Morgunblaðið - 04.04.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL1995 C 7
BADMINTON / DEILDAKEPPNI BSI
TAEKWONDO / ISLANDSMOT
ÍÞRÓTTIR
Spennandi viðureign
Islendinga og Svía
Islenskir unglingar í borðtennis
stóðu í ströngu um helgina þeg-
ar sænska unglingalandsliðið undir
15 ára kom hingað til lands. Koma
þeirra er mikill hvalreki á fjörur
Islendinga því Svíar þykja hafa á
Pétur
Blöndal
skrifar
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
SIGURLIÐ 1. delldar í badmlnton,TBR b, efri röö f.v.: Njörður
Ludvfgsson, Gunnar BJörnsson, Árnl Þór Hallgrímsson og
Ármann Þorvaldsson. Neðri röð f.v.: Guðrún Júlíusdóttir,
fyrirllðl, og Margrét Dan Þórisdóttir.
B-lið TBR sigraði
eflir oddalotu
Q-lið TBR sigraði óvænt í deilda-
að skipa bestu borð-
tennislandsliðum í
Evrópu.
Minnugir ófar-
anna hér heima í fyrra, þegar Is-
lendingar unnu unglingalandslið
Svíþjóðar 7-2, sendu Svíar sína allra
sterkustu unglinga. Þeirra á meðal
voru varnarspilarinn Hasse Petter-
son, sem er álitinn vera bestur í
sínum aldursflokki í Svíþjóð, og
Cyprian Asamoah, sem stendur
honum ekki langt að baki, en hann
er aðeins ellefu ára.
Á laugardeginum léku unglinga-
landslið Islands og Svíþjóðar. Fyrir
íslands hönd léku Guðmundur
Stephensen, Ingólfur Ingólfsson,
Bjöm Jónsson og Markús Árnason.
Leikar fóra 3-6 fyrir Svíþjóð i
spennandi viðureign, sem hefði get-
að farið á hvorn veginn sem var.
Á sunnudeginum var síðan haldið
árlegt Boðsmót BTÍ í TBR-húsinu
með þátttöku Svía og sautján ís-
lenskra borðtennismanna. Keppni
var skipt niður í fjóra undanriðla
og þar vakti hvað mesta athygli að
Ingólfur Ingólfsson vann besta
Svíann, Hasse Petterson, en tapaði
fyrir Evu og komst því ekki áfram.
í undanúrslitum vann Guðmund-
ur Stephensen Svíann Robert Nils-
son í hörkuviðureign og lék úrslita-
leik á móti Hasse Pettersen. Eftir
spennandi viðureign bar Pettersen
sigur úr býtum í oddaleik. Til gam-
ans má geta þess að Petterson er
fjórtán ára og því tveimur árum
keppni BSÍ um helgina eftir
að hafa borið sigurorð af a-liði TBR
í jöfnum úrslitaleik
jvar þar sem úrslit réðust
Benediktsson ekki fyrr en í odda-
skrifar l0tu í lokaleik móts-
ins. E-sveit TBR féll
í aðra deild og sæti þeirra að ári
tekur lið Ármans. í þriðju deild sigr-
uðu KR-ingar og f-lið TBR féll í
þriðju deild. í 1. og 2. deild var leik-
ið í húsnæði TBR en 3ju deildar-
keppnin fór fram í Keflavík.
Eins og fyrr segir var keppnin
mjög spennandi og voru taugar
keppenda þandar til hins ýtrasta
þegar kom að lokaleiknum, einliða-
leik, Sveins Loga Sölvasonar, TBR
a og Ármans Þorvaldssonar, TBR
b. Ármann vann fyrstu lotuna,
15:11, en Sveinn beit frá sér í ann-
arri lotu og sigraði 7:15. Kom því
til oddalotu þar sem Ármann hafði
betur, 15:10.
„Ég átti ekki von á því að sigra
hinn efnilega spilara, Svein Loga,
en það tókst og ég er að sjálfsögðu
mjög ánægður með það og ekki síð-
ur vegna þess að með sigrinum
tryggði ég sigur TBR b, í deilda-
keppninni. Utlitið var ekki bjart hja
okkur um miðjan leik, gegn TBR
a, því þá voram við 1:3 undir, en
okkur tókst að snúa taflinu við og
sigra, 5:3,“ sagði Ármann, eftir úr-
slitleikin gegn Sveini Loga.
„Þetta var hörkuleikur hjá okkur
Ármanni þar sem allt var undir, en
hann hafði það á seiglunni. Mikil
spenna var í leiknum og hann lék
betur lindir pressunni," sagði hinn
16 ára gamli Sveinn Logi Sölvason,
eftir tapleikinn.
Víkingur sigraði í annarar deildar
keppninni, sigruðu af öryggi í öllum
leikjum sínum. „Þetta var frekar
létt keppni. Það var óheppni að við
féllum úr 1. deildinni í fyrra og því
kom þessi sigur okkur ekki á óvart.
Við erum með blandað lið yngri og
eldri spilara og okkur hlakkar til
keppninnar á næsta ári,“ sagði
Kristján Kristjánsson, fyrirliði Vík-
inga, að keppni lokinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
THOMAS Engell, ÍR, og Brynjar Sveinjónsson, Fjölnl, elgast
hér við í - 70 kg flokki á íslandsmótinu, sem fram fór um
helglna. Michael Jörgensen dómari fylglst grannt með.
S
Ólafur varði titilinn
Íslandsmótið í Taekwondo fór
fram í íþróttahúsinu í Grafar-
vogi og reyndu rúmlega 60 kepp-
endur með sér. Þetta
Stefán Yar * annað sinn sem
Stefánsson Islandsmótið er
skrifar haldið þó íþróttin
hafi verið stunduð
hér á landi í 6 ár. Iðkendur eru nú
um 240 í þremur félögum, ÍR, Fjölni
og Ármanni. Upphafið má rekja
beint til Michael Jörgensen, sem
kom hingað frá Danmörku 1989
og kynnti íþróttina. „Framfarirnar
eru greinilegar og stórt skref tekið
fram á við enda er stefnan að halda
Norðurlandamótið 1996 hér á
landi.“
í +70 kg flokki, sem sterkustu
mennirnir eru í, varði Ólafur
Bjömsson, ÍR, íslandsmeistaratitil
sinn. „Það kom ekkert annað til
greina en halda mínu og þó keppn-
in hafi verið erfið var engu að síður
mjög gaman. Þetta er mikið spurn-
ing um hugarfar og aldrei má van-
meta andstæðinginn," sagði Ólafur
en hann er einnig Kvondómaður
íslands.
Taekwondo er sjálfsvarnaríþrótt
og svipar til karate nema hvað f
Taekwondo eru fætur aðallega not-
aðir í bardaga. Keppendur fá hjálm
og hlífar fyrir hendur, fætur og
maga. Bardaginn er þrjár þriggja
mínútna lotur og fá keppendur stig
fyrir högg og spörk.
GUDMUNDUR Stephensen,
íslandsmeistarl í borðtenn-
Is, lentl í öðru sæti á boðs-
mótl BTÍ eftir spennandi úr-
slltaviðureign við Hasse
Petterson.
eldri en Guðmundur.
íslendingar geta vel við unað, því
þarna áttu þeir í höggi við sterk-
ustu unglinga Evrópu í þessum ald-
ursflokki. Víst er að þetta vár mikil-
væg reynsla fyrir okkar fremstu
unglinga. Sýnt var að þeir stóðu
Svíunum ekki langt að baki og með
meiri reynslu á alþjóðlegum mótum
er aldrei að vita hvað framtíðin ber
í skauti sér.
100 keppendur
á landsmóti
Skíðamót íslands verður sett á
ísafirði annað kvöld. 100 kepp-
endur eru skráðir til leiks í alpa- og
norrænum greinum. Dagskrá mótsins
er sem hér segir:
Miðvikudagur:
Mótssetning í ísafjarðarkapellu kl.
20.30
Fimmtudagur:
Keppni í göngu hefst í Tungudal kl.
13.00. Keppt verður í 5. km göngu
kvenna, 10 km göngu pilta og 15 km
göngu karla.
Föstudagur:
Stórsvig karla og kvenna í Tungudal
og hefst keppni kl. 10:00. Keppni í
boðgöngu karla og kvenna fer einnig
fram í Tungudal og hefst kl. 13.00.
Laugardagur:
Svig karla og kvenna á Seljalandsdal
og hefst keppni kl. 09.00. Svigið er
einnig liður í alþjóðamótaröð Skíðasam-
bandsins og verða erlendir keppendur
með í mótinu.
Sunnudagur:
Alþjóðlegt svigmót (Icelandair Cup) í
karla og kvennaflokki á Seljalandsdal
hefst kl. 09.00. Samhliðasvig í karla
og kvennaflokki strax á eftir, eða um
kl. 15.00. í Tungudal hefst keppni kl.
11.00 í göngugreinum; 7,5 km göngu
kvenna, 15 km göngu pilta og 30 km
göngu karla. Verðlaunaafhending verð-
ur í Menntaskólanum kl. 20.30
BLAK
HK ætlar
titilinn
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar frá
Akureyri
Islandsmeistarar HK tryggðu
sér sæti í úrslitum íslands-
móts karla í blaki með 3:1 sigri
gegn KA á
Akureyri sl.
sunnudags-
kvöld. Kópa-
vogsmenn unnu
fyrri leikinn með
sama mun en þurftu að hafa
töluvert fyrir sigrinum í KA-
heimilinu.
Heimamenn byijuðu betur og
unnu fyrstu hrinuna 15:9 eftir
að hafa komist í 8:0. Gestirnir
voru hreinlega ekki vaknaðir.
Önnur hrina var löng og ströng.
HK-menn löguðu vömina og
miðjusóknirnar hrukku í gang.
Lokatölur í hrinunni urðu 15:11
HK í vil. í þriðju hrinu sigraði
HK 15:9 eftir mikla baráttu um
miðbikið en í þeirri fjórðu varð
spennufall. HK komst í 10:1 og
vann örugglega 15:6.
Rússinn Korneev og Sigurður
A. Ólafsson vora sterkir hjá KA
en liðsheildin var betri hjá HK.
Bandaríkjamaðurinn Mark
Andrew, Guðbergur Eyjólfsson
og Vignir Hlöðversson áttu
skínandi leik.
Við vissum að við áttum að
vinna þá og hugarfarið var ekki
rétt í byijun. Eftir að við feng-
um spark var þetta engin spurn-
ing. Þróttur er eina liðið sem
við höfum verið í vandræðum
með í vetur en við ætlum okkur
að sjálfsögðu að halda titlin
um,“ sagði Guðbergur Eyjólfs
son, hinn snjalli uppspilari HK
við Morgunblaðið á eftir.
Víkingur I vandræöum
Kvennalið KA og Víkings
mættust öðra sinni í undanúr-
slitum íslandsmótsins að lokn-
um leik karlanna í KA-húsinu
á sunnudagskvöldið. Leikurinn
var sveiflukenndur og mjög
spennandi á köflum en Víkings-
stúlkur hrósuðu sigri 3:1 og eru
komnar í úrslit.
Fyrsta hrinan var ævintýra-
leg. Víkingsstúlkur komust í
13:0 en þá tóku áhorfendur að
hvetja KÁ-stúlkur sem fylltust
eldmóði og skoruðu 7 stig í röð.
Víkingur marði þó sigur, 15:12.
Önnur hrinan var geysilega jöfn
og skemmtileg. Stúlkurnar í KA
voru undir 12:14 eins og í fyrstu
hrinu en nú fóru þær alla leið
og unnu 17:15. Þessi átök virt-
ust taka toll af þreki KA-
stúlkna og Víkingur gekk á lag-
ið og vann þriðju hrinu 15:3 og
þá fjórðu 15:6. Vert er að geta
þess að Oddný Erlendsdóttir
átti stjörnuleik fyrir Víking og
Hrefna Brynjólfsdóttir var öflug
hjá KA.
„Þetta var mjög sveiflukennt
hjá okkur og við vissum að
KA-stelpurnar myndu gefa sig
allar í leikinn, enda síðasta
tækifæri þeirra. Okkur tókst þó
að hrista þær af okkur í lokin
og nú ætlum við að fara alla
leið og vinna titilinn,“ sagði
Björg Erlingsdóttir, fyrirliði
Víkingsstúlkna.
Reykjavíkurmótið EIS
1995 ^
Þriöjudagur 4. apríl ki. 20.00
KR - Fylkir
Gervigrasið Laugardal
BORÐTENNIS
SKIÐI