Morgunblaðið - 08.04.1995, Page 8

Morgunblaðið - 08.04.1995, Page 8
8 D LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ ____________________________MENMIIMG/LISTIR____________________________ Tillögur um breytíngar á starfsemi Borgarleikhúss væntanlegar á næstunni Breytt stofn- skrá og aukin útleiga rædd Fréttaskýring Samstarfsnefnd milii Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar sem borgarstjóri skipaði í lok janúar til að yfírfara rekstur Borgarleik- hússins frá upphafi, mun skila niður- stöðum um miðjan þennan mánuð. í grein Sindra Freyssonar kemur fram að þær muni sennilega inni- halda tillögur um frambúðarskipan innan hússins sem fela í sér talsverð- ar breytingar á fyrri háttum. Kjartan Ragnarsson. Höfum verið að spila eins konar rússneska rúllettu og tekið mikla áhættu. Hjörleifur Kvaran. Ekki von á að gengið verði á hagsmuni LR nema í góðu sam komulagi við félagið. HJÖRLEIFUR Kvaran borgarlögmaður, annar fulltrúi Reykjavíkur- borgar í nefndinni, segir ljóst að Borgarleikhúsið hafi ekki verið markaðssett sem skyldi. Hugs- anlega sé ekki við Leikfélag Reykja- víkur eitt að sakast heldur borgina einnig að hafa ekki reynt að sjá til þess að svo væri gert. Menn telji að nýta mætti húsið betur og þá m.a. fyrir aðra starfsemi. í skoðun sé meðal annars að opna Borgarleik- húsið betur fyrir frjálsum leikhópum en verið hefur, en einnig sé ljóst að unnt sé að nýta húsið fyrir ýmislegt annað en leiklist. Stóra salinn mætti t.d. nýta fyrir ráðstefnur og mark- aðssetja húsið að öðru leyti til að skapa meiri tekjur til að standa bet- ur undir rekstri LR. Nú þegar hafi húsið verið leigt undir starfsemi ótengdri leiklist, t.d. aðalfundi stór- fyrirtækja. Áþekka starfsemi megi hugsanlega auka og leigja út sali þann tíma sem húsið er ekki í notk- un undir leiklist. Styrkveitingar í athugun Milli LR og Reykjavíkurborgar er í gildi stofnskrá um Borgarleikhúsið sem ekki er hægt að breyta eða rifta án samþykkis beggja. í stórum dráttum segir stofnskráin að Borg- arleikhúsið sé ætlað LR og félagið hafi úrslitavald um hvaða leiklistar- starfsemi fari inn í húsið og hver ekki. Hjörleifur segir að borgin gæti ekki þrýst á um að opna húsið fyrir öðrum leikhópum nema með breyt- ingum á stofnskránni. „Eitt af því sem verið er að skoða er hvort til greina komi að breyta stofnskránni. Við höfum einnig skoðað styrkveit- ingar Reykjavíkurborgar og hvernig þær hafa þróast á undanfömum ámm, en því er ekki að leyna að rekstur LR hefur gengið verr í nokk- ur ár en menn hefðu kosið," segir hann. Aðspurður hvort til greina komi að knýja á um breytingar á stofn- skrá með endurskoðun á styrkveit- ingum borgarinnar, segir Hjörleifur ljóst að hvergi sé kveðið á um hversu hár styrkur borgarinnar eigi að vera. Hann sé ákveðinn frá ári til árs, en aldrei hafi gerst í sögu LR að styrk- urinn hafi verið lækkaður svo hann viti og hann eigi ekki von á að til þessa ráðs verði gripið. Kjartan Ragnarsson, formaður LR, segir að þótt borgarstjóri vildi heimila fijálsum atvinnuleikhópum aðgang að Borgarleikhúsinu til jafns á við LR, væm hendur hans bundn- ar, sökum fyrrnefndrar stofnskrár. Hitt sé annað mál að endurskoðun á starfseminni í Borgarleikhúsinu sé gerð í fullri vinsemd milli LR og borgarstjóra. „Borgarstjóri tók það skýrt fram á nýliðnu málþingi um menningarmál á vegum Reykjavík- urborgar, að stöðu LR í Borgarleik- húsinu yrði ekki haggað nema með samþykki LR. Ég held því að sögu- sagnir um aukinn aðgang leikhópa að leikhúsinu séu úr lausu lofti gripnar. Þær eru þó kannski eðlilegt framhald af gagnrýni þeirri sem beindist að LR á málþinginu og í fjölmiðlum þegar fjallað var um málþingið. Sú gagnrýni er alveg eðlileg, því að bærinn er fullur af velmenntuðu og hæfileikaríku leik- húsfólki sem er ófullnægt og vill fá tækifæri," segir hann. 50-70 milljónir skort á ári Kjartan segir LR hafa alla tíð haldið því fram að samkvæmt áætl- unum um rekstur Borgarleikhúss vanti mjög mikið upp á styrkveiting- ar borgarinnar til að hægt sé að starfrækja það í fullum rekstri sem stórt atvinnuleikhús. „Þetta hefur verið einhvað sem við höfum viljað líta á sem tímabundið ástand, er þyrfti að vinna upp smám saman, en okkur hefur vantað 50-70 milljón- ir í styrk árlega. Nýr meirihluti í borgarstjórn vill skoða málið og at- huga hvort þetta sé nákvæmlega sú þróun sem á að verða og hefur hug- myndir um að borgin eigi ekki mjög mikla peninga til að leggja meira í menningu um leið og hún eigi að vera mjög áberandi í menningunni.“ Kjartan kveðst ekki eiga von á að Borgarleikhúsið verði opnað meira að öðru leyti fyrir utanaðkom- andi leiklistarstarfí en nú er, en vissulega sé ekki óhugsandi að LR myndi breyta áherslum sínum í þá veru. „Okkur er sniðinn ögn þröngur stakkur á því sviði vegna þess að við erum með samninga við Félag íslenskra leikara og fijálsir leikhópar vinna ekki samkvæmt samningum. Spumingin er því hvort sé um að ræða atvinnuleikhús með undirskrif- aða samninga við stéttarfélög lista- manna eða ekki,“ segir Kjartan. Nýir hópar gætu aukið á styrki borgar Hjörleifur minnir á að fram hafi komið hörð gagnrýni á að Borgar- leikhúsið sé eingöngu nýtt af LR. Margir aðrir leikhópar líti húsið hýru auga og fínnist eftirsóknarvert að fá þar inni fýrir starfsemi sína. „Eitt af því sem menn hafa líka viljað skoða er hvaða hópar það em og undir hvers konar starfsemi húsið hentar. Ekki er hlaupið að því að setja upp stór og mikil verk ef menn eru að tala um aðgang að stóra svið- inu. Ég geri því ráð fyrir að þeir aðilar sem þar kæmu til með að æskja eftir aðstöðu, myndu væntan- lega líka þurfa einhveija íjárhagsað- stoð. Kæmu nýir hópar inn, gæti það aukið enn frekar á styrkveitingar borgarsjóðs, enda má telja á fingrum annarrar handar þau skipti sem leik- list hafi verið rekin með umtalsverð- um hagnaði," segir Hjörleifur. Hann kvaðst ekki vilja tjá sig um hvort til greina komi að fjármála- stjórn Borgarleikhússins færist úr höndum LR og annaðhvort til borg- arinnar eða einhverra aðila sem hún myndi skipa til slíks verks. Ekki sé við fjármálastjóm að sak- ast í stórum dráttum, falli leikverk í fjárhagslegu tilliti og farið sé fram úr fjárhagsáætlun. Sem dæmi megi nefna að ef leikverk sem vonast hafi verið eftir að yrði sýnt 40 sinn- um, sé ekki sýnt nema 20 sinnum, sé það meiriháttar áfall fyrir LR. Menn viti ekki fýrirfram hveijar við- tökur áhorfenda verða, eins og t.d. sýningar á söngleiknum Kabarett leiði í ljós en þeim hefur nú verið hætt. Hjörleifur kveðst ekki eiga von á að gengið verði á hagsmuni LR nema í góðu samkomulagi við félagið. Venjulegri efnisskrá breytt? Kjartan kveðst telja sýnt að ann- aðhvort verði styrkari stoðum rennt undir starfsemi LR eins og hún hafi verið, eða að stefnunni verði að ein- hveiju leyti breytt frá LR þannig að starfsemim sem þar fari fram verði meira í samræmi við raunveru- leikann. „Umfangið gæti t.d. minnk- að að einhveiju leyti. Við höfum verið að spila eins konar rússneska rúllettu að því leyti hvað við höfum haft mikið umleikis og tekið mjög mikla íjárhagslega áhættu. Til dæm- is væri hægt að hugsa sér að ekki verði rekin venjuleg efnisskrá eins og verið hefur á vegum Leikfélags- ins og í stöðunni eru einnig ýmsir stjómunarlegir möguleikar," segir Kjartan. „Sérstaklega er það til umhugsun- ar hvort húsið geti aflað meiri pen- inga með útleigu, því að í fram- kvæmd hefur það verið svo til þessa, að þær húsaleigutekjur sem við höf- um fengið inn á húsinu hafa komið til frádráttar styrknum til okkar. Því hefur það verið beinlínis letjandi fyr- ir okkur að leigja húsið út. Við höf- um legið undir gagnrýni borgarinnar fyrir hvað við höfum verið ódugleg við afla tekna með að leigja húsið út, en jafnframt hefur það verið við- urkennt að forsendan fyrir því að við leggðum okkur mjög við það væri heldur lítil. Hver maður getur séð að það fyrirkomulag hefur verið eintóm vitleysa. Einnig hefur komið skýrt fram að borgin myndi ekki skipta sér af LR og því listræna starfi sem þar fer fram.“ Flugfélagið Loftur Boðið að setja upp Hárið í Barcelona Morgunblaðið/Kristinn BALTASAR leikstýrði einnig Hárinu hér heima og lítur á tæki- færi sitt til leikstjórnar í Barcelona sem skemmtilegt ævintýri. LEIKHÚSFYRIRTÆKI í Barcelona, Only Productions, hefur boðið Flug- félaginu Lofti að setja upp söngleik- inn Hárið á Spáni. Samningar eru því sem næst frágengnir, en eftir er að reka endahnútinn á þá, að sögn Baltasar Kormáks, leikstjóra, sem kemur til með að leikstýra verk- inu, en hann var einnig leikstjóri þess hér heima. „Tildrögin eru þau að ég fór sl. haust á fund spænsku aðilanna með efni frá sýningunni hér heima og þeir hrifust mjög af. Síðan hefur þetta þróast út í það að komast á alvöruskrið. Eftir er að ganga frá hvort ég fæ að taka aðra þá, sem stóðu að listrænni stjóm hér heima með mér, s.s. dans- eða tónlistar- stjóra, en að öðru leyti á ég von á því að þátttakendur í sýningunni verði allir spænskir. Hugsanlega verður sýningin þar þó ívið stærri í sniðum en hún var hér heima þar sem að leikhúsið sjálft er mun stærra," segir Baltasar. Hann segir verkefnið vera mjög spennandi viðfangsefni þar sem að mætast ungir listamenn frá tveimur ólíkum þjóðum. Baltasar á von á því að fara utan með haustinu og að æfingar standi yfír í hálfan annan mánuð áður en að frumsýningu kem- ur í Barcelona. Aðspurður um hvað þessi samn- ingur þýddi fyrir hann sem leik- stjóra, segir hann að án efa væri um að ræða afskaplega ánægjulegan einn og hálfan mánuð. Mér fínnst þetta mjög spennandi. Pabbi minn er alinn upp í Barcelona og ég fékk enga betri hugmynd en þá að reyna að leita uppruna míns þar sem að karl faðir minn er búsettur hér. Ég hef aldrei búið sjálfur í Barcelona, en komið þangað nokkrum sinnum. Þetta er bara eins og lítið ævintýri, sem bólgnað hefur út. Ég fékk þessa hugdettu einhvern tímann þegar ég sat niður í Gamla Bíói og nú er hún að verða að veruleika. Ég lít fyrst og fremst á þetta sem skemmtilegt ævintýri og ef maður getur farið réttu megin við núllið út úr þessu, er ég ánægður,“ segir Baltasar. Rocky Horror Söngleikurinn Hárið var frum- sýndur í Gamla Biói í júlí í fyrrasum- ar og gekk við fádæma vinsældir til áramóta að hætta varð sýningum vegna uppfærslu ópei-unnar „La Tra- viata“. Sýningar á Hárinu voru að nálgast hundrað talsins þegar þeim var hætt. Baltasar Kormákur segir að Flug- félagið Loftur stefni nú að frumsýn- ingu á öðrum vinsælum söngleik, „Rocky Horror Picture Show“ í júlí í sumar og því þurfi hann að byija á því að leikstýra því áður en hann snýr sér til Barcelona í Hárið. „Pruf- ur verða opnar öllum, líkt og fyrir- komulagið var þegar ráðið var fólk í Hárið, og komum við til með að ráða í hlutverkin að þeim loknum. Það er ekkert sjálfgefíð að þeir, sem pössuðu í hlutverk í Hárinu, henti í hlutverk í Rocky Horror. Við gefum öllum færi á að spreyta sig og veljum svo besta liðið.“ Baltasar Kormákur segir að ekki liggi fyrir hvar söngleikurinn verður sýndur, en verið sé að leita að hús- næði, sem gefi meiri möguleika en Gamla bíó og það varanlegt hús- næði, en félagið stendur nú í samn- ingaviðræðum vegna húsnæðismála.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.