Morgunblaðið - 04.04.1995, Blaðsíða 5
-
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL1995 C 5
ÍSLANDSMÓTIÐ í KATA
KORFUKNATTLEIKUR
Reuter
ibley
á Wembley, þar sem hann skoraöl
tyttuna sem hann fékk fyrir að vera
„ÞETTA íslandsmót í kata sýn-
ir að það er mikil framför í
íþróttinni hér á landi. Keppni
hef ur aldrei verið eins jöfn og
spennandi og þátttakendur
hafa aldrei verið fleiri. Sér-
stakt ánægjuefni er vaxandi
áhugi kvenna á íþróttinni,"
sagði Karl Gauti Hjaltason,
formaður Karatesambands-
ins, að loknu íslandsmótinu í
kata-karate sem fram fór í
íþróttahúsi Vals á laugardag-
inn. Þrjátíu keppendur tóku
þátt og var bæði keppt f ein-
staklings- og hópkata.
Ikata kvenna sigraði Jónína
Olesen, KFR, nokkuð örugglega
og var þetta í sjöunda sinn á tíu
árum sem íslandsmeistaratitilinn
fejlur henni í skaut.
ívar „Ég er að sjálf-
Benediktsson sögðu mjög ánægð
skrifar með sigurinn.
Keppnin var mjög
skemmtileg og það setti ánægju-
legan svip á hana hversu góð þátt-
taka var á mótinu. Ég hef æft og
keppt í 15 ár, en nú stefni ég að
því að hætta keppni en halda áfram
að æfa,“ sagði Jónína að keppni
lokinni. í öðru sæti var Edda
Blöndal, Þórshamri, og Inga Júl-
íusdóttir, Þórshamri, hafnaði í
þriðja sæti.
í karlaflokki, í einstaklings kata,
var jöfn keppni á milli silfurhafans
frá því í fyrra, Grétars Halldórs-
sonar, KFR, og handhafa íslands-
meistaratitilsins , Ásmundar ísaks
Jónssonar, Þórshamri. Fór svo að
lokum að Grétar hafði betur og
hampaði íslandsmeistaratitlinum.
„Sigurinn var mjög ánægjulegur
og ekki síst af þeirri ástæðu að
keppnin var mjög jöfn og skemmti-
leg. Gæðin eru að batna og í svona
jafnri keppni eins og var hér er
það dagsformið sem ræður úrslit-
um. Ég fer utan til náms í haust
og verð ekki með að ári liðnu og
því var þetta síðasti möguleiki
ja Liverpool
ona, en undir lok leiksins var hann
rekinn af leikvelli eftír að hafa séð
gula spjaldið tvisvar.
Eins stigs for-
skot Dortmund
BORUSSIA Dortmund náði eins
stigs forskoti í Þýskalandi, með
því að leggja Bayer Uerdingen að
velli, 3:1, á laugardaginn, en Werd-
er Bremen náði aðeins jafntefli,
0:0, í Hamborg á sunnudaginn.
Dortmund, sem hafði leikið fjóra
leiki í rðð án sigurs, opnaði leikinn
gegn Uerdingen með marki varn-
armannsins Martin Kree á 15. mín.
Fyrirliðinn Michael Zorc bætti
öðru við og Ghanabúinn Ibrahim
Tanko skoraði það þriðja. Step-
hane Passlack skoraði mark Uerd-
ingen stuttu fyrir leikslok. Sigur-
inn var mikilvægur fyrir Dort-
mund, sem leikur gegn Juventus
í undanúrslitum UEFA-bikar-
keppninnar í kvöld. Fjórir leik-
menn Dortmund léku ekki með
vegna meiðsla — Stephane Chapu-
isat, Flemming Povlsen, Matthias
Sammer og Guenter Kutowski.
Juventus með
níu stiga
forskot
JUVENTUS náði níu stiga for-
skoti á Ítalíu, þegar liðið gerði
góða ferð til San Siro-leikvöllinn
í Mílanó, þar sem Fabrizio Ra-
vanelli og Gianluca Vialli skor-
uðu mörkin, 0:2. Á sama tima
skoraði Argent-
ínumaðurinn
Abel Balbo sig-
urmark Roma
gegn Parma,
1:0, en Parma
er enn i öðru
sæti. Þegar níu
umferðir eru
eftir hefur Ju-
ventus öruggt
forskot og fátt
getur komið í
veg fyrir fyrsta meistaratitil liðs-
ins i niu ár.
Giuseppe Bergomi hélt upp á
600. leik sinn með Inter Mílanó,
því að skora sigurmark liðsins,
1:0, gegn Reggiana.
Stefán
Stefánsson
skrifar
VIÐ erum agaðri og viljum vinna, lékum betri vörn
og stjórnuðum leiknum frá fyrstu mínútu. Nú er
pressan öll á þeim,“ sagði Sigurður Hjörleifsson þjálf-
ari Breiðabliks eftir 61:52 sigur á Keflvíkingum í
Smáranum á sunnudaginn, þegar liðin
mættust öðru sinni í úrslitaleikjum ís-
landsmótsins í körfuknattleik kvenna.
Munurinn á liðunum var meiri en tölurn-
ar segja til um og sigurinn síst of stór.
Blikastúlkur hafa því unnið tvo leiki en þrjá þarf til
að hreppa bikarinn og liðin mætast næst í Keflavík.
Vaskar varnir einkenndu leikinn í upphafi enda
voru aðeins 4 stig komin á töfluna eftir tæpar fjórar
mínútur og öll úr vítaskotum. Kópavogsbúar voru
greinilega ákveðnari en þó tókst Keflvíkingum að jafna
um miðjan hálfleik. En síðan ekki söguna meir og
Blikastúlkur komust örugglega fram úr. í upphafi síð-
ari hálfleiks stóðu gestirnir uppí hárinu á gestgjöfunum
en ekki lengi. Mesti munur varð 21 stig en minnkaði
þegar dró að leikslokum og aðeins 9 stig skildu að í
lokin, sem gefur ekki rétta mynd af leiknum.
Penni Peppas var atkvæðamikil hjá Breiðabliki þeg-
ar hún gerði 29 stig, tók 9 fráköst, náði boltanum
fjórum sinnum og gaf 6 stoðsendingar. „Þetta var
ekki létt en við gefumst ekki upp. Eftir fyrri leikinn
var sagt að við hefðum ekki verið góðar; heldur þær
lélegar og það hleypti líka lífi í okkur. Eg hef alltaf
sagt við stelpurnar að vörnin vinni leikinn og við náð-
um að brjóta þær niður. Ég er ekki örugg um að við
höfum þetta í þremur leikjum þó ég vilji það gjarnan
því þær samþykkja það örugglega ekki,“ sagði Penni
eftir leikinn. Liðið allt vann vel saman og Olga Fær-
seth og Hanna Kjartansdóttir gripu inní þegar þurfti.
Nú er bara að duga eða drepast hjá Keflvikingum
ef liðið ætlar að veija titilinn. Liðið getur betur en
hrekkur ekki í gang. Og nýtingin er kafli útaf fyrir
sig því í fyrri hálfleik fóru 7 af 14 skotum innan teigs
í körfuna, 1 af 8 utan teigs, ekkert af fimm þriggja
stiga skotum og 5 af 9 vítaskotum. í öllum leiknum
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson.
JÓIUÍNA Olesen, KFR, sem hér er í æfingum
sínum, fagnaði að þelm loknum sjöunda ís-
landsmeistaratltll sínum í kata karate á tíu
árum. Hún hyggst nú hætta keppni.
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson.
GRÉTAR Halldórsson, KFR, sigraði í fyrsta
skiptl á íslandsmóti í kata karla um helglna
eftir jafna og skemmtilega keppni vlð tltllhaf-
ann frá því í fyrra, Ásmund Isak Jónsson.
minn á titli í bili,“ sagði hamingju-
samur sigurvegari, Grétar Hall-
dórsson, að mótslokum. Silfurverð-
launin komu í hlut Ásmundar ísaks
Jónsson og bronsverðlaunin hlaut
Árni Þór Jónsson, Þórshamri.
í hópkata kvenna sigraði sveit
Þórshamars, sveit KFR varð í öðru
sæti og önnur sveit Þórshamars
hlaut þriðja sætið. Fyrsta sveit
Þórshamars sigraði í hópkata
karla, fimmta árið í röð, önnur
sveit Þórshamars hafnaði í öðru
sæti og sveit KFR hreppti þriðja
sæti.
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
Hvar er boltinn?
OLGA Færseth, Brelðablikl, á hér í baráttu
vlð Önnu Maríu Sigurðardóttur. Myndin lýsir
lelknum ágætlega því Keflvíkingar vissu
stundum ekkl hvaðan á slg stóð veðrlð.
fór eitt þriggja stig skot ofan i úr 14 tilraunum. Sigurð-
ur Ingimundarson þjálfari var óhress eftir leikinn og
sagði að lið sitt hefði ekki komið undirbúið til leiks
og myndi tapa stórt í þriðja leiknum ef ekki yrði breyt-
ing á. Það var helst Ánna María Sveinsdóttir sem lét
að sér kveða.
Sigur Blikanna
síst of stór
Sjöundi meistaratitill
Jónínu á tíu árum
<
l
j