Morgunblaðið - 05.04.1995, Page 1

Morgunblaðið - 05.04.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA KORFUKNATTLEIKUR JN*trgtntMaMfe 1995 MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL BLAÐ Nökkvi Már er með sprvinginn hryggjaiiið Morgunblaðið/Kristinn Lárus Orri hetja Stoke Leikmaður mánaðarins hjá félaginu og gerði sig- urmarkið gegn Watford Nökkvi Már Jónsson, körfuknattleiksmaður úr Grindavík, verður frá keppni það sem eftir er af þessari leiktíð, og gott betur því læknar telja að sprunga sé komin í einn hryggjarlið hans. „Ég fór í sneiðmynda- töku og læknarnir telja að Nökkvl Már sprunga sé komin í einn hryggjarliðinn, nánar tiltek- ið fimmta lið,“ sagði Nökkvi Már við . Morgunblaðið í gærkvöldi. „Ég á að fara í annars konar myndatöku á föstu- daginn og ef þessi grunur læknanna reynist réttur þýðir það að ég þarf að vera með einhveija bakspelku í eina þijá mánuði,“ sagði Nökkvi. Þú ert sawt ekkert að hugsa um að hætta í körfu- knattleik? „Nei, nei, ég er ungur ennþá og læknamir gefa mér góða batavon þannig að það er engin ástæða til að hætta. Þeir segja að þetta eigi að geta gróið fullkomn- lega. Ég held að þeir setji einhverskonar fyllingarefni í þetta og þá muni ég ná mér fullkomlega,“ sagði Nökkvi. Hann meiddist und- ir lok annars úrslitaleiks Grindavikurliðsins við Njarðvíkinga í Grindavík á fimmtudag í síðustu viku. ■ Nýllðarnir / F4 Lárus Orri Sigurðsson skoraði fyrsta mark sitt fyrir Stoke í gærkvöldi, er liðið sigraði Watford 1:0 á heimavelli í ensku 1. deildinni. Sigurinn var geysilega mikilvægur, Stoke hefur verið í mikilli fallhættu en með stigunum þremur sem liðið fékk í gær er nokkuð öruggt að það heldur sæti sínu í deildinni. „Þetta var meirihátt- ar dagur — en markið var reyndar hálfgerður grís! Ég skallaði að marki eftir horn, einn vamarmannanna reyndi að hreinsa frá á línu en mistókst og boltinn fór inn. Þetta var ekkert glæsimark — en mark engu að síð- ur. Ég fer yfírleitt ekki fram í homum, en fyrir- liðinn rak mig fram í þetta eina skipti. Og þó ég hefði skorað var ég Lárus Orrl ekkert að fara aftur' fram þó við fengjum hom,“ sagði Lárus Orri í sam- tali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Fyrir leikinn tók hann á móti viðurkenningu frá aðal styrktaraðila félagsins, en hann var valinn leikmaður mars mánað- ar af fyrirtækinu. „Ég hef spilað síðustu 12 eða 13 leiki, en treysti mér samt ekki til að segja að ég sé kominn með fast sæti í liðinu. Ég hef verið heppinn vegna þess að menn hafa verið meiddir og í banni,“ sagði Lár- us Orri. Hann hefur leikið í stöðu vinstri bakvarðar í síðustu leikjum, en kvaðst vonast til að verða færð- ur aftur í stöðu miðvarðar í næstu leikjum, þar sem fyrirliðinn sem þar leikur er á leið í tveggja eða þriggja leikja bann. „Mér hefur gengið vel — betur en ég þorði að vona — í bakvarðarstöðunni en kann alltaf betur við mig inni á miðjunni." Þorvaldur melddur Þorvaldur Örlygsson hefur misst af tveimur síð- ustu leikjum Stoke vegna meiðsla. Er tognaður í læri. „Ég spilaði tvo leiki meiddur og versnaði fyrir vikið, þannig að ég ætla ekki að þyija aftur fyrr en ég verð orðinn góður af þessu. Ég get hugsanlega spilað gegn Middlesboro á útivelli á laugardaginn, en á þó ekki von á að ég verði með fyrr en næsta miðvikudag," sagði Þorvaldur í gærkvöldi. Samningur hans við Stoke rennur út í vor og landsliðsmaðurinn sagði öruggt að hann færi frá félaginu. Japanskt félag falaðist eftir honum fyrr á árinu, hann vildi slá til en Stoke vildi ekki leyfa honum að fara. Hann sagðist í gær ekki vita hvort félagið hefði enn áhuga á honum, og vildi ekki tjá sig nánar um framhaldið hjá sér eftir að samningur- inn við Stoke rennur út. Þess má geta að keppnis- tímabilið í Japan hefst 7. maí, að sögn Þorvaldar, sama dag og Stoke spilar síðasta leikinn í 1. deildinni. BREIÐABLIK úr Kópavogi varð í gærkvöldi íslandsmeistari kvenna í körfuknattleik, eftir að hafa sigrað Keflvíkinga í þriðja úrslitaleiknum í röð, 66:53, í Keflavík. Blikastúlkur urðu þar með íslandsmeistarar í fyrstu til- raun, því þetta er fyrsta keppnis- tímabilið sem þær leika í 1. deild. „Það kom aldrei annað til greina en að vinna til Islands- meistaratitilsins í okkar huga og eftir þijá erfiða leiki gegn KR urðum við enn ákveðnari hvort sem við yrðum að leik þijá eða fimm leiki við Keflavík. Þetta er búið að vera ævintýri líkast og tilfinningin að taka við og hampa bikarnum var stund sem ég mun seint gleyma," sagði Penni Pepp- as hinn bandaríski fyrirliði Breiðabliks, við Morgunblaðið eftir að sigurinn var í höfn. Hún er á myndinni hér til hliðar með bikarinn. Peppas hefur leikið mjög vel í vetur með Breiða- bliki, sérstaklega í síðustu leikj- um úrslitakeppninnar. Hún gerði 17 stig í gær, þar fjórar 3ja stiga körfur á upphafsmínútunum. Á myndinni hér fyrir ofan er Hanna Kjartansdóttir, sem var stigahæst í liði Breiðabliks í gær- kvöldi, með 22 stig. Þess má geta að Hanna og Olga Færseth, sem fögnuðu meistaratitli í gær- kvöldi, urðu íslandsmeistarar með liði Keflvíkinga í fyrra, og Olga er að auki íslands- og bikar- meistari í knattspymu með Breiðabliki. Breiðablik meistari ífyrstu tilraun! KRISTINN BJÖRNSSON STEFNIR Á HEIMSBIKARKEPPNINA NÆSTA VETUR / F2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.