Morgunblaðið - 16.03.1995, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR16. MARZ 1995 D 3
Morgunblaðið/Kristinn
ynir hér að komast framhjá Guðríði Guðjónsdóttur, sem lék sinn
id vegna meiðsla. Zelka Toslc bíður átekta og á bak við þær sést
annsdóttur markvarðar — enn einn varnargarðlnn.
Kolbrún
hetja Fram
ENN gerði frábær markvarsla Kolbrúnar Jóhannsdóttur gæfu-
muninn fyrir Fram og nú í oddaleik gegn Víkingum í undanúrslit-
um i Safamýrinni ígærkvöldi. Fram vann 20:18 og spilar þvítil
úrslita gegn Stjörnunni um íslandsmeistaratitilinn en þau lið
áttust einnig við í bikarúrslitum, þar sem Fram hafði sigur. Guðr-
íðar Guðjónsdóttur lék á ný með Fram.
Kolbrún varði 17 skot, þaraf eitt
vítaskot og 5 hraðaupphlaup en
í öðrum leik liðanna varði hún „að-
eins“ 9 skot. „Það var
enginn varnarleikur
hjá okkur í síðasta
leik og þá er erfitt
að veija. En núna var
vörnin sterk og það hefur áhrif á
Stefán
Stefánsson
skrifar
íms í heimsókn
altali, stela bolta oftast, tapa honum
sjaldnast og eru í fjórða sæti í að veija
skot.
Ekki slæmur árangur enda segja
yflrburðir liðsins í vetur einnig sína
sögu og þetta sýnir að liðsheildin er
aðal Njarðvíkinga. En ef við gefum
einkunn fyrir hvert atriði, frá einum,
fyrir að vera með bestan árangur í
viðkomandi þætti, og upp í átta, allt
eftir sætum kemur í ljós að Njarðvík-
ingar eru með 27 stig, Grindvíkingar
koma næstir með 37, eru með bestu
vítanýtinguna og þriggja stiga nýt-
ingu, en næst lakastir í skotum innan
teigs og veija fæst skot. ÍR hefur 47
stig, leikmenn taka flest fráköst allra
liða, Skallagrímur hefur 49 stig, hafa
fengið fæst stig á sig í vetur, Kefla-
vík 51, en þar á bæ veija menn flest
skot, Þór hefur 59 stig, KR 61 og
Haukar 65.
markvörsluna," sagði Kolbrún eftir
leikinn.
Frammarar byijuðu betur og kom-
ust í 3:1 en þá fóru Víkingar að staga
í götin í vöminni. Bæði lið léku sterka
vörn og reyndu stíft við hraþaupp-
hlaupin sem langflest fóra þó for-
görðum, 6 hjá hvora liði, enda mikil
taugaspenna í leiknum. Jafnt var í
leikhléi, 12:12.
Fát og fum einkenndi síðari hálf-
leik framanaf og gestimir þurftu 8
sóknir og 11 mínútur til að gera sitt
fyrsta mark en tókst að jafna um
miðjan hálfleik. Þá tók Kolbrún til
óspilltra málanna í markinu og varði
5 skot á stuttum tíma, þar á meðal
víti og hraðaupphlaup. Enn tókst
Víkingum að saxa á forskotið og
höfðu boltann í stöðunni 19:18 þegar
mínúta var eftir en sóknin varð enda-
sleppt og hinu meginn innsiglaði
Díana Guðjónsdóttir sigur Fram úr
vítakasti.
Sem fyrr segir gerði Kolbrún
gæfumuninn og endurkoma Guðríðar
stappaði stálinu í leikmenn Fram en
Guðríður spilaði aðeins í vörninni. Þó
liðið væri að leika sterka vörn var
sóknarleikurinn ekki góður nema
hvað Zelka Tosic braust í gegn og
skoraði eða fískaði vítakast, sem
Díana skoraði úr. Þórann Garðars-
dóttir og Kristín Hjaltested áttu
ágætan leik.
Leikmenn Víkinga náðu ekki að
koma með framhald af leik sínum frá
mánudeginum, gegn Fram í Víkinni.
Hjördís varði vel eftir hlé en vörnin
fyrir framan hana átti það til að opn-
ast illilega þó hún héldi annars vel.
Halla María Helgadóttir var að venju
dijúg með 10 mörk og Svava Yr
Baldvinsdóttir spilar sífellt stærra
hlutverk.
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA
„Tíu litlir“ Bæjarar
fögnuðu í Gautaborg
UNGU strákarnir hjá Bayern Múnchen fögnuðu geysilega í Gauta-
borg, þar sem þeir léku aðeins tíu í sjötíu mín. — og þrátt fyrir
það tryggðu þeir sér farseðilinn í undanúrslit Evrópukeppni
meistaraliða, með því að gera jafntefli, 2:2, og komast áfram á
mörkunum skoruðum á útivelli, þar sem viðureign þeirra við IFK
Gautaborg í Munchen lauk með markalausu jafntefli. „Ég hafði
alltaf trú á því að strákarnir næðu þessum áfanga — og ég missti
ekki þá trú, þó svo að Scheuer hafi verið rekinn af leikvelli,"
sagði Giovanni Trapattoni, þjálfari Bayern.
Markvörðurinn Sven Scheuer
fékk að sjá rauða spjaldið
eftir aðeins tuttugu mín., er hann
fór út fyrir vítateig, kastaði sér
fýrir Mikael Martinsson, sem var
kominn einn inn fýrir vörn Bayern,
þannig að hann féll. Er Scheuer var
rekinn af leikvelli gerði Trapattoni
þá breytingu að láta varamarkvörð-
inn Uwe Gospodarek inná, en tók
sóknarleikmanninn frá Búlgaríu,
Kostadinov, af velli. Bæjarar lögðu
áherslu á varnarleik og skyndisókn-
ir, sem gaf þeim tvö mörk, sem
Alexander Zickler og Christian
Nerlinger skoruðu, 0:2. Zickler
skoraði með góðu skoti af 18 metra
færi á 63. mín. og Nerlinger á 71.
mín.
Leikmenn Gautaborgar vöknuðu
upp við vondan draum og skoraði
varamaðurinn Mats Lilienberg, 1:2,
á 75. mín. og Mikael Martinsson
jafnaði, 2:2, á síðustu mín. leiksins.
Skoski dómarinn Leslie Mottram
Manchester United, sem freist-
ar þess að veija enska meist-
aratitilinn, fór með heldur rýra upp-
skeru í pokanum frá viðureign sinni
við Tottenham á heimavelli sínum
í gærkvöldi. Leikurinn endað með
markalausu jafntefli og Blackburn
heldur þriggja stiga forystu í deild-
inni þegar níu umferðir eru eftir.
United sótti stíft í fyrri hálfleik
og áttu bæði Mark Hughes og Andy
Cole skot í tréverkið á marki Tott-
enham og Ian Walker í markinu
var í miklu stuði og sá um að taka
aðra bolta sem á markið komu.
Eftir hlé hresstust leikmenn Totten-
ham og fengu þá nokkur ágæt
marktækifæri.
Manchester City gerði jafntefli,
1:1, við Everton á útivelli. Þjóðveij-
inn Maurizio Gaudino kom City yfír
í fyrri hálfleik en David Unsworth
jafnaði fyrir Everton úr vítaspyrnu
tíu mínútum fyrir leikslok eftir að
brotið hafði verið á Svíanum And-
ers Limpar.
David Beasant stóð í marki Sout-
hampton gegn West Ham í stað
Bruce Grobbelaars og stóð sig vel.
Leikurinn endaði með jafntefli, 1:1.
Don Hutchison, sem hefur þrívegis
verið rekinn af leikvelli á þessari
leiktíð, gerði mark West Ham —
þriðja mark hans í fímm leikjum,
undir lok fyrri hálfleiks. Neil Ship-
perley jafnaði fyrir Southampton
með fyrsta marki sínu fyrir nýja
dæmdi leikinn og sýndi þremur leik-
mönnum Bayern, Dieter Frey, sem
handlék knöttinn og missir af næsta
Evrópuleik Bayern, Zickler og Osei
Kuufour, gula spjaldið.
Öruggt hjá Ajax
Vamarmaðurinn Frank De Boer
skoraði tvö mörk fyrir Ajax, sem
vann öruggan sigur, 3:0, á Hajduk
Split frá Króatíu í Amsterdam.
Leikmenn Ajax tóku leikinn strax
í sínar hendur og áttu varnarleik-
menn Hajduk í miklum erfiðleikum.
„Við skoruðum þijú falleg mörk,
en misnotuðum of mörg upplögð
tækifæri í seinni hálfleik. Þetta var
góður sigur og við lékum stórgóða
knattspyrnu," sagði Louis van Ga-
al, þjálfari Ajax, sem margir spá
Evrópumeistaratitlinum.
Barcelona úr leik
Barcelona, sem lék til úrslita við
AC Milan í meistarakeppninni í
félagið í byijun síðari hálfleiks.
Anthony Yeboah hefur verið á
skotskónum hjá Leeds að undan-
förnu og í gær gerði hann tvö marka
liðsins í 3:1 sigri á útivelli gegn
botnliðinu Leicester. Hann gerði
einnig tvö mörk um síðustu helgi í
3:0 sigri gegn Chelsea.
fýrra, er úr leik. Tvö mörk PSG,
frá Rai og Vincent Guerin, á síð-
ustu 18 mínútum leiksins gerðu út
um vonir spænsku meistaranna sem
töpuðu 2:1 í París, en fyrri leikurinn
á Spáni endaði með jafntefli, 1:1.
Jose Maria Bakero náði forystunni
fyrir Barcelona snemma í síðari
hálfleik. Vörn Barcelona átti í hinu
mesta basli með David Ginola fram-
heija PSG, sem átti sjálfur þijú
skot í markstangir Barcelona.
Jafnt í Portúgal
Evrópumeistararnir í AC Milan
gerðu markalaust jafntefli við
Benfica í Portúgal eftir að hafa
unnið heimaleikinn 2:0. ítalska liðið
á því möguleika á að vinna Evrópu-
meistaratitilinn í sjöunda sinn. 85
þús. áhorfendur bauluðu á leikmenn
Benfica, þegar þeir gengu af
leikvelli.
■ RON Atkinson, framkvæmda-
stjóri Coventry, hefur ekki áhuga
á að kaupa Búlgarann Trifon
Ivanov, landsliðsmiðvörð, sem
æfði meft félaginu. Ivanov, sem
er 28 ára, er leikmaður með Neuc-
hatel í Sviss.
■ SÁ orðrómur hefur verið uppi
að Liverpool hafi hug á að kaupa
Steve Staunton frá Aston Villa
á þijár milljónir punda, en Staun-
ton er fyrrum leikmaður Liver-
pool.
■ DAVID Seman, markvörður
Arsenal, sem hefur verið meiddur
— rifbeinsbrotinn, fær verkja-
sprautur fyrir Evrópuleik gegn
Auxerre í Frakklandi í dag.
■ VINNY Samways, sem hefur
ekki verið ánægður með að vera
varamaður hjá Everton, er kom-
inn á sölulista.
■ IVAN Golac, framkvæmda-
stjóri Dundee United, hefur verið
rekinn.
■ FEYENOORD leikur án De
Goey gegn Real Zaragpza í
kvöld, en eiginkona hans á von á
barni. Róðurinn verður erfiður hjá
hollenska liðinu, þar sem Spán-
verjarnir hafa ekki tapað á
heimavelli sínum, Romareda
Stadium síðan í október 1993.
Bridgemót Vals
verður haldið að Hlíðarenda mánudagana 20.
og 27. mars kl. 20.00. Mótið er tvímenningur
og peningaverðlaun verða veitt.
Bridgemeistararnir Jón Baldursson 1821
meistarastig og Sævar ÞorbjÓrnsson 1168
meistarastig spila sem gestir, án keppni til
verðlauna.
Skráning hjá húsverði í síma 11134.
Allir bridgeáhugamenn velkomnir.
Nefndin.
Miðar seldir á 20 þús. kr.
GEYSILEGUR áhugi var á leik IFK Gautaborgar og Bayern
MUnchen og uppselt á leikinn fyrir löngu — 36.525 áhorfendur.
Stuttu fyrir leikinn gengu miðar á svörtu á aUt að 20 þús. ísl.
kr. Svo margir fréttmenn frá Evrópu — flestir frá Þýskalandi,
Belgíu og Holiandi, voru á leiknum, að takmarka þurfti fjölda
sænskra fréttamanna.
Rýr uppskera
áOldTrafford