Morgunblaðið - 04.04.1995, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.04.1995, Qupperneq 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Skíðamót Islands verður sett í 54. sinn á ísafirði annað kvöld Frá 1938 hafa þessir oftast orðið ísiandsmeistarar í alpagreinum, svigi og stórsvigi Svig karla Kristinn Benediktsson, ísaf., (1960-65) '’4‘: ' Eysteinn Þórðarson, Reykjav., (1955-58) ' Sigurður H. Jónsson, ísafirði, (1978-80) Árni ÞórÁrnason, Reykjavík, (1981-84) Örnólfur Valdimarsson, R.vík, (1988-90) Stórsvig karla Eysteinn Þórðarson, Reykjavík, (1955-60) Kristinn Benediktsson, ísaf., (1961-67) 3' ' Árni Óðinsson, Akureyri, (1969-72) i ■ Haukur Jóhannsson, Akureyri, (1974-80) Guömundur Jóhannsson, ísaf., (1983-85) Kristinn Björnsson, Ólafsfirði, (1991-94) Svig kvenna •5' Jakobína Jakobsdóttir, ísaf., (1954-62) Árdís Þórðardóttir, Siglufirði, (1964-69) Ásta S. Halldórsdóttir, ísafirði, (1989-94) IVIaja Örvar, Reykjavík, (1943-45) "-'-3 ■ Ingibjörg Árnadóttir, Reykjavík, (1948-50) Marta B. Guðmundsdóttir, ísaf., (1952-58) 3 Margrét Baldvinsdóttir, Akureyri, (1973-77) Steinunn Sæmundsdóttir, R.vík, (1978-80) ■■3í;. ■ Nanna Leifsdóttir, Akureyri, (1982-84) Stórsvig kvenna Steinunn Sæmundsdóttir, R.vík, (1976-80) Jakobína Jakobsdóttir, ísafirði, (1953-56) Kristín Þorgeirsdóttir, Siglufirði, (1960-63) Árdís Þórðardóttir, Siglufirði, (1964-68) Nanna Leifsdóttir, Akureyri, (1981-84) !<3' Guðrún H. Kristjánsdóttir, Ak., (1985-90) Ásta S. Halldórsdóttir, ísafirði, (1991-94) ■ MJKIL fagnaðarlæti brutust út á lokahófi handknattleiksmanna á Hótel íslandi á laugardagskvöldið, þegar Sigmundur Ernir Rúnars- son, veislustjóri tilkynnti samkom- unni að heiðursgestur kvöldsins væri Bogdan Kowalczyk, fyrrver- andi landsliðsþjálfari. ■ SUMJR misstu hreinlega stjórn á tilfinningum sínum, eftir tilkynn- ingu Sigmundar Ernis, stóðu upp og klöppuðu og hrópuðu, „Bóbó, Bóbó, Bóbó Konráðs er kominn!" en Bóbó Konráðs er gælunafn sem Sigurður Sveinsson gaf Bogdan á meðan dvöl hans á Islandi stóð. Eftir nokkra stund gleðiláta gesta tilkynnti Sigmundur að um 1. aprílgabb væri að ræða! Bætti svo við að Bogdan kæmi reyndar til íttém FOLX landsins í maí, á heimsmeistara- keppnina... ■ HÉÐINN Gilsson lék að mestu í vörninni þegar Diisseldorf tapaði úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar, 18:24, fyrir Lemgo. Héðinn, sem skoraði eitt mark í leiknum, fékk sína þriðju brottvísun tíu mín. fyrir leikslok og var útilokaður frá leikn- um. ■ DIONICIO Ceron frá Mexíkó varð um helgina fyrsti karlmaður- inn til að sigra í London maraþon- inu tvisvar í röð. Ceron náði næst besta tímanum í sögu hlaupsins, 2.08,30 klst og var aðeins tveimur sekúndum a undan Steve Moneg- hetti frá Ástralíu í mark. Það er aðeins Steve Jones frá Bretlandi sem á betri tíma en Ceron, 2.08,16 klst. í hlaupinu árið 1985. ■ MALGORZATA Sobanska frá Portúgal kom fyrst kvenna í mark á 2.27,42 klst. og var tíu sekúndum á undan Evrópumeistaranum Manuelu Machado frá Póllandi. ■ NICK Price, kylfingur frá Zimbabe er efstur á heimslista at- vinnumanna í golfi. Hann hefur 20,95 stig. Nick Faldo frá Bret- landi er næstur með 18,28 stig og Greg Norman, Ástralíu, í þriðja með 17,96 stig. ■ REINHARD Fabisch, lands- liðsþjálfari Zimbabwe, sagði í gær að Bruce Grobbelaar myndi leika með landsliði Zimbabwe gegn Le- sotho í 8-liða úrslitum Afríku- keppninnar um næstu helgi. Tveir aðrir leikmenn koma frá Englandi — Peter Ndlovu, Coventry og Henry McKop, Bristol City. UMGJOKD I J|-slitakeppnin í körfuknatt- leik stendur nú sem hæst, bæði í kvenna- og karlaflokki. Þegar þetta er ritað hefur Njarð- vík 2-1 yfir gegn Grindvíkingum í karlaflokki og Breiðabliksstúlkur eru 2-0 yfir gegn Keflvlk- ingum. Talsverður munur er á úrslita- keppninni núna og undanfarin ár, úrslita- keppnin í fyrra og hitteðfyrra var mun skemmtilegri. Ekki er gott að segja hver ástæðan er, en eitt af því sem kemur upp í hugan er breytt umgjörð. Umgjörð leikj- anna síðustu tvö ár var skemmti- leg og fólk flykktist á leikina til þess að hafa gaman af. í Grinda- vík var troðfullt hús klukkustund fyrir leik en núna er húsið ekki einu sinni fullt. Umgjörð leikjanna undanfarin ár gerði það að verkum að áhorf- endur höfðu eitthvað til að hlakka til. Menn mættu, sungu og skemmtu sér og síðan má auðvit- að ekki gleyma því að leikirnir sjálfir voru miklu skemmtilegri og betri en þeir leikir sem fram hafa farið núna. Úrslitakeppnin í handboltanum var sérlega skemmtileg og minnti um margt á úrslitakeppnina í körfu síðustu árin. Nú bregður svo við að körfuknattieiksmenn virðast vera að dragast aftur úr hvað þetta varðar, en þeir höfðu svo sannarlega vinningin fyrir nokkrum árum, enda tók hand- knattieikurinn úrslitakeppnina upp eftir körfunni. En hvers vegna var handboltakeppnin svona skemmtileg en körfuknatt- leikskeppnin virðist ætla að verða dauf? Við þessu er ekkert eitt svar. Gætu yfirburðir Njarðvíkinga í deildarkeppninni haft einhver áhrif? Varla. Menn ættu frekar að fjölmenna til að sjá liðið sitt og hvetjaþað til enn frekari dáða. Er körfuknattleikurinn sem leik- inn er í vetur verri en undanfarin ár? Trúlega, en ekki svo mikið Umgjörðin í körfunni er lítil og áhorfendur mun færri en ádur lakari að menn hætti að fylgjast með. Dregur það úr aðsókn að leikimir eru allir sýndir í sjón- varpi? Því hefur oft verið haldið fram að það dragi úr aðsókn séu leikir sýndir beint í sjónvarpi. Af feng- inni reynslu síðustu ára og úrsli- takeppninni í handknattleiknum í ár, ætti það ekki að vera. Það er allt önnur stemmning að vera á staðnum og fylgjast með leik en sjá hann í sjónvarpi, sérstak- lega ef leikirnir eru góðir og spennandi, svo ekki sé nú talað um ef mikil stemmning skapast meðal áhorfenda. Hver svo sem ástæðan er fyrir minni aðsókn á úrslitaleikina í körfunni þá eru margir þess full- vissir að ein aðalástæðan sé um- gjörðin. í vetur hefur hún verið lítii sem engin miðað við fyrri ár og held ég sé vert fyrir forráða- menn félaganna og Körfuknatt- leiksambandsins að íhuga þetta. Það þarf að gera eitthvað fyrir áhorfendur til að þeir komi á leiki, sérstaklega nú á síðari árum þeg- ar ýmislegt annað fangar huga manna. Þá er ekki hægt að loka augunum fyrir þvl að íjölgað hef- ur leikjum I úrslitakeppninni, þannig að kostnaður áhorfenda hefur aukist verulega við að fara á alla leikina. Skúli Unnar Sveinsson Hyererhúnþessi PEIMNIPEPPAS körfuboltakonansnjallaíBreiðabliki? Kúrekastelpa frá Arkansas PENNI Ann Peppas er fyrsti og eini atvinnumaður íkvennakörfu- boltanum á íslandi þó hún sé bara um 177 sentimetrar á hæð. Hún hefur vakið mikla athygli fyrir tilþrif við körfuna og farið á kostum í síðustu leikjum — gerði 49 stig af 98 í Keflavík og 29 af 61 í Kópavoginum. Hún er að leiða Breiðablik að íslands- meistaratitlinum en ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið því enn vantar Breiðablik einn sigur á Keflavíkurstúlkum. Penni var ekki alveg á því að yfirgefa bóndabæinn og kýrnar í Arkans- as og fyrirhugað læknanám til að fara til íslands að spila körfu- bolta, en sló auðvitað til. Penny er 22 ára og verður tutt- ugu og þriggja I júní. Hún kemur úr fylkinu Arkansas í mmi Bandaríkjunum, Eftir nánar tiltekið frá Stefán Ocark sem er 3.000 Stefánsson íbúa smábær og fyrir hana er Reykjavík því líklega stórborg. Ekki nóg með það því áður en hún gerði körfubolta að atvinnu og það á ísiandi, hafði hún aldrei komið út fyrir landsteinana. En hvefnig I ósköpunum endaði hún á Islandi? „Ég var að klára háskólann og hafði spilað lengi. Einn þjálfari mótheija minna sá eitthvað í mér og lét setja mig á lista. Síðan var Sigurður [Hjörleifsson þjálfari Breiðabliks] einhvem veginn kom- inn með nafnið mitt og bauð mér að koma og spila hér á landi.“ Verður þú áfram hér á landi? „Já, ég fer heim eftir nokkrar vikur en kem aftur I ágúst því mig langar að vera áfram næsta ár. Mér líður vel hér og mun líklega búa hér I framtíðinni því ég er komin með íslenskt mannsefni. Hann heitir Gunnar Már Gíslason og fer með mér út til að fólkið mitt geti hitt hann.“ Færðu stundum heimþrá? „Það kemur fyrir en fólkið mitt er duglegt við að hafa samband og senda myndir. Svo eru stelpum- ar í liðinu mjög duglegar við að hjálpa mér að hafa ofan af fyrir mér. Fjölskylda mín á búgarð þar sem við höfum kýr og ræktum ýmislegt, svo sem jarðarber, bláber og ferskjur. Ég tók líka með mér kúrekahattinn og kúrekastígvélin, sem ég gekk alltaf með heima I Bandaríkjunum og þegar ég fæ mikla heimþrá skelli ég mér I gall- ann.“ Hvernig var að koma hingað í kuldann? „Ég hafði aldrei séð snjó áður nema í sjónvarpinu. En ég er búin að venjast snjónum og kuldanum Morgunblaðið/Þorkell PENNI Peppas frá Arkansas kann vel vlö sig hér á landl og seglr líklegt að hún setjist hér að. ágætlega en rokinu venst ég ekki. í Arkansas er mjög heitt og ætli ég fái ekki áfall I hitanum þegar ég fer út í sumar.“ Er eitthvað á ísiandi sem hefur komið þér á óvart? „Já, ég skil ekki hvernig ungling- ar geta verið úti um helgar, meira að segja til klukkan tvö eftir mið- nætti. Þaðan sem ég kem er þetta ekki svona og mér brá svolítið. Annars eru íslendingar mjög opnir og hafa tekið mér mjög vel. Þeir eru heiðarlegir og hika ekki við að segja hvað þeim býr I bqosti — stundum jafnvel um of.“ Hvað fínnst þér um körfubolta- stelpurnar hér á landi? „Þær eru ótrúlega góðar margar og í hveiju Iiði eru alltaf tvær til þrjár sem myndu sóma sér vel I mörgum háskólaliðum heima. Ég er viss um að þær tíu bestu hér gætu komist á skólastyrk í Banda- ríkjunum og staðið sig vel.“ En strákarnir? „Mér kom mikið á óvart hvað liðin eru góð hér. Fyrsti leikurinn sem ég sá var Breiðablik gegn Keflavík og Jón Kr. Gíslason var ótrúlega góður. Það vantar að vísu upp á hæðina en hittnin er sérstök. Ég vil meina að mörg lið I úrvals- deildinni þurfi ekki á neinum út- lendingum að halda og gæta alveg spjarað sig án þeirra.“ Mér skylst að þú sért orðin vit- laus í handbolta. Er eitthvað til í því? „Já, ég hafði að vísu aðeins séð af handbolta á kynningu í skólan- um heima. í Ocark en hér hef ég fengið mikinn áhuga á leiknum. KA er mitt lið.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.