Morgunblaðið - 14.03.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1995 C 5
ÍÞRÓTTIR
FRJALSIÞROTTIR
Sigríður Anna
tvíbætti íslands-
metið í þrístökki
MEISTARAMÓT íslands í
frjálsíþróttum innanhúss fór
fram í Baldurshaga og Kapla-
krika um helgina. Á mótinu var
sett eitt íslandsmet, Sigrfður
Anna Guðjónsdóttir stökk
12,56 m í þrístökki. Gamla
metið átti hún sjálf en það var
12,45 m. Reyndar tvíbætti hún
metið því hún stökk einnig
12,47 m Annars voru það
íþróttamenn frá FH sem settu
mestan svip á mótið því þeir
fengu 23 verðlaunapeninga af
52, semíboðivoru.
Sigríður Annna Guðjónsdóttir,
HSK, bætti íslandsmet sitt í
þrístökki innanhúss í tvígang, fyrst
stökk hún 12,47 m
y og í næstu tilraun
Benediktsson bætti hún um betur
skrifar og stökk, 12,56 m.
Sigríður kom meira
við sögu því hún hafnaði í öðru
sæti í langstökki með 5,57 m og í
þriðja sæti í hástökki þegar hún
stökk 1,65 m. „Ég er mjög ánægð
með þennan árangur í þrístökkinu,
ekki síst vegna þess að þetta er
fýrsta mót mitt síðan í ágúst að
ég keppti í bikarkeppninni. Aðstað-
an á Selfossi til æfinga er ekki
góð. Ég get ekki æft á gaddaskóm
þar og verð á æfa stökk á venjuleg-
um íþróttaskóm og stökkva á dýn-
um. Síðan fer ég í Baldurshaga einu
sinni í viku,“ sagði Sigríður Anna
Guðjónsdóttir í samtali við Morgun-
blaðið, eftir að hún setti glæsilegt
íslandsmet í þrístökki og bætti
við.„Það þarf þolinmæði til þess að
æfa og keppa í frjálsum íþróttum
á íslandi. Það þarf fleiri innanhús-
mót yfir veturinn. Ég hef æft á
fullu síðan í október fyrir þetta eina
mót og nú að því loknu er ekkert
framundan fyrr en í vor. Þetta er
ekki mjög uppörvandi, en hvað sem
því liður þá er ég bjartsýn á sumar-
ið og stefni á 13 m í þrístökki,"
sagði Sigríður Anna Guðjónsdóttir
að lokum.
Annar keppandi sem setti svip
sinn á mótið var ungur langstök-
kvari úr FH, Bjarni Þór Hinriksson.
Hann sigraði í langstökki með 7,15
m, stökk 1,98 m í hástökki og hafn-
aði í öðru sæti og varð þriðji í 50
m grindahlaupi á 5,8 sek. Keppni
Bjarna og hins síunga Jón Oddsson-
ar í langstökkinu var bráðskemmti-
leg og þegar upp var staðið munði
einum sentimetra á þeim köppum,
Bjarna í vil.
„Já, þetta var tæpt hjá mér, en
framfarirnar hjá mér eru jákvæðar.
Ég hef aldrei áður náð þremur
stökkum yfir 7 m á móti. Best átti
ég 7,02 m fýrir þetta mót. Ég stefni
á að vera öruggur með 7 m í sum-
ar og keppa á Smáþjóðaleikunum
og Evrópubikarnum,“ sagði hinn
efnilegi Bjarni Þór Trautason að
lokinni kepninni í langstökki.
„Langstökkið var agalegt hjá
mér. Ég hélt ég væri orðin of gam-
all til þess að gera svona rugl. Það
eru of fá mót inannhúss á veturna
og þvi tekur 3 ~_4 stökk að ná sér
á strik í mótum. í þrístökkinu gekk
mér betur og þar náði ég ágætis
stökkum og ég er sáttur við það
og greinilegt er að ég er að ná mér
eftir meiðslin frá sl. sumri,“ sagði
Jón Oddsson, FH, en hann sigraði
í þrístökki með 14,48 m. í öðru
sæti var Ólafur Guðmundsson HSK
með 14,12 m.
Finnbogi Gylfason, FH, sigraði
öruggleg í 800 m hlaupi en í 1500
m sigraði hann Sigmar Gunnarsson,
Sátt við árangurinn
tvar
Benediktsson
skrifar
„ÉG er sátt við árangur minn
á mótinu því eftir að ég kom
heim frá Svíþjóð og Noregi
ákvað ég að þyngja æfingarnar
og undirbúa mig fyrir sumarið.
Innanhúss-
meistaramótið
er allt of seint,
það hefði þurft
að vera fyrir
mánuði," sagði Geirlaug B.
Geirlaugsdóttir, spretthlaupari
úr Ármanni, en hún sigraði í
50 m hlaupi og varð önnur í 50
m grindarhlaupi á Meistara-
mótinu um sl. helgi.
Sem kunnugt er tvíbætti
Geirlaug íslandsmetið í 60 m
grindarhlaupi á móti í Gauta-
borg og á boðsmóti bestu
spretthlaupara Norðurlanda í
Stange í Noregi í síðasta mán-
uði. Nú er metið 7,63 sek., en
gamla metið var í eigu Svan-
hildar Kristjónsdóttur og hljóð-
aði upp á 7,67 sek.
„Með því að fara út í eina
viku og keppa á tveimur mótum
var ég að gæla við að geta náð
lágmarkinu í 60 metra hlaupi,
7,60 sekúndur, fyrir heims-
meistaramótið í Barcelona.
Auðvitað var þetta þröngur
kostur sem ég setti mér og ljóst
að ég hefði þurft að fara í fleiri
ferðir en þessa einu. En að fara
erlendis er kostnaðarsamt og
ég þurfti að bera kostnaðinn
sjálf, að undanskildum smá-
styrk frá Ármanni, auk þess að
taka frí úr vinnu. Markmiðið
að ná lágmarkinu tókst ekki en
ég er mjög ánægð með árangur-
inn. Hér heima vantar alveg 60
metra braut og því er nauðsyn-
legt að fara erlendis til þess að
ná lágmörkum í spretthlaup á
mót eins og Evrópumeistara-
og heimsmeistaramót."
En er Geirlaug sátt við þá
ákvörðun Fijálsíþróttasam-
bandsins að senda hana ekki á
heimsmeistarmótið þrátt fyrir
að hún hafi verið svo nálægt
lágmarkinu?
„Ég er alveg sátt við hana
ef staðið verður við það í fram-
tíðinni að nýta sér ekki þá reglu
að geta sent einn keppanda af
hvoru kyni sem nær ekki lág-
markinu. Þessi regla var nýtt
síðast þegar heimsmeistaramót-
ið var í Kanada."
Geirlaug sagðist aðspurð.æfa
sex sinnum í viku að jafnaði en
hafí aðeins minnkað það fyrir
mótið. „Nú verður allt sett á
fullt við æfingar og stefnan sett
á að bæta sig í 100 metrunum
í sumar og taka þátt í Smáþjóða-
leikunum í Luxemborg 29. maí
— 4. maí og Evrópubikarkeppn-
inni í Eistlandi helgina á eftir.
Næsta vetur er það markmið
hjá mér að fara erlendis til æf-
inga og keppni og ná lágmark-
inu fyrir Evrópumeistaramótið
í 60 metra hlaupi sem verður
næsta vetur. Lágmarkið er 7,70
sekúndur og bjartsýn að mér
takist að ná því,“ sagði hin
sprettharða Geirlaug B. Geir-
laugsdóttir.
HM í Barcelona
Tilþrífa-
lítið mót
UMSB, á sjónarmun, en báðir höfðu
tímann, 4:02,4 mín. „Ég er mjög
ánægður með þennan tíma í 1500
m sem er besti tími minn innanhúss
og lofar góðu fyrir sumarið. Eftir
að hafa verið í Baandaríkjunum í
fjögur ár þá ákvað ég að vers heima
í vetur. Ég hef toppþjálfara, —
Ragnheiði Ólafsdóttur— og hún
hefur rekið mig áfram viðæfíngar
og er að gera góða hluti hér hjá
FH,“ sagði Finnbogi Gylfason, sig-
urreifur eftir 1500 m hlaupið.
í kvennaflokki í 800 og 1500 m
hlaupi sigraði Laufey Stefánsdóttir,
FH, örugglega í báðum greinum.
„Tími minn í 800 m hlaupinu er
þokkalegur og ég bjóst við meiri
keppni,“ sagði Laufey, eftir sigur-
inn í 800 m hlaupinu.
Af öðrum greinum er það að
segja að hressileg keppni var í
kúluvarpi kvenna. Þar mátti
„Sterkasta kona íslands", Sigrún
Hreiðarsdóttir, HSK, sætta sig við
annað sætið, með kast upp á 12,39
m en Guðbjörg Viðarsdóttir, HSK,
kastaði 12,44 m í fimmtu tilraun
og við því kasti átti Sigrún ekkert
svar.
Einar Kristjánsson, FH, stökk
hæst allra í hástökki, 2,06 m og
átti góðar tilarunir við 2,11 m.
Heimsmeistaramótið í fijáls-
íþróttum innanhúss, sem fór
fram í Barcelona um helgina, þótti
ekki tilkomumikið. Ahorfendur
sýndu því ekki mikinn áhuga og
margt af besta frjálsíþróttafólki
heims var fjarverandi. Rússar sigr-
uðu í sex greinum og þar bar hæst
árangur Volanda Chen sem setti
heimsmet í þrístökki kvenna þegar
hún stökk 15,03 metra.
Chen, sem er 32 ára, bætti met
löndu sinnar Inna Lasovskaya frá
því í febrúar í fyrra um 13 senti-
metra en metið féll í þriðju tilraun..
„Ég er ekki hissa,“ sagði hún. „Ég
hóf keppni með því hugarfari að
standa mig vel því ég vildi ekki heyra
fólk segja að ég hefði sigrað vegna
þess að helstu keppinautana vant-
aði.“
Hicham E1 Guerrouj er nýjasta
hlaupastjarna Morokkó, en þessi tví-
tugi piltur sigraði í 1.500 metra
hlaupi á 3.44,54 mínútum.
Norðmaðurinn Geir Moen, sem
sigraði í 200 metra hlaupi á Evrópu-
meistaramótinu utanhúss í Helsingi
í fyrra endurtók leikinn og sigraði í
Qögurra manna keppni á 20,58 sek-
úndum. Þetta var fyrsta gull Norð-
manna á HM innanhúss.
Úkraínumaðurinn Sergei Bubka
sigraði í stangarstökki í fjórða sinn
og er þriðji maðurinn til að ná þeim
áfanga á HM innanhúss. Hinir eru
hástökkvarinn Javier Sotomayor frá
Kúbu sem náði fimmta gullinu í
hástökki á sunnudag með því að
stökkva yfir 2,38 metra og rúss-
neski göngumaðurinn Mikhail
Shchennikov. Bubka fór yfir 5,90
metra og var fjarri heimsmeti sínu.
Melinda Gainsford sigraði í 200
metra hlaupi kvenna á 22,64 sek-
úndum og tryggði Ástralíu annað
gullið í átta ára sögu keppninnar.
■ Úrslit / B10
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Eftirminnileg
helgi hjá Shaq
og samheijum
Reuter
SHAQUILLE O’Neal skorar
gegn San Antonlo án þess
að „aðmírállinn“ David Rob-
inson fái rönd við reist.
Orlando varð fýrst liða til að
tryggja sér sæti í úrslita-
keppni NBA-deildarinnar í körfu-
knattleik og í kjölfarið fylgdi fýrsti
sigur Shaquille O’Neal og samheija
gegn San Antonio Spurs. „í fyrra
var allt svo gaman vegna þess að
við vorum í fyrsta sinn í úrslita-
keppninni en þetta árið höfum við
sett okkur mun háleitari markmið,"
sagði Brian Hill, þjálfari Orlando,
sem hefur aldrei unnið leik í úrslita-
keppninni.
Shaq var með 26 stig og tók 15
fráköst þegar Orlando vann Port-
land 97:85 aðfaramótt laugardags
og bætti um betur gegn San An-
tonio á sunnudag en þá gerði hann
28 stig og tók 13 fráköst í 110:104
sigri.
David Robinson var með 34 stig
fyrir San Antonio og tók 12 fráköst
en mátti engu að síður sætta sig
við fyrsta tapið gegn Orlando í sex
leikjum. „Þetta var frábær barátta
og góður leikur," sagði Robinson
„og þeir hittu oft vel.“
Anfemee Hardaway var með 31
stig fyrir Orlando og þar af 20 í
seinni hálfleik en Orlando er með
besta vinningshlutfallið í deildinni,
48 sigra og 14 töp þar af 32 sigra
og eitt tap á heimavelli. „Við höfum
spillt stuðningsmönnum okkar því
það eina sem þeir hugsa um er að
við tökum þetta allt eftir að sæti í
úrslitakeppninni er tryggt og miðað
við að við erum með besta árangur-
inn í deildinni," sagði Hardaway.
Lið Orlando hefur sigrað í öllum
heimaleikjum sínum í vetur nema
einum, og haldi liðið sínu striki
gæti það jafnað met Boston Celtics,
sem sigraði í 40 af 41 leikjum á
heimavelli veturinn 1985-86.
Patrick Ewing, miðhetji New
York Knicks og lýkilmaður, meidd-
ist á heimavelli gegn Seattle um
helgina og óttast er að meiðslin séu
slæm; jafnvel svo að hann verði
ekki meira með i vetur. Leikurinn
var hnífjafn, en eftir að Ewing hafði
gert sex fyrstu stig New York i
fjórða leikhluta — og 34 stig alls —
snéri hann sig illa á ökla og lið
hans tapaði naumlega, 94:96.
■ Úrslit / C10
■ Staöan / C10