Morgunblaðið - 25.03.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 25.03.1995, Síða 1
J#Kr0M»Ma^í§» 1995 LAUGARDAGUR 25. MARZ BLAD MorgunblaOið/Knstinn OLGA Færseth og félagar úr Brelðabliki unnu KR-inga í fyrri eða fyrsta leik liðanna í undanúrslitum 1. deildar kvenna í gærkvöldi og hér smeyglr Olga sér framhjá Söru Smart og Hanna Kjartansdóttir er tilbúln í frákastið. í hinum undanúrslitaleiknum vann Keflavík lið Grindavíkur en næstu leikir liðanna eru á morgun. Ásgeirvaldi 21 leik- mann í undirbúnings- hóp fyrir leik við Chile ÁSGEIR Elíasson, landsliðsþjálfarí í knatt- spymu, hefur valið 21 leikmann í undirbún- ingshóp vegna næsta verkefnis sem er æf- ingalandsleikur í Chile í lok apríl. Atvinnu- mennirnir erlendis eru að sjálfsögðu ekki með en stefnt er að því að sem flestir þeirra fari til Chile. Eftirtaldir leikmenn eru í hópn- um sem undirbýr sig hér heima: Amar Grétarsson, Breiðabliki. Kristján Jónsson, Bodö. Ólafur Kristjánsson, FH. Birk- ir Kristinsson og Pétur Marteinsson, Fram. Þórhallur Dan Jóhannsson, Fylki. Haraldur Ingólfsson, Ólafur Adoifsson, Ólafur Þórðar- son, Sigurður Jónsson og Sigursteinn Gísla- son, í A. Friðrik Friðriksson, ÍBV. Einar Þór Danielsson, Hilmar Björnsson, Izudin Daði Dervic, Kristján Finnbogason, Óskar Hrafn Þorvaldsson og Þormóður Egilsson, KR. Gunnar Oddsson, Leiftri. Baldur Bjarnason, Stjörnunni, og Guðmundur Benediktsson, Þór, en ekki hefur verið gengið frá félaga- skiptum hans í KR. Island mætir Svíþjóð í Evrópukeppni lands- liða 1. júní og bendir allt til þess að leikurinn við Chile verði eini æfingaleikurinn fyrir viðureignina í Svíþjóð. Til stóð að reyna að fá leik heima 22. eða 23. maí og var þá gert ráð fyrir að 1. umferð 1. deildar hæfist 18. maí. Frá því var horfið vegna Heimsmeistara- keppninnar í handknattleik sem stendur þá sem hæst hér á landi og verður 1. umferð íslandsmótsins 23. maí. Bolton greiddi Spurs skaðabætur fyrir Guðna Bergsson SAMNINGUR Guðna Bergssonar við Bolton, sem er í öðm sæti í 1. deild ensku knattspyrn- unnar, hafði ekkert með sölu frá Tottenham að gera, að sögn Bergs Guðnasonar, lögfræðings og föður Guðna, heldur greiddi Bolton Spurs skaðabætur þar sem úr- valsdeildarfélagið taldi að Guðni væri enn samningsbundinn því. Hins vegar hefur Guðní ávallt. haldið því fram að Iiann væri laus allra mála hjá Spurs og um það hefur ágreiningur- inn staðið en Samband atvinnuknattspyrnu- manna i Englandi hefur tekið málið að sér fyrir hönd Guðna. Eins og greint var frá í blaðinu í gær fékk Tottenham 65.000 pund (um 6,6 millj. kr.) frá Bolton sem samþykkti auk þess að greiða 1.000 pund fyrir hvern leik sem Guðni léki með liði félagsins upp í 50 leiki eða alls 50.000 pund. KORFUKNATTLEIKUR HANDKNATTLEIKUR Þorbjöm úrskurðaður í eins leiks bann orbjöm Jensson, þjálfari Vals, var úrskurðaður í eins leiks bann fyrir óprúðmannlega framkomu eftir leik Vals og KA í fyrrakvöld. Dómarar leiksins kærðu Þorbjörn og tók aganefnd málið fyrir í gærmorg- un. HSÍ sendi síðan út tilkynningu þar sem stóð að bannið tæki gildi kl. 12 á hádegi í dag, laugardag, en það stangast á við 11. grein reglu- gerðar fyrir aganefnd HSÍ þar sem segir m.a.: „Skrifstofa HSÍ tilkynnir úrskurði aganefndar næsta dag eftir fund nefndarinnar og tekur hann gildi kl. 12.00 á hádegi, næsta dag þar á eftir.“ Klukkutíma síðar var send út leiðrétt tilkynning í samræmi við 11. greinina og tekur bannið gildi kl. 12 á hádegi á morgun. Þorbjörn sagði við Morgunblaðið að úrskurður aganefndar hefði kom- ið sér á óvart en ekki mistökin sem væru í takt við annað en bætti við að þetta væri furðulegt og ekki á það bætandi að tjá sig um það. „Spámaðurinn“ öruggur Aður en úrslitakeppnin hófst sagði Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðs- þjálfari, við Morgunblaðið hver úrslit yrðu í einstökum leikjum og hefur spáin gengið að öllu leyti eftir nema hvað leikir Vals og Hauka í átta liða úrslitum urðu þrír en ekki tveir eins og „spámaðurinn" átti von á. Hann hefur ávallt haldið því fram að Valur fengi íslandsmeistarabikarinn af- hentan á Akureyri eftir fjórða leik við KA. „Ég held mig við fyrri spá og því klárar Valur þetta á Akureyri," sagði Þorbergur við Morgunblaðið í gær. „Alfreð Gíslason hefur verið djarfur og þorað að prófa ýmislegt með KA-liðið sem er nauðsynlegt í svona keppni. Hins vegar gerir breiddin hjá Val útslagið og eins er komið að Guðmundi Hrafnkelssyni að sýna sitt rétta andlit en hann á mikið inni,“ sagði Þorbergur. Morgnnblaðið/Kristinn ÞORBJÖRN Jensson var brúnaþungur þrátt fyrir sigur Vals gegn KA í fyrrakvöld og haföi ýmislegt út á dómgæsluna aö setja en í kjölfarið var hann úrskurðaður í eins leiks bann. FRJÁLSÍÞRÓTTIR: MARTHA ERIMSTDÓTTIR SEGIST ORÐIIM SAMKEPPIMISHÆF / C3

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.