Morgunblaðið - 14.03.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.03.1995, Blaðsíða 6
6 C ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞ/émR FOLK ■ MEÐALALDUR keppenda var ekki hár á íslandsmótinu en athygli vekur að elstu keppendurnir röðuðu sér í efstu sætin. Guðjón Guð- mundsson og Jóhannes Níels Sig- urðsson voru langelstir í karlaflokki en þeir eru báðir 24 ára. Þórey Edda Elísdóttir sem hlaut silfur- verðlaunin í fjöiþraut var elst í kvennaflokki, 17 ára og verður átján ára í sumar en meistarinn Elva Rut Jónsdóttir er sextán ára frá því í janúar. ■ ERNA Sigmundsdóttir úr Ár- manni var hins vegar langynsti keppandinn, aðeins níu ára. Hún er systir Jóhönnu, sem hafnaði í þriðja sæti [ fjölþrautinni. ■ NÍNA BJÖRG Magnúsdóttir úr Björk fékk hæstu einkunn sem gef- inn var á mótinu, 9,25 fyrir stökk á föstudeginum. Það var jafnframt eina æfing Nínu í keppninni því hún meiddist í lendingunni. „Ég fann það strax og ég lenti, það var eins og bein klesstust saman. Mér var sagt að þetta væri tognun en það var líka sagt síðast og þá kom í ljós að lið- bönd voru slitin," sagði Nína Björg. ■ GUÐJÓN Guðmundsson vann sinn sjöunda titil sinn í fjölþraut og bætti þar með met Sigurðar T. Sig- urðssonar sem varð Islandsmeistari óslitið frá 1973 - 1978. Sigurður var þjálfari hjá Fimleikadeild KR þegar Guðjón byijaði að æfa fímleika en sneri sér síðan að stangarstökki 1978 og varð íslandsmeistari í þeirri grein ári síðar og er enn að. ■ FIMM keppendur komust í úrslit á öllum áhöldunum. Elva Rut Jóns- dóttir, Þórey Edda Elísdóttir og Sólveig Jónsdóttir voru í úrslitum á öllum fjórum áhöldunum í kvenna- flokksins og þeir Guðjón Guð- mundsson og Jón Trausti Sæ- mundsson kepptu til úrslita í öllum sex greinum karlaflokksins. Sex efstu keppendur úr æfíngum á föstu- deginum kepptu um titilinn á hvetju áhaldi á sunnudaginn. ■ ÁRMENNINGAR urðu sigur- vegarar í karlaflokki í liðakeppninni á föstudag. Liðið var skipað þeim Guðjóni Guðmundssyni, Jóhann- esi Níels Sigurðssyni, Sergei Mas- lenikov og Guðjóni Ólafssyni. Ár- menningar hlutu 146,60 stig en Gerpla hlaut 142,20. Ruslan Ovt- chinikov úr Gerplu var hins vegar hæstur einstaklinga í keppninni. Hann hlaut 51,75 stig en hafði ekki rétt til að keppa á íslandsmótinu frekar en Sergei þar sem hvorugur þeirra er með íslenskan ríkisborgara- rétt. ■ FIMLEIKADEILD Bjarkar hefur undanfarið þurft að sækja æfingar tii fimleikadeilda Gróttu og Ármanns. Björk er eins og kunnugt er með aðstöðu í Hafnarfírði og hef- ur komið sér upp góðum tækja- kosti. Vandamálið er hins vegar það að ekki er pláss fyrir áhöldin þar sem Bjarkirnar æfa og því þeim komið fyrir í geymslu. Er félagið nú á höttunum eftir' húsnæði til æfinga. Morgunblaðið/Bjami ERNA Sigmundsdóttir, níu ára gömul var yngsti kepp- andinn á íslandsmótinu. Hér sést hún á jafnvægisslánni. ÍSLANDSMOTIÐ I FIMLEIKUM Morgunblaðið/Frosti Betri á bogahestinum GUÐJÓN Guðmundsson, íslandsmeistari úr Ármanni, t.v., og félagi hans Jóhannes Níels Slgurðsson sem hefur einu sinni sigrað í fjölþraut en á að baki ófáa meistaratltla á bogahestl. Morgunblaðið/Frosti íslandsmeistarar í fjölþraut ÍSLANDSMEISTARARNIR í fjölþraut, Guðjón Guðmundsson úr Ármannl og Elva Rut Jónsdóttir úr Björk. Guðjón hefur oftar hampað íslandsbikar í fjölþraut en nokkur annar. Guðjón meistari í fjöl- þraut í sjöunda skipti Guðjón Guðmundsson sigraði líka á fimm áhöldum af sex GUÐJÓN Guðmundsson, varð íslandsmeistari karla ifjöiþraut í fimleikum í sjöunda skipti um helgina og það hefur enginn unn- ið gullið jafnoft og hann. Eins og svo oft áður íkeppni f karla- flokki voru það æskufélagarnir Guðjón og Jóhannes Níels Sig- urðsson sem börðust um titilinn og eins og ævinlega þá hafði Guðjón betur. Morgunblaðið/Frosti GERPLUSTÚLKUR létu að sér kveða á íslandsmótinu. Þær urðu meistarar liða auk þess sem þeir Saskia Freyja Schalk (t.v.) og Sólveig Jónsdóttir urðu báðar meistarar á áhöldum. Gerplustúlkur komu á óvart Gerplustúlkur hafa ekki verið sigursælar á íslandsmótum í áhaldafimleikum síðustu árin eða frá því að Hanna Lóa Friðjónsdótt- ir og Hlín Bjarnadóttir unnu glæsta sigra árin 1986 og 1987. Gerplustúlkur náðu sér hins veg- ar vel á strik á íslandsmótinu um helgina. Þær sigruðu í liðakeppninni í kvennafiokki og eignuðust ís- landsmeistara í tveimur áhöldum af fjórum. Lið Gerplu var skipað þeim Sól- veigu Jónsdóttur, Helenu Kristins- dóttur, Saskiu Freyju Schalk og Erla Guðmundsdóttur. Liðakeppnin fór fram á föstudagskvöldið og eflaust hafa flestir reiknað með sigri Bjarkar en liðið var skipað þeim Nínu Björgu Magnúsdóttur, Elvu Rut Jónsdóttur og Þóreyju Eddu Elísdóttur. En meiðsli Nínu urðu þess valdandi að liðið átti enga möguleika á sigri og baráttan stóð því á milli Ármanns og Gerplu. „Okkur gekk ágætlega í liða- keppninni. Eftir að Nína meidd- umst áttum við frekar von á sigri Ármanns og segja má að úrslitin hafi komið okkur á óvart,“ sagði Sólveig Jónsdóttir, ein fjögurra liðsmanna Gerplu og íslandsmeist- ari á gólfi. „Ég átti ekki von á því heldur að fá titilinn fyrir gólfæf- ingarnar því mér gekk illa í æfing- unum í gær [laugardag],“ sagði Sólveig sem komst í úrslit á öllum áhöldunum og hlaut langbestu ein- kunnina fyrir gólfæfingamar. Sask- ia Freyja Schalk vann sér réttinn til að keppa í einni grein, jafnvæg- isslánni. Hún varð Islandsmeistari í þeirri grein með nokkrum yfir- burðum. Ekki verður annað sagt en að uppskeran hjá Guðjóni hafi verið óvenju glæsileg á þessu móti. Hann varð öruggur meistari í fjölþraut með 102,25 stig, liða- meistari með Ármanni og Islands- meistari á fimm áhöldum af sex í karlaflokki. Bogahesturinn hefur verið eign Jóhannesar mörg undan- farin ár og engin breyting varð á því á þessu íslandsmóti. Engin spenna á toppnum Það er mál margra að karlafim- leikar séu á uppleið og þrátt fyrir greinilegar framfarir hjá flestum keppendum náði enginn að ógna Guðjóni. Margir reiknuðu með því að Jóhannes Níels mundi veita Guð- jóni meiri keppni en Jóhannes hefur æft fimleika í Danmörku jafnframt því sem hann stundar nám í þjálfun- arfræði í Álaborg. „Það gekk illa hjá mér í dag, sérstaklega á svif- ránni en fyrir mótið gerði ég ráð fyrir að veita Guðjóni harða keppni," sagði Jóhannes Níels eftir úrslitin í fjölþrautinni á laugardag. „Æfingarnar á svifránni voru hálfmisheppnaðar og ég náði ekki að komast yfir fimmtíu stigin í sam- anlögðu eins og ég hafði gert ráð fyrir.“ „Nilli [Jóhannes Níels] hefur ver- ið að bæta sig en það hef ég líka gert. Ég átti hins vegar góðan dag en honum tókst ekki jafn vel upp. Svo hefði ég viljað sjá meiri keppni frá yngri strákunum. Þeir eru komnir á þann aldur að þeir eiga að geta blandað sér í baráttuna,“ sagði Guðjón. Guðjón: stefnan að Ijúka ferlinum á næsta ári Þó Guðjón sé aðeins 24 ára hefur hann hugsað sér að hætta eftir næsta ár. „Stefnan hjá mér er að ljúka ferlinum á næsta ári. Þá verða mörg spennandi verkefni, Norður- landamótið hér heima, Evrópumót og ef mér gengur vel gæti ég kom- ist á Ólympíuleikana. Það fer mik- ill tími í æfingar, 22 - 23 tímar á viku og maður stendur ekki enda- laust í slíkum æfingum," sagði Guðjón. Alltaf góðir vinir Guðjón og Jóhannes hafa verið í fimleikum í tæp sextán ár. Þeir byijuðu átta ára gamlir. Jóhannes byijaði fyrr en fékk vin sinn Guðjón til að mæta á æfingar líka. Sigurð- ur Egill Gunnarsson, faðir Jóhann- esar og fyrrum stjórnarmaður í Fimleikasambandinu man vel eftir fyrstu sporunum en hann keyrði þá á æfíngar. „Þeir voru saman í skóla og byijuðu að æfa hjá KR. Svo eftir að Siggi T. [Sigurður T. Sigurðsson] hætti hjá KR og fór að æfa stangarstökk þá fóru þeir í Ármann. Þeir eltu bestu þjálfarana og vildu vera þar sem mest var um að vera,“ segir Sigurður Egill. „Þó að þeir séu í keppni hvor við annan hafa þeir alltaf verið góðir vinir. Þeir hafa stutt hvorn annan og fylgst að eins og bræður.“ n Oruggur si ELVA Rut Jónsdóttir, sextán ára stúlka úr Björk varð öruggur sig- urvegari í fjölþraut á íslandsmót- inu í fimleikum og sigraði í úrslit- um á tveimur áhöldum, í stökki og á tvíslá. Elva Rut hlaut 67,275 stig og sigr- aði nokkuð örugglega í fjölþraut- inni sem lauk á laugardaginn. Tæp- lega tveimur stigum munaði á henni og Þóreyju Eddu Elísdóttur sem hafn- aði í öðru sæti. „Ég var samt aldrei örugg með sigur. Ein mistök geta breytt öllu en ég er ánægð með útkomuna. Ég er með nýjar æfingar á flestum áhöldun- um og mig vantar að keyra þær oftar til að ná betri tökum á þeim,“ sagði Elva við Morgunblaðið. Jafnvægissláin í uppáhaldi Elva Rut hefur tvívegis fengið silf- urverðlaun í fjölþraut en besta grein hennar hingað til og jafnframt uppá- haldsáhaldið hefur verið jafnvæg- issláin. Hún fékk bronsverðlaunin á síðasta Norðurlandamóti fyrir æfing-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.