Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 2
2 C LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 HESTAR MORGUNBLAÐIÐ íslandsdeildin á uppleið á heimssýningu hest- anna í Þýskalandi HEIMSSÝNING hestanna „Equitana" sem nú er komin vel á þrítugsaldurinn var nú sem fyrr haldin í Essen í Þýskalandi dagana 4. til 12. mars. Eins og með börn og unglinga hefur sýningin vaxið og dafnað á þessum árum en svo virðist sem að endimörkum ívexti sýningarinnar sé náð. Vera kann þó að stærð sýningahallanna í „Messe Essen“ setji þar einhver takmörk því hver einasti fermetri af þessum 80 þúsund var gernýttur. Aldrei hefur verið um það deilt að Equitana sé góður vett- vangur fyrir íslenska aðila til að kynna vörur sínar ... og þjónustu. Ekki Krístinsson var synmgm nu þar skrífar nein undantekning á nema síður væri. Arinbjörn Jóhannsson sem rekur ferðaþjónustu í Húnavatnssýslu sagði viðbrögð og undirtektir með allra besta móti á sýningunni og undir það tók Einar Bollason sem kvaðst aldrei hafa fengið jafn- margar bókanir á staðnum og nú. Töldu þeir félagar að umferðin um íslensku básana hafi margfaldast frá síðustu sýningum og væri þetta allt í góðu samræmi við þá stöð- ugu aukningu sem ætti sér stað í bæði útflutningi hrossa frá íslandi og eins sölu á hestaferðum um landið sem. Markaðsmögnleikar Halldór Gunnarsson fram- kvæmdastjóri Félags hrossa- bænda var staddur á Equitana og sagði hann þessa sýningu sanna enn einu sinni svo ekki sé um villst i iijh n • 'fi "á Æ & jfóUf'A j! Vinsælar kynningar KYNNINGAR á íslenska hestinum fór reglulega fram í ís- landshestadeildinni en hér eru það Walter og Sandra Feld- mann ásamt Dieter Becker sem kynna áhrif ýmissa hjálpar- tækja á þjálfun hestsins. að mestu markaðsmöguleikarnir fyrir íslenska hestinn séu fyrst og fremst í Þýskalandi. Taldi hann að af þessum sökum ætti hiklaust að leggja enn meiri rækt en gert hefur verið við Equitanasýninguna því þarna væri langstærsti og sterkasti markaðurinn fyrir ís- lenska hestinn. Taldi Halldór nauðsynlegt að starfa náið með þjóðveijum að þessum málum og nefndi hann í því sambandi „Saga Reitsc,hule“ og gat þess að fyrstu hestakaupmennimir á vegum skól- ans kæmu til landsins í apríl eða maí. Sagði Halldór ennfremur að skólinn hefði verið kynntur á sýn- ingunni og komið fram fjöldi fyrir- spurna og greinilegt að hugmynd- in hefur vakið athygli. Á niðurleið Allt frá því íslenskir hestar komu fram í fyrsta skipti á Equit- ana hafa þeir óumdeilanlega verið eitt af þremur vinsælustu atriðun- um á kvöldsýningunum en á nýaf- staðinni sýningu verður ekki betur séð en íslenski hesturinn sé nú fallinn af þessum stalli. Þeir sem hafa samanburðinn eru þess full- vissir að atriðið með íslenska hest- inum hafi nú skipað fimmta til sjöunda sæti. Blessaður klárinn hefur nú orðið að víkja fyrir Anda- lúsíuhestinum, einum tveimur sirkusatriðum og akstursíþróttin, það er akstur hestvagna, virðist nú eiga vaxandi vinsældum að fagna. Voru ein þijú atriðið með hestvögnum á hverri kvöldsýningu og þótti sumum nóg um. Þar á meðal voru heimsmeistararnir í liðakeppni sem fóru mikinn með fjögur fereyki og fannst mörgum nóg um hraðann hjá þeim og hrein- asta mildi að vagnarnir skyldu ekki velta. Þetta atriði vakti gífur- lega hrifningu sýningargesta og má mikið vera ef þetta atriði trónaaði ekki á toppnum á „Hop Top show“ eins og kvöldsýning- arnar kallast. En meira um Equit- ana síðar. íslandshestadeildin vins ÍSLANDSHESTADEILDIN á Equitana virðlst njóta vaxandi vinsælda með vel stöðugt vaxandi áhuga Þjóðverja fyrir hestinum sei EquKana fer til Bandaríkjanna ífyrstasinn EQUITANA sem allt fram að þessu hef ur verið haldið annað hvert ár í Essen f Þýskalandi verð- ur nú á faraldsfæti á næsta ári því ákveðið er að ein sýning verði haldin í Louisville í Kentucky í Bandaríkjunum dagana 18. til 21. júlf. Dagsetningin er valin sérstaklega með tilliti til þess að Ólympíuleik- arnir sem haldnir verða í Atlanta hefj- ast um svipað leyti og verður því hægt að tengja saman ferð á Equitana í Louisville og hestaíþróttir Ólympíuleik- anna. Sýningin verður haldin í risa- stórri sýningarhöll sem er öll undir einu þaki og að sjálfsögðu loftkæld eins og vera ber í henni í Ameríku. Wolf Kröber „Herra Equitana“ mun ásamt fylgdarliði frá Þýskalandi stjórna uppsetningu sýningarinnar þannig að tryggt verði að sá andi sem ríkt hefur á Equitana til þessa muni fýlgja með til Bandaríkjanna. Ahugi Bandaríkjamanna fýrir Equit- ana hefur aukist með hverri sýningu eins og stöðugt aukin þátttaka að vest- an sýnir best. Þykir nú orðið tímabært að bjóða upp á sýningu þar vestra. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Endurskipulagning nauðsynleg EFTIR þaulsetu á toppnum virðast íslendingarnfr nú fallnlr af stallinum og orðið tímabært að endurskipuleggja sýn- ingaratriðin sem boðið verður upp á á Equitana framtíðarinn- ar elgi að endurheimta toppsætið. íslendingar fallnir af sts Á undanförnum Equitana sýning um hefur komið fram gagnrýni á sýningaratriðin með íslenska hestinum á kvöldsýningunum „Hop TopShow". En þráttfyrir þessa gagnrýni hefur fslenski hesturinn alltaf haldið hlut sínum ef mið er tekið af viðbrögðum sýningargesta. Hefur þetta reyndar verið mælt með klapp- eða hávaðamæli sem staðfest hefur svo ekki hafi verið um villst vinsældir íslenska hestsins. Nú er hinsvegar svo komið að ís- lendingarnir tróna ekki lengur á toppnum þótt atriðið með íslensku hrossunum hafi ekki verið neitt lakara en áður. Sömuleiðis var gagnrýnin síð- ur en svo háværari nú en áður nema síður væri og því ekki óeðlilegt að ein- hveijir kunni að spyija hvað hafi eigin- lega farið úrskeiðis? Áður en lengra er haldið er rétt að skýra örlítið í hverju sýning íslensku hestanna var fólgin. Sigurbjörn Bárð- arson reið á vaðið á Vídalín frá Sauðá- króki þar sem þeir fóru stutt sóló. Á fyrstu sýningunum var Vídalín heldur óstýrilátur en lagaðist þegar á leið. Skiluðu þeir sínu alveg þokkalega þótt nokkuð vantaði upp á að Vídalín sýndi sínar bestu hliðar, fótaburðurinn klikk- aði þó ekki. Á eftir þeim félögum komu fram tólf íslenskir stóðhestar úr Rhein- land Pfalz og Saarlandi. Fóru þeir um í hálfrökkri með sjálflýsandi efni á fótum, hugmynd af sýningu F.T. Fóru þeir um í ágætri munsturreið og á eftir þeim komu skeiðhestarnir með miklum látum. Ekki var hægt að sjá að neitt hafí farið alvarlega úr böndun- um umfram það sem áður hefur gerst en hinsvegar virðast sömu vandamálin hafa átt hér hlut að máli auk þess sem ætla má að gestir á „Hop Top Show“ séu hreinlega búnir að fá leið á lítið breyttu atriðinu ár eftir ár. Þegar tal- að er um sömu vandamálin er átt við þungan völlinn og þrengslin fyrir skeiðhestana sem gerir það að verkum að skeiðsýningarnar eru oft á tiðum hálfgerð nauðgun og eiga lítið sam- eiginlegt með fágaðri og fallegri reið- mennsku sem er í hávegum höfð á Equitana. Völlurinn á Equitana hefur alla tíð verið eins og sandkassi sem hentar engan veginn fyrip ganghesta. Það kom greinilega fram í sameigin- legri sýningu ganghesta sem var hál- flágkúruleg þar sem íslensku hestarnir voru áberandi bestir. Ganghestar eiga greinilega mjög erfitt með að sýna stinnan og frísklegan gang ef undir- lagið er of mjúkt. Þeir eru margir sérfræðingarnir sem hafa sagt að útvega þurfi betri hesta í þessar sýningar sérstaklega á þetta við um landann oft nýkominn að heim- an búinn að drekka nokkra bjóra og segist eiga hest heima sem sé betri en allar þessar truntur sem Þjóðver- jarnir séu að skælast með á sýning- unni. Ekki er hægt að neita þeirri stað- reynd að allir eða flestir bestu hestarn- ir í Þýskalandi eru ekki falir í þessa sýningu, en hversvegna? Ástæðurnar eru þijár, í fyrsta lagi má fastlega gera ráð fyrir að hestar sem taka þátt í Equitana komi veikir heim því þar sem koma svo margir hestar saman víða að er mjög hætt við að staðurinn geti breyst í pestarbæli. Þá er því slysahætta fylgjandi að þenja hest einu sinni til tvisvar eða oftar á dag í tíu daga, í reiðfæri eins og að ofan get- ur. Að síðustu má svo geta þess að litlar greiðslur hafa komið fyrir þátt- töku manna í Equitana en sá sem mætir þangað með hest eyðir í þetta allt að hálfum mánuði. En hvað er til úrbóta, er þá eðlilega næsta spurning. Ef fyrst er vikið að undirlagi vallarins má ætla að erfið- lega geti reynst að fá úr því bætt því þetta er það sem hentar stóru hestun- um og því hætt við að allur háaðallinn rísi upp á afturfæturna og sýni tenn- urnar en fróðlegt væri þó að fregna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.