Morgunblaðið - 05.04.1995, Page 4
BLAK
Nýliðamir fögnuðu
meistaratitlinum
Blikastúlkur sigraði meistara Kefla-
víkur örugglega í þremur leikjum
„ÞETTA er skemmtileg stund því þetta er fyrsti íslandsmeistara-
titillinn sem Breiðblik vinnur íefsta flokki og góður endir á keppn-
istímabilinu. Leikurinn í kvöld þróaðist líkt og ég hafði átt von
á, við lentum í smá erfiðleikum með þær í lok fyrri hálfleiks en
settum fyrir þann leka i þeim síðari og dæmið gekk upp,“ sagði
Sigurður Hjörleifsson þjálfari Breiðabliks úr Kópavogi eftir að
lið hans hafði tryggt sér íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik
kvenna með sigri, 66:53, gegn Keflavík í Keflavík í gærkvöldi.
Þetta var þriðji leikur liðanna og sigrðu Blikastúlkur — nýliðarnir
í 1. deild — afar sannfærandi íþeim ölliim.
Blöndal
skrifarfrá
Keflavík
Blikastúlkumar komu mun
ákveðnari til leiks og eftir 10
mínútur höfðu þær náð 10 stiga
forskoti 13:23. Á
Björn þessum mínútum
var bandaríska
stúlkan Penni Pepp-
as, sem hefur án efa
verið leikmaður úrslitakeppninnar,
í miklum ham og setti 14 stig í fímm
tilraunum. Þar af voru fjórar 3ja
stiga körfur. Á eftir fylgdi besti
leikkafli Keflavíkurstúlkna sem
náðu að minnka muninn í eitt stig,
27:28 áður en flautað var til hálf-
leiks.
En stuðningsmenn Keflavíkur
urðu fyrir miklum vonbrigðum með
sitt lið í síðari hálfleik því leikur
þess var hrein hörmung fyrstu 15
mínútumar og segja þau 4 stig sem
liðið setti á þessum tíma allt sem
segja þarf. Þegar 5 mínútur voru
til leiksloka var staðan 31:51 og
því nánast formsatriði fyrir þær að
ljúka leiknum.
„Það var alveg sama hvað við
reyndum, það gekk ekkert upp og
svona hefur þetta verið í þessum
leikjum gegn Breiðabliki. Keflavík-
urliðið hefur verið nær ósigrandi í
fjögur ár og það hlaut að koma sá
tími að illa færi að ganga,“ sagði
Sigurður Ingimundarson þjálfari
Keflavíkur.
„Blikastúlkurnar eru greinilega
uppi á réttum tíma og þær áttu
sigurinn verðskuldaðan og ég vil
óska þeim til hamingju með þennan
glæsilega árangur. Keflavíkurstúlk-
umar náðu sér ekki á strik í úrslita-
keppninni að þessu sinni. Þær náðu
aldrei að leika af þeim krafti sem
þær hafa verið að gera í vetur,“
sagði Kolbeinn Pálsson formaður
Körfuknattleikssambands íslands
sem fylgdist með leiknum.
Um leik Keflavíkur þarf ekki að
fara mörgum orðum - iiðið náði sér
aldrei á strik ef frá er talinn 10
mínútna kafli í fyrri hálfleik. Leikur
þess var lengstum máttleysislegur
og ómarkviss. Leikkerfín gengu
ekki upp og illa gekk að leika upp
á þær Önnu Maríu Sveinsdóttur og
Björgu Hafsteinsdóttur sem hafa
verið lykilmenn liðsins.
Blikastúlkumar léku vel í vöm
þá sérstaklega þær Erla Hendriks-
dóttir og Penni Peppas sem gættu
þeirra Bjargar og Önnu Maríu.
Hanna Kjartansdóttir, Olga Fær-
seth og Elísa Vilbergsdóttir voru
einnig góðar.
Morgunblaðið/Kristinn
ERLA Hendriksdóttlr úr Breiðablikl smeygir sér hér framhjá
Júlíu Jörgensen en Erla lék mjög vel f gær og hafðl góðar
gætur á Björgu Hafstelnsdóttur, stórskyttu Keflvíkinga.
Keflavík - Breiðablik 53:66
íþróttahúsið í Keflavík - íslandsmótið í körfuknattleik 1. deild kvenna - úrslit -
þriðji leikur. Breiðablik sigraði 3:0 og hlýtur Islandsmeistaratitilinn.
Gangur leiksins: 0:2, 4:13, 13:23, 19:28, 27:28, 31:51, 39:53, 43:56, 48:59, 53:66.
Stig Keflavíkur: Anna María Sveinsdóttir 16, Erla Þorsteinsdóttir 12, Björg Haf-
steinsdóttir 7, Júlla Jörgensen 6, Anna María Sigurðardóttir 6, Erla Reynisdóttir
4, Ingibjörg Emilsdóttir 2.
Stig Breiðabliks: Hanna Kjartansdóttir 22, Penni Peppas 17, Olga Færseth 12,
Elfsa Vilbergsdóttir 8, Erla Hendriksdóttir 7.
Dómarar: Jón Bender og Kristján Möller - voru ágætir.
Villur: Keflavík 1/20 - Breiðablik 4/4.
Áhorfendur: Um 400.
Kohler bjargaði Juve
KNATTSPYRNA
Titillinn
í augsýn
CHRIS Sutton gerði 22. mark
sitt í ensku úrvalsdeildinni í gær
þegar hann tryggði Blackburn
0:1 sigur á QPR í London. Black-
burn færðist skrefí nær meistar-
atitlinum, sem félagið hefur ekki
unnið síðan 1914. Manchester
United er í öðru sæti, átta stigum
á eftir Blackburn, og eiga bæði
sex leiki eftir.
Knattspyrnufræðingar segja
að Blackburn eignist ekki marga
aðdáendur þó svo liðið verði
meistari, ef það leikur eins og í
gær. Liðið lék illa gegn Everton
um helgina en sigraði samt og í
gær var greinilegt að liðið kom
á Loftus Road til að ná í eitt stig,
en heppnin var með því.
JUVENTUS og Borussia Dort-
mund, efstu liðin á Ítalíu og í
Þýskalandi, gerðu 2:2 jafntefli
í fyrri leik iiðanna í UEFA-
keppninni í gærkvöldi en liðin
áttust við f Mílanó. Á sama
tíma vann Parma lið Leverkus-
en 1:2 í Þýskalandi og stendur
vel að vígi fyrir síðari leikinn.
að var þýski vamarmaðurinn
Jiirgen Kohler sem tryggði
Juventus jafntefli gegn Dortmund
skömmu fyrir leikslok; fékk send-
ingu inn á teiginn, tók knöttinn
niður og þmmaði honum í netið
með vinstra fæti. Þessi lið mættust
í úrslitum UEFA-keppninnar 1993
og þá vann Juve 6:1 samanlagt. í
gær voru það fyrmm ieikmenn Juv-
entus, Þjóðverjarnir Stefan Reuter
og Andy Möller sem gerðu hin dýr-
mætu mörk Dortmund á útivelli,
Reuter á 7. mínútu en Möller á
þeirri sjötugustu og var það sérlega
glæsilegt, þmmuskot af 25 metra
færi. Roberto Baggio jafnaði á 25.
mínútu með marki úr vítaspymu
sem dæmd var á Martin Kree fyrir
að fella Fabrizio Ravanelli.
Moreno Torricelli, vamarmanni
Juventus, var vikið af leikvelli á
síðustu mínútu leiksins fyrir að á
gula spjaldið öðm sinni.
„Leikmenn Dortmund sýndu
hversu góðir þeir eru. Við misnotuð-
um of mörg færi eftir að okkur
tókst að jafna 1:1, en ég er nokkuð
sáttur við úrslitin,“ sagði Marcello
Lippi þjálfari Juventus eftir leikinn
og bætti því við að leikmenn sínir
gætu komið fullir sjálfstrausts til
síðari leiksins.
Parma gerði góða ferð til Þýska-
lands og vann Leverkusen 1:2. Það
var ekki neinn glæsibragur á mörk-
um Parma, þau komu bæði eftir
vamarmistök í síðari hálfleik, með
fímm mínútna millibili.
Brasilíumaðurinn Paulo Sergio
kom Leverkusen í 1:0 á 20. mínútu
en þeir Dino Baggio og Faustino
Asprilla gerði mörk Parma. Það er
því ljóst að róðurinn verður þýskum
erfiður í síðari leiknum, en Lever-
kusen hampaði UEFÁ-bikamum
árið 1988. Parma virðist á góðri
leið með að komast í úrslitaleik í
Evrópukeppni þriðja árið í röð því
fyrir tveimur ámm sigraði liðið í
Evrópukeppni bikarhafa en tapaði
í úrslitum í fyrra fyrir Arsenal.
HK á titil
að veija
| Irslitakeppnin í blaki karla
hefst í kvöld í íþróttahúsi
Hagaskóla og hefst leikurinn kl.
20. Það em Þróttur og HK sem
leika til úrslita að þessu sinni,
en HK-menn em íslandsmeist-
arar og heija því titilvörnina í
kvöld. Það lið sem fyrr sigrar í
þremur leikjum hampar íslands-
meistaratitlinum.
Liðin hafa mæst íjómm sinn-
um í vetur. HK vann fyrsta leik-
inn í haust 3:2 en síðan hafa
Þróttarar farið með sigur af
hólmi, 3:0 í einum leik og 3:1 í
tveimur. „Þetta er tvö bestu lið-
in á landinu," sagði Haukur
Valtýsson sem leikið hefur með
KA í vetur og þjálfað liðið auk
þess. „Það er ekki alveg hægt
að líta á leiki liðanna í vetur því
HK hefur ekki náð að vera með
sitt sterkasta lið gegn Þrótti.
Ég hef gmn um að HK geti
reynst Þrótti erfitt en ef Þróttar-
ar leika eðlilega eiga þeir að
vinna. Eigum við ekki að segja
að þetta fari 3-1 fyrir Þrótt,“
sagði Haukur.
Hann segir HK með sterkt
lið, miðjuskellirnir hafí reynst
KA mönnum erfiðir en það sem
vanti helst á hjá Kópavogsliðinu
sé hávörnin. „Hún gæti riðið
baggamuninn því Þróttur er með
sterkari hávörn. HK er sterkara
sóknarlið en Þróttur leikur af
meira öryggi og það hefur geng-
ið og auk þess er Þróttur með
meiri breidd.
Við í KA hefðum frekar viljað
fá Þrótt í undanúrslit en HK því
það hefði hentað okkur betur
held ég, en ég spái samt Þrótti
sigri. Eg vona líka að Þróttur
vinni því HK hefur ekki komið
vel fram í vetur að mínu mati,“
sagði Haukur Valtýsson.
KEILA
Oddaleikir
í úrslitunum
ODDALEIK þarf í undanúrslitum
fyrstu deildarinnar í keilu þar sem
Þrestir unnu KR-a, 2223:2055, í
gær og Keilulandssveitin vann PLS
2254:2250. Leikur KR og Þrasta
verður í Keiluhöllinni en hinn leikur-
inn í Mjóddinni og hefjast þeir báð-
ir kl. 20.
ÚRSLIT
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið
Fylkír-KR.....................0:3
- Hilmar Bjömsson, Guðmundur Bene-
diktsson, Mihajlo Bibercic.
Evrópukeppnin
Fyrri leikir undanúrslita UEFA-keppninnar:
Bayer Leverkusen - Parma......1:2
(Paulo Sergio 20.) - (Dino Baggio 48.,
Faustino Asprilla 53.) 21.500
Juventus - Borussia Dortmund..2:2
(Roberto Baggio 25. vsp., Jurgen Kohler
88.) - (Stefan Reuter 7., Andy Möller 70.)
80.000
England
Crystal Palace - Aston Villa...0:0
12.606
QPR - Blackburn................0:1
(Sutton 67.) 16.508
1. deild:
Bumiey - Charlton..............2:0
Luton - Wolves.................3:3
Stoke-Watford..................1:0
Skotland
Partick - Hearts...............3:1
Handknattleikur
Undanúrsiitin hófust f Svíþjóð f gær en þau
lið sem fyrr sigra í tveimur leikjum komast
í úrslit, en þar þarf að sigra 1 þremur.
Drott - Savehof..................34:32
■Eftir tvær framlengingar
Redbergslid - Skovde.............23:20