefla-
vík var Jón Kr. Gíslason sem skor-
aði sjö þriggja stiga körfur og komu
þær flestur á mjög mikilvægum
augnablikum. Þá áttu þeir Lenear
Burns og Albert ágætan leik.
Þórsararí náðu sér aldrei á strik
í þessum leik og má segja að eitt
orð lýsi leik þeirra langtímum sam-
an — leikleysa. Þeir gerðu mistök
á mistök ofan og virtist oft fyrir-
munað að koma knettinum rétta
boðleið.
„Ég er mjög svekktur með leikinn
og sérstaklega hvað við hittum illa.
Við tókum „sénsinn“ á að þeir hittu
ekki mikið fyrir utan en það brást
og má segja að Jón Kr. hafí skotið
okkur í kaf í upphafi síðari hálf-
leiks, er ÍBK náði forskoti sem við
náðum ekki að vinna upp. Þetta er
í fyrsta skiptið sem Þór kemst í
úrslit og ég tel að reynsluleysi
strákanna hafi haft sitt að segja,
en þeir voru mjög spenntir í leikn-
um,“ sagði Hrannar Hólm þjálfari
Þórsara, sem þó getur verið nokkuð
sáttur við gengi liðsins í vetur sem
varð mun betra en flestir spáðu í
upphafi tímabilsins.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sfgurður Inglmundarson
fyrirliði Keflvíkinga sækir
að körfu Þórs. Sandy Ander-
son er tll varnar.
KORFUKNATTLEIKUR