Morgunblaðið - 29.03.1995, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1995 F 3
Minnispróf
Horfiðá
myndina í
eina mínútu.
Leggið blaðið
frá ykkur og
teljið upp hlut-
ina á myndinni.
Hvað þið munið
eftir mörgum,
er það sem mál-
ið snýst um.
Gangi ykkur
vel.
Bóka-
ormur
Eva Birgisdóttir, 9 ára yngis-
mær til heimilis á Hóla-
braut 10, 780 Hornafirði, sendi
teikninguna af orminum
græna.
Hann er glaðlegur á svipinn,
blessaður, enda með bók í
hendi. Sannkallaður bókaorm-
ur. Við vitum jú, að góð bók
er einn okkar besti vinur, það
er sko alveg á hreinu.
Við skulum nú bara vona,
að enginn ætli sér þá firru, að
mótmæla þessari fullyrðingu!
í alvöru talað, þið hafið
hvert og eitt ykkar skoðun á
þessu máli, sem og öðrum
væntanlega, og öllum ber að
virða þær.
SKIPTIMARKAÐURINN
Eg, Dóra Steinunn, og
Ármann Ingvi bróðir
minn viljum skipta GOONIS
2, sem passar í Nintendo,
Mattlel eða Nes tölvu, og fá
SNAKERATTLE NORLL,
sem passar í Nintendo
Europa Version.
Heimilisfang okkar er:
Gnoðarvogur 62,
104 Reykjavík
SÍMI: 681992
Ég heiti Eva Margrét
Sigurðardóttir og ég elska
áð lesa. Ég er 11 ára og
myndi vilja skipta eða fá
lánaðar sjaldgæfar bækur.
Ég myndi líka vilja skipta
á frímerkjum, límmiðum,
servíettum og plakötum.
Ég vil líka kaupa notaða
Game Boy leiki og geisla-
diska.
Eva Margrét Sigurðardóttir,
Tunguheiði 8,
200 Kópavogur
SÍMI: (91) 45462
Mig vantar einhvem til
þess að skipta á galdradóti
í kassa. Mig langar í tölvu-
leik í staðinn.
Sigurbaldur Frímannsson,
Heiðahrauni 22,
240 Grindavík
Ertu týndur?
Svo er það hann Sindri,
blessaður. Upplýsingarn-
ar eru ekki burðugri en nafnið
eitt. Ekkert föðurnafn, enginn
aldur, ekkert heimilisfang.
Vitaskuld eigið þið, elskurn-
ar, að merkja myndirnar ykkar
og allt annað efni, sem þið
sendið okkur hérna á Mynda-
sögur Moggans. Þetta vitið þið
auðvitað, gleymið því bara
stundum.
Sindri gæti hafa sent upp-
lýsingar með, en þær glatast
hjá okkur. Það er möguleiki
og þá biðjumst við velvirðingar
á því.
Sindri minn, hafðu þakkir
fyrir flotta mynd.
VERJÐUM
vie>?
(SJÁIP, PlLTARí SVltt i L ATUAISI
\ ALUR VERA SVÍH!